Morgunblaðið - 22.03.2013, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2013
AF TILRAUNUM
Ragnheiður Eiríksdóttir
heidatrubador@gmail.com
Allt gott þarf að lokum að takaenda, undanúrslitakvöldMúsíktilrauna líka, en fjórða
og síðasta undanúrslitakvöldið fór
fram síðasta miðvikudagskvöld í
Silfurbergi í Hörpu. Fyrsta bandið,
Marvin Strayte úr Reykjavík, skart-
aði frábærum söngvara með mjög
þroskaða rödd þrátt fyrir ungan ald-
ur. Hann tilkynnti milli laga að þetta
væri þeirra fyrsta gigg og þess
vegna væru þeir frekar ömurlegir
en það var bara ekki rétt hjá honum,
og síðara lagið innihélt til dæmis
bæði mjög grípandi gítarkrækju og
fyrsta ruslatunnuendi Músíktilrauna
þetta árið.
Næst lék Kaleo, afskaplegaþétt og vel spilandi blússkotin
rokkhljómsveit. Þeir mættu einbeitt-
ir til leiks en helst skorti fjölbreytt-
ari lagasmíðar, sem virtust full-
endurtekningasamar. Þá var komið
að Byrjun úr Kópavogi sem braut
upp hina hefðbundnu hljóð-
færaskipan með því að notast við
saxófón í stað gítars, eitthvað sem
bönd á borð við Morphine hafa áður
gert vel. Það gekk ekki fyllilega upp
hjá Byrjun, og þar þarf að liggja yfir
útsetningum og finna saxófóninum
betri stað innan hljóðmyndarinnar.
Alexander Örn, trúbador úrHafnarfirði, þarf hugsanlega
að spila sig betur til. Lögin hans eiga
þó fína spretti og viðlag fyrra lags-
ins var til að mynda verulega gott.
Aether úr Reykjavík lauk fyrri hluta
kvöldsins, og tónlist þeirra þarfnast
meiri skýrleika og ef til vill einfald-
ari útsetninga. Það er of mikið að
gerast hjá þeim og lögin þurfa
hreinlega að anda til að flæði náist.
Eftir hlé hóf Turtle Taco Ex-perience frá Fjallabyggð og
Dalvík leikinn og kom satt að segja á
óvart. Þar eru átta meðlimir, þar af
tvær söngkonur, en allt komst nokk-
uð vel til skila. Útsetningar voru
áferðarfallegar, en það mætti vera
aðeins meiri kraftur í bandinu. Það
má ekki gleyma að hafa gaman af
þessu. Svo var komið að dúettinum
Hóp úr Kópavogi sem flutti lögin
vel, en þau virkuðu mjög stíf og
gætu hafa verið stressuð. Lagasmíð-
ar voru hefðbundnar og kannski
ekki nógu grípandi.
Icarus hafði áður tekið þátt ánsöngvara en mætti nú með ný lög
og söng. Bandið spilar keyrslurokk
og er nokkuð flott, en náði sér samt
ekki fyllilega á flug. Það var eins og
hljómur þeirra væri dempaður og
þeim tókst ekki að gleyma sér. For
Colorblind People frá Akureyri voru
lengi að koma sér af stað, vandræði
með snúrur og stillingar á strengj-
um og hvað eina, en þegar þeir byrj-
uðu gengu hlutirnir glatt. Þeir
spiluðu aðgengilega indí-tónlist og
síðara lagið var virkilega vel samið
og flutt, og raddanir feikilega góðar.
Skerðing frá Akranesi laukkvöldinu, pönk-tríó með hnyttn-
um textum um unglinga í tilvist-
arkreppu. Trommarinn mætti æfa
sig svolítið betur, en lagasmíðar og
viðmót meðlima var æðislegt. Svo
fór að lokum að salurinn valdi blús-
rokkarana í Kaleo en dómnefnd
kaus For Colorblind People, og
hleypti einnig Skerðingu áfram og
svo hljómsveitunum Kjurr og Ara-
grúa frá fyrri kvöldum. Þá eru ell-
efu hljómsveitir komnar í úrslit Mús-
íktilrauna sem verða á morgun,
laugardaginn 23. mars. Þá verður
sko stuð!
Endir undanúrslita
»Hann tilkynntimilli laga að þetta
væri þeirra fyrsta gigg
og þess vegna væru þeir
frekar ömurlegir en það
var bara ekki rétt hjá
honum …
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Icarus Hljómsveitin var nokkuð
flott en komst ekki fyllilega á flug.
Jack the Giant Slayer
Kvikmynd byggð lauslega á æv-
intýrinu um Jóa og baunagrasið. Í
henni segir af ungum bóndasyni,
Jack, sem kynnist fagurri prins-
essu, Isabellu, og verður yfir sig
hrifinn af henni. Prinsessan bankar
upp á hjá honum kvöld eitt en svo
óheppilega vill til að gríðarmikið
baunagras vex upp úr húsinu hans.
Prinsessan flækist í því og berst
upp til himna í ríki risanna. Risar
þessir voru gerðir útlægir úr ríki
manna fyrir mörgum öldum og
vilja þeir gjarnan ná sér niður á
mönnunum. Isabella er í haldi ris-
anna og freistar Jack þess að frelsa
hana, slæst í för með björgunarliði
konungs. Leikstjóri er Bryan Sin-
ger og með helstu hlutverk fara
Nicholas Hoult, Stanley Tucci, Ew-
an McGregor, Bill Nighy, Elenor
Tomlinson og Ian McShane.
Rotten Tomatoes: 51%
Metacritic: 51/100
Snitch
Hasarmynd með heljarmennið
Dwayne Johnson í aðalhlutverki. Í
henni segir af manni hvers sonur
er hafður fyrir rangri sök og
ákærður fyrir fíkniefnasölu. Á
drengurinn yfir höfði sér langa
fangelsisvist. Faðirinn gerir sam-
komulag við ríkissaksóknara sem
felur í sér að hann gerist leyni-
legur uppljóstrari í eiturlyfjahring.
Með því vonast hann til að geta
hreinsað mannorð sonar síns. Leik-
stjóri er Ric Roman Waugh og auk
Johnson fara með helstu hlutverk
þau Jon Bernthal, Rafi Gavron og
Susan Sarandon.
Rotten Tomatoes: 56%
Metacritic: 52/100
Safe Haven
Hér segir af ungri konu á flótta
sem leitar skjóls í litlum bæ og tek-
ur sér nýtt nafn. Hún verður ást-
fangin af huggulegum ekkli og
leikur allt í lyndi þar til fortíð-
ardraugar fara að herja á hana og
allt stefnir í að hún þurfi að leggja
aftur á flótta undan ótilgreindri
ógn. Leikstjóri er Lasse Hallström
og með aðalhlutverk fara Julianne
Hough og Josh Duhamel.
Rotten Tomatoes: 13%
Metacritic: 34/100
Bíófrumsýningar
Baunagras, uppljóstr-
anir og rómantík
Ævintýri Jói og prinsessan á notalegri stundu í Jack the Giant Slayer.
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.3:10-5:30-8-10:30
JACKTHEGIANTSLAYERVIP KL.3:10-5:30-8-10:30
THECROODS ÍSLTAL3D KL.5:50
THECROODS ÍSLTAL KL.5:50
DEADMANDOWN KL.8-10:10-10:40
OZ:THEGREATANDPOWERFUL3D KL.3:10-8
OZ:THEGREATANDPOWERFUL2DKL. 5:20
ÞETTAREDDAST KL. 8
BEAUTIFULCREATURES KL. 10:30
FLIGHT KL. 8
WARMBODIES KL. 10:50
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 3:40 - 5:50
ÖSKUBUSKA Í VILLTAVESTRINU ÍSLTALKL. 3:30
SAMMY2 ÍSLTAL KL. 3:40
KRINGLUNNI
JACKTHEGIANTSLAYER 3D KL.5:30-8-10:30
DEAD MAN DOWN KL. 5:40 - 8 - 10:20
OZ:GREATANDPOWERFUL3D KL.5:20-8-10:40
JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.5:30-8-10:30
THECROODS ÍSLTAL3D KL.5:50
DEADMANDOWN KL.8-10:30
OZ:GREATANDPOWERFUL 3DKL.5:20-8
OZ:THEGREATANDPOWERFUL KL.10:30
IDENTITY THIEF KL.8-10:40
FLIGHT KL.5:20
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.8
THECROODS ÍSLTAL3D KL.5:50
DEADMANDOWN KL.8-10:20
SNITCH KL.10:20
FJÖLSKYLDUDAGARTILBOÐ590KR.MIÐAVERÐ
ÖSKUBUSKA Í VILLTAVESTRINU ÍSLTALKL. 6
AKUREYRI
JACKTHEGIANTSLAYER 3D KL.8 -10:30
DEADMANDOWN KL.8 -10:30
OZ:THEGREATANDPOWERFUL3D KL. 5:20
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
ÖSKUBUSKA Í VILLTAVESTRINU ÍSLTALKL. 6
VIP
TILNEFND TIL 2
ÓSKARSVERÐLAUNA
R.EBERT
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
STÓRKOSTLEG ÆVINTÝRAMYND BYGGÐ
LAUSLEGA ÁÆVINTÝRINU UM JÓA OGBAUNAGRASIÐ
NICHOLAS HOULT - EWAN MCGREGOR
STANLEY TUCCI - IAN MCSHANE
88/100
CHICAGO SUN-TIMES –R.R.
FORSÝNING Í 2D OG 3D
MEÐ ÍSLENSKU TALI
Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » Sími: 528 5050 » Opið 10-18 virka daga og 12-18 um helgar
Syngur í stað Voigt
á tónleikum 22. mars
Bandaríska sópransöngkonan Deborah Voigt
hefur afboðað komu sína á tónleika Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands föstudaginn 22. mars vegna
veikinda. Í hennar stað syngur þýska söngkonan
Nadja Michael.
Michael er tíður gestur í frægustu óperuhúsum
heims og margverðlaunuð fyrir túlkun sína á
Salóme sem er á efnisskrá tónleikanna. Michael
er ein helsta stjarnan í óperuheiminum í dag og
því mikill fengur að fá hana hingað til lands.
Fös. 22. mars » 19:30
Johannes Brahms Serenaða í D-dúr, op. 11
Richard Strauss Sjöslæðudansinn
Richard Strauss Lokaþáttur úr Salóme
James Gaffigan hljómsveitarstjóri
NadjaMichael einsöngvari
Aðeins örfá sæti eru laus á þessa óvæntu
og einstöku tónleika. Tryggðu þér miða.
Þeir sem óska eftir að skipta eða skila miðum
sínum geta haft samband við miðasölu Hörpu.
NADJA MICHAEL SYNGUR STRAUSS