Morgunblaðið - 19.03.2013, Side 24

Morgunblaðið - 19.03.2013, Side 24
24 UMRÆÐANBréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2013 Laugavegi 2 • 101 Reykjavík • sími 552 1103 www.jurtaapotek.is • jurtaapotek@jurtaapotek.is Nýtt námskeið með Kolbrúnu grasalækni sem er sérsniðið fyrir fólk sem á við gigtarsjúkdóma að stríða. Kolbrún kennir hvernig má minnka einkenni gigtarsjúkdóma með góðu mataræði, inntöku jurta og ýmsu öðru. Farið er vel í hvaða jurtir virka bólgueyðandi, verkjastillandi, blóðhreinsandi, kraft- aukandi og styrkjandi en með því að þekkja jurtirnar getur fólk bjargað sér meira sjálft og slegið á einkenni gigtar. Skráning í síma 552 1103 eða á netfanginu jurtaapotek@jurtaapotek.is Námskeiðið er haldið á Laugavegi 2, þann 26. mars og hefst kl. 18.30. Verð 4.500 kr. Allir þátttakendur fá möppu með fróðleik og ítarefni og afslátt af vörum Jurtaapóteksins á námskeiðskvöldi. Gigt og grasalækningar Öðru hverju minnast fjölmiðlar stóratburða sem á sínum tíma nístu hjörtu þjóðarinnar, svo sem sjóslysa og snjóflóða. Þetta er þjóðlegt og mannlegt. Þjóðin, byggð- irnar og ein- staklingarnir hafa vissulega lifað af þessar raunir. Nú hefur tíminn deyft hina sáru sorg. Það er hægt að ræða atburðina. Lífið heldur áfram án hlífðar. Sama skeður í lífi einstaklinga og fjölskyldna sem eiga harma sína að rekja til smærri slysa eða skyndilegs dauða, jafnvel barns í vöggu. Alltof oft berast fréttir um slíkt. Ég beini orðum mínum til þeirra sem eru í sárum. Ég hef þörf fyrir að miðla reynslu minni til þeirra. Ég hef alltaf talið mér það nánast skylt sem samborgara. Munið alltaf, að til ykkar beinist samúðarhugur og mannhlýja, þótt hljótt fari. Munið, að enginn er al- veg einn í sorginni. Samúðin veitir ykkur styrk í langri og þungri göngu. En vita megið þið, að smám saman tekur að birta og allt að breytast. Þið komist að því, að þið eigið, þrátt fyrir missinn. Dökkv- inn í ljóðinu um sorgina er ekki varanlegur. Það birtir. Þar er fyrir að þakka fyrirheit- inu stóra, sem frelsari okkar gaf okkur og rifjast upp á næstu stórhátíð: Ég lifi og þér munuð lifa. Barnsmissir. Skyndilega kemur sorgin opineyg upp að þér og segir nú dansar þú við mig sjáðu er ég ekki falleg í svörtu drjúpandi hjartablóð þitt mun svo strá fagurrauðum perlum á svartan síðan kjólinn í dansi hinna dimmu nátta. HELGI KRISTJÁNSSON, Ólafsvík. Dauðinn, sorgin og fyrirheitið Frá Helga Kristjánssyni Helgi Kristjánsson Bridsdeild Breiðfirðinga Sunnudaginn 17/3 var síðasta kvöldið í þriggja kvölda hraðsveita- keppni. Þar sem 11 sveitir mættu til leiks. Röð efstu sveita var þessi. Magnús Sverriss. og Halldór Þorvaldsson – Árni Hannesson og Oddur Hanness. 1.828 Ragnar Haraldsson og Bernhard Linn – Friðrik Jónss. og Jón V. Jónmundss. 1.730 Sveinn Sveinsson og Karólína Sveinsd. – Gunnar Guðmss. og Sigurjóna Björgvinsd. 1.648 Sturlaugur Eyjólfss. og Birna Lárusd. – Jón Jóhannss. og Birgir Kristjánss. 1.647 Þorleifur Þórarinsson og Haraldur Sverr- isson – Garðar V. Jónsson og Sigurjón Ú Guðmundsson 1.644 Næsta sunnudag, pálmasunnu- dag, verður spilaður eins kvölds ba- rometer, páskamót. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19. Eiður og félagar á mikilli siglingu Þriðja kvöldið af fjórum í Hrað- sveitakeppni Bridsfélags Kópavogs var spilað sl. fimmtudag. Eiður Mar Júlíusson og félagar héldu áfram sigurgöngunni og fengu hæsta skorið þriðja kvöldið í röð og hafa 161 stig í forskot. Staða efstu sveita er þessi. Eiður Mar Júlíusson 1860 Guðlaugur Bessason 1699 Björ Halldórsson 1675 Þorsteinn Berg 1674 Bernódus Kristinsson 1662 Eldri borgarar Hafnarfirði Föstudaginn 15. mars var spilað á 14 borðum hjá FEBH með eft- irfarandi úrslitum í N/S Ólafur Ingvarsson – Ásgeir Sölvason 393 Albert Þorsteinsson – Björn Árnason 361 Örn Einarsson – Auðunn Guðmss. 355 Friðrik Hermannss. – Guðl. Ellertss. 341 Nanna Eiríksd. – Bergljót Gunnarsd. 337 A/V Helgi Sigurðsson – Þorv. Þorgrímss. 383 Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 375 Kristján Þorláksson – Haukur Guðmss. 336 Knútur Björnsson – Sigurjón Sverriss. 331 Sveinn Snorrason – Gústav Nílsson 328 Félag eldri borgara Reykjavík Fimmtudaginn 14. mars var spil- aður tvímenningur hjá bridsdeild Félags eldri borgara, Stangarhyl 4, Reykjavík. Keppt var á 12 borðum. Meðalskor 216 stig. Efstir í N/S Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 302 Júlíus Guðmss. – Magnús Halldórss. 251 Ágúst Helgason – Haukur Harðars. 238 Björn Árnason – Jón H Jónsson 237 A-V Begur Ingimundars. – Axel Láruss. 256 Auðunn Guðmss. – Oddur Halldórss. 251 Guðrún Jörgensen – Sigrún Pétursd. 248 Sigurjón Helgason – Helgi Samúelss. 244 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Komið er á daginn að það var rétt um- hverfismat að Kára- hnjúkavirkjun myndi hafa neikvæð áhrif á lífríkið í Lagarfljóti. Persónulegt mat um- hverfisráðherra, sem skrifaði upp á fram- kvæmdina, var hins vegar rangt þegar hún fullyrti að ekki yrðu mikil áhrif á lífríkið. Enda var sú skoðun ekki byggð á neinni þekk- ingu, rannsóknum eða rökum. Hún var pólitísk ákvörðun, byggð á áróðri, blekkingum og valdbeitingu. Upplýsingafulltrúi Landsvirkj- unar vitnar nú hróðugur í hið fyrra umhverfismat um að lífsskilyrði í Fljótinu myndu rýrna þannig að þetta ætti ekki að koma neinum á óvart. En gleymir þá að yfirvöld völtuðu yfir það mat og höfðu að engu. Það er ekki hægt að skýla sér á bak við þau varnaðarorð sem Landsvirkjun og ráðherra kusu að hunsa þegar ráðist var í hina óaft- urkræfu framkvæmd í þágu at- vinnulífs sem virðist vera utan og ofan við lífið sjálft. Sambærilegt umhverfisslys er nú á óskalista sumra í Þjórsá. Í Morg- unblaðinu hinn 12. mars hvetur Páll Pálmar Daníelsson til þess að menn drífi nú í að virkja í neðri hluta árinnar til að byggja upp atvinnulífið frekar en seiði laxfiskastofna. Páll hefur það til marks að hann hafi „átt samskipti við nokkur hundruð stangveiðiáhugafólks“ og enginn hafi nokkru sinni „minnst einu ein- asta orði á laxveiðar í Þjórsá“. Um- fjöllun Páls um Þjórsá byggist á því að hann hefur horft á ána í leys- ingum af brúnni á þjóðvegi 1. Ráð- gjöf í þessum drífandi anda hefur sennilega verið leiðarljósið þegar umhverfisráðherra leyfði Kára- hnjúkavirkjun. Enginn hafði hitt stangveiðimann sem sagði veiðisög- ur úr Lagarfljóti og því væri best að leggja það í eyði. Páli og öðrum lesendum Morg- unblaðsins er rétt að benda á að í Þjórsá er stærsti sjálfbæri laxa- stofn við Norður-Atlantshaf og netaveiði í ánni hefur farið upp í tíu þúsund laxa á ári. Hér eru því um- talsverð hlunnindi landeigenda í húfi í bland við almenn sjónarmið náttúruverndar. Íslensk stjórnvöld eru skuldbundin af alþjóðasátt- málum um að leyfa engar fram- kvæmdir sem ógni villtum dýra- stofnum svo liggi við útrýmingu. Forstjóri Landsvirkjunar skrifaði að vísu í Morgunblaðið hinn 13. febrúar sl. og deildi þeirri skoðun með Páli að ekki þyrfti að hafa áhyggjur af fiskstofnum í Þjórsá sem myndu í mesta lagi skerðast óverulega. Áhyggjuleysi þeirra Páls og Harðar Arnarsonar gengur hins vegar þvert á mat óháðra erlendra sérfræðinga í áhrifum virkjana á fiskstofna. Þeir hafa sagt að virkj- anir í neðri hluta Þjórsár muni út- rýma 81-90% laxastofnsins í ánni. Þessar fyrirhuguðu virkjanir eru nú til allrar hamingju komnar í tíma- bundinn biðflokk rammaáætlunar, á meðan aflað er frekari gagna. Von- andi verður leitað eftir þeim gögn- um annars staðar en hjá Lands- virkjun og Páli Pálmari Daníelssyni. Á aldrei að byrgja brunninn? Eftir Gísla Sigurðsson »Enn á ný vill fólk drífa í virkjunum í þágu atvinnulífs sem er sett ofar lífinu sjálfu – og stefna beint á næsta banaslys í umhverfinu. Gísli Sigurðsson Höfundur er íslenskufræðingur. Fyrir tíu árum var það stærsta kosninga- loforð Framsókn- arflokksins að sjá til þess að fólk gæti tekið 90% húsnæðislán hjá Íbúðalánasjóði. Illu heilli stóð flokkurinn við loforð sitt þegar hann komst til valda. Afleiðingarnar eru öll- um kunnar. Tíu árum síðar vill Framsóknarflokkurinn „leiðrétta“ þessi lán sem hann ginnti fólk til að taka. Samkvæmt ályktun flokksins vill hann „að stökkbreytt verðtryggð húsnæðislán verði leið- rétt“ og „að verðtrygging á neyt- endalánum verði afnumin“. Hver á að borga? Það sem fyrst kemur upp í hugann er spurningin um hver eigi að borga. Ljóst er að fjölmargir einstaklingar urðu illa úti í efnahagshremming- unum árið 2008. Framsóknarflokk- urinn einblínir fyrst og fremst á þá sem tóku verðtryggð lán sem hækk- uðu síðan upp úr öllu valdi. En hvað um aðra sem urðu fyrir miklum skakkaföllum? Er það sanngjarnt að þeir greiði fyrir leiðréttingu á verð- tryggðum húsnæðislánum? Hvað um þá sem fóru með gát? Hvaða réttlæti er fólgið í því að þeir greiði niður lán þeirra sem fóru sér að voða? Það er nefnilega svo að einhver verður að borga. Skuldirnar hverfa ekki af sjálfu sér. Framsóknarflokk- urinn hefur aldrei svar- að því með skýrum hætti hver eigi að bera kostnaðinn. Og það er ekki eins og hann hafi ekki fengið tækifæri til þess. Þingmaður flokks- ins leiddi til dæmis sérstaka verð- tryggingarnefnd árið 2011 sem skil- aði af sér skýrslu um málið. Þar kom ekki fram hvernig flokkurinn hygðist leiðrétta lánin. Nýlega lýsti formaður flokksins því yfir að komist flokk- urinn til valda muni hann skipa nefnd sem fara eigi í málið. Það er ekki mjög trúverðugur málflutningur. Flokknum til varna, þá kom einn frambjóðandi hans hreint fram og sagði að það þyrfti að hækka skatta á almenning til þess að standa straum af kostnaðinum við leiðréttinguna. Það er gott að vita það fyrir komandi kosningar. Ástæðulaust að banna verðtryggingu Hinn raunverulegi vandi er verð- bólgan. Verðtrygging er bara samn- ingsatriði tveggja frjálsborinna manna. Það verður að teljast eðlilegt – sé tekið mið af verðbólgusögu ís- lensku krónunnar – að sá sem veiti lán vilji fá jafnvirði lánsins end- urgreitt auk lágrar greiðslu í formi vaxta. Sé það bannað – eins og Fram- sóknarflokkurinn leggur til – hættir hann að veita lán. Það er engum til góðs. Staðan í dag er sú að hægt er að taka óverðtryggt lán hjá öllum bankastofnunum. Þess vegna er ástæðulaust að banna verðtrygg- inguna. Boð og bönn leysa engan vanda. Við þurfum síst á því að halda að þeim kostum sem bjóðast okkur í lánamálum verði fækkað. Valfrelsi er ávallt af hinu góða. Framsókn- arflokkurinn verður einnig að skilja það að til að niðurfella skuld eins þarf að finna einhvern annan til að borga skuldina. Sigmundi Davíð er margt til lista lagt. En hann getur ekki látið skuldirnar hverfa. Það er lífsins ómögulegt. Framsókn í kosningaham Eftir Kristin Inga Jónsson Kristinn Ingi Jónsson » Framsóknarflokk- urinn verður að skilja það að til að nið- urfella skuld eins þarf að finna einhvern annan til að borga skuldina. Höfundur er menntaskólanemi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.