Morgunblaðið - 11.05.2013, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013
Níundi maí er nokkurs konarþjóðhátíðardagur Evrópu-
sambandsins, sem auk þjóðhátíð-
ardags er með þjóðfána, þjóðsöng
og fleira sem einkennir ríki, þar
með talin sambandsríki. Eftir að
ríkisstjórn
Vinstri
grænna og
Samfylkingar
sótti um aðild
að ESB hefur
verið haldið upp á daginn hér á
landi.
Það er áróðursskrifstofa ESB,Evrópustofa, sem sér um fögn-
uðinn, sem er ekki af lakari sortinni
frekar en fyrri daginn.
Björn Bjarnason fjallar um þettaá vef Evrópuvaktarinnar og
segir frá ókeypis tónleikum Ungs-
infóníu Evrópusambandsins í
Hörpu.
Svo segir Björn: „Margt bendir tilað þetta sé síðasta stórvirki
Evrópustofu þar sem stækk-
unardeild ESB ætli ekki að end-
urnýja tveggja ára samninginn sem
hún gerði við Media Consulta í
Berlín árið 2011 um rekstur stof-
unnar.
ESB-aðildarsinnar munu vafa-laust sakna stofunnar og
starfsemi hennar ef marka má við-
brögð þeirra við ályktun lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins um að
loka bæri Evrópustofu. Gagnrýni á
þá ályktun var reist á þeim mis-
skilningi að Evrópustofa væri hluti
af sendiráðsstarfsemi ESB á Ís-
landi. Svo er ekki, stofunni var
komið á fót af stækkunardeild ESB
fyrir 1,4 m. evra til að snúa Íslend-
ingum til fylgis við aðild Íslands að
ESB, starfsemin hefur gjörsamlega
misheppnast eins og úrslit þing-
kosninganna sýndu. Stækk-
unardeildin sér ekki ástæðu til að
fjárfesta meira í tilraun til að fræða
Íslendinga um ágæti ESB.“
Evrópustofa fagnar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 súld
Bolungarvík 7 alskýjað
Akureyri 11 alskýjað
Nuuk -5 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló 10 skúrir
Kaupmannahöfn 15 heiðskírt
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 12 skýjað
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 11 skúrir
London 16 léttskýjað
París 13 skýjað
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 15 skýjað
Berlín 17 alskýjað
Vín 18 skýjað
Moskva 26 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 18 skúrir
Aþena 18 skýjað
Winnipeg 11 alskýjað
Montreal 15 alskýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 8 alskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:25 22:25
ÍSAFJÖRÐUR 4:08 22:52
SIGLUFJÖRÐUR 3:50 22:35
DJÚPIVOGUR 3:49 21:59
„Við höfum sent athugasemdir bæði á
borgaryfirvöld og forsvarsmenn
ferðamála í Reykjavík og þeir hafa
skellt skollaeyrum við okkar tillögum
til úrbóta,“ segir Gunnar Valur
Sveinsson, verkefnisstjóri hjá Sam-
tökum ferðaþjónustunnar (SAF), en
samtökin og félagsmenn þeirra hafa
miklar áhyggjur af áhrifum fram-
kvæmda í miðborginni í sumar á
ferðaþjónustu og móttöku ferða-
manna á svæðinu.
Gunnar Valur segir áhyggjurnar
einkum beinast að lokun gatna á há-
annatíma í júlí og ágúst. Á meðan
Laugavegurinn verði lokaður að hluta
fyrir umferð ökutækja verði Klapp-
arstígur lokaður milli Laugavegar og
Skúlagötu og Hverfisgatan einnig
lokuð á kafla. Á þessu svæði séu mörg
ferðaþjónustufyrirtæki og með lokun
þessara gatna verði aðgengi fyrir
ferðamenn mjög takmarkað.
Fulltrúar SAF og fleiri hagsmuna-
aðila fengu fyrir
um þremur vikum
kynningu hjá borg-
inni á fyrirhuguð-
um framkvæmd-
um. Í kjölfar þess
fundar hafi SAF
sent Höfuðborgar-
stofu og menning-
ar og ferðamála-
ráði bréf þar sem áhyggjum
fyrirtækjanna var lýst. Einnig voru
lagðar fram tillögur um hvernig
mætti standa að framkvæmdunum og
draga úr lokun gatna. „Við þurfum að
fá svona upplýsingar með góðum fyr-
irvara, þannig að gististaðir og ferða-
skrifstofur geti brugðist við með
kynningu fyrir sína viðskiptavini. Við
höfum ekki fengið nein svör og okkur
finnst Reykjavíkurborg taka dálítið
léttvægt á þessu. Þarna munu skap-
ast gífurleg vandamál,“ segir Gunnar
Valur. bjb@mbl.is
Áhyggjur af lokun gatna í sumar
Samtök ferðaþjónustunnar hafa ekki fengið nein svör frá Reykjavíkurborg
Gunnar Valur
Sveinsson
INTERNATIONAL BUSINESS ACADEMY
ERHVERVSAKADEMI KOLDING
Skam l i n g v e j e n 3 2 · K o l d i n g · t e l . 7 2 2 4 1 8 0 0 · i b a@ i b a . d k · i b a . d k · f a c e b o o k . c om / I n t e r n a t i o n a l B u s i n e s sA c a d emy
MARKETING MANAGEMENT
FINANCIAL MANAGEMENT
PROFESSIONAL BACHELOR IN
INTERNATIONAL SALES &
MARKETING
Lánshæf nám hjá LÍN
Engin skólagjöld
Kennsla fer fram á ensku
Staðsetning: Kolding, DK
Önnin byrjar 28. ágúst 2013
KYNNINGARFUNDUR · 15. MAÍ · KL. 16:30
RADSION BLU HÓTEL SAGA
MULTIMEDIA DESIGN
ENTREPRENEURSHIP AND
DESIGN MANAGEMENT
(E-Designer)