Morgunblaðið - 19.03.2013, Side 14
Morgunblaðið/RAX
Landeyjahöfn Herjólfur siglir sína fyrstu ferð í Landeyjahöfn.
Herjólfur siglir á ný til Landeyja-
hafnar í dag en höfnin er nú orðin
nógu djúp til að það sé hægt.
Herjólfur hefur ekki siglt í Land-
eyjahöfn síðan skipið rakst utan í
hafnargarðinn í slæmu veðri í nóv-
ember. Síðan í marsbyrjun hefur
verið unnið að því að dýpka höfn-
ina.
Dýpkunarvinnan í höfninni gekk
hægar en vonir stóðu til en dýpk-
unarskipin Perla, Sóley og Dísa í
eigu Björgunar voru notuð til
verksins. Innan hafnarinnar þurfti
að taka um 50 þúsund rúmmetra
af sandi og 27 þúsund rúmmetra
til viðbótar á rifinu utan við höfn-
ina til að Herjólfur gæti siglt þar
inn.
Fjórar ferðir til Landeyjahafnar
verða farnar í dag, samkvæmt
vetraráætlun. Starfsfólk Herjólfs
bendir farþegum á að þar sem enn
er töluvert eftir af marsmánuði sé
allra verða von og því mikilvægt
að fylgjast vel með tilkynningum á
vefsíðu Herjólfs, á facebook eða
síðu 415 í textavarpi.
Brottför frá Vestmannaeyjum
verður á morgun klukkan 8:00,
11:30, 17:30 og 20:30. Brottför frá
Landeyjahöfn verður klukkan
10:00, 13:00, 19:00 og 21:30.
una@mbl.is
Landeyjahöfn nógu
djúp fyrir Herjólf
Dældu 77.000 rúmmetrum af sandi
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2013
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
18
16
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
LÁTTU FAGMENN
META GULLIÐ
Sérstaða okkar hjá Jóni og Óskari er sú að við höfum keypt og selt
gull í 41 ár og búum því yfir mikilli þekkingu, reynslu og fagmennsku
á þessu sviði.
Við kaupum til endurvinnslu allar tegundir af gullskartgripum, gamla
og nýja, gullúr, tanngull, gullpeninga, hvers kyns silfur og demanta í betri
skartgripagæðum.
Við bjóðum gott og alþjóðlega samkeppnishæft verð fyrir gripina og fram-
leiðum úr öllu gulli sem við kaupum. Þannig spörum við gjaldeyri.
Komdu til okkar á Laugaveg 61 og leyfðu okkur að veita þér faglega
ráðgjöf sem tryggir að þú færð rétta greiningu á þínum verðmætum.
Það skiptir mestu máli.
Við staðgreiðum allt gull en áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki.
Aðeins í verslun okkar að Laugavegi 61, virka daga milli kl. 10–18.
Góð séraðstaða þar sem gull er metið í ró og næði.
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími: 564 6070 | fax: 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Ríkisskattstjóri gerir margvíslegar
athugasemdir við nýtt frumvarp
fjármálaráðherra um bætur til
þeirra sem hafa tekið fasteignalán
með lánsveðum, þ.e. tekið lán sem
eru með veði í eign annarra. Mælir
stofnunin með að frumvarpið verði
tekið til frekari athugunar áður en
það verður að lögum.
Frumvarpinu var dreift á Alþingi
14. mars sl., einum degi áður en
þingi átti að ljúka eftir því sem
sagði í starfsáætlun þingsins.
Samkvæmt frumvarpinu fellur
það í hlut ríkisskattstjóra að reikna
út vaxtabæturnar.
Í fyrsta lagi bendir ríkisskatt-
stjóri á að umsóknirnar verði tæp-
lega hægt að gera rafrænt og af-
greiðsla þeirra verði því tíma-
frekari en ella. Þá þurfi að vinna úr
umsóknum um vaxtabæturnar á
sama tímabili og kærur ein-
staklinga eru afgreiddar en emb-
ættinu hafi undanfarin ár ekki tek-
ist að afgreiða allar þær kærur
innan tilskilins frest.
Í öðru lagi er bent á að verið sé
að koma til móts við tiltekinn hóp
skattaðila sem bera greiðsluskyldu
af skuldabréfum í eigu annars aðila
en skuldara. Hætt sé við við að út-
færsla frumvarpsins taki ekki til
allra sem þannig er ástatt um.
Gætu þurft að lækka bætur
Í þriðja lagi er bent á að enn einu
sinni sé verið að flækja skatt-
framkvæmd með því að taka upp
þriðju tegund bótaagreiðslna á
grundvelli vaxtagjalda.
Í fjórða lagi fjallar álitið um að í
frumvarpinu sé gert ráð fyrir að
ríkisskattstjóri ákvarði bæturnar í
samræmi við gefnar forsendur en
skerði síðan heildarúthlutun bóta,
þ.e. hlutfallslega hjá hverjum ein-
stökum ef svo vill til að samanlögð
ákvörðun bóta hefði farið fram úr
500 milljónum. „Aðferð þessi við
ákvörðun bótagreiðslna er óvenju-
leg og fáheyrð í skattaákvörð-
unum,“ segir í álitinu.
Í fimmta lagi er m.a. gerð at-
hugasemd við að ekki sé skýrt
hvort réttur til bóta eigi eingöngu
við einstaklinga en ekki lögaðila.
Í sjötta lagi er bent á að ekki sé
ljóst hvaða málskotsleiðir séu fær-
ar.
Í sjöunda lagi gerir ríkisskatt-
stjóri athugasemd við að ekki sé í
kostnaðaráætlun frumvarpsins
minnst á kostnað sem myndi falla
til hjá embætti ríkisskattstjóra
vegna þeirra vinnustunda sem fara
í útreikningana. Sá kostnaður yrði
tæplega lægri en 24-30 milljónir.
Athugasemdir embættisins eru
fleiri og lúta m.a. að því við hvaða
fasteignamat skuli miðað.
Aðferðin er „óvenjuleg og fáheyrð“
Ríkisskattstjóri gerir margar athugasemdir við nýtt frumvarp um vaxtabætur vegna lánsveða
„Enn einu sinni verið að flækja skattframkvæmd“ Þriðja tegund bóta á grundvelli vaxtagjalda
Morgunblaðið/ÞÖK
Bætur Ríkisskattstjóri á að reikna.
Lánsveðsfrumvarpið tekur til
þeirra sem keyptu fasteign á
tímabilinu 1. janúar 2004 til og
með 31. desember 2008. Skil-
yrði fyrir bótum er að viðkom-
andi hafi átt fasteignina 31.
desember 2010 og hafi ekki
fengið höfuðstól lækkaðan áð-
ur, s.s. samkvæmt 110% leiðinni
svokölluðu. Bæturnar geta ekki
verið hærri en 160 þúsund hjá
einstaklingi en 280 þúsund hjá
hjónum og sambúðarfólki.
Hámarkið er
280.000 kr.
LÁNSVEÐSFRUMVARPIÐ
Ökumaður sem
lögreglan á Suð-
urnesjum stöðv-
aði á sunnudag
viðurkenndi að
vera undir áhrif-
um fíkniefna og
afhenti lögreglu
jafnframt amfeta-
mín sem hann var með í peysuvasa
sínum. Við leit í bifreið hans fannst
enn meira amfetamín, sem hann
hafði komið fyrir í bakpoka sínum
svo og í kortaveski í aftursæti.
Maðurinn, sem er um tvítugt og
hefur margoft komið við sögu hjá
lögreglu vegna fíkniefnaaksturs og
ofsaaksturs, ók einnig sviptur öku-
réttindum.
Annar ökumaður, sem lögregla
hafði afskipti af, ók einnig undir
áhrifum fíkniefna. Sýnatökur stað-
festu neyslu hans á kannabis og am-
fetamíni.
Með fíkniefni
í peysu og
bakpoka