Morgunblaðið - 14.03.2013, Side 29
FRÉTTIR 29Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Allt bendir til þess að kona verði í
fyrsta sinn forsætisráðherra á
Grænlandi eftir þingkosningarnar á
þriðjudag. Landstjórnin féll í kosn-
ingunum, jafnaðarmannaflokkurinn
Siumut undir forystu Alequ Ham-
mond vann mikinn sigur. Flokkurinn
fékk 42,8% atkvæða og 14 menn
kjörna en á þingi situr 31 fulltrúi.
Flokkurinn fær nú umboð til að
mynda samsteypustjórn og takist
það verður Aleqa Hammond, sem er
47 ára, gift og tveggja barna móðir,
næsti formaður grænlensku land-
stjórnarinnar, þ.e. forsætisráðherra.
Fram kemur í grænlenskum fjöl-
miðlum að afar erfitt sé að sjá fyrir
sér hvaða flokkur muni ganga til liðs
við Siumut sem árum saman var í
forystu í ríkisstjórn. Vinstriflokkur-
inn Inuit Ataqatigiit, flokkur Kuup-
iks Kleists, fráfarandi forsætisráð-
herra, fékk næstmest fylgi, 34,4%,
11 menn kjörna og tapaði rúmum
9%. Atassut-flokkurinn, sem er
íhaldssamur og var eitt sinn öflug-
asti flokkur landsins, fékk 8,1%, Par-
tii Inuit, eða Nýi Inúítaflokkurinn,
6,4%. Lýðræðisflokkurinn, sem átti
aðild að stjórninni, fékk 6,2%, en Ka-
tusseqatigiit-flokkurinn, þriðji
stjórnarflokkurinn, náði ekki manni
á þing. Kjörsókn var liðlega 74% en
er síðast var kosið 2009 var hún
71,3%, að sögn Jyllandsposten.
Deilt um skattlagningu er-
lendra aðila
Margs konar verðmæt efni eru í
jörðu á Grænlandi, einkum málmar
og sjaldgæf efnasambönd sem notuð
eru í hátæknivörum. Einnig gæti
verið olía í landgrunninu. Hammond
vill að útlend fyrirtæki sem fá nýt-
ingarrétt á námum greiði strax háa
skatta. Kleist vill hins vegar auka
áhuga erlendra aðila með því að
bjóða London Mining, fyrirtæki í
eigu Kínverja, að stunda námu-
vinnslu án þess að borga skatta fyrr
en vinnslan verði farin að bera sig.
Nýting náttúruauðlinda var helsta
málið í kosningunum auk mikils at-
vinnuleysis. Ráðamenn í Nuuk hafa
síðustu árin verið sakaðir um að mis-
nota aðstöðu sína til að hagnast á
samskiptum við útlendinga sem vilja
nýta náttúruauðlindir landsins. En
stjórnmálafræðingurinn Jakob Jan-
ussen sagði í viðtali við grænlenska
útvarpið að stjórnarflokkarnir væru
að missa fylgi vegna þess að boð-
skapur þeirra varðandi skattasam-
skiptin við útlendu aðilana væri
ómarkviss og óskýr.
Hammond reynir að
mynda nýja stjórn
Siumut sigraði í kosningunum á
Grænlandi og hreppti 14 af 31 sæti en
flokkur Kleists tapaði miklu fylgi
Sigraði Aleqa Hammond, leiðtogi
Siumut-flokksins á Grænlandi.
Enn háðir Dönum
» Grænland hefur verið með
sjálfstjórn í eigin málum síðan
1979 en Danir fara með utan-
ríkis- og varnarmál. Þeir
styrkja Grænland með tug-
milljörðum ísl. króna á ári.
» Kínverjar vilja fá leyfi til að
flytja inn minnst 2.000 verka-
menn til að stunda námu-
vinnslu rétt hjá Nuuk.
» Ljóst þykir að Grænlend-
ingar gætu ekki annast um-
rædd störf sjálfir.
Bresku samtökin Barnaheill segja að
báðir stríðsaðilar í Sýrlandi noti í
vaxandi mæli drengi undir 18 ára
aldri sem hermenn á vígstöðvunum í
átökum, að sögn AFP-fréttastofunn-
ar í gær. „Mörg börn og fjölskyldur
þeirra eru stolt af þessu,“ segir í
skýrslu samtakanna. „En sum
barnanna eru neydd til að gerast
hermenn og dæmi eru um að börn
niður í átta ára aldur sé notuð sem
mannlegir skildir.“
Einnig er bent á að þúsundir
barna eigi erfitt með að komast yfir
nægilega mikið af mat og eigi þess
vegna stöðugt á hættu að verða fórn-
arlömb vannæringar og sjúkdóma.
Milljónir barna í fjölskyldum sem
hafi flúið heimili sín vegna átakanna
þurfi nú að hírast í opinberum görð-
um, hlöðum og sum jafnvel í hellum.
Stúlkur séu þvingaðar til að giftast
ungar til að forðast þannig betur
hættuna á nauðgun.
Þegar hefur komið fram í álíka
svartri skýrslu Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna, Unicef, að víðast
hvar fá sýrlensk börn ekki kennslu í
skólum og dæmi séu um að börn séu
pyntuð í fangelsum. Barnaheill
minna á að allt samfélagið hefur í
reynd sundrast, þar sem ástandið sé
verst hafi hungur og aðrar ógnir tek-
ið við af skólagöngu. „Við getum ekki
liðið að þetta haldi svona áfram án
þess að gripið sé í taumana,“ segir í
skýrslu Barnaheilla. kjon@mbl.is
Báðir aðilar nota
barnahermenn
Lýst hræðileg-
um aðstæðum sýr-
lenskra barna
AFP
Þjálfun Sýrlenskur unglingur á æf-
ingu með riffil í Aleppo-héraði.
Minnst 70 þúsund manns hafa
nú fallið síðan átökin hófust
milli stjórnar Bashars al-Assads
forseta og uppreisnarmanna
fyrir tveim árum. Sameinuðu
þjóðirnar hvetja nú alþjóða-
samfélagið ákaft til að veita
flóttafólki hjálp en yfir milljón
hefur þegar flúið land. Einnig
þurfi að aðstoða með fé ríki
sem taka við flóttafólki.
Þjóðir heims
veiti hjálp
FLÓTTAMANNAVANDINN
FRAMÚRSKARANDI ÁRANGUR HLUTABRÉFASJÓÐSINS
Hlutabréfasjóðurinn** hefur skilað hæstu ávöxtun allra íslenskra hlutabréfasjóða síðustu
þrjú ár. Síðasta ár var mjög gott og skilaði sjóðurinn 37,3% ársávöxtun síðastliðna 12 mánuði
m.v. 28. febrúar 2013. Auknar skráningar fyrirtækja á markað gefa vonandi góð fyrirheit um
áframhaldandi uppbyggingu íslenska hlutabréfamarkaðarins. Þú getur tekið þátt í þeirri
uppbyggingu í gegnum Hlutabréfasjóðinn.
Hvar telur þú best að ávaxta fjármuni þína?
Pantaðu viðtal við ráðgjafa í 440 4900 eða fáðu nánari upplýsingar á www.vib.is
* Skv. sjodir.is 28. febrúar 2013. Ávöxtunartölur miðast við nafnávöxtun og er ávöxtun umfram 12 mánuði umreiknuð
í ávöxtun á ársgrundvelli.
**Sjóðurinn er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði.
Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð.
Hafa ber í huga að eign í fjárfestingarsjóði getur bæði hækkað og lækkað, allt eftir þróun á markaðsverði hennar.
Íslandssjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Íslandssjóða,
www.islandssjodir.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
2
3
0
Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is
facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is
Þróun ávöxtunar Hlutabréfasjóðsins
og tveggja annarra sjóða*
3 ÁR Í RÖÐ*
Hlutabréfasjóðurinn Landsbréf - Úrvalsbréf Stefnir - IS-15
-22,7%
-18,9%-16,2%
5 ár 5 ár 5 ár
21,3%
24,0%
17,4%
4 ár 4 ár 4 ár
23,8% 20,8% 18,6%
3 ár 3 ár 3 ár
21,2%
12,3%
17,1%
2 ár 2 ár 2 ár
37,3%
29,7%
35,2%
1 ár 1 ár 1 ár