Morgunblaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013 við elskum skó VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND MIKIÐ ÚRVAL AF BARNA, HERRA OG DÖMUSKÓM Vertu vinur á Leðurjakki 46.890.- Tilboð 37.512,- Taska 11.690.- Tilboð 9.352,- Leðurstígvél 34.980.- Tilboð 27.912,- 20% afsláttur af öllum vörum í dag, opið til 23.00 Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Ámorgun kl. 14:00 hefststórsýning á bútasaumi ávegum Íslenska búta-saumsfélagsins, en hún fer fram í Perlunni og stendur yfir fram á sunnudag. Sýningin skiptist í tvær minni sýningar: Strand- menning og Rautt, hvítt og blátt, en félagið stendur fyrir sam- keppnum í bútasaum meðal fé- lagsmanna. Síðast hélt bútasaums- félagið yfirlitssýningu á verkum félagsfólks víðsvegar að af landinu árið 2010 á tíu ára afmæli félagsins og ætlunin er að hafa þessa sýn- ingu með svipuðu móti. Á sýningunni verður þó sú ný- breytni að bútasaumsfólk getur selt verk sín. Þar verða níu borð með söluvarningi og einnig verða þarna verslanir með vörukynningar tengdar bútasaumi. Búist er við að 30-40 einstaklingar sýni verk sín og því verður ekki að tómum kofanum komið. Hvað er bútasaumur? Bútasaumur er tegund af saumaskap og höfðar til fólks á öll- um aldri. Hann á sér sögulegar for- sendur en upphaflega var tilgang- urinn sá að nýta gömul föt og larfa og gefa þeim nýtt líf. „Menn klipptu niður gömul föt, gallabuxur og annað og bjuggu til teppi og allt mögulegt úr því,“ segir Ragnheiður Björnsdóttir sem er í sýningar- nefnd. „Það er mikið af slíku í dag, að menn nýti allt mögulegt í það að búa til listaverk úr.“ Íslenska bútasaumsfélagið var stofnað árið 2000 með 140 stofn- Bullandi bútasaumur í Perlunni um helgina Íslenska bútasaumsfélagið stendur fyrir veglegri bútasaumssýningu sem fer fram í Perlunni um helgina. Þar verður til sýnis margskonar bútasaumur í öllum stærð- um og gerðum. Fyrir þá sem hafa áhuga verður einnig hægt að fjárfesta í ein- hverjum af þessum fallegu verkum. Margskonar munstur Borghildur sýnir hér teppi með fallegu munstri. Á vefsíðu Eiðfaxa, www.eidfaxi.is, er margt skemmtilegt að skoða. Þar má m.a sjá að Hestamannafélagið Fákur býður upp á námskeið fyrir unga ný- liða, upprennandi hestamenn sem eru að stíga sín fyrstu skref í hesta- mennskunni. Á þessu nýliðanám- skeiði fá unglingar aðgang að hesti, allri aðstöðu og reiðkennara sem leiðbeinir þeim að verða betri knapar og hestamenn. Fákur skaffar hest, reiðtygi (ekki hjálm), hesthús, fóður og reiðkennara. Unglingar sem eru fæddir 1997-2000 ganga fyrir en í boði eru 12 pláss. Hver unglingur fær sinn hest og reiðtygi tvisvar í viku og hægt verður að nýta frístundakort Reykjavíkurborgar. Skráning á fakur@fakur.is. Vefsíðan www.eidfaxi.is/frettir/2013 Morgunblaðið/Heiddi Hestamennska Skemmtilegt sport fyrir alla, konur, karla og krakka. Reiðnámskeið fyrir nýliða Nú er lag að gera sér ferð á ljós- myndasýningu sem stendur yfir í Norræna húsinu og heitir Langa and- artakið eða The Long Moment. Þar getur að líta athyglisverðar ljós- myndir eftir Sarah Cooper og Ninu Gorfer. Ljósmyndir þeirra eiga sér rætur í málverkum 18. og 19. aldar og eru uppstillingar eða sviðsetningar með tilvísunum í söguna, ævintýri og goðsagnir. Sarah Cooper og Nina Gorfer móta myndir sínar eins og danshöfundar. Ljósmyndirnar eru unnar í nánu samstarfi við fólkið sem þær sýna. Hverri mynd fylgir saga sem hægt er að hlusta á í sérstökum heyrnartólum sem eru í móttöku sýningarinnar í sýningarsal í kjallara. Endilega… …kíkið á ljós- myndasýningu Á morgun, föstudag, verða hádegistónleikar í Gerðubergi kl. 12.15- 12.55 og verða tónleik- arnir endurteknir á sunnudaginn kl. 13.15- 13.55. Svava Bern- harðsdóttir lágfiðlu- leikari og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleik- ari munu flytja Þrjár rómönsur óp. 22 eftir Clöru Schumann, Passacagliu um gamalt enskt þjóðlag eftir Re- beccu Clarke, Íslensk þjóðlög í útsetningu Þorkels Sigurbjörns- sonar og Líf í tuskunni fyrir einleiksvíólu eftir Misti Þorkelsdóttur. Listrænn stjórnandi er Nína Margrét Gríms- dóttir. Óvenjulegt er að verk kventónskálda fylli meirihluta efnisskrár en þær Rebecca Clarke, Clara Schu- mann og Mist Þorkelsdóttir deila at- hygli víóluunnenda í mars með Þor- keli Sigurbjörnssyni. Víólan er oftar en ekki í samleikshlutverkinu en í höndum Svövu Bernharðsdóttur stíg- ur hún fram í sviðsljósið sem ein- leikshljóðfæri. Klassík í hádeginu hefur verið á dagskrá Gerðubergs frá árinu 2008. Boðið er upp á fjölbreytta og metn- aðarfulla dagskrá sem miðast við að gefa almenningi aðgang að klassískri tónlist og flytjendum í hæsta gæða- flokki. Efnisskrám er fylgt úr hlaði með kynningum á verkum og tón- skáldum frá fjölmörgum tímabilum tónlistarsögunnar og vonast að- standendur til að ná til sem flestra aldurshópa. Aðgangur er ókeypis. Klassík í hádeginu í Gerðubergi Verk kventónskálda fylla meiri- hluta efnisskrár Svövu og Nínu Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.