Morgunblaðið - 11.05.2013, Qupperneq 20
ÚR BÆJARLÍFINU
Jón Sigurðsson
Blönduós
Hik hefur verið töluvert á vorinu
en á þriðjudaginn var kom það og
hefur haldist síðan. Þetta mátti
greina á hitamælum sem og að fugl-
arnir sem hafa lítið hafa haft sig í
frammi í söng hófu upp raust sína
svo um munaði og menn fundu lykt-
ina af vorinu, lykt sem er engri lík.
Lóurnar sem komu óvenju seint í
heimahagana sungu dýrðin, dýrðin
sem aldrei fyrr.
Nokkur ungmenni í Blöndu-
skóla frumsýndu í byrjun mánaðar í
Blönduósbíói bíómynd sem þau hafa
unnið að í vetur og ber heitið „Svart
og hvítt“. Fjöldi manns mætti á
frumsýninguna og er óhætt að segja
að langt er síðan jafn margir hafi
mætt á bíósýningu á Blönduósi og
rann ágóðinn af sýningunni allur til
Rauða kross Íslands. Myndin er
klukkutíma spennutryllir og gerist á
Blönduósi. Nokkrir bæjarbúar
komu fram í myndinni og verður að
játast að maður fylgdist glaður með
því þegar samborgarar manns voru
rændir af „bíræfnum“ ungmennum
úr grunnskólanum.
Áhugi er fyrir því innan bæjar-
stjórnar Blönduóss að reisa fugla-
skoðunarhús við Blöndu jafnframt
því að gera útsýnispall fyrir fugla-
skoðara fyrir neðan lögreglustöðina.
Arnar Þór Sævarson bæjarstjóri
kynnti hugmyndir um þetta á bæj-
arráðsfundi fyrr í vor. Arnar Þór
greindi m.a. frá því að annan
stærsta straumandarstofn í Evrópu
væri að finna við Blöndu, aðeins við
Mývatn væri stofninn stærri. Að-
gengi að þessum skrautlega fugli er
einstaklega gott í flúðunum fyrir
neðan brúna yfir Blöndu. Sagði
hann menn koma um langan veg til
að sjá straumöndina og því mik-
ilvægt að koma straumandastofn-
inum í Blöndu á kortið.
Í haust mun hefjast dreifnám á
Blönduósi en það er í raun upphaf
að bóklegu framhaldsnámi í heima-
byggð. Það eru öll sveitarfélögin í
A-Húnavatnssýslu sem standa að
þessu verkefni í samvinnu við Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra og
hafa nú þegar um 15 til 20
nemendur skráð sig til náms.
Golfáhugamenn á Blönduósi
hafa líkt og aðrir íbúar svæðisins
beðið með óþreyju eftir sumrinu.
Flötin á fjórðu braut er enn undir
töluverðum snjó og þar sem hrað-
inn á vorinu er ekki meiri en raun
ber vitni tóku nokkrir félagar í
golfklúbbnum skóflu í hönd og
hjálpuðu vorinu við að fjarlægja
snjó af flötinni svo golfvöllurinn
kæmist fyrr í gagnið.
Lárus B. Jónsson,
sumarhúsahaldari hjá Glaðheimum
í Brautarhvammi á Blönduósi, er
bjartsýnn á ferðasumarið og segir
að aldrei hafi verið eins mikið bók-
að í gistingu í sumarhúsin og nú.
Austur-Húnavatnssýsla er að kom-
ast í sumarskap og á von á fjölda
gesta til að fara í sund, golf, veiði
og fuglaskoðun svo eitthvað sé
nefnt.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Fuglaskoðun Straumandarstofninn við ós Blöndu er með þeim stærstu í Evrópu.
Vorið kom á þriðjudaginn
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013
Þjónusta og síur
fyrir allar tegundir
af loftpressum
ÞRÝSTILOFT FYRIR ALLAN IÐNAÐ
LOFTPRESSUR – SÍUR – LOFTÞURRKARAR
idnvelar@idnvelar.is | www.idnvelar.is | Smiðjuvegur 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700
Gott ú
rval á
lager
ÞÝSKAR GÆÐA
PRESSUR
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjaneshryggur fagnar jarðvangs-
viku í Reykjanes jarðvangi með jarð-
skjálftahrinu. Unnið er að merking-
um og upplýsingagjöf í jarðvangnum
og er vonast til að hann fái vottun í
haust.
„Umsókn okkar hefur fengið já-
kvæð viðbrögð hjá UNESCO,“ segir
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í
Grindavík og formaður stjórnar
Reykjanes jarðvangs. Von er á sér-
fræðingum í næsta mánuði til að taka
út svæðið og er unnið að undirbúningi
þess. Von er til þess að svör við um-
sókn um vottun svæðisins sem jarð-
vangs fáist í september, annaðhvort
með fullri aðild eða upplýsingar um
hvað megi betur fara.
Stígar og merkingar
Unnið er að stígagerð og uppsetn-
ingu upplýsingaskilta. Það er gert
undir merkjum jarðvangs-verkefnis
sem er undanfari fullrar aðildar að
samtökum jarðvanga.
Fyrsti göngustígurinn undir
merkjum Reykjanes jarðvangs liggur
á milli Bláa lónsins og Grindavíkur.
Hann er malbikaður upp frá Grinda-
vík en mjór malarstígur hlykkjast síð-
an í gegnum hraunið frá Þorbirni að
Bláa lóninu. Stígurinn verður form-
lega opnaður nk. miðvikudag og er at-
höfnin liður í jarðvangsviku sem hófst
í gær og stendur fram á föstudag.
Verið er að leggja stíg frá Garð-
skagavita meðfram ströndinni að Út-
skálum í Garði og ganga frá stígum og
merkingum við tjarnirnar í Sand-
gerði.
Róbert segir að byrjað verði á
stígagerð og merkingum við forn-
minjarnar í Húshólma. Reiknar hann
með að það verkefni taki tvö ár og að
leiðin verði ekki auglýst fyrr en geng-
ið hafi verið frá svæðinu. Sambærileg
verkefni eru í vinnslu við Selatanga
og Reykjanestá.
„Jarðvangshugmyndin gengur
mikið út á að bæta aðgengi og gera
úrbætur á ferðamannastöðum og
fræðslu um jarðminjar og jarðsögu,“
segir Róbert og bendir á að þessi
verkefni falli vel að þeirri hugsun.
„Við sjáum strax árangurinn af
þessari samvinnu. Sveitarfélögin og
ferðaþjónustan vinna betur saman.
Þegar vottunin verður komin munum
við sækja inn á markað ferðafólks
sem hefur sérstakan áhuga á jarð-
fræði og náttúru almennt. Það sýnir
reynslan úr Evrópu. Þessi hópur
dvelur lengur á viðkomustöðunum og
kaupir meiri þjónustu en þeir sem
fara hraðar í gegn,“ segir Róbert.
Fyrsti göngustíg-
urinn í jarðvangi
Jarðvangsvika á Reykjanesi Von á
úttektarmönnum í næsta mánuði
Morgunblaðið/Ómar
Geirfugl Margt er að skoða á
Reykjanesi, bæði gert af náttúrunni
sjálfri og manna höndum.
Jarðvangur
» Jarðvangur er tákn um gæði
í náttúrutengdri ferðaþjónustu
– og virðing borin fyrir nátt-
úrunni.
» Fyrsti jarðvangurinn á Ís-
landi er Katla jarðvangur sem
nær yfir þrjú sveitarfélög við
suðurströndina og var stofn-
aður 2010.
Um árabil voru sérstök Mæðrablóm
seld á mæðradaginn til styrktar
efnalitlum mæðrum á Íslandi. Þessi
siður hefur nú verið endurvakinn
og í ár hannaði Snæfríð Þorsteins
sérstakt blóm úr pappír sem sjálf-
boðaliðar útbjuggu undir hennar
stjórn. Blómið er selt til að afla fjár
í Menntunarsjóð Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur. Íslenskir
blómabændur og Blómaval hafa
síðan styrkt sjóðinn duglega með
því að láta 1.000 kr. af hverjum
seldum mæðradagsblómavendi
renna í Menntunarsjóðinn. Á yf-
irstandandi skólaári styrkti sjóð-
urinn 15 konur til að stunda nám í
margs konar greinum. Blómin eru
m.a. til sölu í Iðu, Máli og menn-
ingu, Eymundsson, Lyfju og Sig-
urboganum, Kraumi og Þjóðminja-
safninu, auk þess sem þau verða
seld í Kringlunni á mæðradaginn
12. maí.
Mæðrablóm verða
seld á mæðradaginn
Færeyinga-
félagið í Reykja-
vík er 70 ára um
þessar mundir,
en það var stofn-
að 15. maí 1943.
Í tilefni af af-
mælinu verður
efnt til fagnaðar í kvöld, laug-
ardagskvöldið 11. maí, í sal félags
eldri borgara, Stangarhyl 4 og
hefst hann klukkan 18.30.
Boðið verður upp á færeyskan
mat og jafnframt munu dansarar
frá Klakksvíkur dansfélagi sýna
dansa. Síðan verður dansað undir
tónum hljómsveitarinnar Klassík
og væntanlega verða færeyskir
hringdansar stignir fram á rauða-
nótt. Veislustjóri verður Árni John-
sen, fyrrverandi alþingismaður.
Afmælisfagnaður
Færeyingafélagsins
Tinganes í Þórshöfn.
Hjóladagur Vesturbæjar verður
haldinn í dag, laugardaginn 11.
maí, við Hagaskóla.
Dagurinn hefst klukkan 10 með
þrautabraut fyrir yngri krakkana.
Kl. 11 hefst skiptihjólamarkaður og
kl. 11.30 hefst Viðgerðartorg þar
sem hjólaeigendur geta látið skoða
fáka sína. Skrúðhjólatúr í fylgd lög-
reglu hefst klukkan 11 og loks hefst
hjólreiðakeppnin „Tour de Vestur-
bær“ klukkan 12.
Hjóladagur í Vestur-
bænum í dag
STUTT