Morgunblaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
Fermingargjöfin
fæst í Líflandi
Lífland hefur að bjóða frábærar gjafir fyrir æsku landsins.
Vandaðar og notadrjúgar flíkurmeð klassísku sniði.
Fatnaður fyrir unga hestamenn, beisli, hnakkar og aukahlutir í úrvali.
Lífland verslun Akureyri | Lónsbakka 601
Akureyri | sími 540 1150
Lífland verslun Reykjavík | Lynghálsi 3
110 Reykjavík | sími 540 1125
www.lifland.is
Fulltrúar embættis ríkisskattstjóra
sögðu á fundi með efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis á þriðjudag, að
skatthlutföll hefðu hækkað og því væri
freisting til undanskota meiri en áður.
Slíkt væri að jafnaði skýring gjaldenda
þegar komist hefði upp um undanskot.
Þetta kemur fram í svari ríkisskatt-
stjóra við fyrirspurn Björns Vals
Gíslasonar, þingmanns VG og for-
manns fjárlaganefndar Alþingis, um
hvað hefði komið fram á fyrrgreindum
fundi.
Í svarinu, sem Skúli Eggert Þórð-
arson ríkisskattstjóri og Aðalsteinn
Hákonarson, sviðsstjóri eftirlitssviðs
embættis ríkisskattstjóra, skrifa und-
ir, segir m.a. að á fundinum hafi verið
rætt um skattskil almennt og hvort
þau væru að versna. Spurning hafi
komið um það frá Guðlaugi Þór Þórð-
arsyni alþingismanni, hvaða vísbend-
ingar væru um það. Sömuleiðis hafi
verið spurt um mannafla í skatteftir-
liti.
„Í svari okkar kom fram að pen-
ingamagn í umferð hefði aukist, sér-
stakt eftirlitsátak sumrin 2011 og
2012 (vel á þriðja þúsund heimsóknir)
benti til að umfang svartrar atvinnu-
starfsemi hefði aukist, virðisauka-
skattsskil virtust hafa versnað að
mati fjármálaráðuneytisins og þetta
allt benti til að umfang skattaundan-
skota væri að aukast. Í orðræðunni
sem þarna fór fram var talsvert rætt
um flækjustig skattframkvæmdar-
innar. Í okkar máli kom fram að
skatthlutföll hefðu hækkað og því
væri freisting til undanskota meiri
en áður og slíkt væri að jafnaði skýr-
ing gjaldenda þegar komist hefði
upp um undanskot. Við vorum að
sjálfsögðu ekki að réttlæta það held-
ur greindum frá þeim sjónarmiðum
sem heyrðust frá gjaldendum og
víðar í samfélaginu hvað þetta varð-
ar. Ríkisskattstjóri tekur að sjálf-
sögðu ekki undir afstöðu gjaldenda
hvað þetta varðar.
Á sama fundi kom fram fyrir-
spurn um hvort ekki væri ástæða til
að einfalda skattkerfið – væntan-
lega í víðasta skilningi þess orðs.
Undir það tókum við en bentum
m.a. á að margar tillögur og laga-
frumvörp sem fram hefðu komið á
Alþingi síðustu ár væru til þess fall-
in að flækja skattheimtu og nefnd-
um nýleg dæmi,“ segja þeir Skúli
Eggert og Aðalsteinn.
gummi@mbl.is
Aukin freisting til undanskota
Skýring gjaldenda á skattaundanskotum oftast sú að skattar hafi hækkað
Ástæða til að einfalda skattkerfið að mati embættis ríkisskattstjóra
Morgunblaðið/Ómar
Á Alþingi Þingmenn spurðu embættismenn ríkisskattstjóra um skattkerfið,
undanskot frá skatti og hvort skattskil væru að versna.
Vísindamenn Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss og Rannsóknarstöðvar
Hjartaverndar hafa birt vísindagrein
í vísindatímaritinu Stroke, sem leiðir
í ljós að tengsl eru á milli hjartasjúk-
dómsins gáttatifs, minnkaðs heila-
rúmmáls og minnisskerðingar.
Rannsóknin, sem hefur vakið at-
hygli, sýnir að þessi tengsl eru óháð
því hvort viðkomandi hafi fengið
heilablóðfall með heiladrepi.
Í rannsókninni var skoðaður 4.251
þátttakandi í öldrunarrannsókn
Hjartaverndar. Meðalaldur þeirra
var 76 ár. Vilmundur Guðnason, pró-
fessor og forstöðulæknir Hjarta-
verndar, stóð fyrir rannsókninni
ásamt Davíð O. Arnar hjartasér-
fræðingi.
Í ljós kom að þátttakendur með
gáttatif höfðu
minni heilavef í
samanburði við þá
sem ekki höfðu
gáttatif. Sam-
bandið var sterk-
ara eftir því sem
byrði hjartslátt-
aróreglunnar var
meiri og því
lengra sem liðið var frá því að gátta-
tif greindist fyrst.
Gríðarlegur kostnaður
Gáttatif er hjartsláttartruflun sem
stafar af truflunum á rafboðum frá
efri hólfum hjartans og er heilablóð-
fall alvarlegasti fylgikvilli þess. Vil-
mundur segir að afleiðingarnar sem í
ljós koma í þessari rannsókn megi
orða sem svo að hjartað nái ekki að
dæla nægilega miklu blóði upp í heil-
ann, sem veldur súrefnisskorti.
Niðurstöðurnar þykja ekki síst at-
hyglisverðar í ljósi þess að önnur ís-
lensk rannsókn eftir sömu höfunda
sem birt var árið 2011 spáir líklegum
faraldri þessa sjúkdóms. Gríðarlegur
kostnaður fylgir honum, bæði vegna
innlagna á sjúkrahús og kostnaðar á
lyfjum, en áætlað er að rúmlega 1%
kostnaðar í heilbrigðiskerfum vest-
rænna þjóða sé tilkomið vegna gátta-
tifs og fylgikvilla þess.
Vilmundur segir niðurstöðurnar
auka enn frekar mikilvægi þess að
meðhöndla gáttatif því í stórum hluta
tilfella sé hægt að endurheimta eðli-
legan hjartsláttartakt, s.s. með lyfj-
um. omfr@mbl.is
Sýna að gáttatif í hjarta
tengist minnisskerðingu
„Vonandi fæ ég
einhverjar fréttir
og svör annað
kvöld [í kvöld].
Ekki frá fimmta
aðila heldur
beint frá þeim
fyrsta og á ís-
lensku, þá er
ekkert verið að
skafa af hlut-
unum eða fela
neitt,“ segir Þóra Birgisdóttir, sam-
býliskona Davíðs Arnar Bjarnason-
ar sem situr í fangelsi í Tyrklandi
vegna gruns um fornminjasmygl.
Hittir Davíð vonandi í dag
Fulltrúi íslenska utanríkisráðu-
neytisins hélt af stað til Antalya í
Tyrklandi í gær til að freista þess
að ná tali af Davíð og þrýsta á að
mál hans verði tekið fyrir fyrr.
Þóra hefur fengið þær upplýs-
ingar að búast mætti við að mál
hans yrði ekki tekið fyrir fyrr en
eftir tvær til þrjár vikur. Ekki hef-
ur verið gefin út dagsetning á fyr-
irtöku máls Davíðs. „Ég veit ekki
hvernig þetta dómskerfi virkar hjá
þeim en mér finnst skrítið að fá
ekki að vita hvenær maður fer fyrir
dómara,“ segir Þóra.
Ræðismaður Íslands í Ankara í
Tyrklandi, dr. Selim Sarıibrahi-
moglu, telur að Davíð verði að öll-
um líkindum látinn laus gegn
greiðslu tryggingar, samkvæmt
þeim upplýsingum sem hann hafi
fengið frá dómstólum.
„Ef ég á að vera hreinskilin þá
er ég ekki vongóð. Í upphafi var
búið að fylla mann af miklum vænt-
ingum og vonum en ég hef ekki
enn fengið að heyra í honum,“ seg-
ir Þóra.
Allslaus í fangelsinu
„Hann er allslaus þarna. Það er
verið að vinna í því að gera honum
þessar vikur bærilegar,“ segir
Þóra.
Fulltrúi íslenska utanríkisráðu-
neytisins mun útvega Davíð allra
nauðsynlegustu hluti eins og fatnað
og vasapening, þá hafði hann með-
ferðis bréf og myndir frá Þóru og
börnum þeirra.
Stofnaður hefur verið styrktar-
reikningur til handa Davíð Erni og
unnustu hans. Að honum standa
þau Stefán Hrafn Ólafsson og Ósk
Ágústsdóttir. Þau benda áhugasöm-
um á reikningsnúmerið 0322-13-
129886 og kennitalan er 101281-
3969.
annalilja@mbli.is thorunn@mbl.is
Vonast eftir
fréttum af
Davíð í dag
Davíð Örn
Bjarnason
Ekkert liggur
fyrir um fyrirtöku
Slippurinn setur óneitanlega svip sinn á um-
hverfi Reykjavíkurhafnar. Erlendir ferðamenn
heimsækja hafnarsvæðið mikið og margt sem
dregur þá á þessar slóðir. Oft má sjá útlendinga
mynda starfsemina í Slippnum í gríð og erg. En
Slippurinn er ekki aðeins myndaefni útlendinga
heldur sækja erlendir skipaeigendur þangað
með skip sín. Um þessar mundir er unnið þar við
viðhald á rússneskum togara.
Morgunblaðið/Ómar
Alltaf nóg að gera í Slippnum við Reykjavíkurhöfn
Listaverk leynast víða í höfuðborginni og litadýrðin tekur á sig ýmsar myndir