Morgunblaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þýsku kvikmyndadagarnir verða alltaf vinsælli með hverju árinu, en þetta er þriðja árið sem þeir eru haldnir,“ segir Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, um samnefnda kvikmyndaveislu sem hefst í dag og stendur til 24. mars nk. Að dögunum standa Bíó Paradís og Goethe-Institut í Dan- mörku í samstarfi við m.a. sendiráð Þýskalands. „Að þessu sinni bjóðum við upp á sjö nýjar myndir sem eru þver- skurður af því besta sem þýskt bíó hefur upp á að bjóða. Allt eru þetta myndir sem vakið hafa eftirtekt og farið víða á hátíðir og jafnvel hlotið verðlaun,“ segir Hrönn og bætir við: „Það er mjög gaman að geta boðið upp á spennandi og góðar myndir sem myndu að öðrum kosti ekki rata til Íslands.“ Opnunarmyndin er Hannah Arendt í leikstjórn Margarethe von Trotta. „Hún er ein fárra kvenna í heiminum í dag af þessari kynslóð sem enn eru að gera spennandi og áhugaverðar myndir,“ segir Hrönn, en Trotta er rúmlega sjötug. „Í þessari nýjustu mynd sinni varpar hún upp svipmynd af stjórnmála- hugsuðnum Hönnu Arendt, sem var viðstödd réttarhöldin yfir nasist- anum Adolf Eichmann 1961 og skrif- aði í kjölfarið á ögrandi og áleitinn hátt um helförina út frá hugmynd- unni um illskuna. Þetta er mjög áhugaverð mynd um eðli mannsins, sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.“ Aðrar myndir hátíðarinnar eru Barbara í leikstjórn Christians Petzolds. „Hún fjallar um sam- nefndan lækni sem árið 1980 vill yf- irgefa alþýðulýðveldið. Í refsing- arskyni er hún send frá Berlín í lítinn smábæ. Þar reynir hún að að- lagast nýju umhverfi og lætur sig dreyma um betri framtíð, meðan ástmaður hennar, sem býr vestan múrsins, undirbýr flotta hennar. Þetta er mjög góð og áhrifamikil mynd. Ósýnileg eða Die Unsichtbare í leikstjórn Christians Schwochows er áhrifamikil saga úr leikhúsi. Myndin fjallar um eldraun ungrar leikkonu sem tekst á við mjög krefjandi og erfitt hlutverk sem fer að hafa áhrif á líf hennar,“ segir Hrönn. Sýn ungra leikstjóra Aðspurð segir Hrönn allar ofan- greindar myndir í dramatískari kantinum, en hins vegar sé Hótel Lux í leikstjórn Leanders Hauß- manns hreinræktuð gamanmynd. „Þetta er söguleg kvikmynd um kabarettstjörnu sem flýr Þýskaland nasismans en endar í Moskvu þar sem hann fer að taka þátt í mun- aðarlífi helstu leiðtoga kommúnista á hinu alræmda Hótel Lux líkt og enginn væri morgundagurinn.“ Að sögn Hrannar verða sýndar þrjár myndir ungra leikstjóra, sem séu mjög spennandi og ferskar. „Þar er um að ræða Þetta er ekki Kali- fornía eða This Ain’t California í leikstjórn Martins Persiels sem fjallar um þrjú ungmenni í A-Þýska- landi sem uppgötva undur hjóla- brettanna. Þetta er áhugaverð blanda heimildaefnis og sviðsettra atriða,“ segir Hrönn. Gamanmyndin Stórar stelpur eða Dicke Mädchen er í leikstjórn Axels Ranisch. „Sú mynd sló hressilega í gegn í Þýskalandi, enda skemmti- lega biluð og leikstjórinn þykir bera með sér ferskan andblæ inn í þýska kvikmyndagerð. Myndin fjallar um tvo menn sem eru að leita að móður annars þeirra, sem er elliær,“ segir Hrönn og tekur fram að segja megi að mennirnir tveir finni hvor annan í leit sinni allri. „Dreptu mig eða Töte mich í leik- stjórn Emily Atef fjallar um ung- lingsstúlku sem langar til að deyja. Hún kynnist dæmdum morðingja sem hefur strokið úr fangelsi og ger- ir við hann samkomulag um það að ef hún hjálpi honum að komast yfir landamærin þá muni hann drepa hana. Á leiðinni kemur í ljós að ekk- ert er sem sýnist og þegar samband þeirra verður sífellt nánara vaknar sú spurning hvort morðinginn muni standa við sinn hluta samkomulags- ins,“ segir Hrönn. Þess má að lokum geta að allar verða myndirnar sýndar með ensk- um texta. Allar nánari upplýsingar um sýningartíma má finna á vefn- um: bioparadis.is, en miðaverð á staka mynd er 650 krónur. „Þverskurður af því besta sem þýskt bíó býður upp á“  Þýskir kvikmyndadagar haldnir í þriðja sinn 14.-24. mars Illskan Barbara Sukowa í hlutverki sínu sem Hannah Arendt. Vinir Stórar stelpur fjallar um vináttu tveggja karlmanna. Peter Banks, gít- arleikari og einn stofnenda prog- rokksveitarinnar Yes, er látinn, 65 ára að aldri. Dánarorsök mun hafa verið hjartaáfall. Banks lést á heimili sínu í Lundúnum. Banks lék með Yes á fyrstu tveimur breiðskífum hljómsveitarinnar, Yes og Time and a Word, en hætti eftir það í hljómsveitinni vegna listræns ágreinings. Steve Howe tók þá við sem gítarleikari Yes og lék með hljómsveitinni á frægðarárum hennar. Banks lék með fleiri hljóm- sveitum á ferli sínum, m.a. Flash og Empire og gaf út fimm sólóplötur svo fátt eitt sé nefnt. Banks úr Yes látinn Peter Banks á sín- um yngri árum. Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Mary Poppins (Stóra sviðið) Fim 14/3 kl. 19:00 aukas Fös 26/4 kl. 19:00 aukas Fös 17/5 kl. 19:00 Lau 16/3 kl. 19:00 8.k Lau 27/4 kl. 19:00 Lau 18/5 kl. 19:00 Sun 17/3 kl. 13:00 aukas Sun 28/4 kl. 13:00 Mán 20/5 kl. 13:00 aukas Mið 20/3 kl. 19:00 aukas Þri 30/4 kl. 19:00 aukas Fim 23/5 kl. 19:00 Fös 22/3 kl. 19:00 9.k Fim 2/5 kl. 19:00 aukas Sun 26/5 kl. 13:00 Lau 23/3 kl. 19:00 aukas Fös 3/5 kl. 19:00 Fös 31/5 kl. 19:00 Sun 24/3 kl. 19:00 aukas Lau 4/5 kl. 19:00 Lau 1/6 kl. 13:00 Þri 26/3 kl. 19:00 aukas Sun 5/5 kl. 13:00 Sun 2/6 kl. 13:00 aukas Fim 11/4 kl. 19:00 10.k Mið 8/5 kl. 19:00 aukas Mið 5/6 kl. 19:00 aukas Lau 13/4 kl. 19:00 aukas Fim 9/5 kl. 14:00 Fim 6/6 kl. 19:00 Sun 14/4 kl. 19:00 11.k Fös 10/5 kl. 19:00 Fös 7/6 kl. 19:00 Fös 19/4 kl. 19:00 aukas Lau 11/5 kl. 19:00 Lau 8/6 kl. 19:00 Lau 20/4 kl. 19:00 aukas Sun 12/5 kl. 13:00 Sun 9/6 kl. 13:00 lokas Sun 21/4 kl. 19:00 12.k Mið 15/5 kl. 19:00 aukas Mið 24/4 kl. 19:00 Fim 16/5 kl. 19:00 Einn vinsælasti söngleikur heims, nú loks á Íslandi. Allt að seljast upp! Gullregn (Stóra sviðið) Fös 15/3 kl. 20:00 Fim 21/3 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 Mið 12/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas Þri 19/3 kl. 20:00 Fim 13/6 kl. 20:00 Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar. BLAM! (Stóra sviðið) Mið 3/4 kl. 20:00 frums Fös 5/4 kl. 20:00 3.k Sun 7/4 kl. 20:00 5.k Fim 4/4 kl. 20:00 2.k Lau 6/4 kl. 20:00 4.k Háskaleikrit sem var sýning ársins í Danmörku. Aðeins þessar sýningar! Mýs og menn (Stóra sviðið) Fös 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 1/6 kl. 20:00 aukas Sun 9/6 kl. 20:00 lokas Sun 26/5 kl. 20:00 aukas Sun 2/6 kl. 20:00 aukas Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar. Ormstunga (Nýja sviðið) Fim 14/3 kl. 20:00 Lau 23/3 kl. 20:00 Lau 13/4 kl. 20:00 Lau 16/3 kl. 20:00 Fös 5/4 kl. 20:00 Sun 14/4 kl. 20:00 lokas Mið 20/3 kl. 20:00 Fim 11/4 kl. 20:00 Fös 22/3 kl. 20:00 Fös 12/4 kl. 20:00 Íslendingasagan sem er ekki eins leiðinleg og þú heldur. Aðeins þessar sýningar. Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið) Mið 24/4 kl. 20:00 19.k Lau 27/4 kl. 20:00 Fös 3/5 kl. 20:00 Fim 25/4 kl. 20:00 20.k Þri 30/4 kl. 20:00 Lau 4/5 kl. 20:00 Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Örfáar aukasýningar í apríl og maí. Tengdó (Litla sviðið) Fim 14/3 kl. 20:00 10.k Sun 14/4 kl. 20:00 19.k Lau 11/5 kl. 20:00 Fös 15/3 kl. 20:00 aukas Fim 18/4 kl. 20:00 aukas Fim 16/5 kl. 20:00 Lau 16/3 kl. 20:00 11.k Fös 19/4 kl. 20:00 aukas Fös 17/5 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 12.k Lau 20/4 kl. 20:00 20.k Lau 18/5 kl. 20:00 Fim 21/3 kl. 20:00 13.k Sun 21/4 kl. 20:00 21.k Fim 23/5 kl. 20:00 Fös 22/3 kl. 20:00 14.k Mið 24/4 kl. 20:00 22.k Lau 25/5 kl. 20:00 Lau 23/3 kl. 20:00 aukas Fim 25/4 kl. 20:00 aukas Sun 26/5 kl. 20:00 Sun 24/3 kl. 20:00 15.k Lau 27/4 kl. 20:00 23.k Fös 31/5 kl. 20:00 Fös 5/4 kl. 20:00 16.k Fös 3/5 kl. 20:00 24.k Lau 1/6 kl. 20:00 Lau 6/4 kl. 20:00 17.k Lau 4/5 kl. 20:00 25.k Sun 2/6 kl. 20:00 lokas Sun 7/4 kl. 20:00 aukas Sun 5/5 kl. 20:00 Lau 13/4 kl. 20:00 18.k Fös 10/5 kl. 20:00 Grímusýning síðasta leikárs snýr aftur! Skoppa og Skrítla í leikhúsinu (Litla sviðið) Lau 16/3 kl. 13:00 Lau 16/3 kl. 14:30 lokas Leikhús með söng og dansi fyrir börn frá níu mánaða aldri. Síðustu sýningar. Mary Poppins –HHHHH – MLÞ, Ftíminn Fyrirheitna landið (Stóra sviðið) Fim 14/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 22/3 kl. 19:30 Lau 6/4 kl. 19:30 Fös 15/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 23/3 kl. 19:30 Lau 16/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 Kraftmikið nýtt verðlaunaverk! Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 17/3 kl. 13:00 Sun 7/4 kl. 13:00 Sun 21/4 kl. 13:00 Sun 17/3 kl. 16:00 Sun 7/4 kl. 16:00 Sun 28/4 kl. 13:00 Sun 24/3 kl. 13:00 Sun 14/4 kl. 13:00 Sun 24/3 kl. 16:00 Sun 14/4 kl. 16:00 Eitt ástsælasta barnaleikrit á Íslandi! Karma fyrir fugla (Kassinn) Fös 15/3 kl. 19:30 Lau 23/3 kl. 19:30 Sun 7/4 kl. 19:30 Síð.s. Lau 16/3 kl. 19:30 Fös 5/4 kl. 19:30 Fös 22/3 kl. 19:30 Lau 6/4 kl. 19:30 Síðustu sýningar! Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið ) Sun 17/3 kl. 20:30 Síð.s. Allra síðasta sýning! Englar alheimsins (Stóra sviðið) Lau 20/4 kl. 19:30 Frums. Fös 3/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 16/5 kl. 19:30 8.sýn Mið 24/4 kl. 19:30 Aukas. Lau 4/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 26/4 kl. 19:30 2.sýn Mið 8/5 kl. 19:30 6.sýn Fim 23/5 kl. 19:30 10.sýn Lau 27/4 kl. 19:30 3.sýn Fös 10/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 24/5 kl. 19:30 11.sýn Frumsýnt 20.apríl! Kvennafræðarinn (Kassinn) Fim 18/4 kl. 19:30 Frumsýning Mið 24/4 kl. 19:30 Fös 3/5 kl. 19:30 Fös 19/4 kl. 19:30 Fös 26/4 kl. 19:30 Lau 4/5 kl. 19:30 Lau 20/4 kl. 19:30 Lau 27/4 kl. 19:30 Fös 10/5 kl. 19:30 Eldfjörug sýning sem svara öllum spurningum um kvenlíkamann! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 16/3 kl. 13:30 Sun 17/3 kl. 16:30 Sun 24/3 kl. 15:00 Lau 16/3 kl. 15:00 Lau 23/3 kl. 13:30 Sun 24/3 kl. 16:30 Sun 17/3 kl. 13:30 Lau 23/3 kl. 15:00 Sun 17/3 kl. 15:00 Sun 24/3 kl. 13:30 Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka! Uppistand - Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 14/3 kl. 20:00 Fös 15/3 kl. 23:00 Fös 15/3 kl. 20:00 Fim 21/3 kl. 20:00 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Homo Erectus - pörupiltar standa upp (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 16/3 kl. 21:00 Lau 23/3 kl. 21:00 Pörupiltar eru mættir aftur! Hönnunarmars - um sköpunarkraftinn (Stóra sviðið) Fim 14/3 kl. 9:30 Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is Sinfóníuhljómsveit Íslands Örfá sæti laus Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » 528 5050 Stjórnandi: Baldur Brönnimann Einleikari: Jennifer Pike ModestMúsorgskíj: Nótt á nornagnípu HafliðiHallgrímsson: Konsert fyrir fiðlu oghljómsveit, op. 46 Hector Berlioz: Draumórasinfónían Stjórnandi: James Gaffigan Einleikari:Deborah Voigt Johannes Brahms: Serenaða í D-dúr, op. 11 Richard Strauss: Sjöslæðudansinn Richard Strauss: Lokaþáttur úr Salóme Hjördís Ástráðsdóttir kynnir verkin á tónleikum kvöldsins í tali og tónum og hljómsveitarstjórinn er sérstakur gestur. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Draumórasinfónían fim 14. mars kl. 19:30 Voigt syngur Strauss fös. 22. mars kl. 19:30 -Örfá sæti laus Tónleikakynning fim. 14. mars . kl. 18 í Hörpuhorninu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.