Morgunblaðið - 12.03.2013, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.03.2013, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013 Á meðan margir eldri borgarar í Hafn- arfirði bíða eftir að- kallandi hjúkr- unarrými er vægast sagt dapurlegt að horfa á St. Jósefsspít- alann lokaðan eftir þá óréttlátu ákvörðun stjórnenda Landspít- alans með samþykkti velferðarráðherra að loka spítalanum. Guðbjartur Hann- esson hafði áður gefið fyrirheit um að legudeild almennra lyflækninga yrði þar haldið áfram. Og slíkt var tillitsleysið við Hafn- arfjarðarbæ, sem á eignarhlut í spítalanum, að það var fyrst í sjón- varpsfréttum sem bæjarstjóri fékk vitneskju um lokun spítalans. Það er því ekki ofmælt í ályktun sem Öldrunarsamtökin Höfn í Hafn- arfirði gerðu um þetta mál 8. des. 2011 að lokun St. Jósefsspítala er stjórnvöldum til „ævarandi skamm- ar“. Að svipta bæjarfélag með næst- um 27 þúsund íbúa öllum aðgangi að sjúkrahúsi sem þar hafði verið starfrækt af myndarskap í 85 ár er slíkt hneyksli og áfall fyrir Hafn- firðinga sem síst mátti búast við og hefur valdið réttlátri reiði og sorg bæjarbúa. Því verður að berjast fyrir opnun spítalans og krefjast af þeim, sem bjóða sig fram í kom- andi alþingiskosningum að skýra frá viðhorfi sínu til þessa máls og mikilvægis öflugrar heilsugæslu í heimabyggð. Réðu blekkingar lokun spítalans? Í Fjarðarpóstinum 10. jan. sl. er athyglisverð grein eftir Gunnhildi Sigurðardóttur, fv. yfirhjúkr- unarkonu St. Jósefsspítala. Þar kemur fram að hún minnist þess að ein af ástæðunum fyrir lokun spítalans og hann ætti því ekki lengur rétt á sér var að tæki og lækningabúnaður væri úrelt. Annað kom í ljós. Þessi tæki sem flutt voru til Landspít- alans og velunnarar höfðu gefið St. Jós- efsspítalanum reynd- ust að sögn lækna Landspítalans í mjög góðu ástandi og bættu þar úr brýnni þörf vegna vanrækslu yf- irvalda á endurnýjun tækja. Því er spurt: Réðu blekkingar um ástand tækja úrslitum um lokun St. Jós- efsspítalans? Óþarfa fjárútlát látin njóta forgangs Samkvæmt lögum hlýtur sú frumskylda að hvíla á stjórnvöldum að heilbrigðismál og hagsmunir sjúklinga hafi forgang við ráðstöfun almannafjár. Það hafa valdhafar ekki gert, þegar milljörðum er var- ið í ýmsan óþarfa og ólögbundin verkefni. Má þar t.d. nefna millj- arða í „monthúsið“ Hörpu, um- deilda umsókn í ESB, afmælisgjöf til Háskóla Íslands, 1,5 milljarðar kr., árlega 400 milljónir kr. til stjórnmálaflokka og fjárútlát og skuldbindingar vegna gæluverkefna þingmanna. Þegar litið er til slíkrar ráðs- mennsku með skattfé almennings, sem hlýtur að bitna á velferð og hagsmunum sjúklinga, verður ekki annað sagt en að óréttmætar ástæður hafi átt þátt í lokun St. Jósefsspítalans. Framtíð spítalans verður að tryggja Þeim hugmyndum sem fram hafa komið, að húsnæði St. Jósefsspítala verði notað til annars en hjúkr- unar, hljóta flestir Hafnfirðingar að vera andvígir og það er andstætt því hlutverki sem spítalanum var ætlað í upphafi. En St. Jós- efsreglan lét byggja spítalann árið 1926, hann var stækkaður 1954 og 1975 og er nú sem áður í góðu ástandi. Því má ekki gefast upp í baráttunni fyrir opnun spítalans og þá einkum í þágu aldraðra. Það veldur vonbrigðum að þing- menn skyldu ekki á sínum tíma taka lokun St. Jósefsspítalans til sérstakrar umræðu á alþingi. Og furðulegt er að öldrunarþjónusta skuli ekki sett í öndvegi hjá þeim flokkum, sem nú eiga fulltrúa á al- þingi og hversu fáa málsvara hinir öldruðu virðast eiga þar. Vita ekki þingmenn að þegar St. Jósefssystur seldu ríkissjóði og Hafnarfjarðarbæ spítalann 1987 var salan á þeim forsendum St. Jósefssystra, sem fulltrúar rík- issjóðs féllust á, að áfram yrði þar þjónusta við sjúklinga? Ástæða Hafnarfjarðar fyrir þátttöku í kaupum spítalans var að tryggja áframhaldandi sjúkraþjónustu í þágu bæjarbúa. Megi sú von rætast að aftur eigi eftir að blómstra hjúkrunarþjón- usta á St. Jósefsspítala og minn- ingin um fórnfúst starf St. Jós- efssystra lifa þar um alla framtíð. Óréttlát lokun St. Jósefsspítalans Eftir Árna Gunnlaugsson » Og slíkt var tillits- leysið við Hafnar- fjarðarbæ, sem á eign- arhlut í spítalanum, að það var fyrst í sjón- varpsfréttum sem bæj- arstjóri fékk vitneskju um lokun spítalans. Á́rni Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Þar sem ég hef unnið mikið með fötl- uðum á mínum starfsvettvangi hafa málefni fatlaðra skipt mig mjög miklu, sér- staklega aðgengi þeirra að tóm- stundum. Flest okkar geta sótt tómstundir án mikilla hindrana, þar sem aðgengi að flestum íþrótta- og menningarbyggingum er til fyr- irmyndar, en af hverju er aðgengi fyrir fatlaða í þessum byggingum ekki til fyrirmyndar? Það stendur í lögum að það megi ekki útiloka neinn hóp/einstaklinga í þjóðfélag- inu frá að sækja sér afþreyingu og tómstundir. En það er samt eins og fatlaðir séu útskúfaðir í þjóð- félaginu, hindrað að þeir geti stundar tómstundir. Það er komið árið 2013 og þótt margt hafi breyst í málefnum fatl- aðra varðandi tómstundir má margt breytast svo að fatlaðir geti stundað íþróttir, tómstundir og af- þreyingu að vild. Margar ástæður geta verið fyrir því að fatlaðir stunda ekki tómstundir sem þeir vilja sækja, t.d. hafa íþróttafélög ekki nægilegt framboð af nám- skeiðum fyrir fatlaða, mennta- stofnarnir bjóða ekki nægilegt framboð af afþreyingu og íþrótta- og menningarbyggingar bjóða ekki gott aðgengi fyrir fatlaða ein- staklinga. Það er mín skoðun að allir eigi sama rétt til að stunda og sækja sér tómstundir og afþrey- ingu, sem gefa lífinu tilgang og auka lífs- gæði einstaklings. En það er mín skoðun að í þessu „velferðarþjóð- félagi“, sem stjórnvöld hæla sér svo af að við búum í, virðist sem einstaklingar sem þurfa stuðning við að sækja sér afþreyingu og tóm- stundir séu ekki taldir þess virði að hjálpa. Svo ég spyr, viljum við lifa í þjóðfélagi þar sem enginn náungakærleikur er til staðar? Stjórnvöld verða að fara að for- gangsraða málefnum og setja meira fjármagn í málefni fatlaðra, svo að þeir geti stundað tóm- stundir sem þeir eiga rétt á, eins og aðrir einstaklingar í þessu þjóðfélagi sem við búum í. Fatl- aðir eru ekki annars flokks ein- staklingar. Tómstundir og fatlaðir Eftir Sigríði G.S. Sigurðardóttur Sigríður G. S. Sigurðardóttir » Fatlaðir virðast vera annars flokks þegar kemur að því að velja sér tómstundir. Höfundur er nemandi við Háskóla Ís- lands og stundar nám í tómstunda- og félagsmálafræði. Húsnæðisbólur hafa myndast á Íslandi og víða annars staðar á undanförnum árum. Íbúðaverð hækkar í takt við aukna eft- irspurn og aukið að- gengi að húsnæð- islánum með lágum vöxtum. Á endanum er búið að skrúfa svo upp verðið að það er ódýr- ara að byggja nýtt húsnæði en að kaupa notað. Vandamálið er svo að þegar verðbólgan eykst þá hækka lánin, sem eru tryggð með neyslu- vísitölu. Þetta er í sjálfu sér allt í lagi ef íbúðaverð myndi hækka í samræmi við verðbólguna. Vanda- málið er bara að ef laun þeirra sem eiga að borga af þessum lánum hækka ekki að sama skapi, þá á endanum lendir fólk í greiðsluerf- iðleikum. Enn verra er ef það kem- ur síðan samdráttur á íbúðamark- aði, þá lækkar verð húsnæðis, en lánin lækka ekki, heldur halda áfram að hækka. Á endanum hefur verðmæti eigna hækkað minna en uppreiknuð lán. Fólk nær því ekki að halda í við, annarsvegar að auka laun sín og hinsvegar að greiða hraðar niður en sem nemur verð- bótaaukningu lánanna. Mig undrar reyndar að það hafi ekki fyrir löngu verið komið upp húsnæðiskerfi á Íslandi þar sem all- ir geti keypt sitt eigið húsnæði. En það eru nokkrir þættir sem þyrfti að laga til að slíkt gæti gengið upp. Það er vel hægt að koma slíku kerfi á laggirnar. Það er mjög ein- kennilegt að það skuli vera þrenns konar mismunandi opinbert verðmat á fasteignum. Þ.e.a.s. fasteignamat, brunabótamat og markaðsverð. Hvað af þessu er hið raunveru- lega verðmæti? Er það ekki það sem það kost- ar að byggja hús- næðið? Með einu sam- ræmdu mati (sem við getum kallað húsnæð- ismat) væri hægt að komast hjá húsnæðisbólum, því húsnæðisverð myndi alltaf leita í það verð sem væri næst kostn- aðarverði, því með lögbindingu lánshlutfalls í hámark 100% af þessu samræmda mati verða bank- ar að taka veð í einhverju öðru en húnsæðinu. Það er líka áhættu- sækni að kaupa húsnæði á helmingi hærra verði en sem nemur bruna- bótamati. Ef húsið brennur fæst aldrei meira en helmingurinn borg- aður af húsinu. Eigandinn situr því uppi með áhættu af veðsetningu sem er hærri en nemur raunveru- legu verðmæti hússins, ef það er byggt upp á nýtt. En auðvitað verður alltaf til markaðsverð og þeir sem eiga pen- inga munu kaupa húsnæði á hærra verði. En það mun ekki hafa áhrif á lánamarkaðinn og veðsetningu. Það mun þá alltaf verða til innistæða fyrir húsnæðisbólum, nema að fjár- málastofnanir gerist óvarlegar í út- lánum og láni án veða. Með slíkum lögum myndi fólk aldrei skulda meira en 100% af verðmæti eignar og ekki væri heldur hægt að gera fjárnám umfram 100%. Af hverju er t.d. hægt að fá lán til 30 ára til íbúðakaupa og svo eftir 30 ár er aftur hægt að fá lán í sömu fasteign til næstu 30 ára, en það er ekki hægt að fá lán til 60 ára í byrj- un? Nýtt húsnæðiskerfi Með því að afnema verðtryggingu lána og lengja greiðslutíma lána í samræmi við greiðslugetu fólks, allt upp í 75 ár, og bjóða lága vexti eins og annars staðar á Norðurlönd- unum, ætti flestum að gefast tæki- færi að kaupa sitt eigið húsnæði. Hægri grænir (www.xg.is) hafa lagt fram ítarlega stefnuskrá til að leysa vandamál heimilanna og taka upp réttlátara húsnæðiskerfi þar sem enginn er skilinn útundan. Það er borgaraleg skylda okkar Íslend- inga, sem fámennrar þjóðar að sjá til þess að allir hafi þak yfir höfuðið. Það er eitt af grundvallarmannrétt- indum í fámennu landi þar sem allra veðra er von. Hvort sem það eru aldraðir, öryrkjar eða allur al- menningur þá eigum við að tryggja það að allir hafi þak yfir höfuðið. Afnemum sérhagsmunagæslu og tryggjum almenningi lágmarkskjör og mannréttindi í þessu landi. Samræmt húsnæðiskerfi Eftir Sigurjón Haraldsson »Húsnæðisbólur eru oft undanfari fjár- málakreppa. Með sam- ræmdu mati og lögbind- ingu lánshlutfalls væri hægt að komast hjá hús- næðisbólum. Sigurjón Haraldsson Höfundur er viðskiptafræðingur. LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 ER ÞÖRF Á MARGSKIPTUM GLERAUGUM? MARGSKIPT GLER -25%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.