Morgunblaðið - 27.04.2013, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 27.04.2013, Qupperneq 11
Feðgar Friðrik Erlingsson rithöfundur saumar með syni sína vel vopnaða. sem þær voru að gæsa, og hluti af því var að láta hana sauma refilsaum.“ Þetta er vanabindandi Gunnhildur segir að margir komi aftur og aftur til að sauma í ref- ilinn. „Þetta er nánast vanabindandi. En þetta er líka svo spennandi, fólk langar að klára sem mest. Það er gaman að sauma refilsaum af því hann er einfaldur, það gengur hratt og hann þekur mikið í einu. Það er kapp í heimafólki og margir hér í ná- grenninu koma aftur og aftur. Fastur hópur kemur alla dagana þrjá sem opið er fyrir saumaskap í hverri viku. Hann Dieter Wilhelm Weischer sem býr á elliheimilinu hér og er um átt- rætt, hann kemur reglulega til okkar, af því hann getur ekki hugsað sér að sitja aðgerðarlaus. Hann er mjög lið- tækur í kontórstingnum sem saum- aður er utanmeð,“ segir Gunnhildur og bætir við að misjafnt sé hversu lengi fólk sitji við saumaskapinn hverju sinni. „Hingað komu tvær vin- konur úr Reykjavík rétt fyrir páska og gistu yfir nótt á hótelinu. Þær sátu frá ellefu um morgun til sjö um kvöld bæði á skírdag og föstudaginn langa. Þær voru svo áhugasamar að þær litu vart upp.“ Rithöfundar og söngvarar taka þátt í saumaskapnum Fólk kemur víða af landinu til saumaskapsins. „Síðastliðinn mánu- dag kom hingað kona alla leið frá Kópaskeri. Hún var með norræna vini sína með sér og allir tóku spor í refilinn.“ Þegar hún er spurð að því á hvaða aldri þeir yngstu séu sem saumað hafa í refilinn segir hún tvær sex ára stelpur hafa komið með mæðrum sínum og ekki látið sitt eftir liggja við verkið. „Hver og einn sem kemur og saumar hefur sitt hand- bragð og það gerir refilinn lifandi og sjarmerandi. Hingað hafa líka komið nafntogaðir einstaklingar og lagt okkur lið í saumaskapnum, rithöfund- arnir Þórarinn Eldjárn og Friðrik Erlingsson og söngvarinn Magni, svo nokkrir séu nefndir.“ Refilsaumur er fljótlærður Gunnhildur segir refilsaum hafa verið stundaðan á víkingaöld en hann hafi af einhverjum ástæðum lagst af. „Fyrir vikið kunna ekki margir ref- ilsaum en hann er fljótlærður og við Christina leiðbeinum fólki. Sextán sæti eru í einu við refilinn fyrir þá sem vilja sauma, en ef allir eru óvanir þá eru yfirleitt ekki nema tíu í einu. Við hvetjum fólk af öllu landinu til að koma til okkar og prófa refilsauminn og eiga þannig sinn þátt í þessum merka refli sem segir Brennu- Njálssögu. Margt smátt gerir eitt stórt.“ Þær Gunnhildur og Christina taka á móti hópum til að skoða og sauma í Njálurefilinn. Þeir sem vilja panta í saumaskapinn geta gert það á netfanginu: njaluref- ill@gmail.com, eða í síma: Gunn- hildur 861-8687 og Christina 892-6902. Í Sögusetrinu er hægt að fá til- boð fyrir slíka hópa á veitingum, en panta þarf fyrirfram á netfang- inu: njala@njala.is eða í síma 487 8781 og 618 6143. Nánar á: www.njalurefill.is Feðgin Ágúst Kristjánsson og Karítas Ágústsdóttir tóku nokkur spor. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2013 Í dag kl. 13-14 verða Tilrauna- tónskáldatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur í Iðnó. Þar munu hljóð- færaleikarar Kammersveitarinnar leika úrval verka sem samin voru á námskeiðum á Barnamenningarhátíð undanfarna tvo daga, auk þess að kynna hljóðfærin fyrir tónleikagest- um og leika önnur verk eftir ýmis til- raunatónskáld á öllum aldri. Slag- verksleikarinn Frank Aarnink verður í hópi túlkenda með eitthvað af sínum forvitnilegu slagverkshljóðfærum. Á Barnamenningarhátíðinni sem nú stendur yfir bauð Kammersveit Reykjavíkur krökkum á grunnskóla- aldri að gerast „tilraunatónskáld“ á stuttum námskeiðum í Ævintýrahöll- inni í Iðnó. Þar leiðbeindi Ingi Garðar Erlendsson, básúnuleikari og S.L.Á.T.U.R.-tónskáld ásamt Guðrúnu Hrund Harðardóttur víóluleikara. Til- raunaverkin verða ennfremur túlkuð af snillingunum Tinnu Þorsteins- dóttur á píanó og Unu Sveinbjarnar- dóttur á fiðlu. Á þessum stuttu námskeiðum voru möguleikar mismunandi hljóðfæra kynntir og hefðbundin og óhefð- bundin nótnaskrift var líka rann- sökuð. Þátttakendur fengu tækifæri til að útskýra fyrir hljóðfæraleikur- unum hvað þeir vildu helst heyra í sínu tónverki og fengu aðstoð við að skrá hugmyndir sínar á blað. Spenn- andi verður að heyra útkomuna. Endilega … Morgunblaðið/Kristinn Kammersveit Reykjavíkur. …hlýðið á verk ungra tilrauna- tónskálda www.volkswagen.is Fágaður ferðafélagi Volkswagen Tiguan Tiguan Sport & Style kostar aðeins frá 6.180.000 kr. Volkswagen Tiguan sportjeppi eyðir aðeins 5,8 l á hverja 100 km. Fullkomið leiðsögukerfi fyrir Ísland HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Komdu og reynsluaktu Volkswagen Tiguan Vel við hæfi Guðríður kokkur saumar út veisluborðið í reflinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.