Morgunblaðið - 11.05.2013, Side 23

Morgunblaðið - 11.05.2013, Side 23
„Hann komst að því í fyrsta lagi að þetta væri smitsjúkdómur og í öðru lagi að meðgöngu- og einkennalausi tíminn væri svo miklu lengri, að skipt gæti árum. Þetta var á þeim tíma byltingarkennt og krafðist breytts hugsunarháttar,“ segir Jóhannes. „Menn höfðu aldrei hugsað um sýk- ingar svona, að þær gætu verið svona langæjar, og sérstaklega að þær gætu verið einkennalausar þetta lengi.“ Jóhannes segir ekki vitað um marga hæggenga smitsjúkdóma en einn af þeim er HIV-veirusýkingin. Í ljós hefur komið að hæggengir smit- sjúkdómar orsakast annars vegar af veirum, líkt og visna/mæði, en hins vegar af smitandi prótínum, og er kúariða dæmi um slíkan sjúkdóm. Enginn vafi að hann hefði fengið Nóbelsverðlaunin Jóhannes segir menn hafa haft uppi getgátur um að MS, eða heila- og mænusigg, gæti flokkast til hæg- gengra smitsjúkdóma en það var nokkuð sem Björn hafði áhuga á að rannsaka síðustu ár ævinnar. Hann lést 16. október 1959 af völdum nýrnakrabbameins en í bréfi til Hall- dórs Þormars, sem hann samdi fjór- um vikum fyrir andlát sitt, leggur hann til að MS-rannsóknir verði efld- ar umfram aðrar. Björn ritaði á ferli sínum yfir hundrað vísindagreinar og er sum- staðar minnst í sömu andrá og frum- kvöðla á borð við Louis Pasteur og Robert Koch, að sögn Jóhannesar. Dr. Carleton Gajdusek, sem hlaut nóbelsverðlaunin árið 1976 fyrir rannsóknir sínar á Kúru og Creutz- feldt-Jakob-sjúkdómnum, sagði í Morgunblaðinu 8. júní 1993 að eng- inn vafi væri á því að verðlaunin hefðu fallið Birni í skaut hefði hann lifað. Í Morgunblaðinu 1. maí sama ár sagði dr. Robert C. Gallo, annar tveggja vísindamanna sem uppgötv- uðu HIV-veiruna, að Björn hefði ver- ið á undan sinni samtíð og að hug- myndir hans skýrðu a.m.k. hluta af hegðun alnæmissjúkdómsins. Ljósmynd/Páll Sigurðsson Vísindamenn Björn og samstarfsmenn hans á Keldum. F.v.: Páll Agnar Pálsson, Björn Sigurðsson, Guðmundur Gíslason og Halldór Grímsson. FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013 Taktu stjórnina og stilltu heyrnartækin í Appinu Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is Erum með allar gerðir af heyrnartækjum Fáðu heyrnartæki til reynslu og stjórnaðu þeim með ReSound Appinu Komdu í greiningu hjá faglærðum heyrnarfræðingi Heyrðu umskiptin og stilltu heyrnartækin í Appinu 20% afsláttur af þráðlausum Unite aukabúnaði í maí „Ég held að pabbi hafi verið hinn þægilegasti maður. Hann hafði ágæta kímnigáfu, var vinnusamur og skipulagður, óhræddur, hafði mjög víðtæka menntun og mörg áhugamál,“ segir Jóhannes um föður sinn. „Fólk bar virðingu fyrir honum, en var ekki hrætt við hann. Yngri læknar, nemendur hans, sem seinna urðu mínir kenn- arar, töluðu oft um hann, alltaf af virðingu og hlýju. Ég heyrði það stundum að hann hefði verið fjar- lægur; ekki endilega hleypt öllum að sér, en það er ekki mín minn- ing.“ Björn og Una áttu þrjú börn sem öll völdu að leggja fyrir sig lækn- isfræðina: Eddu Sigrúnu augn- lækni, fædda 1. desember 1936, en hún lést 5. september 1987, Sig- urð krabbameinslækni, fæddan 5. júní 1942, og Jóhannes meina- fræðing, fæddan 13. nóvember 1947, en hann varð tólf ára nokkr- um vikum eftir að faðir hans dó. Orðstír til að varðveita „Mín minning er af því þegar pabbi kallaði í mig og leiddi mig hér um holtin, og við töluðum um hvað sem er,“ segir Jóhannes þar sem hann situr á bókasafninu á Keldum. „Honum og mömmu samdi mjög vel, hún var greind kona og ákveðin, jafningi hans á flestum sviðum utan læknisfræð- innar.“ Það var ekki mikið rætt um lækn- isfræði við máltíðir, frekar um bókmenntir, myndlist og tónlist. Björn var einnig áhugamaður um öflugt rannsóknarstarf á Íslandi Hafði trú á fólkinu í landinu „Björn Sigurðsson hafði óbilandi trú á landið okkar,“ ritar Margrét Guðnadóttir veirufræðingur, í inn- gangskafla að heildarútgáfu rit- verka Björns frá 1990, en hún nam hjá Birni á Keldum. „Ekki síðri var trú hans á fólkið í landinu og þá auðlind, sem býr í vel menntuðu æskufólki, er fengi hér tækifæri til að nýta krafta sína og þekkingu. Þess vegna kaus hann að starfa hér og byggja upp starfsaðstöðu fyrir fólkið í framtíðinni. Að því verkefni vann hann heils hugar til hinstu stundar.“ og var einn af stofnendum Vís- indasjóðs Íslands. Jóhannes telur líklegt að faðir hans hafi gert sér grein fyrir mik- ilvægi kenningar sinnar um hæg- genga smitsjúkdóma, að einhverju marki a.m.k., og segir að þau systkinin hafi vissulega verið með- vituð um arfleifð hans. „Auðvitað hefur okkur börnum hans verið ljóst að hér er orðstír og mannorð sem þarf að standa vörð um. Þannig að það er kannski ekki sama hvað úr þér verður,“ segir hann. „Auðvitað hefur okkur alltaf verið ljóst hvaðan við kom- um.“ Hafði ágæta kímnigáfu og var alls óhræddur LÆKNISFRÆÐIN EKKI TIL UMRÆÐU VIÐ MÁLTÍÐIR Fjölskylda Björn og synirnir Jóhannes og Sigurður, sem báðir eru læknar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.