Morgunblaðið - 12.03.2013, Blaðsíða 38
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður
verður haldin í tíunda sinn á Ísafirði,
29. og 30. mars nk. í KNH skemm-
unni, Grænagarði. Fjölmiðlamönn-
um var boðið í kynningarferð vestur í
gær af skipuleggjendum hátíð-
arinnar og lentu þeir í rjómablíðu
eftir að hafa notið stórfenglegs út-
sýnis yfir snævi þakin fjöll. Á flug-
vellinum var haldinn stuttur blaða-
mannafundur, hátíðin kynnt og þeir
tónlistarmenn og hljómsveitir sem
koma fram í ár, 26 talsins. Má þar
nefna Bubba Morthens sem kemur
fram á hátíðinni í fyrsta sinn ásamt
hljómsveit. Aðgangur er ókeypis og
tónlistarmenn gefa allir vinnu sína
sem og fjöldi sjálfboðaliða sem að
henni kemur. Og ekki er verra að hin
árlega Skíðavika Ísfirðinga hefst 27.
mars og stendur fram yfir páska og
því hægt að renna sér á skíðum á
daginn og hlusta á góða tónlist á
kvöldin. Er hægt að biðja um meira?
Flugstöðvarfundurinn var á létt-
um nótum og fulltrúar nokkurra fyr-
irtækja, svokallaðir „foreldrar“ há-
tíðarinnar sem styrkja hana,
undirrituðu viljayfirlýsingu og var
Pétur Magnússon (jafnan nefndur
„fallegi smiðurinn“), kynnir hátíð-
arinnar, notaður sem borð við góðar
undirtektir viðstaddra. Rokkstjórinn
og smalinn Jón Þór Þorleifsson, og
þeir Kristján Freyr Halldórsson og
Hálfdán Bjarki Hálfdánarson úr
undirbúningsnefnd hátíðarinnar,
fluttu ávörp sem og bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar, Daníel Jakobsson, en
hann brá sér einnig í hlutverk skíða-
göngukennara nokkru síðar.
Í máli þeirra kom meðal annars
fram að hátíðin stæði og félli með
þátttöku tónlistarfólksins sem gæfi
vinnu sína og komust færri að í ár en
vildu, sem sýnir hversu mikilvægur
viðburður hún er orðin í tónlistarlífi
Íslendinga.
Bæjarstjórinn sagði ímynd hátíð-
arinnar ,,lopapeysu og krúttlegheit“
og benti á rokkstjórann því til stað-
festingar, klæddan íslenskri lopa-
peysu og krúttlegur með eindæmum.
Þá taldi bæjarstjórinn mikilvægt að
fram kæmi að á Ísafirði væri aldrei
vont veður og að hátíðin ætti að vera
skemmtileg og jákvæð, fjöl-
skylduskemmtun.
Tónlistarmaðurinn Mugison, einn
af stofnendum hátíðarinnar, komst
ekki á fundinn þar sem hann er á
tónleikaferðalagi með hljómsveitinni
Of Monsters and Men en hann sendi
frá sér yfirlýsingu sem Hálfdán las
upp. Að loknum lestri þótti nauðsyn-
legt að lesa hana upp aftur sökum
skrautlegs orðfæris og fá íslenska
þýðingu á yfirlýsingunni sem unnin
var út frá Mugison-íslenskri orða-
bók. Í stuttu máli óskaði Mugison öll-
um velfarnaðar og sagði að sér litist
vel á hátíðina í ár. Yfirlýsinguna má
finna á vef hátíðarinnar, aldrei.is.
Karlar féllu
Að loknum blaðamannafundi var
haldið upp í fjall. Þar brugðu fjöl-
miðlamenn sér á gönguskíði; fulltrú-
ar frá vef hátíðarinnar, Grapevine,
Stöð 2, Morgunblaðinu og Rás 2.
Enginn þeirra býr yfir mikilli
reynslu eða þekkingu á þeirri tign-
arlegu íþrótt og sást það greinilega á
fyrsta rennsli. Blaðamaður Morg-
unblaðsins renndi sér þó áfallalaust
dágóðan spöl og taldi sig hafa náð
tökum á tækninni. Að lokinni æfingu
var blásið til fjölmiðlakeppni í skíða-
göngu og kárnaði þá heldur gamanið.
Var fjölmiðlamönnum skipt í lið eftir
kynjum og sá sem hér ritar í liði með
fulltrúum Rásar 2 og vefjar hátíð-
arinnar. Töldu karlarnir sigurinn vís-
an, þeir myndu bursta kerlingarnar
en annað kom á daginn. Konurnar
sigldu hægt en örugglega í mark en
karlarnir duttu allir í snjóinn.
Fulltrúi Rásar 2 komst með naum-
indum aftur á fætur og niðurlæging
karlaliðsins var alger. Til að bæta
gráu ofan á svart var keppnin skrá-
sett ítarlega af kvikmyndatökumanni
Stöðvar 2. Skal leitað hefnda að ári,
gefist þess kostur. Rjóð í kinnum
hélt hersingin svo á Hótel Ísafjörð og
snæddi þar dýrindis hádegisverð.
Fjölbreytni lykilatriði
Jón Þór hefur gegnt stöðu rokk-
stjóra í þrjú ár og segir hann leyni-
lega nefnd setta upp á hverju ári til
að velja hljómsveitir og tónlist-
armenn á hátíðina.
„Það er erfitt að velja. Við fáum
gríðarlega margar umsóknir og svo
auðvitað kemur fyrir að við hringjum
í suma og spyrjum hvort þeir vilji
vera með,“ segir Jón Þór. ,,Við vilj-
um fá fjölbreytni og tengja þetta
vestur, fá heimamenn til þess að
spila. Okkur finnst það vera einn til-
gangur hátíðarinnar að ungu böndin
sem eru að byrja fái tækifæri til að
spila hér með Mugison og Bubba
Morthens, fái tuttugu mínútur til að
spila eins og þeir. Þannig verði allir
jafnir, þekktum og óþekktum gert
jafnhátt undir höfði.
– Þið hljótið að vera sáttir við það
að hátíðin sé komin á þann stall að þó
svo að menn þurfi að gefa vinnu sína
þá keppast þeir um að fá að koma
fram á henni?
,,Já, og fólki finnst þetta rosa gam-
an,“ svarar Jón Þór. Það sé ekki
rukkað inn á hátíðina og kosturinn
við það sé að fólk geti ekki verið
heimtufrekt. ,,Ef þú fílar ekki hljóm-
sveitina sem er að spila þá gerir það
ekkert til því hún spilar bara í 20
mínútur og síðan kemur kannski
hljómsveitin sem þú ert að bíða eftir.
– Og ykkur hefur gengið vel að fá
kostunaraðila?
„Já, það hefur gengið vel og er
mikilvægt. Það er svo mikill skiln-
ingur hjá þeim sem við köllum for-
eldra okkar, bakhjörlunum, að vera
með því þeir vita að þetta fer beint í
hátíðina. Við erum mjög heppin með
þá sem eru með okkur,“ segir Jón
Þór en mikill fjöldi fyrirtækja styrkir
hátíðina.
,,Það er auðvelt að selja þetta, það
er ekkert vesen, ekkert falið og þetta
er orðið vörumerki sem við verðum
að passa upp á. Við getum ekki selt
þetta ódýrt heldur, fyrirtæki skilja
alveg að það er gott að tengja sig við
hátíðina. Þetta er fjölskylduhátíð og
hefur verið blessunarlega laus við
fyllirí og vitleysu.“
Skíði á daginn, tónlist á kvöldin
Morgunblaðið/Helgi Snær
Undirritunin Magnús Kristjánsson skrifar undir stuðningssamning á baki
Péturs Magnússonar. Jón Þór Þorleifsson, rokkstjóri og smali, fylgist með.
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin 29. og 30. mars 26 hljómsveitir og Bubbi Mort-
hens kemur fram á hátíðinni í fyrsta sinn Fjölmiðlamenn kepptu í kynjaskiptri skíðagöngu í gær
Sigurvegarar Sveitina skipuðu þær Sigríður
Elva Vilhjálmsdóttir, Stöð 2, Rúna Esradóttir rit-
stjóri Aldrei.is og Anna Andersen frá Grapevine.
Fall Fulltrúi Rásar 2,
Ólafur Páll Gunnarsson,
í göngubrautinni.
Tilþrif Blaðamaður
Morgunblaðsins tekst á
við þyngdaraflið.
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
ER ÞÖRF Á
MARGSKIPTUM
GLERAUGUM?
MARGSKIPT
GLER
-25%
Abbababb
Blind Bargain
Borkó
Bubbi Morthens
Dolby
Duro
Feares
Futuregrapher
Hörmung
Jónas Sig.
Langi Seli og Skugg-
arnir
Lára Rúnars
Monotown
Mugison
Ojba Rasta
Oyama
Prinspóló
Ragga Gísla og Fjalla-
bræður
Rythmatik
Samaris
Sin Fang
Skúli mennski
Sniglabandið
Stafrænn Hákon
Valdimar
Ylja
Þeir sem koma fram
FJÖLDI LISTAMANNA LEIKUR Á ALDREI FÓR ÉG SUÐUR 2013