Morgunblaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 47
myndaframleiðandi frá 1999. Skúli æfði fimleika hjá Ármanni til 16 ára aldurs. Hann sat í stjórn Sam- bands íslenskra kvikmyndaframleið- enda í nokkur ár. Skúli hefur verið aðal framleið- andi kvikmyndanna Svartur á leik; Eldfjall; Gauragangur; Brim; Ör- stutt Jól; The Good Heart; Skrapp út; Smáfuglar; Misty Mountain; Takk fyrir hjálpið; Síðasti Bærinn; Niceland; Nói Albinói; Gemsar; Villi- ljós; Fíaskó. Myndir fyrir börn og unglinga Skúli segist meðal annars iðka golf, skíði og tennis í tómstundum. Varðandi önnur áhugamál kveðst hann til dæmis vilja stuðla að því að meira verði framleitt af vönduðum íslenskum kvikmyndum og sjón- varpsefni fyrir börn og unglinga. Fjölskylda Kona Skúla er Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir, f. 14.9. 1974, sér- fræðingur hjá utanríkisráðuneytinu. Foreldrar hennar: Þorsteinn Páls- son, f. 29.10. 1947, fyrrv. alþm., ráð- herra og sendiherra, og k.h., Ingi- björg Þórunn Rafnar, f. 6.6. 1950, d. 27.11. 2011, lögfræðingur. Stjúpdóttir Skúla er Ingibjörg Þórunn, f. 8.3. 2002. Dóttir Skúla og Aðalheiðar Ingu er María Svanfríður, f. 13.3. 2006. Systkini Skúla eru Ari Malmquist, f. 10.8. 1979; Ásta Berit Malmquist, f. 14.7. 1980, arkitekt í Kaupmanna- höfn. Foreldrar Skúla eru Svana Frið- riksdóttir 31.12. 1951 kennari, og Jó- hann Pétur Malmquist 15.9. 1949 prófessor við HÍ. Úr frændgarði Skúla Friðriks Malmquist Skúli Friðrik Malmquist Berit Gunnhild Sigurðsson húsfr. á Hólmavík Friðjón Sigurðsson sýsluskrifari á Hólmavík Svanfríður Friðjónsdóttir talsímakona Friðrik Benóný Sigurbjörnsson verkstj. í Rvík Svana Friðriksdóttir kennari Þuríður Benónýsdóttir húsfr. í Rvík Sigurbjörn Jónasson vélstj. í Rvík Kristín Bóasdóttir ljósmóðir, bróðurdóttir Bóelar, langömmu Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra Jóhann Pétur Malmquist b. í Borgargerði í Reyðarfirði Eðvald Brunsteð Malmquist ráðunautur í Rvík Ásta Thoroddsen húsfr. í Rvík Jóhann Pétur Malmquist prófessor við HÍ Regína Magdalena Benediktsdóttir húsfr. í Rvík Hildur Malmquist húsfr. í Rvík Páll Stefánsson auglýsingastj. Guðmundur Malmquist fyrrv. forstöðum. Byggðastofnunar Dóra Thoroddsen húsfr. í Rvík Birgir Bragason teiknari Skúli Thoroddsen augnlæknir í Rvík Einar Thoroddsen háls-, nef- og eyrnalæknir í Rvík Guðmundur Thoroddsen myndlistarmaður Þrándur Thoroddsen kvikmyndagerðar- maður Sigurður S. Guðmundsson alþm. og verkfr. Signý Thoroddsen sálfræðingur Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra Dagur Sigurðarson skáld Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarm. (hálfsystir samfeðra) Bolli Thoroddsen borgarverkfræðingur Skúli Thoroddsen lögfræðingur Bolli Thoroddsen framkvæmdastj. í Japan Katrín Thoroddsen læknir og alþm. Unnur Thoroddsen húsfr. í Rvík Skúli Halldórsson tónskáld Magnús Skúlason arkitekt Guðmundur Thoroddsen læknaprófessor, bróðursonur Þorvalds Thoroddsen náttúrufræðings; Sigurðar Thoroddsen landsverkfræðings, föður Gunnars Thoroddsen forsætisráðherra, og bróðursonur Þórðar Thoroddsen læknis, föður Emils Thoroddsen tónskálds Afmælisbarnið Skúli Friðrik Malmquist. ÍSLENDINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013 Guðmundur I. Guðjónsson,skólastjóri ÆfingaskólaKennaraskóla Íslands, fædd- ist þennan dag í Arnkötludal í Stein- grímsfirði á Ströndum árið 1904. Foreldrar hans voru Guðjón Guð- mundsson, bóndi í Arnkötludal og síðar kaupmaður og verkstjóri í Reykjavík, og Helga Jóhannsdóttir, bónda á Svanshóli Jónssonar. Guðmundur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Jenný Lárusdóttir frá Firði í Múlasveit og eignuðust þau tvo syni, Svavar kennara og Helga bankamann. Guðmundur og Jenný skildu en síðari kona Guðmundar var Sigurrós Ólafsdóttir frá Brim- nesgerði í Fáskrúðsfirði. Guðmundur lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1925 og stundaði nám við Tarna Folkhög- skola í Svíþjóð 1926 og Folkskole- seminariet í Uppsölum 1927. Þá sótti hann fjölda kennaranámskeiða á sín- um starfsferli til Norðurlandanna, Þýskalands og víðar. Guðmundur var kennari við Mið- bæjarskólann í Reykjavík á árunum 1928-47, og jafnframt eftirlitskenn- ari þar í skrift frá 1937. Hann kenndi við Kennaraskóla Íslands 1947-66 og var yfirkennari og síðan skólastjóri við Æfingadeild Kennaraskóla Ís- lands frá 1962 og til dánardags. Guðmundur hafði stefnumótandi áhrif á íslenska handskrift og skrift- arkennslu og á æfingakennslu kenn- aranema. Hann gaf út rit um skrift og skriftarkennslu og gaf út sjö hefti forskriftabóka á árunum 1952-53. Mikill fjöldi Íslendinga lærði að draga sómasamlega til stafs eftir þessum bókum. Þá skipulagði Guð- mundur frá upphafi og hafði umsjón með allri æfingakennslu kenn- aranema á árunum 1962-69 og lagði þar með grunninn að Æfingadeild Kennaraháskólans. Hann sinnti auk þess ýmsum fé- lagsmálum, sat m.a. í stjórn Stétt- arfélags barnakennara í Reykjavík og var ritari í Sambandi íslenskra barnakennara, sat í skólaráði og í ritnefnd Kennaratalsins. Hann lést daginn eftir að hand- ritin komu heim, 22.4. 1971. Merkir Íslendingar Guðmundur Guðjónsson 90 ára Sigríður Magnúsdóttir 85 ára Eggert Oddur Össurarson Guðmunda Guðmundsdóttir Guðni Ragnar Jónsson 80 ára Benedikt Andrésson Guðrún Jómundsdóttir 75 ára Smári Jónas Lúðvíksson 70 ára Ásthildur Bjarnadóttir Guðrún Ljósbrá Björnsdóttir Halldóra Hákonardóttir Sigurður Jónsson Sigurður Ragnarsson Svanhildur Þorkelsdóttir 60 ára Benedikt Kristjánsson Eyjólfur M. Aðalsteinsson Fróði Jónsson Guðrún Sigríður Eiríksdóttir Inga Rut Hilmarsdóttir Jón Guðmundsson Sigurður Indriðason Stella Hauksdóttir 50 ára Ágúst Guðmundsson Einar Guðni Sigmundsson Guðfinna Elín Einarsdóttir Hafdís Óskarsdóttir Hrafnhildur Sigurgísladóttir Ingunn Bragadóttir Olga Ásrún Stefánsdóttir Sigurður Árni Sigurðsson Sævar Örn Hallsson Þórður Geirsson Þröstur Theódórsson 40 ára Arnar Egilsson Freyr Geirdal Friðrik Jónsson Guðbjörg Benónýsdóttir Helgi Bernódus Sigurðsson Ingibjörg Br. Sigurjónsdóttir Ingimar Guðmundsson Ívar Smári Reynisson Ívar Þrastarson Jóna Kristín Sigurðardóttir Kolbrún Elsa Jónasdóttir Kristín Ósk Jónasdóttir Linda Sigurjónsdóttir Marek Niewinski María Rósa Einarsdóttir 30 ára Anna Maria Cybulska Arna Gunnur Ingólfsdóttir Ása Sólveig Stefánsdóttir Ásta María Einarsdóttir Daniel Kristjánsson Darius Slatkevicius Eglé Mikalonyté Emily Rose Glowacki Grzegorz Ryszard Chaberka Gunnar Sean Eggertsson Kamil Lukasz Drozd Margrét Pétursdóttir Til hamingju með daginn 30 ára William Geir lauk íþróttakennaraprófi 2007 og kennir við Nesskóla. Maki: Jóhanna Smára- dóttir, f. 1985, leikskóla- kennari. Synir: Smári Leví Willi- amsson, f. 2008, og Aron Leví Willamsson, f. 2012. Foreldrar: Þorsteinn Al- bert Þorvaldsson, f. 1956, verslunarstjóri hjá Sam- kaupum-Úrvali, og Gunn- laug Kristjánsdóttir, f. 1959, skrifstofumaður. William Geir Þorsteinsson 30 ára Hrefna ólst upp á Þórshöfn, er búsett á Álftanesi og starfar hjá KPMG. Maki: Vignir Már Garð- arsson, f. 1979, tölvu- fræðingur. Börn: Kristófer Leó Vign- isson, f. 2007, og Gabrí- ela Ósk Vignisdóttir, f. 2011. Foreldrar: Steinunn Leósdóttir, f. 1958, skrif- stofum. og Friðrik Jóns- son, f. 1957, sjóm. Hrefna Friðriksdóttir 30 ára Sólveig ólst upp í Reykjavík, lauk B.Ed.-prófi frá KHÍ 2008 og er kenn- ari í Reykjavík. Maki: Jón Heiðar Hann- esson, f. 1983, vélfræð- ingur. Börn: Steindór Sólon, f. 2004, Ísold Svava, f. 2009. Foreldrar: Svavar Krist- insson, f. 1961, rafvirki, og Anna Steindórsdóttir, f. 1963, sjúkraliði. Þau eru búsett í Reykjavík. Sólveig María Svavarsdóttir Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Þar sem gæðagleraugu kosta minna ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS SJÓNARHÓLL gleraugu á verði fyrir ALLA Mikið úrval umgjarða• fisléttar og sterkar• flott hönnun• litríkar• Margverðlaunuð frönsk gæðagler verð uMgjarða 4.900 9.900 14.900 19.900 24.900 * Minima umgjarðir undanskildar *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.