Morgunblaðið - 12.03.2013, Page 44
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 71. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Lengsti morgunninn í lífi mínu
2. Strætóbílstjórinn fannst látinn
3. Sigmundur Davíð kýldur á balli
4. Ekki eina marmaramálið
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Dísella Lárusdóttir sópransöng-
kona þreytir um þessar mundir frum-
raun sína á sviði Metropolitan-
óperunnar í New York, þar sem hún
fer með lítið hlutverk í óperunni Fran-
cesca da Rimini eftir Ítalann Ricc-
ardo Zandonai (1883-1944). Sýningar
hófust í síðustu viku.
Umrædd ópera er sjaldheyrð og
hefur t.d. ekki verið sýnd á Metropol-
itan í liðlega aldarfjórðung. Gagnrýn-
endur eru ekki yfir sig hrifnir af tón-
listinni en ausa lofi á leikmynd og
búninga. Bein útsending verður frá
Metropolitan í Sambíóinu í Kringl-
unni nk. laugardag, 16. mars kl. 16.
Dísella, sem er dóttir Lárusar heitins
Sveinssonar trompetleikara og Sig-
ríðar Þorvaldsdóttur leikkonu, hefur
áður verið til vara í nokkrum hlut-
verkum hjá óperuhúsinu.
Dísella í beinni frá
Metropolitan
Sigur Rós lauk tæplega mánaðar
ferðalagi um Evrópu með tvennum tón-
leikum í Brixton Academy í London í
lok síðustu viku. Þessi evrópski þáttur
er hluti af langri heimsreisu sem held-
ur áfram í lok þessa mánaðar í Vestur-
heimi.
Dómar um tónleikana
hafa birst í nokkrum fjöl-
miðlum; síðdegisblaðið
Evening Standard í Lond-
on gaf þeim fimm stjörn-
ur af jafnmörgum
mögulegum, en í
Financial Times
og The Times
fékk sveitin
þrjár stjörn-
ur.
Sigur Rós fær fína
dóma í Englandi
Á miðvikudag Suðaustan og austan 3-8 m/s. Dálítil slydda eða
snjókoma S- og V-lands og hiti um frostmark, frost 0 til 5 stig.
Á fimmtudag Austan og síðar norðaustan 8-15 m/s, hvassast
norðvestantil og við suðausturströndina. Snjókoma með köflum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg breytileg átt, dálítil él norðan-
og austantil en dálítil snjókoma eða slydda um vestanvert landið.
VEÐUR
Einar Jónsson, þjálfari
karlaliðs Fram í handknatt-
leik, hefur nú til skoðunar
tilboð frá norska félaginu
Molde um að taka við þjálf-
un kvennaliðs félagsins í
handknattleik. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins
var Einar í heimsókn hjá
Molde um nýliðna helgi og
hefur í hyggju að gefa félag-
inu svar, hvort hann hrökkvi
eða stökkvi, fyrir lok þess-
arar viku. »1
Fer Einar til
Noregs í sumar?
Kári Kristján Kristjánsson, landsliðs-
maður í handknattleik og leikmaður
þýska liðsins Wetzlar, gekkst undir
aðgerð á dögunum þar sem fjarlægt
var góðkynja æxli
úr baki leikmanns-
ins. Hann útilokar
ekki að geta verið
með íslenska
landsliðinu í
leikjunum
tveimur
gegn
Slóven-
um í
undan-
keppni EM
sem fram
fara í næsta
mánuði. »1
Góðkynja æxli fjarlægt
úr baki Kára Kristjáns
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, lands-
liðsþjálfari kvenna í knattspyrnu,
sagðist merkja framfaraskref frá síð-
ustu tveimur leikjum hjá íslenska
landsliðinu í tapleiknum við Kínverja,
1:0, í Algarve-bikarnum í Portúgal í
gær. Á morgun mætir íslenska lands-
liðið Ungverjum í lokaleiknum á
mótinu en þjóðirnar bítast um níunda
sætið í mótinu. »4
Þriðja tapið á Algarve –
Ungverjar á morgun
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Spunaspil og fantasíur nefnist vin-
sæll valkúrs í ensku 433 sem stendur
nemendum í Verzlunarskóla Íslands
til boða. Hlutverkaspil eru notuð
sem útgangspunktur í kennslunni,
þá lesa nemendur einnig fantasíu-
bækur og vísindaskáldsögur; að
sjálfsögðu á ensku.
„Ég hef kennt ensku í mörg ár og
það er erfitt að finna leið til að fá þau
til að halda sig við enskuna allan tím-
ann. Þetta er vænleg leið til þess,“
segir Ármann Halldórsson, ensku-
og heimspekikennari í Versló.
Kennsluaðferðin byggist á hug-
myndum Terry Gunnell, prófessors í
þjóðfræði og fyrrverandi ensku-
kennara við Menntaskólann við
Hamrahlíð til fjölda ára.
Með kennslu í gegnum leik segist
Ármann ná fram mörgum mikil-
vægum þáttum. Nefna má: sam-
skiptafærni, orðaforðinn eykst,
ímyndunaraflið örvast, þá fá nem-
endur tilfinningu fyrir frásögn;
hvernig spenna og drama myndast
og ritun eflist. „Þetta er ákveðin leið
til að tjá sig, nota tungumálið og
hreinlega vera til,“ segir Ármann.
Heimspekispil á teikniborðinu
„Ég er að hugsa um leiðir til að
þróa spilin sem tæki í heimspeki-
kennslu,“ segir Ármann.
Sem dæmi nefnir hann að í sið-
fræðikennslu yrði sett upp tiltekið
vandamál sem yrði leyst í gegnum
hlutverkaleik. Þar
myndi nemandinn
gegna ákveðnu hlut-
verki og yrði settur í
kringumstæður sem
hann tækist á við.
„Að þessu loknu
yrði hægt að nota
þetta sem mjög
frjóan undirbúning
í því hvernig sið-
ferðilegar ákvarðanir eru teknar.
Hvað er karakterinn að hugsa í til-
teknum aðstæðum og svo framvegis.
Ég sé þann vinkil að nota spilin sem
spennandi flóru út frá því,“ segir
Ármann.
Hann bendir á að með því að leika
fólk í tilteknum aðstæðum næst
fram annað sjónarhorn en það sem
fæst með því að lesa um það ein-
göngu í bók.
„Í raun og veru væri hægt að nota
spil í heimspeki í öðrum kennslu-
greinum, örva skilning, áhuga og
gera námið skemmtilegt. Spennandi
viðbót við verkfærakistu kennar-
ans,“ segir Ármann að lokum. Hann
heldur erindi á fræðslufundi Félags
heimspekikennara á morgun kl. 20 í
Verzlunarskóla Íslands.
Spunaspil og fantasíuheimur
Þróar spil og
hyggst nota í
heimspekikennslu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kennslustund Nemendur í enskukúrsinum Spunaspil og fantasíur í Versló, Sveinbjörn Hávarsson, Hlynur Snær
Hilmarsson og Þórarinn Óðinsson, yfir þeim vofir Ármann Halldórsson, ensku- og heimspekikennari.
Hlutverkaspilið „Dungeons and
Dragons“ útleggst á íslensku
Drekar og dýflissur og kom fyrst
út árið 1974.
Hægt er að spila það á marga
vegu en almennt séð er það einn
sem stjórnar sögunni og hver leik-
maður er með persónublað.
Stjórnandinn mælir fyrir um hvað
þurfi að gera, hvaða verkefni
þurfi að leysa o.s.frv.
Ef nemendur spiluðu leik-
inn í heimspekilegu samhengi
myndi sá sem stjórnar sögunni
koma leikmönnum í siðferðislega
klípu. Þannig mætti hugsa sér að
leikmennirnir stæðu frammi fyrir
ákveðnum háska og þyrftu að velja
um hvort þeir bjargi eigin skinni
eða hjálpi einhverjum öðrum. Þeir
þyrftu alltaf að haga sér í sam-
ræmi við þá persónu sem þeir
leika því hver persóna hefur til-
tekin einkenni.
Styrkir raunveruleikann
HLUTVERKALEIKURINN DREKAR OG DÝFLISSUR