Morgunblaðið - 12.03.2013, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þig langar til þess að gera eitthvað
sem þú ert ekki vanur í dag, eitthvað óvenju-
legt. Vertu á varðbergi og reyndu að vera í
þínu besta pússi.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú munt hafa gaman af því að kaupa
eitthvað sem eykur virðingu þína í augum
annarra. Segðu bara bless og hlutirnir gera
sig upp sjálfir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það eru skemmtilegar blikur á lofti
og ef þú heldur rétt á spöðunum geturðu átt
ánægjulega stund með þínum nánustu. Við-
urkenning frá speglinum gerir sálinni gott.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er engin ástæða til þess að láta
hugfallast þótt allt gangi ekki samkvæmt
áætlun. Þú verður beðinn um sérstakan
greiða en vinsældir þínar geta þó gert þetta
óvenju snúið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það hentar þér alls ekki að hanga heima
eins og stendur. Láttu vini þína vita hversu
mikilvægir þeir eru þér, þeir munu endur-
gjalda þér það og meira til.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt auðvelt með að laða fram það
besta í öðrum og miðla málum þegar menn
eru ekki á eitt sáttir. Nú er tekið eftir þér svo
fáðu aðra í lið með þér til þess að ná mark-
miði þínu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Að einblína á smáatriði hjálpar þér ekki
með vandamálið sem þú glímir við. Lífið er
einfaldlega þannig að þú vinnur í dag og ann-
ar á morgun.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu það ekki hafa áhrif á þig
þótt fólk í kring um þig sé með uppsteyt og
læti. Sinntu sjálfum þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Meiriháttar atvinnutækifæri kem-
ur upp. Sýndu þó umburðarlyndi því frekja og
hroki er orðið daglegt brauð allt í kringum
okkur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er yfir margan þröskuldinn að
fara til að ná því takmarki sem þú hefur sett
þér. Kröfur manna eru mismunandi og aðal-
atriðið er að vera sáttur við sjálfan sig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Alvarlegar samræður við yfirmenn
eða valdhafa af einhverju tagi beinast að
framtíðarhorfum þínum. Dagurinn í dag er
kjörinn til fasteignaviðskipta.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér hefur vegnað vel og þú nýtur virð-
ingar samstarfsfólks. En þér er alveg óhætt
að hafa meiri trú á samstarfsmönnum þínum.
Karlinn á Laugaveginum læturvel af sér í Hveragerði, saknar
þó kerlingarinnar og kjötsins, en
segist farinn að venjast grænmet-
inu – trefjarnar fara vel í maga,
bætir hann við, og hér er mikið
fugla- og dýralíf allt í kringum okk-
ur:
Ég í gær heyrði gaggið í tófunni.
Hund-garmurinn veifaði rófunni
og rak upp smá vofs,
eitt bofsara bofs
- mér best þykir spínat á góunni!
Í Bragfræði síra Helga Sigurðs-
sonar eru dæmi um 84 bragarhætti
af ætt úrkasts. Þar er þetta úrkast
úr Líkafróns rímum Sigurðar
Breiðfjörð:
Rifin allrá og ötuð föt
sá á þeim konum
huldu varla götin göt
á garmskinnonum.
„Rímur fyrir 1600“ er dokt-
orsritgerð Björns K. Þórólfssonar
og gefin út af Hinu íslenska fræða-
félagi í Kaupmannahöfn árið 1934.
Þar er margt skemmtilegt og sér-
viskulegt að finna sem gefur tilefni
til að rifja upp, að það þótti tíð-
indum sæta, þegar sá hæggengi
maður sást hlaupa á eftir stræt-
isvagni! Þar segir:
„Úrkast er úr dönsum komið.
Háttinn á Tristramskvæði vantar
ekki annað en stuðlasetningu til
þess að vera rjett úrkast stýft:
Tristran háði bardagann
við heiðinn hund.
Þar hlaut margur blóðuga und
af þeirra fund.
Þetta er frægur dansháttur og
hefur gengið víða um lönd. Hann er
kominn til Norðurlanda sunnan að,
undir honum var ort bæði á Frakk-
landi og Ítalíu.“
Björn tekur dæmi af því að
rímnaskáld geri að gamni sínu um
viðburði í sögunum. Hallur Magn-
ússon orti út af drápi Kols kropp-
inbaks:
Kroppinbakur kyrr og spakr
kraup þá niður að láði
pretta vakr og prýði slakr
prestfund ekki náði.
Hefnd er vökt en holdið dökt
haft frá stórum rentum
hann dó svo snögt að gat ei glögt
gjört sitt testamentum.
Enginn sér hvað auðnan lér
æfin trú eg svó linni
greinir ei hér hann gæfi með sér
grand fyrir sálu sinni.
Svo er Rósu lýst:
Gekk hún út með geðlegt hár
Geirmon fylgdi sprundi
andlit bjart og augun klár
og alt sem kjósa mundi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Spínat og gaggið í tófunni
Í klípu
„ÞAÐ ER RÉTT HJÁ HONUM, ÉG ER
FULLKOMNUNARSINNI. ÉG VAR TIL
DÆMIS FULLKOMLEGA ÁNÆGÐ ÁÐUR EN
VIÐ KYNNTUMST.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ ÁTTIR AÐ BIÐJA UM SMÁ VÍN MEÐ
MATNUM, EKKI SMÁ VIN!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... traustur bakhjarl.
HJÓNABANDS-
RÁÐGJÖF
HVAÐ ÆTLI
SÉ TIL Í
KVÖLDMAT?
SENNILEGA
BARA
AFGANGAR.
Á KJÖTHLEIFUR
AÐ VERA SVONA Á
LITINN?
ÉG SKAL
SÆKJA LITA-
SPJALDIÐ.
ÞETTA ERU NÚ
MEIRI VILLIMENN-
IRNIR SEM VIÐ
HÖFUM LENT Í!
EKKI VERA
SVONA FORDÓMA-
FULLUR, HRÓLFUR.
KANNSKI ER BARA VONDUR
HÁRDAGUR HJÁ ÞEIM ÖLLUM.
Helgin var viðburðarík í enskuknattspyrnunni. Það liggur svo
sem fyrir hvar meistarabikarinn
hafnar en sitthvað annað á eftir að
kljá út. Má þar nefna hvaða lið koma
til með að fylgja Manchester-
liðunum í Meistaradeild Evrópu að
ári. Liverpool hleypti spennu í þá
keppni með dramatískum sigri á
Tottenham Hotspur í frábærum leik
á Anfield. Það þýðir að Rauði herinn
eygir enn veika von um að verða í
hattinum þegar glíman um Evrópu-
bikarinn, sem ekkert enskt félag
hefur unnið oftar, hefst næsta haust.
Fróðlegt verður að sjá hvaða
áhrif tapið hefur á Tottenham sem
farið hefur á kostum undanfarnar
vikur. Staða liðsins er ennþá sterk
en stuðningsmenn Tottenham
þekkja það þó betur en margir af
biturri reynslu hvernig það er að
missa meistaradeildarsæti út úr
höndunum á elleftu stundu. Á móti
kemur að Tottenham hefur ekki áð-
ur verið með Gareth Bale í slíkum
ham.
x x x
Eftir leikinn á Anfield var skipt yf-ir á Old Trafford, þar sem Man-
chester United tók á móti Chelsea í
bikarnum. Óvenjulegt að horfa upp
á Rauðu djöflana missa niður
tveggja marka forskot og það á
heimavelli. Raunar voru þeir Fergu-
synir stálheppnir að tapa ekki leikn-
um, David de Gea varði meist-
aralega frá landa sínum, Juan Mata,
í blálokin – með tánni.
Ótrúlega flinkur að verja með fót-
unum, De Gea. Raunar mun flinkari
en með höndunum. Hann hlýtur að
hafa bakgrunn í handboltamark-
vörslu, drengurinn.
Aumingja Fernando Torres.
Keyrður í svörðinn af Rio Ferdin-
and en sýndi samt engin svipbrigði,
varð hvorki reiður né hissa. Ferdin-
and er þó ekki búinn að bíta úr nál-
inni með þann undarlega gjörning.
x x x
Á Loftus Road vann QPR sinnannan leik í röð. Er Harry
Houdini loksins kominn á kreik?
Fyrir aðeins tveimur vikum virkaði
liðið dauðadæmt en nú vantar það
bara fjögur stig til að komast úr fall-
sæti. Hver veit? víkverji@mbl.is
Víkverji
Munnur minn er fullur lofgjörðar um
þig, af lofsöng um dýrð þína allan dag-
inn. (Sálmarnir 71:8)