Morgunblaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ómar
Kátar Konurnar í sýningarnefnd voru á fullu í undirbúningi þegar ljósmyndari heimsótti þær, en lyftu einu teppi.
félögum. Nú eru þær orðnar um
400 talsins. Það geta allir gengið í
félagið og þurfa ekki endilega að
vera liprir í bútasaumnum til þess.
Bútasaumur gerir góðverk
Bútasaumsfélagið stendur fyr-
ir verkefni sem nefnist Teppi handa
hetju og er hugsað sem framtíðar-
verkefni. Tilgangurinn er að sauma
bútasaumsteppi og gefa lang-
veikum börnum og unglingum. Fé-
lagið hefur verið í samstarfi við
Umhyggju, foreldrafélag lang-
veikra barna. Umhyggja sér um að
dreifa teppunum til barnanna sem
eru á aldrinum 0-18 mánaða og skil-
yrði er að þau fái að velja sér sjálf
teppi til eignar. Teppi sem hafa
verið gefin eru nú orðin um 262
talsins. Á sýningunni um helgina
verða til sýnis teppi sem eru fram-
lag Bútasaumsfélagsins til verkefn-
isins í ár.
Allskonar Fjölmargt er hægt að gera
með bútasaum, til dæmis töskur.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
Popup-verslun verður í
ATMO 2. hæð á Hönn-
unarmars frá deginum í
dag til og með laugardeg-
inum 16. mars. PopUp er
farandverslun stofnuð
sem vettvangur fyrir
hönnuði til að selja og
kynna sínar vörur. PopUp-
verslunin býr sér til nýtt
heimili á nýjum stað í
markaðsformi í hvert sinn
sem hún opnar dyr sínar
með nýrri samsetningu
hönnuða og vörumerkja.
Verslunin er því aldrei
með sama sniði og mótar
sig að hverjum stað,
hverju sinni.
Þverskurður af fersk-
ustu íslensku hönnuðum
og vörumerkjum býður
upp á gæðavörur milliliða-
laust beint til neytenda.
Samsetning hönnuða er
fjölbreytt að vanda og
tækifæri til að kynna sér
vörur þeirra og gera góð
kaup. PopUp á sína föstu
viðskiptavini, fagurkera á
öllum aldri sem koma til
að kynna sér nýjungar í ís-
lenskri hönnun og þekkja
að á markaðnum er hægt
að kaupa gæða vörur á
sérkjörum. Hönnuðir á
POPUP í ATMO verða:
Arca, Bara design, Birna, Bolabítur, Deathflower, Dís by Bergdís, ED design,
Epli, Erla Gísladóttir, Forynja, Herra tré, Íslensk hollusta, Jónsdóttir & co, Koff-
ort, Markrún, Mundi, Náttuglur, RimmBamm, SHE, Svava Halldórsdóttir og
Tíra.
Fjölbreytt dagskrá verður í tengslum við Hönnunarmars í ATMO, í dag er
„Fashion night out“ og Laugavegur er opinn fram eftir kvöldi. Fatahönn-
unarfélag íslands verður með myndbandsverk um fatahönnun á Íslandi og
Mundi-sumarlínan verður sýnd fyrir framan ATMO kl. 20:15 í kvöld.
Opið: Í dag, fimmtudag, kl. 18-22, föstudag kl. 11-18 og laugardag kl. 11-17.
Popup-verslun verður í ATMO á Hönnunarmars
Sumarlína Munda sýnd í kvöld
Fjarðarkaup
Gildir 14.-16. mars verð nú áður mælie. verð
Svínakótilettur, kjötborð ............. 1.298 1.698 1.298 kr. kg
Svínabógur, kjötborð.................. 698 898 698 kr. kg
Fjallalambs kubbasteik .............. 498 666 498 kr. kg
KF krakkabúðingur, 635 g .......... 498 591 498 kr. pk.
FK kindabjúgu, 420 g................. 198 251 198 kr. pk.
KF reykt folaldakjöt .................... 729 1.174 729 kr. kg
FK saltkjöt................................. 998 1.298 998 kr. kg
Fjallalambs frosin lifrarpylsa ....... 589 795 589 kr. kg
Ali Party-skinka .......................... 2.198 2.598 2198 kr. kg
Fjallalambs frosinn blóðmör ....... 549 753 549 kr. kg
Kjarval
Gildir 14.-17. mars verð nú áður mælie. verð
Kjúklingabringur fr. erlendar........ 1.798 1.998 1.798 kr. kg
SS folaldasaltkjöt m/beini.......... 824 1.048 824 kr. kg
Goða hamborgarar, 10 stk. í pk. .. 998 1.168 998 kr. pk.
Italpitsa bacon/kjúkl., 360 g ...... 498 598 498 kr. pk.
Óðals Havarti, 330 g .................. 498 639 498 kr. pk.
Skyr drykkur jarðarb., 250 ml ...... 149 195 149 kr. stk.
Egils páskaöl, 0,5 l .................... 169 198 169 kr. stk.
Krónan
Gildir 14.-17. mars verð nú áður mælie. verð
Grísakótilettur lúxus úrb. beinl..... 1.299 1.998 1.299 kr. kg
Ungnautasnitsel ........................ 1.978 2.498 1.978 kr. kg
Ungnautagúllas ......................... 1.978 2.498 1.978 kr. kg
Nautahakk ................................ 1.188 1.398 1.188 kr. kg
Lambasúpukjöt 1 fl.................... 798 898 798 kr. kg
Krónu kjúklingur ferskur .............. 799 859 799 kr. kg
Goða lambalæri frosið ................ 1.198 1.298 1.198 kr. kg
Nóatún
Gildir 15.-17. mars verð nú áður mælie. verð
Lambalæri heiðm.kr., kjötborð .... 1.398 1.598 1.398 kr. kg
Lambakótilettur, kjötborð............ 1.898 2.198 1.898 kr. kg
Lambalærissneiðar úr kjötborði... 1.798 2.198 1.798 kr. kg
Grísahryggur m/pöru, kjötborð.... 1.098 1.398 1.098 kr. kg
SS púrtvínslegið lambafilet ......... 4.798 5.998 4.798 kr. kg
Egils appelsín, 2 l ...................... 279 348 279 kr. stk.
Trópí appelsínu m/aldinkjöti ....... 199 222 199 kr. stk.
Óðals Havarti kr. ostur, 330 g...... 489 619 489 kr. pk.
Helgartilboðin
Það geta allir lært að gera bútasaum og fyrir
þá sem hafa áhuga er ekki vitlaust að skella
sér á sýningu Íslenska Bútasaumsfélagsins
sem haldin verður í Perlunni 15-17. mars.
Sýningin hefst kl. 14 og verður margt um
manninn þar, en um 30-40 einstaklingar
sýna verkin sín þar. Hægt verður að kaupa
einhver stykki og einnig verða þar til sýnis
svokölluð Hetjuteppi sem er framlag félags-
ins til langveikra barna og unglinga.
HETJUTEPPIN TIL SÝNIS
Bútasaumur er fyrir alla
Nánari upplýsingar eru á
www.butasaumur.is.