Morgunblaðið - 19.03.2013, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2013
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Fjölgun ferðamanna kallar á 1.600
ný hótelherbergi í Reykjavík á næstu
árum en búist er við að ferðamenn-
irnir verði brátt ein milljón á ári.
Þörfin mun væntanlega svara til 200-
260 herbergja á ári. Ekki er óvarlegt
að áætla að um sé að ræða heildar-
fjárfestingu fyrir 24 milljarða króna
eða sem nemur heildarkostnaði við
Búðarhálsvirkjun, svo dæmi sé tekið.
Þetta segir Davíð Björnsson, for-
stöðumaður á fyrirtækjasviði Lands-
bankans, í samtali við Morgunblaðið.
Um 647 þúsund erlendir ferða-
menn fóru í gegnum Leifsstöð árið
2012. Verði aukning ferðamanna
jafnmikil á næstu árum og á liðnum
áratug, og fjölgi um 8% á ári, mun ein
milljón erlendra ferðamanna koma
hingað til lands árið 2018. Miðað við
5% aukningu á ári verði ferðamenn-
irnir orðnir ein milljón árið 2020.
Ekki of geyst farið
Þær raddir hafa heyrst að farið sé
of geyst í hóteluppbyggingu í mið-
bænum en miðað við greiningu Dav-
íðs virðist það ekki vera raunin.
Gistinóttum útlendinga í Reykjavík
hefur fjölgað um 134% frá 2000 til
2012 en hótelherbergjum í Reykjavík
hefur fjölgað um 96%. „Framboð
hótelherbergja hefur ekki haldist í
hendur við fjölgun ferðmanna. Það
væri óþægileg staða og slæmt af-
spurnar ef ferðamenn sem koma
hingað til lands fá ekki gistingu,“
segir hann.
Gangi greiningin eftir mun fjöldi
hótelherbergja í miðbæ Reykjavíkur
tvöfaldast á umræddu tímabili. Her-
bergin í Reykjavík séu um þrjú þús-
und, og þar af sé helmingurinn í mið-
bænum. „Það má því búast við að
miðborgin taki miklum breytingum á
næstu árum,“ segir Davíð.
Á árunum 1970 til 2000 hnignaði
atvinnustarfsemi í miðbæ Reykja-
víkur. Ný athafnahverfi í austur-
borginni fóru að byggjast upp og at-
hafnalífið fluttist þangað smám
saman. Stór hluti fyrirtækja flutti úr
miðborginni og starfsmenn þeirra
áttu ekki lengur erindi þangað.
„Með uppgangi hótela í miðborg-
inni eftir 2000 fékk miðborgin loksins
þá viðspyrnu sem hún þurfti til að
snúa þessari þróun við,“ segir Davíð
og nefnir að þetta hafi ekki gerst á
einni nóttu, en frá árinu 2000 hefur
hótelum í miðborginni fjölgað mjög,
eða úr 452 herbergjum í 1.479 árið
2012. „Þetta hefur kallað á aukna
umferð um þetta svæði, sem hefur
verið grundvöllur að aukinni verslun
og þjónustu, sem þar hefur sprottið
upp. Aukin verslun og þjónusta laðar
síðan að sér fleiri hótel og nú er þró-
unin sú að flest ný hótel eru á þessu
svæði.“
Góð arðsemi tvö síðustu ár
Arðsemi fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu hefur ekki verið nægilega góð í
gegnum tíðina. Davíð segir að arð-
semi hótela hafi verið góð undanfarin
tvö ár, einkum vegna þess að nýting
hafi farið batnandi og verð farið
hækkandi vegna gengislækkunar
krónu frá árinu 2008. Hann telur að
það sé mikill áhugi hjá fjárfestum að
taka þátt í uppbygginu hótela í mið-
bænum. Eftir bankahrunið horfi
margir fjárfestar til gjaldeyrisskap-
andi fyrirtækja, og mikill áhugi sé á
að fjármagna fullbyggð hótel hjá líf-
eyrissjóðum og sérhæfðum fjárfest-
ingarsjóðum. Hótelrekendur geti svo
leigt af þeim fasteignina. Það sé
minni áhugi hjá þessum fjárfestum
að fjármagna byggingarstigið. „Það
er algengara að þeir sem reka hótel
leigi fasteignina. Það sem mestu máli
skiptir fyrir þá er að hafa tryggt hald
í eigninni, t.d. með því að gera leigu-
samning til 20 ára,“ segir Davíð.
Kallar á 24 milljarða
fjárfestingu í hótelum
Þörf fyrir 200-260 ný hótelherbergi á ári á næstu árum
Morgunblaðið/Golli
Blæs lífi Fjölgun hótela í miðbænum hefur blásið lífi í bæinn. Á árunum
1970 til 2000 hnignaði atvinnustarfsemi í miðbænum.
Fjölgun ferðamanna
» Um 647 þúsund erlendir
ferðamenn fóru í gegnum Leifs-
stöð árið 2012.
» Fjölgi ferðamönnum jafn-
mikið á næstu árum og á liðn-
um áratug, eða um 8% á ári,
mun ein milljón ferðamanna
koma hingað til lands árið 2018.
Miðað við 5% aukningu á ári
verða þeir milljón árið 2020.
Vegna sameiningar lyfjafyrirtækis-
ins Watson í Bandaríkjunum og Ac-
tavis Group á Íslandi hefur Actavis
tekið í notkun nýtt merki en það
byggist á gormlaga DNA-keðju og
út úr henni má lesa bókstafina W
fyrir Watson og A fyrir Actavis,
samkvæmt því sem framkemur í til-
kynningu frá fyrirtækinu.
Eitt merki á heimsvísu
mikilvægt
„Farið var í þessa breytingu að vel
ígrunduðu máli og af virðingu fyrir
sögu og hefðum hvors fyrirtækis, án
þess að missa sjónar á mikilvægi
þess að nota eitt merki á heimsvísu.
Lagt var í mikla vinnu og ítarlega út-
tekt á mögulegum nöfnum og voru
skoðuð yfir 2.000 önnur möguleg
heiti. En eftir því sem á leið, varð
ljóst að Actavis-nafnið skaraði fram
úr og hægt er að nota vandræðalaust
um allan heim. Slíkt var ekki mögu-
legt með Watson,“ segir ennfremur í
fréttatilkynningunni frá Actavis.
Ennfremur hafi verið gerð ítarleg
úttekt á samkeppnisumhverfi fyrir-
tækisins og leitast við að finna lita-
þema sem skæri sig úr á meðal sam-
keppnisaðila þess á samheitalyfja-
markaðinum.
Merki Nýtt merki Actavis tekið í notkun, eftir sameininguna við Watson.
Actavis tekur
upp nýtt merki
Sameiningin við Watson ástæðan
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fataframleiðandi
fagfólksins
BRAGARD