Morgunblaðið - 27.04.2013, Page 47

Morgunblaðið - 27.04.2013, Page 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2013 ✝ Hildur Andr-ésdóttir fædd- ist í Kerlingardal í Mýrdal 1. maí 1926. Hún lést á Dvalarheimilinu Hjallatúni 18. apríl 2013. Foreldrar Hild- ar voru hjónin Ásta Þórólfsdóttir og Andrés Árni Pálsson. Systkini hennar eru Pálmi Þór Andr- ésson og Bára Andrésdóttir, en hún lést 2009. Þann 17. maí 1948 giftist Hildur Viðari Björgvinssyni sem var fæddur í Reykjavík 1. ari Magnússyni og eiga þau soninn Hauk. 4) Andrés, f. 1957, sambýliskona hans var Aðalheiður Sigþórsdóttir, þau slitu samvistum árið 2007. Hildur ólst upp hjá for- eldrum sínum í Kerlingardal. Þar vann hún öll hefðbundin sveitastörf þess tíma. Á yngri árum fór hún á vertíðir í Vest- mannaeyjum, einnig vann hún um skeið á hótelinu í Vík. Eftir það gerðist hún húsmóðir og bjó fjölskyldan fyrstu árin í Vík. Árin 1957 til 1962 bjuggu þau á Kirkjubæjarklaustri, það- an fluttu þau að Suður-Hvammi og stunduðu þar sveitabúskap í 18 ár. Árið 1980 fluttu Hildur og Viðar aftur til Víkur og þá hóf Hildur störf á prjónastof- unni Gæðum og vann þar um árabil. Hildur verður jarðsungin frá Víkurkirkju í dag, 27. apríl 2013, og hefst athöfnin kl. 15. ágúst 1925. Hann lést 17. febrúar 2012. Hildur og Viðar eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Helga, f. 1950, gift Gylfa Júlíussyni. Þau eiga saman tvö börn, Víði og Hildi, en fyrir á Gylfi þrjú börn frá fyrra hjónabandi, Rann- veigu, Jón Gunnar og Mar- gréti. 2) Ásta, f. 1953, d. 1991, giftist Guðna Guðlaugssyni. Þau eignuðust þrjá syni: Viðar Rúnar, Róbert Karel og Atla Má. 3) Birna, f. 1955, gift Ein- Elskuleg móðir okkar, Hild- ur Andrésdóttir, lést á Dval- arheimilinu Hjallatúni þann 18. apríl sl. eftir stutta en stranga sjúkralegu. Hún átti af og til við vanheilsu að stríða á liðn- um árum auk þess að upplifa erfið veikindi, slys og dauðsföll síns nánasta fólks þegar það var í blóma lífs síns. Einkum varð fráfall Ástu systur okkar henni mikið áfall eins og okkur öllum. Allt tók það sinn toll og var áreiðanlega oft erfitt að standa af sér álagið en það gerði hún engu að síður. Í okk- ar huga var hún alger hetja. Hún var sú besta móðir sem hægt er að hugsa sér og mun það ávallt verða okkur efst í huga í minningunni um hana. Hún lét sig velferð allrar stór- fjölskyldunnar miklu skipta, fylgdist vel með hvað hver og einn var að fást við. Alltaf var hún til staðar og er því stórt skarð fyrir skildi við fráfall hennar. Við nutum þeirra for- réttinda að eiga samleið með báðum foreldrum okkar þar til faðir okkar lést þann 17. febr- úar á síðasta ári. Sá missir varð okkur öllum sár, einkum þó mömmu sem sá á eftir maka sínum eftir 64 ára hjóna- band. Þó að oft gæfi á bátinn voru gleðistundirnar í lífi mömmu samt margfalt fleiri. Við sjáum hana fyrir okkur glaða og stolta yfir svo ótal mörgu. Dýrmætar minningar hlaðast upp hver af annarri og munum við geyma þær innra með okkur og ylja okkur við um ókomna tíð. Við viljum trúa því að nú sé mamma komin í Sumarlandið góða þar sem hún var sann- færð um að finna horfna ást- vini á ný. Með hjartans kveðju og þakklæti fyrir allt. Helga, Birna og Andrés. Fimmtudagurinn 18. apríl var einstaklega fallegur. Þó var eitt sem skyggði á fegurðina, snemma dags fékk ég þær fréttir að ein yndislegasta kona sem ég hef kynnst væri fallin frá, elskuleg amma mín. Þó svo að það hafi legið fyrir í nokkra daga hvert stefndi þá er alltaf erfitt að fá fréttir sem þessar. Ég er svo lánsöm að amma og afi voru stór hluti af mínu lífi. Fjölskyldan er mjög sam- rýmd og vön að eyða miklum tíma saman. Á erfiðum stundum sem þessum er gott að eiga minningar frá þeim tímum. Amma var einstaklega góð og skemmtileg. Hún var vön að segja sína skoðun, oft þó með smáhæðnitón í röddinni, þannig að maður gat ekki annað en a.m.k. brosað út í annað. Eftir að afi dó var hún ótrúlega dug- leg að bjarga sér en þar hefur þrjóskan spilað inn í því þrjósk- ari einstakling er erfitt að finna. Amma gat líka verið mjög stríð- in. Hún hafði t.d. gaman af að fara í þrautakóng þegar ég var yngri því hún vann alltaf með því að taka út úr sér gervitenn- urnar. Svo þegar ég talaði við hana fyrir einum og hálfum mánuði skemmti hún sér við að reyna að fá mig til að kjafta af mér nafninu á drengnum mín- um sem þá var óskírður. Svo var amma flink í hönd- unum. Þær eru ófáar flíkurnar sem hún hefur gert á fjölskyld- una í gegnum tíðina, prinsess- ukjólar, lopapeysur o.s.frv. Maður þurfti ekki annað en hringja og biðja hana um ein- hvern lopafatnað og það var tilbúið á mettíma. Eins ef ég eða mamma var eitthvað að gera í höndunum fór maður iðu- lega með það til ömmu til að fá álit og góð ráð. Ég hitti ömmu seinast fyrir þremur vikum, degi áður en hún datt og brotnaði illa. Ég kom til Víkur seint um kvöld og tók þá ákvörðun um að fara beint með Kristófer Viðar í heimsókn til hennar, enda hlakkaði ég mikið til að sýna henni nýjasta langömmubarnið. Í dag er ég svo þakklát fyrir þessa ákvörðun því þetta var í seinasta skiptið sem ég sá hana. Ég hefði aldrei trúað því fyr- ir rúmum tveimur vikum að símtalið þar sem ég sagði henni frá því að við hefðum skírt drenginn okkar í höfuðið á afa yrði það seinasta því þrátt fyrir háan aldur og ýmsa kvilla tengda því þá reiknaði maður með að amma ætti eftir að lifa í einhvern tíma í viðbót. Hún var nýkomin á elliheimili, undi sér vel og manni fannst einhvern veginn eins og ekkert gæti komið fyrir hana þar, en hlut- irnir eru fljótir að breytast. Afi og amma dóu með 14 mánaða millibili, nánast upp á dag. Þegar maður hugsar til þess þá kemur það ekki mikið á óvart að þau hafi dáið með til- tölulega stuttu millibili þar sem þau voru ákaflega samheldin hjón. Því er gott til þess að hugsa að þau séu nú sameinuð á ný. Eftir að afi dó var skrítið að fara á Sunnubrautina. Síðan eft- ir að amma fór á Hjallatún var mjög skrítið að fara þangað til að heimsækja hana en það að fara austur og hitta ekki ömmu er eitthvað sem á eftir að taka langan tíma að venjast. Að lokum langar mig að þakka þér, elsku amma, fyrir samfylgdina og allt sem þú hef- ur gert fyrir mig í gegnum tíð- ina. Hvíldu í friði, þín verður sárt saknað um ókomna tíð. Þín Hildur. Látin er nágrannakona mín, fyrrverandi, Hildur Andrésdótt- ir. Ég var ennþá peð þegar Hildur flutti í sveitina á næsta bæ við mig. Með í kaupbæti fylgdu krakkar á svipuðu reki og undirrituð. Upphófust kynni við fjölskylduna sem vara enn þann dag í dag. Hildur var sveitamaður af guðs náð, en samt svo „modern“. Hún bar með sér svipmót kaupstaðarins og flutti það inn í sveitarsam- félagið. Þannig átti nýi tíminn stefnumót við gamla tímann á heimili Hildar. Þegar undirrituð skrifaði BA ritgerð um afrétta- málefni í Hvammshreppi leitaði ég í smiðju Hildar. Æskuár hennar í Kerlingardal á fyrri helmingi síðustu aldar voru sögusviðið. Vordagar, þegar allt var í blóma, vorrúningur stóð fyrir dyrum, sumir voru byrj- aðir að bera niður ljá og það lá heylykt og kindalykt í loftinu. Haustverkin voru drjúg í jökl- anna skjóli og göngur og réttir að hausti voru Hildi einnig hug- leiknar. Hún minntist réttadaganna sem hátíðisdaga. Hún rifjaði meðal annars upp að hún tók þátt í að reka óskilasafnið úr Kerlingardalsrétt og út að Heiði. Í Kerlingardalslandi er mikið af örnefnum og þau hafði hún á hreinu þótt langt væri um liðið. Ég átti þessar samræður við Hildi á útmánuðum árið 2011. Hún hafði lifað tímana tvenna. Hún mundi til dæmis greinilega þegar verið var að búa til nýja kúskinnsskó fyrir fjallmennina á æskuheimili hennar í Kerlingadal. Þar sem við sátum við upp- tökutækið á heimili hennar í Vík kallaðist gamli tíminn á við græjur nútímans. En í aðalhlut- verkinu var Hildur, nágranni minn fyrrum og nú sögumaður. Hún var sem fyrr kankvís og ræðin og maður fór kátur af hennar fundi. Hún er nú horfin á braut, en eftir situr minning um ljúfa konu sem var svo sam- ofin umhverfi og uppvexti mín- um. Aðstandendum öllum votta ég samúð. Svanhvít Hermannsdóttir frá Norður-Hvammi. Hildur Andrésdóttir Mig langar til að minnast móðursystur minnar, Sigríðar Tómasdóttur, í nokkrum orð- um. Sigga, eins og við kölluðum hana alltaf, var sem móðir mín í barnæsku og á unglingsárum. Flest sumur frá tíu ára aldri var ég í sveit hjá Siggu og Dadda í Álftagróf í Mýrdal, fyrst meðan afi og amma bjuggu þar líka. Þegar ég hugsa til baka til þess tíma, þá rifjast upp fyrir mér hversu kraftmikil kona hún Sigga var, Sigríður Tómasdóttir ✝ Sigríður Tóm-asdóttir fædd- ist í Álftagróf í Mýrdal 2. janúar 1943. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 31. mars 2013. Útför Sigríðar fór fram frá Foss- vogskirkju 5. apríl 2013. úrræðagóð, glað- lynd og hláturmild, enda sá hún jafna spaugilegar hliðar á málum. Já, ég segi kraftmikil, þar sem hún var vinnuþjarkur og ósérhlífin. Í Álfta- gróf ráku Sigga og Daddi stórt bú af mikilli útsjónar- semi. Meðan ég var þar í sveit, stundaði Sigga einnig vinnu í Vík og var í hreppsnefnd Mýrdalshrepps. Við getum rétt ímyndað okkur að sumir dagar hljóta að hafa verið nokkuð strangir hjá henni Siggu. Þá átti hún eftir að sjá um okkur krakkana, fæða okkur og klæða. Allt gerði hún án þess að hika og var fljót til. Fyrir þennan tíma er ég Siggu ævinlega þakklát- ur. Þegar ég var kominn á full- orðinsár fann ég það alltaf að Sigga fylgdist vel með því sem ég og mín fjölskylda var að gera og alltaf þótti mér gott að hitta hana, þótt samverustund- um hafi fækkað hin síðari ár. Eitt vil ég nefna sérstaklega, hversu minnug hún var á alla hluti og þá sérstaklega afmæl- isdaga. Sigga var nefnilega alltaf fyrst til að muna eftir af- mælinu mínu, nú síðast í fyrra. Annað hvort hringdi hún eða þá sendi mér skeyti, það klikk- aði aldrei. Þess vegna kem ég til með að minnast Siggu sér- staklega á mínum afmælisdög- um. Fyrir um ári síðan fékk ég þær fréttir að Sigga hafi greinst með alvarlegan sjúk- dóm. Það var sem reiðarslag. Á slíkum stundum vakna upp spurningar um lífið, hvers vegna svona kraftmikil kona þurfi að ganga í gegnum slíka raun. Það er huggun að nú líð- ur Siggu vel. Elsku Sigga, ég þakka þér fyrir öll þau tæki- færi sem þú gafst mér. Daddi, Tommi, Ásta, Gísli og fjölskyldur. Megi algóður guð vernda ykkur og styrkja. Þorsteinn M. Kristinsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðs- lógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minning- argreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær út- förin fer fram. Minningargreinar Inger Steinsson IngerRósÓlafsdóttir ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 - 691 0919 athofn@athofn.is - Akralandi 1 - 108 Reykjavík VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn www.kvedja.is 571 8222 82o 3939 svafar 82o 3938 hermann PÁLMI INGÓLFSSON loftskeytamaður er látinn. Útför hans verður auglýst síðar. Aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við fráfall ástkærs eiginmanns míns og föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HEIÐARS JÓHANNSSONAR frá Valbjarnarvöllum, Borgarvík 11, Borgarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar, hjúkrunar- og dvalarheimilis Borgarnesi, fyrir góða umönnun og hlýju. Fanney Hannesdóttir, Hannes Heiðarsson, Guðmunda G. Jónsdóttir, Jón Heiðarsson, Sædís B. Þórðardóttir, Guðrún Heiðarsdóttir, Hafþór H. Einarsson, Stefán J. Heiðarsson, Soffía Jóhannsdóttir Hauth, Rannveig Heiðarsdóttir, Sveinn I. Hjálmarsson, afa- og langafabörn. ✝ Þökkum hlýhug og vinsemd við fráfall föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HANNESAR GUÐMUNDSSONAR sendifulltrúa, Hæðargarði 33, áður Laugarásvegi 64. Edda Hannesdóttir, Gerður Hannesdóttir, Guðrún Hannesdóttir, Ragnhildur Hannesdóttir tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ÁRNA JÓNSSONAR frá Mjóafirði, Fífuhvammi 17, Kópavogi. Jenný G. Godby, Jim Dale Godby, Jón Steinar Árnason, Gunnhildur Olga Jónsdóttir, Halla María Árnadóttir, Tryggvi L. Skjaldarson, barnabörn, langafa- og langalangafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.