Morgunblaðið - 19.03.2013, Síða 40

Morgunblaðið - 19.03.2013, Síða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2013 íuhljómsveitin flutti það með miklum bravúr. Fiðlukonsert Hafliða var næstur á dagskrá. Hann er saminn sérstaklega fyrir Jennifer Pike og Sinfón- íuhljómsveit Íslands en var þó frum- fluttur af Skosku kammersveitinni ásamt Jennifer árið 2011. Tónskáldið segir verkið flokkast undir hring- form, einleikarinn kastar fram í upp- hafi ótal hugmyndum og stefjum, sem síðan birtast í sífellu í breyttri mynd. Hljómsveitin myndar ramm- ann á bak við og varðar leiðina öðru hverju með hljómmiklum þátta- skilum. Verkið var þægilegt áheyrn- ar og var skemmtilegt að heyra hvernig tónskáldið lét einleikinn speglast í strófum hinna ýmsu hljóð- færa og hljóðfærahópa. Sveitin skil- aði sínu með prýði og Jennifer Pike lék stórkostlega vel og sýndi full- komið vald á hljóðfærinu og viðfangs- efninu. Yfirskrift tónleikanna áfimmtudagskvöldið,Draumórasinfónían, vísaðitil hins þekkta verks Hec- tors Berlioz, sem margir þekkja frek- ar undir heitinu „Symphonie fantasti- que“, stóra lokahnykksins á þessu tónleikakvöldi. En það voru ekki einu stórtíðindi kvöldsins. Fluttur var í fyrsta sinn á Íslandi nýr fiðlukonsert eftir Hafliða Hallgrímsson en leikar hófust á „Nótt á nornagnípu“. Modest Músorgskíj hafði þann leiða sið að ljúka sjaldnast við verk sín. Maðurinn ásamt félögum sínum var enda mikill drykkjubolti en uppi eru kenningar um að það hafi verið þeirra leið til þess að mótmæla ríkjandi þjóðfélagsskipan. Músorgs- kíj gerði að vísu hljómsveitarútgáfu af verki kvöldsins en hún er sjaldan flutt. Fremur er gripið til útgáfu Rimský – Korsakov þó deildar mein- ingar séu um hversu trúr hann var efniviðnum. Nótt á nornagnípu er hins vegar grípandi verk og Sinfón- Eftir hlé var síðan komið að „Symphonie fantastique“ eftir Ber- lioz. Tónskáldið hafði mikil áhrif á framþróun tónlistar á sínum tíma, einkum hvað varðar frumleika og þróun á lit og hljómi hljómsveit- arinnar. Verkið er svokölluð pró- grammtónlist þar sem tónlistinni er ætlað að lýsa ákveðnum atburðum og framvindu. Hér er um að ræða sin- fóníu í fimm þáttum þar sem tón- skáldið lýsir raunum ástsjúks tónlist- armanns, sem í annarlegu ástandi ímyndar sér leit og endurfundi við sína heittelskuðu við ævintýralegar aðstæður. „Symphonie fantastique“ er vissulega 50 mínútur að lengd en það er til marks upp snilli Berlioz í hljómsveitarútsetningum að hvergi bar skugga á. Sinfóníuhljómsveit Ís- lands lék frábærlega undir styrkri stjórn Baldurs Brönnimann. Hann hefur komið hér áður á síðustu árum og er auðheyrilega auðfúsugestur. Stórkostleg Jennifer Pike lék stórkostlega vel og sýndi fullkomið vald á hljóðfærinu og viðfangsefninu, að því er fram kemur í gagnrýni. Draumasinfónían Harpa – Eldborg Sinfóníuhljómsveit Íslandsbbbbn Modest Músorgskíj (1839-1881): Nótt á nornagnípu (1867/1886). Hafliði Hall- grímsson (f. 1941): Fiðlukonsert, op. 46 (2011-2012). Hector Berlioz (1803- 1869): Draumórasinfónían, op. 14 (1830). Jennifer Pike, fiðla. Sinfón- íuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Baldur Brönnimann. Fimmtudagur 14. mars kl. 19.30. SNORRI VALSSON TÓNLIST Bekkurinn var þétt setinn íHörpu þegar John Grantblés til tónleika í tilefni út-komu nýrrar plötu sinnar, sem fær hvarvetna góða einkunn rýna, og það fyllilega verðskuldað. Grant hefur á undanförnu ári skip- að sér í framvarðasveit svokallaðra Íslandsvina. Ekki nóg með að hann hafi kosið að vinna nýju plötuna hér og að mestu leyti með íslenskum tón- listarmönnum, heldur hefur hann einnig verið búsettur í Reykjavík og er farinn að ná valdi á íslensku eins og gestir í Silfurbergi fengu að heyra. „Geturðu sagt mér þetta hæg- ar?“ bað hann þegar einhver hróp höfðu borist upp á svið. Og hann dásamaði íslensk orðasambönd á borð við „gráa fiðringinn“, sem hann sagðist eflaust haldinn, og lofaði út- sýnið út á Faxaflóa og til Esju á frostköldum degi. Þarf meira til að heilla Íslendinga? Kannski ekki, en Grant getur miklu meira en dásamað Ísland – hann er framúrskandi lagasmiður og söngvaskáld sem liggur mikið á hjarta, eins og hann sannaði enn og aftur í Silfurbergi. Mörgum tónlistarmönnum hefur reynst erfitt að fylgja eftir vel lukk- aðri fyrstu plötu og Grant virðist meðvitað hafa reynt að fara aðra leið á Pale Green Ghosts en á frumburð- inum Queen of Denmark. Með því að leita til Bigga veiru, meðlims Gus Gus, fetaði hann sig inn í heim raf- og danstónlistar, þótt hefðbundið rokk- kombó kæmi líka við sögu. Segja má að tónleikarnir hafi verið tvískiptir en hljómsveitin flutti öll lögin á nýju plötunni, bara í annarri röð. Í fyrri hlutanum voru lögin flest knúin áfram af uppteknum tölvutakti og sampli, þar sem hljómborðsleikarinn Pemberton og tölvuspilarinn Aron Arnarson voru í aðalhlutverki. Til að byrja með keyrði hljóðmaðurinn lægstu bassatónana allt of hátt, svo áheyrendur hugsuðu meira um hvort einhver líffæri gæfu sig í drununum en um hvað Grant væri að syngja, en sem betur fer lagaðist það og um leið fór söngvarinn að ná salnum inn í áhrifaríkan heim laga á borð við „Vi- etnam“ og „GMF (Greatest Mother Fucker)“. Þegar leið á tók analóg- hluti hljómsveitarinnar meira völdin, knúinn áfram af firnaþéttum grunni Kristins trommara og Jakobs Smára bassaleikara, og fór sveitin á kostum í lögum á borð við „It Doesn’t Matter to Him“ og „Why Don’t You Love Me Anymore“, þar sem Grant lét gesti klappa í anda eins af sínum átrún- aðargoðum, Fridu söngkonu ABBA. Hápunktinum var náð í lokalaginu „Glacier“, þar sem söngvaskáldið reynir að hvetja vin til dáða þrátt fyr- ir að sársaukinn sé eins og skriðjök- ull sem fari gegnum hann og sverfi djúpa dali. Algjörlega frábær flutn- ingur þar. Í uppklappi tók Grant þekktustu lög sín, „Marz“ og „Queen of Den- mark“, dyggilega studdur af þræl- þéttri hljómsveitinni. Textar Johns Grants eru opinskáir og einlægir, þar sem hann fjallar um ást, sambandsslit, hatur og sorgir. Og maðurinn er sannkallað sjar- matröll, góður söngvari og fínn laga- smiður. Það er ekkert skrýtið að Ís- lendingar vilji slá eign sinni á hann. Ljósmynd/Mummi Lú Grant Söng kröftuglega um sárs- auka sem er eins og skriðjökull. Opinskáa sjarmatröllið Harpa – Silfurberg John Grant bbbb½ Útgáfutónleikar plötunnar Pale Green Ghosts með John Grant. Hljómsveitina skipuðu, auk Grants, þeir Chris Pember- ton á hljómborð, Pétur Hallgrímsson gítar, Jakob Smári Magnússon bassa, Kristinn Agnarsson trommur og Aron Arnarson stýrði rafspilurum. Silfurberg í Hörpu 16. mars. EINAR FALUR INGÓLFSSON TÓNLIST m.a. Besta leikkona í aukahlutverki 16 14 -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is BROKEN CITY Sýnd kl. 8 - 10:10 ANNA KARENINA Sýnd kl. 7:30 IDENTITY THIEF Sýnd kl. 10 OZ THE GREAT AND POWERFUL 3D Sýnd kl. 5 - 8 VESALINGARNIR Sýnd kl. 5 21 & OVER Sýnd kl. 10:30 FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D Sýnd kl. 5:45 Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 12 12 L 10 HHHH - K.N. Empire 12 FRÁLEIKSTJÓRA"ATONEMENT" OG"PRIDE&PREJUDICE" ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS BROKEN CITY KL. 6 - 10.20 16 ANNAKARENINA KL. 8 12 IDENTITY THIEF KL. 8 / JAGTEN (THE HUNT) KL. 6 12 21 AND OVER KL. 10.10 14 BROKEN CITY KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 BROKEN CITY LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 21 AND OVER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D KL. 3.40 - 5.50 L FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 3.40 L DIE HARD 5 KL. 8 - 10.20 16 - H.S.S., MBL ANNA KARENINA KL. 6 - 9 12 IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 LINCOLN KL. 6 14 DJANGO KL. 9 16 ÓSKARSVERÐLAUN M.A. BESTI LEIKARI ÁRSINS -EMPIRE TILBOÐSBÍÓ TILBOÐSBÍÓ TILBOÐSBÍÓ TILBOÐSBÍÓ TILBOÐSBÍÓ ATH: TILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.