Morgunblaðið - 19.03.2013, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.03.2013, Blaðsíða 35
og var dagskrárgerðarmaður á Stöð 2 1997-99. Vala hafði umsjón með og stjórn- aði ýmsum meginþáttum við upp- byggingu Skjás eins og var dag- skrárgerðarmaður og ráðgjafi Skjás eins frá 1999. Vala hefur svo sinnt arkitektaráð- gjöf, margvíslegum störfum sem arkitekt, sinnt ritstörfum og unnið við vefumfjöllun af ýmsum toga. Hún hefur auk þess staðið fyrir umfangsmikilli umfjöllun um bygg- ingarlist, menningu og listir í sjón- varpi og útvarpi og tímaritum frá 1986 og á vefmiðlum frá 2009. Sælkeri í sjöunda himni Hafa fjölmiðlar þróast eins og þú áttir von á þegar Stöð 2 byrjaði? „Ég held að enginn hafi getað séð fyrir fjölmiðlabyltingarnar frá því sjónvarp hófst. Það gjörbreytti miðl- un um heim allan – og nú er það stærsta sjónvarpsstöð heims, netið sem er sannarlega að breyta heim- inum til góðs. Eitt nærtækasta dæm- ið er arabíska vorið þar sem sam- félagsmiðlarnir á veraldarvefnum skiptu sköpum. Hægt er að nefna fjölmörg önnur dæmi þar sem netið hefur verið notað til góðs. Og af því netið er stærsta sjónvarpsstöðin er ég farin að vinna mjög mikið á netinu, þó að ég sé einnig að undirbúa sjón- varpsþáttaröð sem verður mjög spennandi að sjá hvernig þróast, en hún mun auðvitað einnig að hluta til tengjast netinu. Nú er ég á fullu að vinna Sælkera- leiðarvísi um Ísland / Iceland Local Food Guide þar sem ég vinn efni við prentaðan bækling og heimasíðuna www.icelandlocalfood.is. Þetta er eitt skemmtilegasta fjöl- miðlaverkefni sem ég hef unnið. Þeg- ar ég var að kvikmynda úti á landi í fyrra komst ég að því að hvergi voru til samanteknar upplýsingar um alla þá frábæru veitingastaði um allt land sem bjóða upp á mat á heims- mælikvarða. Eina sem var sýnilegt voru bensínsjoppur með sjoppufæði. Ég ákvað því að setja saman bækling og heimasíðu fyrir netið, símana og spjaldtölvur, þar sem allar upplýs- ingar koma fram, fyrir erlenda ferða- menn og okkur sjálf, sem kunnum að meta íslenskan sælkeramat. Hér er ég alveg í essinu mínu að heimsækja bestu veitingastaðina í Reykjavík og á landsbyggðinni, borða geggjaðan mat og miðla því til sem flestra með umfjöllun og kvikmyndaefni. Ég fjalla einnig um krásarverk- efnin sem eru í öllum landshlutum og eru alveg stórkostleg, Beint frá býli. og allt sem viðkemur okkar dýrindis mat. Nú er að koma út í maí næst- komandi önnur prentun af sælkera- bæklingnum, svo ég er alveg á kafi í vinnu við þetta ævintýralega verk- efni og í sæluvímu. Sælkerinn og fjöl- miðlakonan er því í sjöunda himni.“ Fjölskylda Fyrri Maður Valgerðar var Ólafur Árnason, f. 8.6. 1951, fram- kvæmdastjóri. Dóttir þeirra er Tinna Ólafsdóttir, f. 19.8. 1976, kennari, búsett í Dan- mörku en maður hennar er Haukur Þórðarson arkitekt og eiga þau tvo syni, Ólaf Dag og Egil. Seinni maður Valgerðar var Jón Óttar Ragnarsson, f. 10.8. 1945, dokt- or í matvælafræði, stofnandi Stöðvar 2 og framkvæmdastjóri í Bandaríkj- unum. Fósturdóttir Valgerðar, dóttir Jóns Óttars og Ingibjargar Eddu Edmundsdóttur, er Sólveig Erna Jónsdóttir, f. 20.7. 1972, sálfræð- ingur, gift Þorsteini Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Viðskiptaþróun- ar hjá CCP, og eiga þau tvö börn, Jón Bjart og Eddu Sólveigu. Systkin Valgerðar eru Ólafur Már, f. 18.8. 1954, d. 25.11. 2003, kennari; Sigurborg, f. 13.12. 1955, líffræðingur og konrektor MH; Haraldur, f. 13.12. 1956, guðfræðingur; Brynja Dagmar, f. 18.11. 1960, viðskiptafræðingur og kennari; Ása Björk, f. 16.7. 1962, kennari. Hálfsystir Valgerðar, samfeðra, er Kolbrún, f. 21.6. 1951. Foreldrar: Elín Guðríður Ólafs- dóttir, f. 28.11. 1933, aðstoð- arskólastjóri og fyrrv. borgarfulltrúi í Reykjavík, og Matthías Haraldsson, f. 11.6. 1929, d. 5.2. 1990, skólastjóri. Úr frændgarði Valgerðar Matthíasdóttur Valgerður Matthíasdóttir Guðríður Eiríksdóttir húsfr. í Rvík Einar Þórðarson verslunarm. í Rvík Ólafur Hafsteinn Einarsson kennari í Rvík Gréta Sigurborg Guðjónsdóttir húsfr. í Rvík Elín Guðríður Ólafsdóttir fyrrv. skólastjóri og borgarfulltr. Daníela Jónsdóttir húsfr. í Rvík Guðjón Jónsson verkam. í Rvík Ásbjörg Tómasdóttir húsfr. á Fossá Ólafur Matthíasson b. á Fossá í Kjós Valgerður Ólafsdóttir húsfr. í Rvík Haraldur Frímannsson húsasmiður í Rvík Matthías Haraldsson skólastjóri Frímann Guðjónsson b. í Hvammkoti á Skagaströnd Þóra Frímannsdóttir húsfr. á Tjarnarlandi á Skaga Aðalheiður Frímannsdóttir húsfr. í Hafnarf. Lilja Guðjónsdóttir húsfr. í Hafnarfirði, móðir Guðjóns Árnasonar handknatt- leikskappa Jóna Ósk Guðjónsd. fyrrv. forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi ríkisins Jes Einar Þorsteinsson arkitekt ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2013 Guðbjörn Jónsson, knatt-spyrnuþjálfari og klæð-skerameistari, fæddist í Reykjavík 19.3. 1921 og ólst upp í Stóra-Skipholti á Bráðræðisholtinu. Foreldrar hans voru Jón Jónsson, sjómaður og síðar afgreiðslumaður hjá Essó í Reykjavík, og k.h., Þór- unn Helga Eyjólfsdóttir húsfreyja. Jón var sonur Jóns, b. í Hólakoti á Álftanesi, bróður Guðrúnar í Hlíðar- húsum, langömmu Jóns Gunnars Zoëga, lögmanns og fyrrv. formanns Vals. Þórunn Helga var dóttir Eyj- ólfs í Drangshlíð Sveinssonar, og Sigríðar Helgadóttur. Guðbjörn lærði klæðskeraiðn hjá Gunnari Magnússyni klæðskera og lauk sveinsprófi 1944, stundaði síðan nám í fatateiknun í Danmörku og fatamátun í Frakklandi. Guðbjörn opnaði klæðskerastofu í Reykjavík og rak hana í nokkur ár, starfaði síðan hjá Verksmiðjunni Föt hf. þar sem hann var verkstjóri til 1979 en starfaði síðan við KR- heimilið síðustu starfsárin. Guðbjörn hóf ungur afskipti af íþróttum. Hann lék sinn fyrsta keppnisleik í knattspyrnu með 3. flokki KR 1933, var bakvörður í meistaraflokki KR 1940-56 og varð þá sex sinnum Íslandsmeistari en hann og bræður hans þrír urðu allir Íslandsmeistarar með meistara- flokki KR. Þá varð hann Reykjavík- urmeistari í skíðagöngu 1941 og 42 og KR-meistari í hnefaleikum. Guðbjörn stundaði knattspyrnu- þjálfun um áratuga skeið. Hann þjálfaði Keflvíkinga og meistara- flokk KR er þeir urðu Íslandsmeist- arar 1965 og bikarmeistarar 1966. Þá þjálfaði hann Ármenninga, Þrótt og 1. deild Vals. Lengst af þjálfaði hann þó yngri flokka KR í knatt- spyrnu. Guðbjörn var knattspyrnudómari og milliríkjadómari. Hann var um skeið formaður Knattspyrnu- dómarafélags Reykjavíkur og sat í stjórn knattspyrnudeildar KR. Eftirlifandi eiginkona Guðbjörns er Sigríður María Sigmarsdóttir, f. 21.7. 1935, húsfreyja og eignuðust þau fjögur börn. Guðbjörn lést 2.1. 2007. Merkir Íslendingar Guðbjörn Jónsson 90 ára Sigurður Þorsteinsson 85 ára Guðmundur Þorsteinsson Hjördís Ingibjörg Konráðsdóttir Inga H. Jónsdóttir Ólafía Stefanía Ísfeld Sigbjörn Jóhannsson 80 ára Guðlaug Helgadóttir 75 ára Anna Jónsdóttir Gísli Gunnarsson Jóhanna K. Bruvik Marsibil Jónsdóttir 70 ára Gylfi Már Guðjónsson Helga Haraldsdóttir Kristín E. Sigurðardóttir Matthildur Arnalds Sverrir Halldórsson Valgerður Guðbjartsdóttir 60 ára Anna Sigrún Guðmundsdóttir Áskell Þórisson Einar Ólafur Jónasson Erika Irmgard Pauler Guðrún Kristín Bachmann Ingunn Sæmundsdóttir Kristrún Bragadóttir 50 ára Auður Bjarnadóttir Elfa Kristín Sigurðardóttir Elínborg Guðnadóttir Guðmundur Pétur Jónsson Ingibjörg Aðalsteinsdóttir Ingimar Sigurðsson Jón Jens Kristjánsson Lúðvík Börkur Jónsson Margrét Sigurðardóttir María Kristín Jónsdóttir May Brit Kongshaug Quoc Thanh Tran Reynir Þór Eyvindsson Sólveig Rúnarsdóttir Steinn Skaptason Valgerður Grímsdóttir 40 ára Andrés Júlíus Stefánsson Elías Sigvarðsson Gabriele Falco Gizur Sigurðsson Ingibjörg Ingadóttir Ingibjörg Jónsdóttir Kristín Gísladóttir Mariusz Szataniak Ragnheiður Valdimarsdóttir Ýmir Björgvin Arthúrsson Þórunn Ósk Þorgeirsdóttir 30 ára Alma Erna Ólafsdóttir Árni Freyr Erlingsson Björn Ingi Árnason Dagbjört Kristín Viðarsdóttir Erna Ósk Brynjólfsdóttir Harpa Lind Björnsdóttir Haukur H. Thomasson Kristín Sunna Sigurðardóttir Sara Dögg Jakobsdóttir Sólveig Hauksdóttir Sukanya Lampa Svana Björg Ólafsdóttir Víkingur Másson Zbigniew Izdebski Til hamingju með daginn 30 ára Íris starfaði lengi við Mjólkursamsöluna í Reykjavík og stundar nám í frumgreinadeild HR. Maki: Guðbjartur Kjart- ansson, f. 1975, húsasm.. Börn: Kjartan Óli, f. 2000; Ólöf Jóna, f. 2002; Karen Dæja, f. 2005, og Davíð Logi og Birta Rún, f. 2010. Foreldrar: Ólöf J. Þor- geirsdóttir, f. 1952, og Sigurður Ásgeirsson, f. 1953. Íris Sigurðardóttir 30 ára Eyrún ólst upp í Svíþjóð og Reykjavík, lauk BS-prófi í umhverfis- og byggingarverkfræði og er nú í MA-námi við HÍ. Maki: Snæbjörn Helgi Emilsson, f. 1984, iðn- aðarverkfræðingur. Dóttir: Emilía Katrín Snæbjörnsdóttir, f. 2011. Foreldrar: Anna Þórhild- ur Salvarsdóttir, f. 1953, læknir, og Pétur Ólafur Hermannsson, f. 1953, kennari. Eyrún Pétursdóttir 30 ára Haukur ólst upp í Hafnarfirði. Hann er vall- arstjóri hjá Golfklúbbi Sel- tjarnarness. Maki: Hrefna Helgadóttir, f. 1983, starfar við þjón- ustuver Hafnarfjarð- arbæjar. Synir: Jón Viktor, f. 2009, og Óliver, f. 2012. Foreldrar: Jón Hauksson, f. 1957, húsasmíðameist- ari, og Björg Jónatans- dóttir, f. 1959, leikskóla- kennari. Haukur Jónsson mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.