Morgunblaðið - 27.04.2013, Side 37
UMRÆÐAN 37Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2013
Nú er komið að
kosningum og alltaf
fjölgar þeim sem telja
sig vera með lausnir á
vandamálum þjóð-
arinnar. Menn tala
eins og hægt sé að
taka vandamálin og
leysa þau með hendur
aftan við bak. Gildir þá
einu hvort fjallað er
um skuldir heimilanna,
afnám verðtryggingar,
nýja mynt nema hvað hún má ekki
heita evra, heldur ríkisdalur eða
bara eitthvað. Með öðrum orðum
virðast flestir á þeirri skoðun að nú-
verandi króna muni ekki ganga til
framtíðar. Krónan hefur verið leik-
fang hagsmunaaðila í gegnum tíðina
og hún hefur aldrei borið sitt barr
síðan hún var slitin úr tengslum við
dönsku krónuna fyrir tæpum 100
árum. Þetta vita allir, en svo kemur
næsta setning. Vegna þess að krón-
an er í svo vondum málum og með
öllu ónothæf í viðskiptum við aðrar
þjóðir, þá verðum við að búa við
hana næstu árin. Það má ekki einu
sinni taka þá ákvörðun að stefna á
nýjan gjaldmiðil og gefa lands-
mönnum þá von að bjartari tímar
séu framundan. Ef menn ætla að
klífa fjallið verður þá ekki að leggja
á brattann?
Skuldir heimilanna
Framsóknarflokkurinn ætlar að
leysa skuldir heimilanna með því að
senda þeim tékka eftir kosningar.
Að vísu fá ekki öll heimili þessa
tékka, heldur einungis þau sem
tóku lánin sem Framsókn bauð í
kosningunum 2003. Aðrir sitja
óbættir hjá garði enda telur flokk-
urinn sig ekki skulda þeim heim-
ilum neitt. Auðvitað urðu þau heim-
ili sem tóku lán á valdatíma
Framsóknar fyrir miklu áfalli í
hruninu og raunar sjálfsagt að
skoða þau sérstaklega. Það er nú
einu sinni þannig að flestir þurfa að
steypa sér í miklar skuldir við að
koma sér upp þaki yfir höfuðið og
það er ekki nýmæli hér á Íslandi að
ungar fjölskyldur lepji
dauðann úr skel í
framhaldi af slíkum
gjörningi. Það þarf því
að birgja brunninn til
framtíðar og tryggja
hér sambærilegan
stöðugleika og líkt
þekkist í nágranna-
löndum okkar. Slíkt
gerist ekki ef stjórn-
völd ana áfram stefnu-
laus með loforðum um
innistæðulausa tékka.
Hverjir borga?
Formaður Framsóknarflokksins
ætlar nefnilega að láta hina svoköll-
uðu hrægammasjóði fjármagna
þessa tékka sem sendir verða til
heimilanna. Þeir hafi fengið þá svo
ódýrt með því að kaupa kröfur
bankanna á slíku hrakvirði að þeir
geti auðveldlega slegið verulega af
þeim ef þeir vilja fara út úr landinu
með einhverjar eignir. Sjálfur hef
ég nákvæmlega enga samúð með
þessum sjóðum og sjálfsagt er að
reyna að sem bestum samningum
við þessa aðila. En hvað ef þessir
aðilar vilja ekki semja og segja
ósköp einfaldlega, við ætlum bara
að eiga þessar eignir okkar áfram
hér á landi, því okkur liggur ekkert
á að fá þessa peninga? Varla verður
hægt að neyða sjóðina til að semja
um hvað sem er.
Er þetta snjöll samningatækni?
Það getur ekki verið snjallt í
samningum að gefa viðsemjand-
anum upp áður en sest er að samn-
ingaborðinu hver niðurstaðan á að
verða. Framsóknarflokkurinn hefur
lofað því að senda heimilunum
tékka eftir kosningar og þar með er
hann búinn að sýna á spilin og hefur
þar af leiðandi ekki sterka samn-
ingsstöðu. Það hefur komið fram í
fjölmiðlum að umræddir sjóðir hafi
þegar ráðið norskan sérfræðing í
sína þjónustu til að fara með sín
mál. Ég trúi ekki öðru en hann fylg-
ist grannt með þeirri umræðu sem
er í gangi varðandi þessi mál. Þá
hefur einnig komið fram, að Fram-
sóknarflokkurinn treysti sér ekki til
að styðja lögin sem sett voru um að
kyrrsetja allar eignir þessara sjóða
þar til yfirvöld teldu það óhætt fjár-
mála landsins vegna að þær færu úr
landi. Mér finnst því að Framsókn-
arflokkurinn skuldi þjóðinni skýr-
ingu á því hvernig hann ætlar að
fjármagna tékkann til heimilanna ef
samningar við sjóðina nást ekki.
Mér hefur alltaf þótt tryggara að
veiða bráðina áður en hún er borð-
uð.
Innistæðulaus feitur
tékki frá Framsókn
Eftir Guðmund
Oddsson »Mér finnst því að
Framsóknarflokk-
urinn skuldi þjóðinni
skýringu á því hvernig
hann ætlar að fjár-
magna tékkann til heim-
ilanna ef samningar við
sjóðina nást ekki.
Guðmundur
Oddsson
Höfundur er fyrrverandi skólastjóri.
Fimmtándi apríl verður svartur dag-
ur í minni sál. Hvernig má vera að
hægt sé að undirrita fríversl-
unarsamning við Kína, og ekki bara
það, heldur fá þá
til samstarfs um
olíuleit og hafn-
arframkvæmdir,
án þess að fram
fari umræða um
það á Alþingi?
Þurfum við nú að
hjálpa þeim við að
menga móður
jörð? Þeir vilja fá
stóran hluta regn-
skóganna í Ekvador og hugsið ykkur
hvað verður höggvið þar. Hvers eig-
um við að gjalda með svona glóru-
lausa stjórnendur sem eru þau Össur
og Jóhanna? Eru þeim ekki ljósar
áætlanir þeirra, sem eru ítök í öllum
löndum jarðar? Nú ráðskast þeir með
lönd í Afríku og við ætlum að hjálpa
þeim við að nýta jarðvarma þar og
svona mun móður jörð blæða út, og
við tökum svo sannanlega þátt. Við
ætlum líka að hjálpa þeim við að arð-
ræna Grænland, sprengja og tæta við
sjálfan jökulinn.
Og Össur bullar áfram, hann segir
að Íslendingar ætli að kynna lýðræði
og mannréttindi fyrir þeim og ég veit
ekki hvort maður á að hlæja eða
gráta. Óskaplega er maðurinn illa læs
á stjórnmál og það er ekki bara hann
heldur stór hluti Alþingis, svo maður
nú ekki tali um nýju framboðin. Það
væri ekki úr vegi að settur yrði
gáfna-, hæfileika- og siðferðisstuðull
fyrir þá sem bjóða sig fram til þings,
og hann má einnig setja blaða- og
fréttafólki.
Allt er í rugli hér vegna agaleysis
og einmitt það nýta Kínverjarnir sér,
þeir bera hvorki virðingu fyrir okkur
né öðrum og þeir munu ekki vilja
þetta hrörnunarlýðræði sem þeir
fylgjast náið með. En samningurinn á
eftir að snúast upp í andhverfu sína.
Og svona í lokin, hvernig væri í þess-
ari kosningabaráttu að rædd yrðu
stjórnmál, af nógu er að taka ef þið
kæmust út úr peningaþráhyggjunni.
Það er skelfilegt að hlusta á ykkur og
haldið þið að það sé einhver leikur að
stjórna landi og þjóð ? Tek bara eitt
dæmi af mörgum sem þið ræðið ekki.
Kæmi til stríðs, hvernig er þjóðin bú-
in undir það og hverjar eru varnir
landsins? Ég vona svo sannanlega að
ekkert af nýju framboðunum komist
að, því að nóg er nú ruglið samt.
STEFANÍA JÓNASDÓTTIR,
Sauðárkróki.
Svartur dagur
Frá Stefaníu Jónasdóttur
Stefanía
Jónasdóttir
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
ÁRSALIR
FASTEIGNAMIÐLUN
533 4200
FASTEIGNASALA
FYRIRTÆKJASALA - LEIGUMIÐLUN
Vantar allar stærðir og gerðir eigna á skrá
.... Hafðu samband
Vinsamlega skráið ykkur á
www.islandsstofa.is