Morgunblaðið - 11.05.2013, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
„Við fórum fyrir nokkrum dögum
með fimm stráka úr keppnisliði
Mjölnis til Hull á Englandi til að
keppa,“ segir Jón Viðar Arnþórsson,
formaður Mjölnis. „Við unnum þrjá
bardaga af fimm og Bjarni Kristjáns-
son tapaði með einu stigi. Bjarki Óm-
arsson tapaði í sínum fyrsta bardaga
á móti þyngri og miklu reyndari and-
stæðingi, en bardaginn þeirra var
valinn bardagi kvöldsins. Bjarki er 18
ára gamall og stóð sig mjög vel þann-
ig að hann á eftir að gera góða hluti í
þessari íþrótt,“ segir Jón Viðar.
Bardagaíþróttir ekki ofbeldi
Aðspurður blæs Jón Viðar á ásak-
anir um að bardagaíþróttir gangi
bara út á að kenna mönnum að beita
ofbeldi. „Þetta er náttúrlega bara
íþrótt eins og flestir eru farnir að átta
sig á. Þegar tveir menn fara inn í
hringinn þá er það eitthvað sem þeir
vilja báðir gera, þeir vilja takast á.
Ofbeldi er þegar einhver er beittur
harðræði sem vill það ekki, þarna eru
allir meðvitaðir um hvað þeir eru að
fara út í,“ segir Jón Viðar. „Það geta
allir sem eru ekki að glíma við ein-
hver meiðsli komið á grunnnámskeið
í Mjölni og byrjað að æfa íþróttina.“
Keppnislið Mjölnis er hópur sem
æfir saman blandaðar bardagaíþrótt-
ir (e. Mixed martial arts, MMA)
þrisvar til fjórum sinnum í viku með
það að markmiði að verða atvinnu-
menn í greininni.
Slapp frá víni og stefnuleysi
Einn fimmenninganna sem fóru til
Englands er Bjarki Þór Pálsson.
Hann segir íþróttina hafa gert mikið
fyrir hann og þá stefnu sem hann tók
í lífinu.
„Ég hef æft þetta í þrjú ár í sept-
ember og stefni á minn fyrsta at-
vinnumannabardaga einmitt í sept-
ember. Þetta sport er eiginlega búið
að bjarga mínu lífi. Ég var bara
drekkandi og stefnulaus í lífinu áður
en þetta kom til. Maður tengist
félögum sínum líka á svo allt annan
hátt þegar við upplifum svona sam-
eiginlegan háska. Það myndast ein-
hver samkennd sem ég hef aldrei
upplifað áður. Pabbi kom með mér á
einn bardaga og ég tengdist honum á
alveg nýjan hátt. En fólk sér þetta
ekki. Það er enginn þvingaður í þetta,
þú þarft að gefa þig fram til að taka
þátt í þessu. Annars var ferðin til
Englands alveg frábær. Eini gallinn
var að við fundum bara einn stað sem
seldi þokkalega hollan mat í landinu,
þannig að við borðuðum mjög oft
þar,“ segir Bjarki Þór.
„Bardagarnir gengu mjög vel hjá
okkur. Ég vann minn bardaga og
Diego og Magnús Ingi bróðir minn
líka. Bardaginn hjá Bjarna tapaðist
naumlega, enda var hann að keppa
við mjög reyndan andstæðing, og
bardaginn hjá nafna mínum, Bjarka
Ómarssyni, var rosalega góður, þótt
hann hafi ekki unnið hann. En víking-
arnir fóru og náðu í það sem þeir ætl-
uðu að sækja,“ segir Bjarki Þór og
hlær.
Mjölnismenn sigur-
sælir á Englandi
„Íþróttin bjargaði mér frá drykkju og stefnuleysi“ Segja
bardagaíþróttir alls ekki ganga út á að beita fólk ofbeldi
Ljósmynd/Jón Viðar Arnþórsson
Mjölnismenn Liðsmenn keppnisliðs Mjölnis. Á myndinni eru frá vinstri: Bjarni Kristjánsson, Diego Björn Valencia,
Bjarki Þór Pálsson, Bjarki Ómarsson, Magnús Ingi Ingvarsson og John Kavanagh, yfirþjálfari keppnisliðs Mjölnis.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Nafnið á Húsi íslenskra fræða, sem á
að rísa á gamla Melavellinum, er að-
eins vinnuheiti, að sögn Guðrúnar
Nordal, forstöðumanns Árnastofn-
unar. Hún segir hugsanlegt að hald-
in verði samkeppni um nafn á húsinu
en það væri í sjálfu sér mjög eðlilegt
að það fengi nafnið Árnagarður.
Í Morgunblaðinu á fimmtudag var
fjallað um ósk Isavia um að Flugstöð
Leifs Eiríkssonar yrði ekki nefnd
Leifsstöð í opinberri umræðu. Í
þeirri umfjöllun benti Hallgrímur J.
Ámundason, á nafnfræðasviði Árna-
stofnunar, á að mörgum þætti nafn
Húss íslenskra fræða upphafið og
rætt væri um að betur færi á að það
fengi nafnið Árnagarður.
Húsið á að hýsa Árnastofnun og
íslensku- og menningardeild
Háskóla Íslands.
Guðrún kannast vel við þessa um-
ræðu og segir að í sjálfu sér sé Árna-
garður eðlilegt nafn á húsinu, í ljósi
þeirrar starfsemi sem þar eigi að
fara fram. Kæmi til þess myndi nafn-
ið á núverandi Árnagarði einfaldlega
flytjast yfir á nýja húsið sem héti eft-
ir það Árnagarður. Þá þyrfti vænt-
anlega að finna annað nafn á núver-
andi Árnagarð. Það yrði með öðrum
orðum ekki notast við heitin Nýi
Árnagarður og Gamli Árnagarður,
líkt og háttar með Nýja Garð og
Gamla Garð sem einnig eru á
háskólasvæðinu.
Nafnið á húsinu er
bara vinnuheiti
Hús íslenskra
fræða gæti fengið
nafnið Árnagarður
Morgunblaðið/Júlíus
Upphafið Hús íslenskra fræða er
enn bara Grunnur íslenskra fræða.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
RÉTTUR SKULDARA
Sýslumenn minna á rétt skuldara skv. 12. gr. laga nr. 50/2009 um tímabundna greiðsluaðlögun
fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
Þeir einstaklingar sem leituðu til héraðsdóms og fengu samþykkta tímabundna greiðsluaðlögun fasteigna-
veðkrafna, geta sótt um afmáningu veðréttinda umfram matsvirði fasteignar hjá embætti sýslumanns.
Skilyrði þess eru:
Að minna en þrír mánuðir séu til loka tíma greiðsluaðlögunar.•
Að veðskuldir séu í skilum eftir þeirri skipan sem greiðsluaðlögun hefur leitt af sér.•
Að sýnt sé að umsækjandi verði um fyrirséða framtíð ófær um að standa í fullum skilum með greiðslu skulda•
sem tryggðar eru með veði í þeirri fasteign sem greiðsluaðlögun tekur til og að önnur tiltæk greiðsluerfið-
leikaúrræði séu ófullnægjandi.
Að umsækjandi sýni fram á að hann geti staðið í fullum skilum með þær veðskuldir sem áfram hvíla á•
fasteigninni eftir afmáningu veðréttinda.
Hvar skal sækja um:
Hjá sýslumanni í því umdæmi þar sem fasteignin er og hjá umboðsmanni skuldara. Umsóknareyðublað má•
finna á eftirfarandi heimasíðum: www.syslumenn.is og www.ums.is. Nánari upplýsingar um áskilin gögn
eru tilgreind á umsóknareyðublaði en vakin skal athygli á því að einstaklingar þurfa m.a. að leggja fram
verðmat tveggja löggiltra fasteignasala.
Reykjanesbæ, 7. maí 2013
E.u. Þórólfur Halldórsson
sýslumaðurinn í Keflavík
Krabbameinsfélagið
Aðgát skal höfð í nærveru sólar
Örráðstefna um sortuæxli og önnur húðkrabbamein
Skógarhlíð 8, fimmtudaginn 16. maí kl. 16:30-18:00
16:30-16:40 Ráðstefnan sett
Guðlaug B. Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri
Krabbameinsfélags Reykjavíkur
16:40-16:55 Sortumein - einkenni, greining, forvarnir
Dr. Bárður Sigurgeirsson
húðsjúkdómalæknir
16:55-17:10 Meðferð sortumeina
Gunnar Bjarni Ragnarsson
krabbameinslæknir
17:10-17:25 Faraldsfræði sortumeina á Íslandi
Laufey Tryggvadóttir framkvæmdastjóri
Krabbameinsskrárinnar
17:25–17:40 Saga aðstandanda
Vala Smáradóttir aðstandandi
17:40-18:00 Umræður og ráðstefnulok
Allir velkomnir - ókeypis aðgangur
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins og Krabbameinsfélag Reykjavíkur
Fundarstjóri: Helga Möller, söngkona og kylfingur
Skógarhlíð 8, 540 1900, www.krabb.is