Morgunblaðið - 11.05.2013, Qupperneq 10
Vorganga Síðastliðin ár hafa á annað þúsund konur víðs vegar um landið tekið þátt í göngunni.
sund eftir gönguna,“ segir Margrét
Baldursdóttir hjá Göngum saman.
Í Reykjavík verður gengið frá
Skautahöllinni í Laugardalnum og
gengið um dalinn í um það bil
klukkustund. Einnig verður gengið í
Borgarnesi, Stykkishólmi, Patreks-
firði, Ísafirði, Blönduósi, Siglufirði,
Akureyri, Egilsstöðum, Reyðarfirði,
Höfn, Vestmannaeyjum, Selfossi og
Reykjanesbæ. Allar göngur hefjast
kl. 11 og nánari upplýsingar um
hvern stað er að finna á heimasíð-
unni www.gongumsaman.is.
Gangan er gjaldfrjáls en göngu-
fólki gefst kostur á að styrkja rann-
sóknir á brjóstakrabbameini með
Styrktarfélagið Göngum saman efn-
ir til vorgöngu fyrir alla fjölskyld-
una víða um land á mæðradaginn,
sunnudaginn 12. maí, og hefst gang-
an kl. 11. Síðastliðin ár hafa á annað
þúsund konur víðs vegar um landið
tekið þátt í göngunni og hafa marg-
ar hverjar tekið börnin með sér.
„Við leggjum áherslu á að þetta
sé skemmtilegur viðburður sem fjöl-
skyldan geti tekið þátt í saman.
Víða er heilmikið sprell í kringum
þetta en hér í Reykjavík höldum við
t.d. hlutaveltu í Laugardalnum á
eftir þar sem kvennakór syngur og
vinningar eru á alla miða. Úti á
landi hefur víðast hvar verið frítt í
frjálsum framlögum eða með því að
festa kaup á varningi Göngum sam-
an. Í ár verða meðal annars seldir
bolir og höfuðklútar sem hannaðir
voru sérstaklega fyrir félagið af
Kron by Kronkron. Þá verður
brjóstabollan svokallaða til sölu með
kaffinu í bakaríum landsins um
helgina. Styrktarfélagið Göngum
saman styrkir grunnrannsóknir á
brjóstakrabbameini og úthlutar
styrkjum í október ár hvert. Félagið
var stofnað haustið 2007 og hefur
frá stofnun veitt íslenskum rann-
sóknaraðilum á sviði brjósta-
krabbameins um 32 milljónir króna
í styrki.
Vorganga Göngum saman
Hreyfing og sprell víða um land
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
FjölmenningardagurReykjavíkurborgar verð-ur haldinn hátíðlegur ídag, laugardaginn 11. maí.
Haldið er upp á þá margbrotnu
menningu sem Íslendingar hafa ver-
ið svo heppnir að innflytjendur hafa
flutt með sér til landsins til að auðga
menningu landans. Hátíðin setur
skemmtilegan blæ á borgina auk
þess sem hún gefur innflytjendum
skemmtilegt tilefni til safnast saman
og minna sig og aðra á hvaðan þau
koma.
Skemmtidagskráin hefst með
setningarathöfn kl. 13.00 við
Hallgrímskirkju. Að því loknu fer
fjölmenningarskrúðganga af stað
áleiðis í Ráðhús Reykjavíkur. Fjöldi
fólks hefur ár hvert tekið þátt í
göngunni og ræður litagleðin ríkj-
um og þátttakendur klæðast fal-
legum þjóðbúningum ýmissa landa.
Þegar í Ráðhúsið kemur hefst fjöl-
þjóðlegur markaður í Tjarnarsal
þar sem gestir og gangandi geta
kynnt sér menningu ýmissa þjóð-
landa og á boðstólum verða þjóð-
legir réttir, listmunir og annar
varningur.
Í Tjarnarbíói verður boðið upp
á fjölbreytt skemmtiatriði: Lalla
töframann, festejo-dans frá Perú,
litháskan kórsöng, capoeira-afró,
brasilíska bardagalist og trommu-
hópinn Mamandi frá Gíneu.
Að lokinni skemmtidagskrá
verður ljóðaupplestur á ýmsum
tungumálum og að því loknu stutt-
myndasýning nemenda í Kvik-
myndaskóla Íslands.
Um kvöldið klukkan 20.00 verða
svo tónleikar í Hafnarhúsinu þar
sem fram kemur hljómsveitin The
Bangoura Band ásamt listamönnum
frá Gana.
Fjölmenningu í
Reykjavík fagnað
Fjölmenningardagurinn haldinn hátíðlegur í Reykjavík í dag þar sem innflytj-
endur kynna menningu sína og njóta dagsins með Reykvíkingum.
Íslendingur Juan Camilo Roman Estrada hefur búið hér í sex ár.
Hátíð Josephine frá Gana er einn af stjórnendum hátíðarinnar.
Með hækkandi sól og sumarilm í loft-
inu verða flestir Íslendingar algjör-
lega grillóðir. Hitatalan þarf ekki að
hækka svo mikið, bara að sólin sýni
sig, og þá erum við komin út á svalir
og búin að kveikja undir.
Önnur þjóð sem dugleg er að grilla
eru Ástralir og því ekki úr vegi að
finna sér nýjar grilluppskriftir á ástr-
ölsku vefsíðunni taste.com.au. Vanti
þig humyndir að sniðugri mariner-
ingu eða meðlæti með grillmatnum
er vert að kíkja á þessa vefsíðu.
Hér má t.d. finna uppskrift að tery-
akimarineruðum kjúklingi sem borinn
er fram með hrísgrjónasalati og
girnilegri grænmetispítsu sem er
bökuð á grillinu. Það er alltaf gott að
skoða uppskriftir til að fá nýjar hug-
myndir og á þessari síðu er af nógu
að taka. Því ekki að brydda upp á
áströlskum nýjungum þetta grill-
sumarið?
Vefsíðan www.taste.com.au
Morgunblaðið/Ómar
Klassískt Nautasteik á grillið klikkar ekki og hana má útfæra á marga vegu.
Grill í áströlskum stíl
Í tilefni 50 ára afmælis Sólheima-
safns í Reykjavík verður farið í bók-
menntagöngu um Heima- og Voga-
hverfi í dag, laugardag. Lagt er af
stað frá Sólheimasafni, Sólheimum
27 kl. 13.30. Fjallað verður um og les-
ið úr verkum skálda og listamanna
sem eru búsettir í hverfinu eða hafa
búið þar um langa hríð. Skáldin Einar
Már Guðmundsson, Olga Guðrún
Árnadóttir og Salka Guðmundsdóttir
munu mæta í gönguna og lesa úr
verkum sínum. Áætlað er að gangan
taki ríflega klukkustund. Boðið verð-
ur upp á kaffi og meðlæti á bókasafn-
inu að göngu lokinni. Allir velkomnir.
Endilega …
… farið í bók-
menntagöngu
Morgunblaðið/Kristinn
Skáld Einar Már mun mæta og lesa.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Fararstjóri: Pavel Manásek
Sumar 12 3. - 13. ágúst
Alpafegurð&Arnarhreiður
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Salzburgerland í Austurríki og þjóðgarðurinn
Berchtesgaden í Þýskalandi eru heillandi á þessum
árstíma þar sem allt er í blóma og Alpafjöllin skarta
sínu fegursta. 5 nætur í St. Johann í Pongau
og 5 nætur í Berchtesgaden.
Verð: 208.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!