Morgunblaðið - 14.03.2013, Page 43
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
✝ Rudolph BruunÞórisson fædd-
ist á Akureyri 11.
ágúst 1953. Hann
lést á heimili sínu á
Hjalteyri 19. febr-
úar 2013
Móðir: Vilhelm-
ína Hjaltalín, f. 20.
janúar 1928, d. 31.
ágúst 2007. Faðir:
Þórir Kristjánsson,
f. 24. september
1929, d. 5. maí 1992. Stjúpfaðir
Kristinn Danivalsson, f. 30. apríl
1930, d. 29. sept-
ember 1995. Systk-
ini: Inga Ragn-
arsdóttir, f. 14.
desember 1947, d.
23. nóvember 2003.
Davíð Þ. Krist-
jánsson, f. 1948.
Sigursteinn Jóns-
son, f. 1949. Krist-
ján Gunnar Þór-
isson, f. 9. júní
1950, d. 24. nóv.
sama ár. Kristján Gunnar Þór-
isson, f. 1951. Áslaug Sturlaugs-
dóttir, f. 1957 (stjúpsystir). Mar-
grét Þórisdóttir, f. 1960.
Sigurlína Þórisdóttir, f. 1961,
býr í Bandaríkjunum. Þorgerð-
ur Þórisdóttir, f. 1962. Guð-
munda Kristinsdóttir, f. 1962.
Þorvaldur Þórisson, f. 1964.
Þórir Börkur Þórisson, f. 1967.
Ólína Kristinsdóttir Gul-
brandsen, f. 1968, býr í Noregi.
Vaka Þórisdóttir, f. 1970.
Eftirlifandi eiginkona er Stef-
anía Björk Bragadóttir, f. 6.
október 1960. Saman áttu þau
Kristin Braga Rudolfsson, f. 10.
maí 1976. Sonur Kristins er Rú-
dolf Helgi, f. 3. janúar 2005.
Barnsmóðir Kristins er Heba
Björk Helgadóttir, f. 30. nóv-
ember 1981.
Útförin fór fram í kyrrþey 4.
mars 2013.
Elsku Lúlli minn, hetjan mín,
nú er baráttunni lokið. Sorgin er
stór og söknuðurinn mikill. Ég
trúi því að nú sért þú komin til
mömmu, pabba og Ingu systur.
Ég er svo þakklát fyrir þær
stundir sem við áttum saman síð-
ustu dagana þína. Þakklát fyrir
samveruna í sumar, þegar þið
Stebba heimsóttuð okkur til
Noregs. Lífið er óréttlátt, á með-
an ég var viðstödd fæðingu
Adríans Freys fékkst þú að vita
að þú værir með krabbamein.
Það lýsir þér svo vel að eitt af því
fyrsta sem þú sagðir þá var að
enginn mætti segja mér neitt.
Það mátti sko ekkert eyðileggja
fæðingardaginn hans Adríans
Freys.
Þú varst góð sál, börn og dýr
hændust að þér. Ég sagði oft við
þig: „Þú ert svo barngóður
Lúlli,“ en þá sagðir þú: „Nei, ég
hef ekki gert neitt, þau bara
koma alltaf til mín.“ Þau komu
til þín vegna þess að þau fundu
fyrir góðseminni, þau voru örugg
hjá þér, vinur.
Þú varst góður stóri bróðir,
sem passaði vel upp á mig,
stundum aðeins of vel fannst
mér. Eins og þegar þú hélst að
ég væri að stelast til að fara upp
á Hafnargötu einu sinni, þú sást
mig, snarstoppaðir bílinn, komst
út og náðir í mig og keyrðir mig
heim. Þú vissir bara ekki að ég
hefði fengið leyfi til að fara í
Lindina og kaupa tyggjó. En það
var ekkert skrítið að þú skyldir
bregðast svona við, eins óþekk
og ég gat verið. Ég var sennilega
ekki auðveld að hafa fyrir litla
systur, ég man eftir því þegar ég
fann upp á að fara í búðarleik
með plöturnar þínar, skrifaði
með svörtum túss verðið á plötu-
umslögin. En þú fyrirgafst mér
það. Plöturnar þínar voru á þess-
um tíma heilagar, þú varst mikill
tónlistaráhugamaður allt þitt líf.
Síðutu dagana þína áttir þú
heima í faðmi fjölskyldunnar,
það var svo gott að sjá hvernig
þið Stebba horfðuð hvort á ann-
að með ást og væntumþykju.
Hún Stebba passaði vel upp á
þig, þið voruð svo sannarlega
sálufélagar. Þú spurðir mig
hvort Stebbu liði mjög illa, þú
varst með áhyggjur af henni.
Þú skilur eftir þig soninn þinn
hann Kidda litla eins og við köll-
um hann, þú varst svo stoltur af
honum. Hann er alveg sama
gæðablóðið og þú, og svo hann
Rúdólf Helgi afastrákur. Ég sá
hvernig þú ljómaðir þegar snáð-
inn kom til þín.
Elsku Stebba, Kiddi og Rúd-
ólf Helgi, mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Ólína Kristinsdóttir
Gulbrandsen (Óla).
Rudolph Bruun
Þórisson
Okkur langar að kveðja vin
okkar Henrik Árnason með
nokkrum orðum. Ég kynntist
honum þegar ég var að vinna í
Kron á Skólavörðustígnum fyrir
meira en hálfri öld. Hann hafði
komið til Íslands til að vinna við
gluggaskreytingar og eitt af
fyrstu verkefnum hans var að
vinna fyrir Kron. Henrik var
Finni og kunni ekki stakt orð í
Henrik Vilhelm
Aunio Árnason
✝ Henrik VilhelmAunio Árnason
fæddist 7. október
1926 í Turku, Finn-
landi. Hann lést
mánudaginn 14.
janúar 2013 á
lungnadeild Land-
spítala í Fossvogi.
Útför Henriks
fór fram í kyrrþey
hinn 22. janúar sl.
íslensku. Við fyrstu
kynni fannst mér
hann vera nokkuð
fyrirferðarmikill
þegar hann var að
stilla út í gluggana.
Hann pataði og
kallaði og reyndi að
tala finnsku,
sænsku, ensku og
að lokum fingramál
og við stelpurnar í
búðinni skildum
ekki neitt, nema ein, hún virtist
eiga nokkuð auðvelt með að
skilja þennan háværa Finna og
það var hún Ísbjörg vinkona
mín. Það má segja að það hafi
verið ást við fyrstu sýn, þau urðu
óaðskiljanleg upp frá þessu í
marga áratugi. Fóru saman til
Svíþjóðar og unnu hjá sama fyr-
irtækinu, en komu síðan heim til
Íslands og bjuggu hér eftir það
og eignuðust þrjár yndislegar
stúlkur sem heita Anna, Ardísi
og Asta.
Þessi fyrstu ár Henriks hér á
Íslandi eru okkur minnisstæð,
það má segja að samband okkar
hjónanna hafi haldist í hendur
við samband Henriks og Ís-
bjargar. Bæði vorum við að
byrja á búskap og barneignum.
Henrik flutti með sér andblæ frá
stóru veröldinni fyrir utan.
Þetta var upp úr miðri síðustu
öld og utanlandsferðir ekki al-
gengar hjá Íslendingum. Henrik
var mikill heimsmaður og fór oft
til útlanda. Hann kom með flott-
an Citroën-bíl og í hans huga var
enginn bíl nema hann væri
Citroën. Hann vissi um allar
saunabaðstofur í Reykjavík og
stundaði þær óspart, fór ég
stundum með honum. Sjaldan
hélst ég lengi við því Henrik
vildi hafa baðið mjög heitt og
kom fyrir að fleiri gestir fylgdu
mér. Við ferðuðumst víða á
Citroën-bílnum hans. Ein úti-
lega er mér minnisstæð, þá fór-
um við til Laugarvatns og
bjuggum í tjaldi. Veðrið var ein-
staklega gott, blankalogn og
skafheiður himinn. Henrik var
með dökka húð og þoldi sólina
vel en við hjónin föl á skinni og
þoldum illa sólina, og komum
heim skaðbrennd. Henrik var
góður ljósmyndari og átti alltaf
vandaðar myndavélar. Margar
bestu myndirnar í albúmi okkar
eru myndir sem eru eftir Hen-
rik, hann myndaði til dæmis
brúðkaupið okkar. Henrik var
mikill listamaður og margar út-
stillingar hans vöktu mikla at-
hygli. Okkur eru enn í minni
blómaskreytingar sem hann
gerði fyrir okkur við ýmis tilefni.
Því miður gliðnaði sambandið
við Henrik með árunum. Stund-
um leituðum við til hans um að
hjálpa okkur með margt sem við
vissum að hans smekkur og
listamannshæfileikar myndu
njóta sín vel við. Alltaf aðstoðaði
hann okkur með bros á vör og
mátti ekki heyra minnst á borg-
un. Við vottum Ísbjörgu og öðr-
um ástvinum okkar innilegustu
samúð.
Rúnar Guðbjartsson og
Guðrún Hafliðadóttir.
Nú er faðir minn,
Loftur Jens, farinn yfir móðuna
miklu. Þegar svona sérstæður
maður er farinn og hefur átt sér
langa og viðburðaríka ævi, þá er
svo margs að minnast, að erfitt
er að finna réttan stað til að
byrja. Ég reyni þó. Ein af fyrstu
minningum mínum af pabba er
frá bílskúrnum heima. Þar vann
hann mikið með öðrum störfum.
Hann hafði bílstjórastarfið sem
aðalstarf en hann gat margt
annað. Hann var hagleiksmaður
á öll efni, gat smíðað úr járni og
tré og eftir hann liggja mörg
verk og segja má að hann hafi
smíðað allt milli himins og jarð-
ar nema kannski flugvél. Svo
sem hjólhýsi, bílkerrur, húsbíl
og hús. Hann byggði húsið á
Jöldugróf 7 sjálfur og hluta af
Loftur Jens
Magnússon
✝ Loftur JensMagnússon
fæddist í Keflavík
1. desember 1925.
Hann andaðist á
Landspítalanum
16. febrúar 2013.
Útför Lofts fór
fram frá Bústaða-
kirkju 22. febrúar
2013.
gamla húsinu sem
þar stóð. Hann var
líkt og margir af
hans kynslóð eins
konar Bjartur í
Sumarhúsum, vildi
og gat raunar
bjargast við flest
sjálfur, upp á eigin
spýtur. Stífur á
meiningunni og
vildi fara eigin leið-
ir. En hann var líka
strangheiðarlegur, stóð sína
plikt og vildi engum skulda.
Hann átti sér mörg áhugamál.
Hann ferðaðist mikið um Ísland
með fjölskyldu sinni og eftir
miðjan aldur fór hann til útlanda
á sólarstrendur. Þau hjónin
eignuðust sumarbústað í Hraun-
borgum, Grímsnesi, og dvöldust
þar ófáum stundum á eftir árum.
Hann var mikill áhugamaður um
veiðar, og fórum við í ófáar
veiðiferðir. Hann eignaðist
trillu, sem hann smíðaði að
mestu leyti sjálfur og stundaði
veiðar á henni sem áhugamál.
Hann átti hest sem unglingur en
stundaði ekki hestamennsku á
fullorðinsárum. Hann var
áhugasamur um flug og flaug
stundum með vinum sínum.
Hann var vel lesinn, var eigin-
lega lestrarhestur og kom mað-
ur aldrei að tómum kofa þegar
skeggræða þyrfti um einhverja
hluti. Loftur var félagslyndur
maður, hann eignaðist marga
vini í gegnum tíðina sem flestir
eru nú látnir. Alltaf var talað um
bílaviðgerðir á heimilinu þegar
þeir komu í heimsókn. Á heimili
þeirra hjóna var lengstum í gildi
fastmótuð hefðbundin verka-
skipting og sem uppalandi var
hann dæmigerður maður af
sinni kynslóð. Hann sá um að
fæða barnahópinn og mamma
var heimavinnandi og sá um
uppeldið. Ef ég á að lýsa Lofti,
þá var hann af gamla skólanum,
skipulagður og agaður, spar-
samur, vinnusamur, nægjusam-
ur, skuldaði aldrei neinum neitt
og stóð við orð sín. Hann var
ódýr á sína þjónustu og því vin-
sæll viðgerðarmaður. Hann var
ekki hræddur við neinn, hvorki
lágan né háan, og sagði sína
meiningu en oftast var það bara
til að koma af stað fjörugum um-
ræðum og þegar karlarnir voru
komnir í ham, þá hló hann. Hann
var vinsæll af vinnufélögum og
eignaðist marga vini hjá SVR til
æviloka. Hann var mikill húm-
oristi en aldrei kaldhæðinn eða
einrænn og þar skilur leiðir með
honum og Bjarti í Sumarhúsum.
Síðustu árin helgaði Loftur sig
því að annast um konu sína.
Sjálfur var hann lengstum
heilsuhraustur og bar aldurinn
vel, allt þar til hann veiktist fyr-
ir þremur vikum fyrir andlát og
mátti leggjast inn á spítala. Ég
minnist hans með miklum hlý-
hug og mun bera minningar um
hann í brjósti til æviloka.
Birgir.
✝
Bestu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns og föður okkar,
INGIMUNDAR JÓNSSONAR,
Lindarhvammi 12,
Hafnarfirði.
Sjöfn Magnúsdóttir,
Jón Ingimundarson,
Hafsteinn Ingimundarson.
✝
Innilegar þakkir til alla þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
HALLDÓRS S. SIGURÐSSONAR,
Leynisbrún 16,
Grindavík.
Jóna Þorkelsdóttir,
Sigurður Halldórsson, Laufey Þórdís Sigurðardóttir,
Unnur Heiða Halldórsdóttir,
Þorkell Halldórsson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
GUÐNA ALBERTS GUÐJÓNSSONAR
rennismíðameistara
frá Súgandafirði.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónustunnar Karitas, hjúkrunar-
heimilisins Skógarbæjar og líknardeildarinnar í Kópavogi.
Sigríður Friðrikka Jónsdóttir,
Rebekka G. Gundhus, Anders Gundhus,
Anna Ólafía Guðnadóttir, Viðar Böðvarsson,
Arnfríður Lára Guðnadóttir, Sveinbjörn Lárusson,
Kristín Guðnadóttir, Einar Vignir Sigurðsson,
Jóna Björk Guðnadóttir, Jón Marinó Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir, afi
og bróðir,
ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON
myndlistarmaður og rithöfundur,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 15. mars kl. 13.00.
Helena Jónsdóttir
Dagur Benedikt Reynisson
Sigrún Jónsdóttir og fjölskylda
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir og fjölskylda
Gunnar Þorsteinsson og fjölskylda
Margrét Þorsteinsdóttir og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vinar-
hug, aðstoð og stuðning í veikindum og við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
dóttur, móður, tengdamóður og ömmu,
HÓLMFRÍÐAR RÓSU JÓSEPSDÓTTUR,
Fjarðarhorni,
Hrútafirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Landspítalans, þá einkum
starfsfólk blóðmeinadeildarinnar 11G, fyrir einstaka
umönnun og hlýju.
Sigurður Geirsson,
Jósep Rósinkarsson,
Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir,
Þorbjörg Helga Sigurðardóttir,
Helgi Pétur Magnússon, Elísabeth Inga Ingimarsdóttir,
Andrés Smári Magnússon, Rebekka María Jóhannesdóttir,
Kristján Magnússon,
Þórdís Sif Sigurðardóttir, Gunnlaugur I. Gretarsson,
Jósep Magnússon, Ragnheiður Eyþórsdóttir,
Þorvaldur Geir Sigurðsson, Stefanía Anna Þórðardóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓHANN VILHJÁLMUR ODDSSON,
áður til heimilis á Meistaravöllum 27,
lést mánudaginn 11. mars á hjúkrunarheimili
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Hann verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Reykjavík mánudaginn 18. mars kl. 13.00.
Helgi Vilhjálmsson,
Stefán Vilhjálmsson, Fjóla Kristjánsdóttir,
Smári Vilhjálmsson, Nína Breiðfjörð Steinsdóttir,
Ásta Björk Vilhjálmsdóttir, Eduardo Pereira Dos Reis,
barnabörn og barnabarnabörn.