Morgunblaðið - 27.04.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2013
FRÉTTASKÝRING
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Ég myndi halda að við gætum verið
bjartsýnir ef við gætum sett lambfé
út eftir hálfan mánuð í kringum hús-
in í rétt. Það væri bjartsýni að halda
það. Þetta lítur ekki vel út,“ segir
Jón Þórarinsson, bóndi á Hnjúki í
Skíðadal í Dalvíkurbyggð, um
óvenjumikinn snjó þar í sveitinni.
Jón er með um 115 ær og er sauð-
burður byrjaður þótt hann fari ekki
á fullt fyrr en í byrjun maí.
„Það er mjög mikið í öllu sveitar-
félaginu. Á túnum er þetta frá einum
upp í hátt í þrjá metra,“ segir hann.
Um fjögurra til fimm metra háir
skaflar eru í kringum bæjarhúsin á
bænum.
Harðfennið síðan í haust
„Það hefur komið fyrir að það hafi
verið svona mikill snjór á þessum
tíma. Það hefur þá bara verið snjór
sem hefur komið í hvellum nokkrum
vikum áður. Snjór sem kemur í febr-
úar, mars og apríl, það er yfirleitt
snjór sem rennur mjög fljótt. Þetta
er bara harðfenni sem er búið að
vera meira og minna síðan í sept-
ember og október. Það er svo gamalt
í þessu og það eru svellalög í snjón-
um frá blota sem gerði í vetur. Það
er mjög óvanalegt. Við munum ekki
áður eftir svona miklum snjó og
gaddi. Þetta er svo mikill gaddur.
Það er mjög mikil hætta á að tún
komi illa undan vetri,“ segir Jón.
Spurður að því hvort hann ætti
nægan heyforða sagði hann að svo
væri ekki. Hann hefði haldið að það
myndi sleppa en það gerði þó ekki
meira en það.
„Eftir þurrkana í fyrrasumar vor-
um við að heyja á aukatúnum og síð-
an höfum við verið að drýgja gjöf
með því að gefa hrossum úti lakara
hey með,“ segir Jón og bætir við:
„Allar skepnur voru komnar á fulla
gjöf í október í haust. Þetta er miklu
lengri gjafatími en við eigum að
venjast. Þetta er svolítið slæmt ef
það ætlar ekki að fara að gjörbreyt-
ast veðurfarið á næstu dögum.“
Nýrri snjór í túnum Öxfirðinga
„Hann fer að skríða af stað. Ég er
að byrja að undirbúa það. Það er
leiðinlega mikill snjór,“ segir Bjarki
Fannar Karlsson, bóndi á Hafra-
fellstungu í Öxarfirði. Hann segir þó
snjóinn í túnum nýlegan og taki
væntanlega fljótt upp. „Þetta er
miklu skárra ástand hjá okkur en í
Suður-Þingeyjarsýslu,“ segir hann.
Bjarki er með rúmlega 600 ær og
um 150 af þeim, sem sæddar voru 7.
og 8. desember, fara að bera um
helgina. Hinar bera eftir 10. maí.
Bjarki Fannar er einn margra
bænda sem létu telja fósturvísa í sín-
um ám og komst að því að um 20
gemlingar höfðu látið í vetur. Spurð-
ur nánar út í frjósemina sagði hann
að eftir fullorðna á fengi hann um
1,98 lömb. Hann segir menn í kring-
um sig nokkra heylitla og að vegna
þess að þeir séu á svæði sem megi
selja líflömb séu takmörk fyrir því
hvaðan þeir megi kaupa hey. Hann
er þó bjartsýnn: „Það er mjög líklegt
að þetta verði fljótt að koma ef það
hlýnaði almennilega. En ég held að
það sé svolítið mikið meiri snjór í
heiði en hin síðustu ár.“
Langt í vorverk í Aðaldal
„Það verður sett út þótt það sé
snjór. Það er ekkert val á öðru þegar
líða tekur á,“ segir Böðvar Bald-
ursson, bóndi í Heiðargerði í Aðaldal
og formaður félags sauðfjárbænda í
Suður-Þingeyjarsýslu, en að fénu
verði þá gefið utandyra þangað til
komin verði beit.
Um vika er í sauðburð hjá Böðvari
og mikill snjór á svæðinu. Böðvar er
með nálægt fjögur hundruð fjár.
Böðvar segir ekkert útlit fyrir að
snjórinn fari minnkandi á næstunni.
„Það tók nánast ekkert upp í apríl.
Það er mánuður sem maður hefur
treyst á að verði góður. Það er langt
í að það verði hægt að sinna ein-
hverjum vorstörfum af viti.“
Ljósmynd/Jón Þórarinsson
Skíðadalur Bændur í Skíðadal, sem er inn af Svarfaðardal, þurfa að grafa á þriðja metra niður á heyrúllur sínar. Íbúðarhúsið á myndinni er þriggja hæða en einungis sést í rishæðina. Bændur á Norð-
urlandi sem rætt var við telja að fyrst verði hægt að setja fé út um viku af maí. Sauðburður er víða að hefjast á svæðinu og þurfa menn að hýsa það í einhverjar vikur áður en þær komast út á græn grös.
Sauðburður í snjó og heyleysi
Sauðburður að hefjast fyrir norðan og enn mikill snjór víða Bóndi í Skíðadal þarf að grafa á
þriðja metra niður á heyrúllur sínar Hluti af snjónum síðan í haust Útlit fyrir kal í túnum víða
„Hann gengur ágætlega,“ segir
Guðbjörn Elfarsson, bóndi á Hall-
dórsstöðum í Eyjafjarðarsveit, en
um 40 ær eru bornar hjá honum af
680 fjár á bænum.
„Maður var að vonast til að það
yrði hægt eftir helgi en það verður
bara að sjá til,“ segir Guðbjörn
spurður að því hvenær hann reikni
með að fara að setja fé út.
Guðbjörn telur að hann eigi næg
hey fyrir sitt fé þetta árið, en mis-
jafnt var hversu vel bændum á
svæðinu gekk að heyja í fyrra sök-
um langvarandi þurrka.
„Við höfum verið með þetta í
tveimur hollum. Það eru um 240
sem byrja og restin byrjar 10. maí,“
segir Guðbjörn.
Fremur snjólétt er nú í Eyjafjarð-
arsveit og eru einhverjir bændur að
byrja á vorverkunum. ipg@mbl.is
Ljósmynd/Bjarney Guðbjörnsdóttir
Sauðburður Um 40 af 680 ám eru bornar hjá Guðbirni á Halldórsstöðum.
Sauðburður gengur vel á Halldórsstöðum