Morgunblaðið - 11.05.2013, Page 25
Seðlabanki Íslands
Gjaldeyrisútboð
Seðlabanki Íslands mun halda þrjú gjaldeyrisútboð 11. júní 2013. Útboðin þrjú eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, sam-
anber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 (http://sedlabanki.is/afnam) og skilmála Seðlabanka Íslands
um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011 með síðari breytingum (http://
sedlabanki.is/fjarfesting)
Útboð í fjárfestingarleið
-
marksfjárhæð til þátttöku í útboðshluta fjárfestingarleiðarinnar eru EUR 25.000. Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning
við Seðlabanka Íslands um milligöngu munu annast framlagningu umsókna um fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt
fjárfestingarleiðinni. Það útboð er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Frestur til að
skila inn umsóknum rennur út í dagslok 22. maí n.k.
Útboð í ríkisverðbréfaleið
! "#$ %% &%'* +4
67 í ríkisverðbréfaleiðinni eru EUR 10.000. Tilteknir aðalmiðlarar á skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn
greiðslu í ríkisverðbréfum.
Útboð um kaup á krónum gegn greiðslu í erlendum gjaldeyri
Seðlabanki Íslands kallar eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Við-
skiptabönkum er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin um kaup á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri.
Seðlabankinn áskilur sér rétt til að takmarka heildar viðskiptamagn með hliðsjón af áhrifum útboðanna á lausafjárstöðu fjármálafyrir-
tækja. Endanleg útboðsfjárhæð ræðst af þátttöku. Útboðsfyrirkomulag er með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á
sama verði (e. single price). Uppgjör viðskipta í útboðunum þremur verður 3 dögum eftir að útboði lýkur. Tilboðum skal skilað eigi
** 9 '&*% ;
4
9! 6
9!
<!
!
7
=
!
+
+ >??
is/utbod.
Stefnt er að næsta útboði 3. september 2013.
Nánari upplýsingar veita milligönguaðilar, aðalmiðlarar og viðskiptabankar.
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013
Náum áttum, forvarnahópurinn,
heldur morgunverðarfund á Grand
hóteli miðvikudaginn 15. maí nk.
um brotna sjálfsmynd barna og
unglinga, áhrifaþætti úr fjölmiðlum
og hvernig styrkja má jákvæða
sjálfsmynd. Fyrirlesarar eru El-
ísabet Lorange, listmeðferðarfræð-
ingur frá Foreldrahúsi, Vigdís Jó-
hannesdóttir, ráðgjafi hjá
PIPAR/TPWA auglýsingastofu, og
Katrín Anna Guðmundsdóttir
jafnréttishönnuður. Fundurinn
stendur frá kl. 8.15-10.00 og fund-
arstjóri er Margrét Júlía Rafnsdótt-
ir. Skráningar eru á heimasíðunni
www.naumattum.is og í þátttöku-
gjaldinu, 1.800 krónum, er morg-
unverður innifalinn. Fundurinn er
7. fræðslufundur Náum áttum í vet-
ur og sá síðasti á þessu misseri.
Rætt um ábyrgð for-
eldra og fjölmiðla
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar út-
nefndi á dögunum Karlakórinn
Þresti Gaflara ársins 2013. Er það
fyrir starf kórsins sl. hundrað ár.
Um árabil hafa Lionsmenn út-
nefnt einhvern Gaflara ársins sem
hefur borið hróður Hafnarfjarðar
út um byggð ból og verið bænum til
sóma, eins segir í tilkynningu.
Í Þröstum eru sextíu söngmenn.
Margir eru búsettir í Firðinum en
aðrir í nágrannabyggðum
sbs@mbl.is
Gaflarinn er Þröstur
Hafnarfjörður Lionsmenn afhenda Þröst-
um syngjandi Gaflaraverðlaunin góðu.
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Landsbankinn hefur frá fyrstu tíð
verið einn af okkar helstu bakhjörlum
Menningarnætur. Samningur þessi
gerir okkur kleift að þróa hátíðina
áfram auk þess sem fólk sem er að
gera ýmsa áhugaverða hluti í list-
sköpun hverskonar fær brautargengi
með fjárstuðningi,“ segir Einar Bárð-
arson forstöðumaður Höfuðborgar-
stofu.
Undirritaðir voru í gær samningar
Landsbankans og Höfuðborgarstofu
um áframhaldandi samstarf að
minnsta kosti næstu tvö árin. Allt frá
því fyrsta hátíðin var haldin hefur
bankinn og hans fólk tekið virkan þátt
í hátíðahöldunum. Hefur farið vel á
því, þar sem höfuðstöðvar bankans
eru í miðborginni sem er einmitt
deigla Menningarnætur. Hafa í
bankahúsinu jafnan verið ýmsir
áhugaverðir atburðir sem hafa mikið
aðdráttarafl.
Jensína Böðvarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri þróunarmála hjá
Landsbankanum, undirritaði samn-
inginn í gær og Einar Bárðarson fyrir
hönd Höfuðborgarstofu.
Fjölmargt í Hörpunni
Menningarnótt þetta árið verður
24. ágúst. Listviðburðir að þessu sinni
skipta hundruðum og verða þeir með-
al annars í Hörpu. Þá verður lögð
áhersla á viðburði við gömlu höfnina,
en þar er nú að finna fjölmarga sýn-
ingarsali, veitingahús og vinnustofur
listamanna. Einnig mun indverskra
áhrifa gæta á hátíðinni í ár – og list
hins fjarlæga lands í brennidepli.
Bankinn áfram bakhjarl
Landsbankinn styður við listina Fjölbreytt Menningarnótt í áliðnum ágúst í
undirbúningi Indversk áhrif verða áberandi Gamla höfnin í brennidepli
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
List Einar Bárðarson frá Höfuðborgarstofu og Jensína Böðvarsdóttir frá Landsbanka undirrita samninga.
Morgunblaðið/Ómar
Atgangur Víkingamenningin var áberandi á menningarnótt fyrir ári.
Fulltrúar verkfræðistofunnar Eflu
undirrituðu á dögunum samningi
við norsku vegagerðina, Statens
Vegvesen. Hafa Eflumenn þá samið
við vegagerðina norsku á fjórum af
fimm svæðum í Noregi um hin
ýmsu samgönguverkefni. Eflumenn
vinna um þessar mundir að ýmsum
verkefnum á miðsvæði Noregs, m.a.
hönnun á tveimur brúm rétt norðan
Þrándheims sem eru 94 og 40
metra langar.
„Við höfum lagt mikla áherslu á
að skapa okkur sterka stöðu í sam-
gönguverkefnum í Noregi og því er
mikilvægur áfangi fyrir okkur að
fá svo góða umsögn,“ segir Guð-
mundur Þorbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri verkfræðistofunnar.
Mikil aukning hefur orðið hjá
Eflu í verkefnum í Noregi Hjá
norsku dótturfélagi verkfræðistof-
unnar starfa ellefu manns, m.a. að
ráðgjöf við háspennulínur, og er
það nú að breikka verksvið sitt sem
kjölfesta í viðveru Eflu í Noregi.
Mikilvægasti viðskiptavinur Eflu
AS er Statnett, sem er samsvarandi
Landsneti á Íslandi.
Fjölbreytt verkefni
Verkefnin í Noregi eru mjög fjöl-
breytt. Eitt það nýjasta er áhættu-
og áfallaþolsgreining vegna leng-
ingar á Óperugöngunum sem eru
jarðgöng í miðborg Osló. Göngin
eru ein lengstu og fjölförnustu veg-
göng í Osló, um 6 kílómetrar að
lengd og um þau fara um 90 þúsund
bílar á sólarhring.
sbs@mbl.is
Stafangur Tækifæri Efky liggja meðal
annars í landi frænda vorra.
Efla í norskri útrás
Síðustu ár hefur stuðningur úr
Menningarnæturpotti Lands-
bankans runnið beint til lista-
manna sem koma fram á hátíð-
inni. Í ár verður kastljósi beint
að gömlu höfninni og verk-
efnum þar. Sú tenging er þó
ekki skilyrði fyrir styrkveitingu.
Styrkir úr Menningarnæturpotti
eru 50 til 200 þús. kr.
Beint í listina
MENNINGARNÆTURPOTTUR