Morgunblaðið - 14.03.2013, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Bakpokar – mikið úrval
Summit 50+10 - Verð kr. 19.995
TILBOÐSVERÐ 15.996,-
Panther 65 - Verð kr. 29.995
TILBOÐSVERÐ 19.995,-
Panther 65F - Verð kr. 29.995
TILBOÐSVERÐ 19.995,-
Alpiniste 35+10 - Verð kr. 25.995
TILBOÐSVERÐ 17.996,-
Frábærar fermingargjafir – góð gæ
ði betra verð
Svefnpokar
Grár – Kuldaþol -19°, Þyngd 1,7 kg
Easy Camp Devil 300 Verð kr. 11.995
TILBOÐSVERÐ 8.996,-
Bleikur – Kuldaþol -12°, Þyngd 2,2 kg
SprayWay Challenger 350W Verð kr. 15.995
TILBOÐSVERÐ 10.996,-
Rauður – Kuldaþol -8°, Þyngd 2 kg
SprayWay Challenger 250 Verð kr. 13.995
TILBOÐSVERÐ 9.996,-
ZAJO Montana Tjöld
Vatnsheldni 3.000mm, þyngd 2,6 og 3,2 kg
2 manna - Verð kr. 19.995
TILBOÐSVERÐ 15.996,-
3 manna - Verð kr. 23.995
TILBOÐSVERÐ 18.996,-
www.alparnir.is
GLERÁRGÖTU 32, AKUREYRI, SÍMI 461 7879 | KAUPVANGI 6, EGILSSTAÐIR, SÍMI 471 2525 | FAXAFENI 8, REYKJAVÍK, SÍMI 534 2727
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Hverfisnefnd Giljahverfis óskaði
nýlega eftir því við Akureyrarbæ að
leyfilegur hámarkshraði í hverfinu
yrði lækkaður niður í 30 km á klst.
en ekki er langt síðan hann var
hækkaður í 50 km.
Hámarkshraða var breytt, að
sögn fulltrúa Akureyrarbæjar á
fundi með nefndinni, til þess að
strætisvagninn gæti haldið áætlun.
Hverfisnefndin telur það ekki við-
unandi svar og bendir á að 30 km há-
markshraði sé á sambærilegum göt-
um annars staðar og bætir við
aðbörn Giljahverfis hlytu að vera
jafn verðmæt og í öðrum hverfum.
Nýtt nafn kom fram í pólitíkinni
í vikunni, þegar Björt framtíð birti
lista sinn í Norðausturkjördæmi fyr-
ir alþingiskosningarnar í vor. Bryn-
hildur Pétursson verður í fyrsta sæti
eins og áður hafði komið fram en
Rögnvaldur B. Rögnvaldsson verður
í 20. og síðasta sæti.
Rögnvaldur þessi er titlaður
listaverkamaður á framboðslist-
anum. Hann er betur þekktur sem
Rögnvaldur gáfaði, uppistandari og
fyrrverandi meðlimur í hljómsveit-
inni Hvanndalsbræðrum.
Klúbbur matreiðslumeistara á
Norðurlandi hélt í fyrra Mottuboð í
samstarfi við Krabbameinsfélag Ak-
ureyrar og nágrennis í tilefni Mottu-
mars. Gríðarlega vel tókst til og nú
verður leikurinn endurtekinn.
Mottuboðið verður í Hofi í
næstu viku, fimmtudagskvöldið 21.
mars. Aðgangseyrir verður 3.000
krónur og rennur upphæðin óskipt
til Krabbameinsfélags Akureyrar og
nágrennis en innifaldar eru léttar
veitingar, einir 20 réttir og afbragðs
skemmtiatriði.
Tilgangur Mottuboðsins er að
vekja athygli á krabbameini karla,
stuðla að forvörnum og styrkja
starf Krabbameinsfélags Akureyr-
ar og nágrennis. Við innganginn
verður Krabbameinsfélag Akureyr-
ar og nágrennis með kynningu á
starfsemi sinni og fræðslu um
krabbamein og krabbameinsleit.
Þegar Eyrarrósin var afhent í
Hofi í fyrradag spann kammerkór-
inn Hymnodia út frá gömlu og
sjaldheyrðu lagi: Ég er að byggja
bjarta höll. Afskaplega fallegt verk,
en það merkilegasta við lagið er að
höfundurinn samdi það eftir andlát-
ið! Eyþór Ingi Jónsson, stjórnandi
Hymnodiu, sagði lauslega frá
þessu.
Höfundurinn, Guðrún Böðv-
arsdóttir, er fædd 1902 en lést úr
berklum 1936. Skömmu eftir að hún
lést birtist Guðrún móður sinni,
Ragnhildi Teitsdóttur, í draumi og
söng fyrir hana lagið. „Sú gamla
lærði það en kunni ekkert að spila á
píanó eða orgel en söng lagið fyrir
son sinn daginn eftir og hann skrif-
aði það niður,“ sagði Vilborg Guð-
mundsdóttir, sem búsett er á Ak-
ureyri, við Morgunblaðið í gær, en
Ragnhildur var amma hennar.
Guðrún var alltaf kölluð Dúna
Böðvars, segir Ragnhildur sem var
ung stúlka þegar Guðrún lést en
þekkti hana vel. „Ömmu dreymdi
bæði vísuna og lagið,“ segir Vilborg.
Móðir Vilborgar var Þórey Böðv-
arsdóttir og bróðirinn sem skrifaði
niður lagið Bjarni Böðvarsson, faðir
Ragnars Bjarnasonar tónlistar-
manns. Bróðir Þóreyjar og Bjarna,
Ágúst, samdi á sínum tíma marga
texta við lög Bjarna.
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæj-
arstjóri á Akureyri, ávarpaði gesti í
Hofi þegar Eyrarrósin var afhent og
sagði verðlaunin hafa sannað gildi
sitt, rétt eins og Hof, „sem þörf og
mikilvæg hvatning til þeirra sem
standa að merkilegu og góðu menn-
ingarstarfi á Íslandi“. Sagði hann
ýmsa sem hugsa út fyrir rammann
hafa fengið verðlaunin.
Í því samhengi minntist bæjar-
stjórinn á að fyrir skömmu lést í
Hollandi Akureyringurinn Þorvald-
ur Þorsteinsson „og varð okkur öll-
um harmdauði. Þorvaldur kunni svo
sannarlega að hugsa út fyrir ramm-
ann og leyfa sköpunargleðinni að
njóta sín,“ sagði Eiríkur Björn.
Eiríkur vitnaði í grein sem Þor-
valdur birti í Morgunblaðinu vorið
2008. „Það virðist að við séum orðin
svo háð mælingum, skiltum og
sannanlegum staðreyndum að við
séum tilbúin að fórna ævintýrinu,
sköpunareðlinu og uppgötvuninni ef
það má verða til þess að koma til-
verunni undir hatt hins skilgrein-
anlega og mælanlega. Málvísindi
verða þannig mikilvægari en málið.
Bókmenntafræðin verður forsenda
skáldskaparins. Skýrsla um mann-
leg samskipti verður marktækari
en mannleg samskipti.“
Bæjarstjórinn hvatti fólk til
þess að hugsa út fyrir rammann,
eins og Þorvaldur hefði gert, og
fagnaði því sérstaklega að Eyr-
arrósin skyldi afhent í Hofi að þessu
sinni.
Nei hættu nú alveg, spurn-
ingaþátturinn vinsæli í umsjón Villa
naglbíts í Ríkisútvarpinu, verður
tekinn upp á Græna hattinum í
kvöld. Raunar verða teknir upp
tveir þættir og sendir út um
páskana. Fólki er boðið að mæta og
hlusta og aðgangur er ókeypis.
Upptökur hefjast kl. 20.
Hljómsveitin Ojba Rasta verð-
ur með tónleika á Græna hattinum
annað kvöldi. Þetta er 11 manna
stórsveit sem spilar reggímúsík.
Bloodgroup, sem gaf nýverið út
sína þriðju plötu, Tracing Echoes,
verður svo með útgáfutónleika á
Græna hattinum á laugardaginn.
Samaris hitar upp.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hymnodia Eyþór Ingi Jónsson, stjórnandi Hymnodiu, spilaði á hljóðfærið psaltary, sem kallað er saltari á íslensku.
„Ég er að byggja bjarta höll“
Tilnefnd Elvar Logi Hannesson, forsprakki Act Alone, Stefán Magnússon,
skipuleggjandi Eistnaflugs, og Tinna Guðmundsdóttir, forstöðumaður
Skaftfells á Seyðisfirði, sem fékk Eyrarrósina 2013, í Hofi í fyrradag.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps hefur heimilað sveitarstjóra
að skrifa undir samninga við Veiði-
félagið Hreggnasa ehf. um leigu á
Fossá og Rauðá í Þjórsárdal. Leigu-
takinn er með hugmyndir um að
koma upp veiðihúsi við ána og hefja
fiskirækt.
Eigendur árinnar, Skeiða- og
Gnúpverjahreppur og Skógrækt
ríkisins, buðu veiðiréttinn út. 20 til-
boð bárust og voru flest á bilinu 2-4
milljónir samtals fyrir fjögurra ára
leigutíma. Er það mun hærri fjár-
hæð en greidd hefur verið. Hæsta
tilboðið var mun hærra, eða 8,5
milljónir og er sex sinnum hærra en
leigan síðustu fjögur ár. Unnið hef-
ur verið að samningum, að sögn
Kristófers A. Tómassonar sveit-
arstjóra en ekki hefur verið skrifað
undir.
Almenningur eigi kost á veiði
Fjórar stangir eru í Fossá og
Rauðá, tvær fyrir ofan Hjálparfoss
og tvær fyrir neðan. Skráð veiði hef-
ur ekki verið mikil undanfarin ár en
þarna veiðist aðallega urriði en einn-
ig lax. Sú krafa er gerð í samningum
að veiðileyfi verði boðin til sölu á al-
mennum markaði enda eru það op-
inberir aðilar sem eiga veiðiréttinn.
Veiðifélagið Hreggnasi er með
nokkrar ár á leigu, meðal annars
Grímsá í Borgarfirði og Laxá í Kjós.
Félagið er í eigu feðganna Jóns Þórs
Júlíussonar og Júlíusar Jónssonar
sem eru í Nóatúnsfjölskyldunni.
Leigjendurnir eru með hug-
myndir um að ráðast í fiskirækt til
að auka veiðina. Kristófer segir að
það myndi styrkja veiðisvæðið mjög
ef leigutakinn réðist í það að koma
þar upp veiðihúsi. Hann tekur þó
fram að eftir sé að útfæra hvernig
það verði gert. helgi@mbl.is
Greiða sexfalt hærra
verð fyrir veiðina
Hugmyndir um veiðihús við Fossá
Morgunblaðið/Ómar
Við Hjálparfoss Fjórar stangir eru
í Fossá / Rauðá í Þjórsárdal.