Morgunblaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 56
FIMMTUDAGUR 14. MARS 73. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. „Hélt að þetta væri löglegt“
2. „Farðu bara, lífvarðatitturinn þinn“
3. Erum íslenskir og eigum…
4. Magnús sagði upp hjá 365
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Varla líður sá dagur að ekki sé
fjallað um íslensku hljómsveitina Of
Monsters and Men í erlendum fjöl-
miðlum en hljómsveitin er nú á viða-
mikilli tónleikaferð um heiminn. List-
inn yfir væntanlega tónleika hljóm-
sveitarinnar á árinu fer sístækkandi,
eins og sjá má á vef hljómsveitar-
innar, ofmonstersandmen.com. Í
sumar heldur hljómsveitin sína
fyrstu tónleika á Norður-Írlandi á
Bushmills Live-tónlistarhátíðinni
sem haldin verður í Old Bushmills-
brugghúsinu í Antrim-héraði, 19. og
20. júní.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Leika í fyrsta sinn á
Norður-Írlandi
Grasrótin á Faktorý nefnist ný tón-
leikaröð sem hefur göngu sína í kvöld
á tónleika- og skemmtistaðnum Fak-
torý. Meginmarkmið með henni er að
gefa ungum og efnilegum hljóm-
sveitum og tónlistarmönnum tæki-
færi til að koma sér á framfæri á „al-
vöru tónleikastað í alvöru hljóðkerfi“,
eins og viðburðastjóri staðarins, Har-
aldur Leví Gunnarsson,
orðar það í tilkynn-
ingu. Hljómsveit-
irnar Kajak og
Dreamcast ríða á
vaðið og hefjast
tónleikarnir kl. 22
í kvöld. Aðgang-
ur að tónleika-
röðinni er
ókeypis.
Grasrótinni gefið
tækifæri á Faktorý
Á föstudag Norðaustan 5-13 m/s, hvassast SA- og A-lands. Dálítil
él N- og A-lands, en annars yfirleitt bjartviðri og frost 1 til 12 stig,
kaldast inn til landsins NA-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-15 m/s og allvíða snjókoma
með köflum eða él, hvassast á Vestfjörðum. Hægari víðast hvar í
kvöld og úrkomuminna. Hiti um og yfir frostmarki S- og V-til.
VEÐUR
Keflavík varð í gærkvöldi
deildarmeistari í körfu-
knattleik kvenna þegar liðið
vann helsta keppninaut
sinn um titilinn, Snæfell,
71:64 í Keflavík. Þar með
munar fjórum stigum á lið-
unum í deildinni og þann
mun getur Snæfell ekki brú-
að í þeim leikjum sem eftir
eru. Þetta er annar titill
Keflavíkurliðsins á leiktíð-
inni en fyrir skömmu varð
það bikarmeistari. »2
Fögnuður Kefla-
víkurkvenna
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari
kvennalandsliðsins í knattspyrnu,
segir að hann og leikmenn sínir hafi
verk að vinna fyrir úrslitakeppni Evr-
ópumótsins en ís-
lenska liðið lauk
þátttöku á Al-
garve-mótinu í
gær með 4:1
sigri gegn Ung-
verjum.
»3
Höfum verk að vinna
fyrir Evrópumótið
„Þetta er rosalega flott og ég er
stoltur af þessu,“ sagði Arnar Sig-
urðsson við Morgunblaðið en hann
var heiðraður á dögunum fyrir fram-
úrskarandi árangur í hinni rótgrónu
liðakeppni Davis Cup í tennis. Fékk
hann afhenta viðurkenningu frá
Alþjóðatennissambandinu sem kall-
ast „Commitment award“ en tilefnið
er 100 ára afmæli Davis Cup. »4
Arnar heiðraður fyrir
góðan árangur í tennis
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Dagana 29. mars til 1. apríl næst-
komandi verður tónlistarhátíðin
Jammin’n’Ting haldin í fjórða sinn í
þorpinu Naledi í Suður-Afríku en
að henni standa íslensk kona, Sig-
ríður Rafnsdóttir, og maður hennar
Manello Funkikora, frá nágranna-
ríkinu Lesótó.
Hátíðinni er öðrum þræði ætlað
að skapa vettvang fyrir suður-
afríska tónlistarmenn til að koma
saman og skiptast á hugmyndum
en einnig að stuðla að uppbyggingu
á svæðinu. Í næstum þrjá áratugi,
frá 1980, stóðu landeigendur á
staðnum fyrir stórum tónlist-
arhátíðum sem voru sóttar af þús-
undum gesta en þær lögðust af
þegar öll yfirbygging varð eldi að
bráð 2007.
„Þá var ekkert eftir þarna og
fullt af íbúum sem voru ekki með
vinnu, þannig að okkur datt í hug
að halda þetta sjálf. Leyfa þeim að
sjá um matsöluna og reka barinn
og við myndum koma með tónlist-
armennina inn í þetta,“ segir Sig-
ríður en Manello er plötusnúður og
vel tengdur inn í tónlistarlífið.
Ekki í hagnaðarskyni
Sigríður og Manello búa í Bright-
on á Englandi, þar sem Sigríður
lauk nýlega meistaranámi í stjórn-
un og frumkvöðlafræði. Þau kynnt-
ust þegar hún vann á gistiheimili í
Naledi 2005 og dvelja þar í um
mánuð á ári. Nokkur fjöldi ferða-
manna fer um svæðið á leið sinni til
Lesótó en Jammin’n’Ting gefur
þorpsbúum m.a. tækifæri til að
byggja upp þjónustu á staðnum.
„Konurnar í þorpinu vinna saman
og eru t.d. að byggja litla leirkofa.
Þær sjá um eldhúsið og elda mat-
inn og þann hagnað sem þær fá af
því setja þær beint í að byggja
svona hús og þá geta þær leigt þau
út á meðan hátíðin er og allan árs-
ins hring fyrir túrista sem koma á
svæðið. Þannig að það er líka verð-
mætasköpun í gangi,“ segir Sigríð-
ur.
Hátíðinni er ekki ætlað að skila
hagnaði og allur ágóði af miðasölu
fer í ferðakostnað og uppihald tón-
listarfólksins. Sigríður segir að-
standendur Jammin’n’Ting hins
vegar hafa áhuga á að efla hátíðina
og auglýsa hana í tónlistarblöðum í
Suður-Afríku til að ná til stærri
hóps. En til þess þurfi fjármagn.
Jammin’n’Ting hefur aldrei notið
stuðnings stórfyrirtækja og vegna
þess hversu óformlega er staðið að
hátíðinni – Sigríður og Manello sjá
alfarið um skipulagninguna – hafi
þau heldur ekki sótt um styrki hjá
hinu opinbera. Hins vegar efndu
þau til fjáröflunar á Kickstarter-
.com fyrir hátíðina í ár og fóru við-
tökurnar fram úr björtustu vonum.
Atvinnuskapandi músíkhátíð
Tónlistarhá-
tíðin Jammin’n’-
Ting er samstarfs-
vettvangur fyrir
suðurafríska tón-
listarmenn
Ljósmynd/Jammin’n’Ting
Músík Aðstandendur hátíðarinnar hafa hvorki sóst eftir styrkjum frá fyr-
irtækjum né opinberum aðilum en efndu til söfnunar á Kickstarter í ár.
Fjölskylda Sigríður og Manello búa
í Brighton og eiga eitt barn.
Litir Jammin’n’Ting er listahátíð og
setur sannarlega mark sitt á þorpið.
Hátíð Nafnið Jammin’n’Ting er
fengið úr þekktu reggílagi.