Morgunblaðið - 14.03.2013, Page 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
Aðdragandi.
1) Hinn 1. mars 2005
var þinglýst hjá sýslu-
manni á Hvolsvelli
stofnskjali lóðar úr
landi jarðarinnar
Áskots. Stofnskjalið
hafði verið sent sýslu-
mannsembættinu 25.
febrúar 2005. Með
þessum gjörningi verð-
ur lóðin ásamt íbúðar-
húsi sjálfstætt veð-
andlag.
2) Hinn 3. mars 2005 þinglýsir
sýslumaður skuldabréfi Íbúðalána-
sjóðs. Mistök verða við útgáfu
skuldabréfsins og sem veð eru gefin
upp bæði jörðin og íbúðarhúsið á
lóðinni. Þ.e. tvö veðandlög. Íbúða-
lánasjóður áttar sig ekki á að íbúð-
arhúsið er ekki lengur á jörðinni og
gefur fastanúmer íbúðarhússins
sem veðandlag ásamt landnúmeri
jarðarinnar.
3) Sýslumaður þinglýsir skulda-
bréfinu á jörðina en ekki á íbúðar-
húsið.
4) Eiganda íbúðarhússins verður
ekki ljóst hvað um er að ræða fyrr
en hin svokallaða 110% leið til
skuldaléttingar verður virk. Þá hvíl-
ir of lítið á íbúðarhúsinu til þess að
njóta megi 110% leiðarinnar. Skuld-
in hvílir á jörðinni. Hinn 20. júní sl.
sendir Íbúðalánasjóður sýslumanni
bréf og óskar eftir að veðskulda-
bréfinu verði þinglýst á íbúðarhúsið.
5) Sýslumaður hafnar þessari
beiðni.
6) Málinu var vísað til úrskurðar
héraðsdómara á Selfossi, sem taldi
að uppgefin veð á veðskuldabréfinu
hafi verið óskýr og sýslumanni hafi
borið að vísa skjalinu
frá þinglýsingu.
7) Málinu var áfrýjað
og Hæstiréttur úr-
skurðaði að ekki hefði
verið tilefni fyrir þing-
lýsingarstjóra til að
vísa skjalinu frá þing-
lýsingu og dæmdi eig-
anda íbúðarhússins til
að greiða málskostnað.
Frá sjónarhóli leik-
manns koma eftirfar-
andi atriði til skoð-
unar:
a) Veðskuldabréfið
bar með sér tvær eignir sem upp-
gefin veð, tvö veðandlög. Sýslu-
manni er óheimilt að velja annað
veðandlagið og sleppa hinu án at-
hugunar. Embættið hafði tveim
dögum áður með þinglýsingu skilið
að eignirnar jörð og íbúðarhús.
b) Í 1. gr. laga nr. 45/2000 segir
að „vísa skuli frá þinglýsingu skjali
ef ekki sé ótvírætt við hvaða eign
skjal eigi, hvaða aðila skjal varði
eða hvert efni þess sé að öðru leyti“.
Augljóst er að embættinu mátti
vera ljóst að um tvær sjálfstæðar
eignir var að ræða, gallar voru á
uppgefnum upplýsingum og bar að
vísa skjalinu frá.
c) Í lögum um Íbúðalánasjóð seg-
ir: „ILS-veðbréf eru skuldabréf sem
kaupandi eða eigandi íbúðar-
húsnæðis gefur út til Íbúðalánasjóðs
með veði í íbúðarhúsnæði.“ Með að-
gerð sinni þinglýsir sýslumaður veð-
bréfinu á jörð sem ekki er á íbúðar-
húsnæði. Skilja má lagagreinina
þannig að Íbúðalánasjóði sé óheimilt
að lána nema út á íbúðarhúsnæði.
Íbúðalánasjóður er nú með veð í
jörð með engu íbúðarhúsnæði.
d) Hæstiréttur segir að veðbréf
Íbúðalánasjóðs segi að þinglýsa
skuli á 2. veðrétt en 2. veðréttur
hafi ekki verið laus á íbúðarhúsinu
og því sé skýrt hversu með skuli
fara, þinglýsa skuli á jörðina.
Mistök Hæstaréttar
Venjulegum borgara er ljóst að
veðskjal Íbúðalánasjóðs er óskýrt
og því bar að vísa frá samkvæmt
lögum um þinglýsingar.
1) Lög virðast brotin með því að
veðsetja jörð með engu íbúðarhúsi
fyrir láni Íbúðalánasjóðs. Þetta
benti eigandi íbúðarhússins á.
2) Íbúðalánasjóður gefur upp tvö
veðandlög og lýsa skuli á 2. veðrétt
sem ekki er laus nema í öðru tilvik-
inu. Bæði sýslumanni og Hæstarétti
átti að vera ljóst að óska átti skýr-
inga frá Íbúðalánasjóði hvað væri
um að ræða.
Frá sjónarhóli leikmanns verða
Hæstarétti hér á grundvallar-
mistök. Upphaflega verða mistök
hjá Íbúðalánasjóði við útgáfu skjals-
ins og síðan hjá sýslumanni við
þinglýsingu. Hæstiréttur kórónar
svo mistökin. Rétturinn sviptir hús-
eigandann rétti sínum til lagfær-
ingar og dæmir húseigandann sem
verður hér fórnarlamb mistaka í
kerfinu til að greiða málskostnað
þegar hann freistar þess að fá fram
leiðréttingu.
Við hljótum að spyrja okkur:
Hvernig á að leiðrétta mistök sem
þessi?
Leikmaður deilir á Hæstarétt
Eftir Guðm. G.
Þórarinsson » Frá sjónarhóli leik-
manns verða Hæsta-
rétti hér á grundvall-
armistök.
Guðmundur G.
Þórarinsson
Höfundur er verkfræðingur.
Bréf til blaðsins
Tækjasalir íþróttafræðinga til
hjálpar reykingafólki eru víst í
tísku nú sem aldrei fyrr en
virka á mig
eins og sér-
trúarsöfn-
uðir. Á með-
an reykfíklar
reyna að sigr-
ast á fíkn
sinni í tækja-
sölum þá eru
steratröll ein-
mitt að
pumpa sig
ómennsk í
sama sal. En tískusölum tækja-
fíkla þarf að vera hægt að
breyta í fleiri tískur því að við
erum jú öll mjög mismunandi
og höfum þar með ólíkar þarfir
og langanir, en jafnvel sumt
fólk er mjög ómeðvitað í með-
almennsku sinni og á sér engin
sérstök áhugamál en ýmsir hafa
jafnvel að atvinnu að kveikja
sér í og eru fastir í reyk eða
öðrum fíknum. En varðandi
tóbaksreykingar þá reykti ég
mikið í mörg ár en breytti um
tíma yfir á nikótín-tungrót-
artöflur og tyggjó. En mér
fannst fitumyndun í munni
meiri af nikótínefnum en reykn-
um og ég fór því í reykinn aftur
en þó miklu minna en áður og
ég þakka ekki síst starfi mínu í
listum þann árangur að halda
huganum við skapandi iðju og
gleyma tóbakinu á meðan.
Þar sem ég er ekki sport-
áhugamaður en hef þess í stað
áhuga á fleiri listgreinum en
eru á færi eins manns að
stunda. Og fyrir þá sem hafa
ekki áhuga á íþróttum – jafnvel
ekki áhuga á neinu – þá er mér
ljúft að kynna mínar listgreinar
sem ögra mér það mikið í at-
hafnir að mér líður eins og á
vertíð, 150% vinna flesta daga:
Ritlist: Blaðagreinar/handritsv-
inna við leikritun/söng-
textaskrif. Myndlist: List-
málun/pappaskurðarlist
(útskurður/ný listgrein) –
skúlptúrar/veggmyndir. Tón-
list: Tónsmíðar/ hljóðfæra-
leikur: Hugmyndavinna hvenær
og hvar sem er og þróun þeirra
inn á forrit með því að forrita
inn hljóðfærin eða lifandi hljóð-
ritun á trommur, bassa, gítar,
hljómborð, söng. En ég vinn
þetta allt sem einyrki en ég get
vonandi vakið það fólk til um-
hugsunar sem á sér engin
áhugamál. Það að þroskast í
agaþjálfun í heilbrigðu við-
fangsefni á dagplani bætir líðan
hvers einasta einstaklings í að
vinna með styrkleika sína þó að
veikleikarnir fylgi oftast með.
Við höfum jafnvel ekki styrk-
leika nema af því að við höfum
veikleika, þess vegna komumst
við í gengum alla daga með bar-
áttu og viljastyrk.
ATLI VIÐAR
ENGILBERTSSON,
listamaður Listar án landa-
mæra 2013.
Listin að reykja til
reykleysis
Frá Atla Viðari
Engilbertssyni
Atli Viðar
Engilbertsson