Morgunblaðið - 19.03.2013, Page 10
Signý Gunnarsdóttir
signy@mbl.is
Hengilshlaupið er nýtthlaup sem er alvegrosalega krefjandi. Þaðeru miklar hækkanir og
það er svaka fjölbreytni í því hlaupi.
Við vorum með þetta hlaup í fyrsta
skipti í fyrra og það heppnaðist
mjög vel. Svæðið er náttúrlega al-
veg meiriháttar fallegt,“ segir Pét-
ur Ingi Frantzson ofurhlaupari um
þetta lengsta utanvegahlaup sem
haldið er á Íslandi. Boðið verður
upp á tvær vegalengdir, 50 kíló-
metra og 50 mílur (81 kílómetri).
„Hlaupin eru í raun alveg eins
nema í 50 mílna hlaupinu er farið
yfir í Grafninginn seinni legginn til
að lengja hlaupið.“ Pétur segir sér-
staklega krefjandi að hlaupa upp
Álút fyrir ofan Hveragerði þar sem
hækkunin er töluverð en þegar upp
er komið blasir allt Grímsnesið og
Grafningurinn við og náttúrufeg-
urðin fær hlauparana til að gleyma
erfiðleikunum. Hengilshlaupið, sem
haldið verður 27. júlí, er annað
tveggja hlaupa á Íslandi sem gefa
tvo punkta í Mont Blanc-hlaupið en
meðal ofurhlaupara eru þeir ein-
staklega eftirsóttir.
Erfiðasta hlaupið sem boðið
er upp á hér á landi
Það fór lítið fyrir Hengils-
hlaupinu í fyrra enda var það ekk-
ert auglýst. „Við reyndum bara að
fá nokkra útvalda í raun til að prófa
þetta. Þeir sem tóku þátt í því lýstu
yfir mikilli ánægju með hlaupið en
sögðu samt allir að þetta væri erf-
iðasta hlaup sem þeir hefðu hlaupið.
En veðrið var æðislegt í hlaupinu í
fyrra og ég hef nú stundum sagt að
þetta sé staðbundið þarna þetta
veður. Það var mikil ánægja með
hlaupið og ég held að alla vega
helmingurinn af þeim sem fóru
þetta í fyrra ætli aftur og það segir
nú sitt.“ Þar sem Pétur var að
vinna við Hengilshlaupið í fyrra
gafst honum ekki færi á að taka
þátt í því en stefnir á að hlaupa
þetta núna og fara þá lengri leiðina.
„Þeir sem standa að þessu með mér
eru búnir að lofa mér fríi þennan
dag. Nú er ég byrjaður að æfa. Ég
Ef þú kemst 17 kíló-
metra þá kemstu 100
Lengsta utanvegahlaup á Íslandi verður haldið í annað sinn á Hengilssvæðinu í
sumar. Pétur Ingi Frantzson ofurhlaupari stendur fyrir hlaupinu og býður bæði
upp á 50 kílómetra hlaup og 50 mílna hlaup í íslenskri náttúru.
Lukkutalan Pétur Ingi Frantzson í maraþonhlaupi í Tíbet með númerið
17 og 17 kílómetrar í mark. Talan 17 er þekkt fyrir að vera tala Péturs.
Safnar hlaupum Pétur hefur hlaupið Laugaveginn níu sinnum og ætlar að
standa við gefið loforð og hlaupa hann í tíunda og síðasta skiptið í sumar.
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2013
Áhugafólk um ultra maraþon og ut-
anvegahlaup ætti ekki að láta vefsíð-
una irunfar.com framhjá sér fara. Þar
má nálgast fréttir af spennandi
hlaupum, hvort sem lesendur eru að
kynna sér áhugaverð auglýst hlaup
eða niðurstöður úr fjarlægum fjalla-
hlaupum. Eins geta hlauparar nálgast
upplýsingar um úthald á útbúnaði
eða rýni á nýjar græjur eins og skó,
vatnsbrúsa, sólgleraugu og svo fram-
vegis. Á síðunni má einnig nálgast
viðtöl við miklar hlaupakempur.
Nú fara æfingar fyrir stærstu
hlaup ársins að ná hámarki og því
ekki úr vegi að viða að sér eins mikl-
um fróðleik og mögulegt er. Ítarlegar
upplýsingar um hvernig á að æfa fyrir
ultra maraþon eru aðgengilegar á
síðunni og ættu að nýtast hlaupurum
hvort sem þeir hafa hug á leggja að
baki langar vegalengdir hér á landi
eða á erlendri grund.
Vefsíðan www.irunfar.com
Ofurmenni Timothy Olson ultra
hlaupari í 100 kílómetra hlaupi á
Nýja-Sjálandi.
Langhlaup,
græjur og
viðtöl
Framfarir, hollvinafélag millivega-
lengda- og langhlaupara, stendur fyr-
ir fræðslufundi í íþróttamiðstöðinni í
Laugardal við Engjaveg 3 frá klukkan
20-21.15 í kvöld. Þeir Gunnar Páll
Jóakimsson, íþróttafræðingur og
þjálfari, og Stefán Guðmundsson,
hlaupari og læknanemi, munu fjalla
um þjálfun fyrir 10 km hlaup og hvað
þarf helst að leggja áherslu á. Eins
verður rætt um hvort 10 km þjálfun
geti gagnast hlaupurum í öðrum
vegalengdum?
Framfarir hafa það markmið að
styðja við bakið á langhlaupurum á
Íslandi með fræðslu og viðburðum og
leggja þannig grunninn að góðum ár-
angri íslenskra hlaupara í lengri
vegalengdum í framtíðinni samhliða
því að auka meðvitund um það
hversu góð heilsurækt felst í hlaupa-
þjálfun og útiveru.
Endilega …
… lærðu hvernig þú átt að koma
þér í form fyrir 10 km hlaup
Morgunblaðið/Ómar
Hlaup Þeir sem eiga sér draum um að geta hlaupið tíu kílómetra og þeir sem
vilja bæta árangur sinn í hlaupum ættu að hlýðu á fyrirlestur Framfara í kvöld.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
ÞAR SEM BARN ER
Hamraborg 9 | sími 564 1451 | www.modurast.is | opið 10-18 virka daga og 12-16 laugardaga
Mikið úrval af kerrum og barnabílstólum
Ferðafélagið Útivist var stofnað árið
1975 og var fyrsta skipulagða ferðin
gönguferð upp á Keili. Síðan þá hefur
verið haldið í þá hefð að fara upp á
Keili einu sinni á ári og er það titlað
afmælisferð félagsins. Haldið verður
í göngu á Keili hinn 24. mars næst-
komandi. Lagt er af stað frá BSÍ
klukkan 9:30. Farið er frá Höskuld-
arvöllum yfir hraunið að fjallinu en
þetta er átta kílómetra löng ganga
með 200 metra hækkun.
Þó að ekki sé mikið um kökuhlað-
borð á þessum degi gera félagsmenn
Útivistar sér þó dagamun þar sem
boðið er upp á kakó. Göngutími er
áætlaður fjórar klukkustundir og far-
arstjóri er Sigurður Jóhannsson. Að
venju er ódýrara í gönguna fyrir fé-
lagsmenn og kostar fyrir þá 3.000
krónur en fyrir aðra kostar 4.000
krónur.
Afmælisganga Útivistar
Árleg afmæl-
isferð upp
á Keili