Morgunblaðið - 11.05.2013, Side 28

Morgunblaðið - 11.05.2013, Side 28
28 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013 Bílasala Funahöfða 1 110 Rvk. Sími: 580-8900 Funahöfða 1 110 Reykjavík Sími: 567-4840 ERTU MEÐKAUPANDA?Skjalafrágangur frá kr. 15.080 Seljum allskonar bíla, langar þig í einn? Skráðu þinn frítt! Okkur finnst gaman að selja bíla, viltu selja þinn? SÖLULAUN frá kr. 39.9 00 „Ég hyggst ákæra fyrir hvert eitt og einasta kynferðisbrot, hverja lík- amsárás, hverja morðtilraun og öll fóssturlátin sem hann olli,“ segir Tim McGinty saksóknari í máli Ariel Castro, mannsins, sem hélt þremur konum föngnum í tíu ár í Ohio, í Bandaríkjunum. McGinty segir að brot Castro geti varðað dauðarefs- ingu. Skrifstofa saksóknara sé nú að yfirfara gögn málsins og hvort for- sendur séu til að fara fram á dauða- refsingu yfir Castro. „Sonur minn er sjúkur maður sem hefur framið alvarlegan glæp. Ég þjáist mikið,“ segir móðir Castro, Lillian Rodriguez. „Megi þessar ungu konur fyrirgefa mér,“ bætti Lillian við. Samkvæmt heimildum CBS fréttaveitunnar játar Castro brot sín í handskrifuðu bréfi sem fannst á vettvangi. Í bréfinu sem er dagsett árið 2004 segir Castro að sér hafi verið nauðgað af frænda sínum sem barni. Þá hafi foreldrar hans einnig misþyrmt honum. Í bréfinu lýsir Castro sjálfum sér sem „kynferð- islegu rándýri“, einnig ánafnar hann fórnarlömbum sínum alla sína pen- inga í bréfinu sem talið er að hafi átt að vera sjálfsmorðsbréf. AFP Mannrán Ariel t.h., ásamt bræðrum sínum sem ekki eru taldir tengjast málinu. Fer saksóknari fram á dauðarefsingu?  Castro segist fórnarlamb misnotkunar Söngvarinn frægi Michael Jackson þjáðist af ofsókn- aræði, endurtók sig í sífellu og skalf af kulda síð- ustu dagana sem hann lifði. Þetta sagði Karen Fa- ye, förðunarsér- fræðingur Jackson í 27 ár, við rétt- arhöld gegn AEG Live tónleikahaldaranum á fimmtudag. „Þetta var ekki maðurinn sem ég þekkti, hann hagaði sér eins og ókunn manneskja,“ sagði Faye. Jackson-fjölskyldan heldur því fram að AEG beri ábyrgð á dauða popp- goðsins, fyrirtækið hafi sýnt kæru- leysi með ráðningu óhæfra lækna. AEG ætlaði að standa fyrir röð 50 tónleika með Jackson sem lést skömmu fyrir fyrstu tónleikana. Fa- ye segir að Jackson hafi ekki verið í neinu ástandi til að standast slíkt álag. Þegar hún hafi vakið máls á ástandinu við fulltrúa AEG hafi þeir hundsað ábendingar hennar alger- lega. BANDARÍKIN Þjáðist af ofsóknar- æði fyrir andlátið Michael Jackson Fjórir hundar af pitbull-tegund urðu 64 ára konu að bana í Los Angeles í Banda- ríkjunum á fimmtudag. Kon- an var á skokki þegar hundarnir réðust á hana og lést hún af sárum sínum þegar á sjúkrahús var komið. Lögregla hef- ur varað íbúa í nágrenninu við hundunum sem ganga enn lausir. Þeirra hefur m.a. verið leita úr þyrlu. Í viðtali við AFP fréttaveit- una segir talsmaður lögreglu að hann hafi aldrei heyrt af árás sem þessari. Skelfing hefur gripið um sig meðal íbúa á svæðinu og segir einn þeirra við fjölmiðla að hann ætli að verða sér úti um byssu til að vernda sig og fjölskyldu sína. BANDARÍKIN Fjórir hundar urðu skokkara að bana Hundur Pitbull getur bitið frá sér. Gengið verður til þingkosninga í Pakistan í dag. Kosningarnar fara fram í skugga ofbeldis og árása sem raktar eru til talíbana. Kosningarn- ar marka tímamót því í fyrsta skipti í 66 ára sögu landsins mun lýðræð- islega kjörin stjórn taka við af ann- arri lýðræðislega kjörinni stjórn. „Ef þið gefið okkur fimm ár þá munuð þið sjá að við getum breytt örlögum þessa lands,“ sagði Nawaz Sharif, leiðtogi Pakistanska músl- imabandalagsins við kjósendur í gær. Búist er við því að Sharif verði næsti forsætisráðherra en flokkur hans þykir sigurstranglegur. Krikketstjarnan Imran Khan, leiðtogi Pakistönsku réttlætishreyf- ingarinnar, ávarpaði stuðningsmenn sína í sjónvarpi í gær. „Guð mun ekki fjarlægja mig úr þessum heimi fyrr en nýtt Pakistan hefur verið skapað,“ sagði Khan en flokkur hans hefur notið töluverðrar hylli í landinu. Khan liggur á spítala en hann hrasaðiá kosningafundi fyrir skömmu. Ráðast á flokksskrifstofur Þá er formanns Pakistanska þjóðarflokksins ógetið en sá heitir Bilawal Bhutto, sonur fyrrverandi forsætisráðherra, Benazir Bhutto, sem var ráðin af dögum á sínum tíma. Pakistanski þjóðarflokkurinn er einn þeirra flokka sem hafa orðið fyrir árásum í aðdraganda kosning- anna. Talíbanar eru taldir ábyrgir fyrir fjölda ofbeldisverka í aðdrag- anda kosninganna en meira en 120 manns hafa látið lífið í sprengingum og skotárásum frá því um miðjan apríl. Árásunum hefur einkum verið beint að stjórnmálamönnum og stjórnmálaflokkum, m.a. skrif- stofum þeirra. Síðast í gær létust fjórir og fimmtán slösuðust í nokkr- um sprengingum nærri flokksskrif- stofum í afskekktum héruðum landsins. Óttast er að talíbanar sem telja kosningarnar ganga gegn ísl- amskri trú, hafi skipulagt sjálfs- morðsárásir á kjörstaði í dag. Rúm- lega 600 þúsund manns munu sinna öryggisgæslu við kjörstaðina í dag, þar af tugir þúsunda hermanna. Framkvæmdastjóri SÞ, Ban Ki- moon, hefur lýst yfir áhyggjum af ástandinu og hefur hann hvatt pak- istönsku þjóðina til að nýta lýðræð- islegan rétt sinn friðsamlega, óháð trú, kynþætti eða kyni. heimirs@mbl.is Kosningar í skugga ofbeldis  120 manns látist í árásum sem m.a. er beint að stjórnmálamönnum og flokkum AFP Kosningar Hermenn standa vörð þegar kjörgögn eru flutt í Karachi. Björgunarsveitir fundu konu á lífi í rústum byggingarinnar sem hrundi fyrir sextán dögum í úthverfi Dhaka, höfuðborgar Bangladess. Björg- unarsveitarmenn á vettvangi heyrðu neyðarköll konunnar, sem heitir Reshma, í gærmorgun og í kjölfarið var henni bjargað úr prísundinni. Hún var flutt á spítala en er ekki talin alvarlega meidd. Björgunarsveitarmaðurinn sem varð var við konuna, var að klippa sundur járnbita þegar hann sá skyndilega hreyfingu í brakinu. „Þegar ég leit nán- ar ofan í brakið heyrði ég „hjálp, bjarg- ið mér“. Ég kallaði samstundis á félaga mína,“ sagði starfsmaður á vettvangi. Stórtækar vinnuvélar sem byrjaðar eru að taka til á vettvangi voru sam- stundis stöðvaðar og konunni bjargað úr brakinu. Síðustu tölur herma að yfir þúsund manns hafi látist þegar byggingin hrundi en fleiri en tveim þúsundum hef- ur verið bjargað. AFP Fannst á lífi eftir sextán daga Björgunarsveitarmenn björguðu konu úr rústunum í Bangladess

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.