Morgunblaðið - 11.05.2013, Side 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013
✝ Unnur Júl-íusdóttir
fæddist á Vorsa-
bæ, A-Landeyjum
8. apríl 1934. Hún
lést á dvalarheim-
ilinu Lundi á Hellu
1. maí 2013.
Foreldrar henn-
ar voru Júlíus
Guðjónsson, sjó-
maður og verka-
maður, f. 28. júní
1905, d. 16. júlí 1988, og Guð-
rún Sigurósk Jónsdóttir, hús-
móðir, f. 9. desember 1906, d.
8. maí 1935. Fósturmóðir
hennar var Sigríður Guð-
mundsdóttir, f. 6. maí 1880, d.
1. október 1966. Systkini Unn-
ar eru: Markús Þórarinn, f.
1932, d. 1962, samfeðra eru:
Guðrún Jóna, f. 1950, og Björn,
f. 1952, auk þess átti Unnur tvö
stjúpsystkini, þau Guðbjörgu
Rögnu og Gylfa, og níu
uppeldissystkini.
Unnur giftist 25. des. 1953
Sigurði Sigurðssyni frá Stein-
móðarbæ, V-Eyjafjöllum. For-
eldrar hans voru Sigurður Sig-
urðsson, f. 10.11. 1895, d. 11.6.
1981, og Sigríður Helga Ein-
arsdóttir, f. 26.11. 1900, d.
2.11. 1985.
2001. 4) Hrafnhildur Sigurð-
ardóttir, f. 28. maí 1969, maki
Hjalti Garðarsson, f. 22. okt.
1960, og eiga þau þrjú börn.
Guðrún Elísabeth, f. 1991,
sambýlismaður hennar er Ti-
mon D. Olsen, f. 1982, og eiga
þau einn son, Tristan Amor, f.
2011, Haukur, f. 1995, og
Hjalti Unnar, f. 2001.
Unnur fæddist á Vorsabæ en
ólst upp á Voðmúlastöðum frá
eins árs aldri hjá Sigríði Guð-
mundsdóttur. Hún lauk barna-
skóla eins og gerðist á þeim
tíma. Unnur og Sigurður byrj-
uðu búskap sinn á Selfossi árið
1954 en fluttu síðan til Reykja-
víkur árið 1962. Unnur vann
ýmis störf en lengst af sem
vagnstjóri hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur og hóf hún störf
þar árið 1977 í sumarafleys-
ingum og í kjölfarið var hún
fastráðin og starfaði sem
vagnstjóri til ársins 1998. Hún
tók virkan þátt í félagsstörf-
um, var í kirkjukór Breiðholts-
kirkju og í safnaðarnefnd
Breiðholtskirkju frá stofnun
hennar árið 1972.
Árið 2005 flytja Unnur og
Sigurður á Hvolsvöll, þar tók
hún virkan þátt í starfi eldri
borgara og söng með Hringn-
um, kór eldri borgara. Síðasta
árið dvaldi Unnur á Dval-
arheimilinu Lundi á Hellu.
Útför Unnar verður gerð frá
Voðmúlastaðarkapellu í A-
Landeyjum í dag, 11. maí 2013,
og hefst athöfnin kl. 16.
Unnur og Sig-
urður eignuðust
fjögur börn 1)
Guðrún Sigurðar-
dóttir, f. 12. maí
1954, maki Torfi
H. Sigurðsson, f.
28.10. 1953, og
eiga þau fjögur
börn. Björk, f.
1971, sambýlis-
maður hennar er
Jón Baldvin Árna-
son, f. 1973, og á hún tvö börn,
Elísu, f. 1994, og Henný, f.
1997. Unnþór, f. 1977, maki
Carla Torrico Sanhueza, f.
1981, og eiga þau eitt barn,
Gabríellu Björk, f. 2012. Elvar
Páll, f. 1987, og Sigurður
Helgi, f. 1989.
2) Sigríður Hrönn Sigurðar-
dóttir, f. 27. maí 1955, maki
Ingvar Björn Björnsson, f. 2.
nóv. 1946, og eiga þau tvö
börn. Tinna, f. 1974, og á hún
tvö börn, Sögu, f. 1995, og Dag
Júlíus, f. 2003. Ingvar Björn, f.
1976.
3) Markús Ómar Sigurðsson,
f. 24. apríl 1963, og á hann þrjú
börn, Sandra Dögg, f. 1986, og
á hún eitt barn, Emilíana Unn-
ur, f. 2004. Hrannar Freyr, f.
1994, og Roswitha Sigurósk, f.
Elsku mamma mín, mikið
óskaplega sakna ég þín. Þó svo
að vitað væri að svona myndi
fara er maður aldrei undir það
búinn að kveðja þó að þú hafir
verið farin frá okkur fyrir nokkr-
um misserum. Mér fannst alltaf
óréttlátt hvernig sjúkdómurinn
tók huga þinn frá okkur svona
snemma á lífsleiðinni. Og verst
finnst mér að þetta var sá sjúk-
dómur sem þú varst hræddust
við að fá. En elsku mamma mín,
þú varst svo sterk þegar þú viss-
ir ekki hvað var að gerast með
þig, ég dáðist að þér hvernig þú
tókst á þessu til að byrja með.
Ég er óskaplega þakklát því að
aðstæður höguðu því þannig að
ég gat verið hjá þér alveg til síð-
ustu stundar, og staðið við lof-
orðið sem ég gaf þér þegar ég
var fjögurra ára, manstu hvað
það var? Ég sagði við þig að þeg-
ar ég yrði stór og þú lítil þá ætl-
aði ég að passa þig eins og þú
passaðir mig alveg eins og ég
væri orðin voða fullorðin. Veistu
mamma, að mér fannst þú alltaf
svo ótrúlega flink í höndunum,
það var sama hvort þú sast við
saumavélina eða prjónavélina,
allt var svo fallegt sem þú gerðir.
Þú saumaðir á okkur systurnar
tískufötin og prjónaðir á okkur
prjónadressin og allt eftir nýj-
ustu tísku. Ég man þegar ég gifti
mig og við skruppum í kjólabúð
til að skoða brúðarkjóla og þú
skoðaðir þarna kjól sem ég var
voða hrifin af en það var ekki til
liturinn sem ég vildi. Ég var
frekar leið yfir því, en þú sagðir
að þetta væri ekkert mál, við
myndum bara kaupa efni og þú
ætlaðir bara að sauma hann,
nokkrum dögum seinna var
kominn þessi líka flotti kjóll.
Svona varst þú mamma mín, allt-
af að redda hlutunum fyrir okk-
ur krakkana. Það var alltaf kátt
á hjalla hjá ykkur pabba, mikill
gestagangur, það má eiginlega
segja að það hafi alltaf verið fullt
hús og þá vantaði nú ekki kræs-
ingarnar hjá þér, sama hvort það
var kaffiborð eða matur, alltaf
það besta og nóg af því. Já
mamma mín og allt þetta kennd-
ir þú mér, að elda, baka, sauma
og prjóna og margt, margt
fleira, ég gæti endalaust talið
upp hvað þú hefur kennt mér, en
ég ætla að láta nægja að setja
hérna lítið ljóð sem segir eigin-
lega allt sem ég vildi segja.
Þú ert gull og gersemi
góða besta mamma mín.
Dyggðir þínar dásami
eilíflega dóttir þín.
Vandvirkni og vinnusemi
væntumþykja úr augum skín.
Hugrekki og hugulsemi
og huggun þegar hún er brýn.
Þrautseigja og þolinmæði
– kostir sem að prýða þig.
Bjölluhlátur, birtuljómi,
barlóm lætur eiga sig.
Trygglynd, trú, já algjört æði.
Takk fyrir að eiga mig.
(Höf. Anna Þóra)
Elsku hjartans mamma mín,
ég kveð þig núna með söknuð í
hjarta en að sama skapi veit ég
að nú ertu komin heim í faðm
ástvina þinna og ég hlakka til að
fá að faðma þig þegar við hitt-
umst næst.
Þín dóttir,
Guðrún Sigurðardóttir.
Elsku mamma mín og tengda-
mamma.
Nú er komið að kveðjustund
og viljum við minnast þín með
þessu fallega ljóði og þakka þér
fyrir allt sem þú hefur verið okk-
ur.
Nú kallið er komið þú hverfur á braut,
hverfur og lífsins lokið er þraut.
Fagnandi gengur þú farveginn þinn,
frjáls inn í himininn.
Lokið er ævistarfinu hér,
starfinu því sem ætlað var þér,
komin er hvíldin og kyrrðin til þín,
kærasta mamma mín.
Far í friði og Guð þig geymi,
göngu er lokið í þessum heimi.
Geymd er minning um móðurást
og mildi þína sem aldrei brást.
Kveðja vil ég og kveðju kæra
kærleiksríka frá öllum færa.
Börnum þínum og mökunum,
barnabörnum og bóndanum.
Er gengur þú glöð í himininn inn
gæti þín ætíð alvaldurinn.
Ætla ég samt að þar bíði þín
afi og amma mín.
Far í friði og Guð þig geymi
göngu er lokið í þessum heimi.
Geymd er minning um móðurást
og mildi þína sem aldrei brást.
Vertu sæl, ég þakka þér
þetta líf, er gafstu mér.
(Sigurhanna Ólafsdóttir)
Hrönn Sigurðardóttir og
Ingvar Björnsson, Ak-
ureyri.
Meira: mbl.is/greinar
Elsku mamma mín, þú varst
kletturinn í lífi okkar allra, þú
varst svo sterk, dugleg og óeig-
ingjörn á tíma þinn. Þú varst
alltaf að gera eitthvað, stoppaðir
einhvern veginn aldrei, enda var
mottóið þitt að hafa alltaf eitt-
hvað fyrir stafni. Yfirleitt var
margt um manninn heima hjá
þér, því að þú tókst öllum opnum
örmum. Það er svo margs að
minnast þegar ég hugsa til baka,
þú varst ein mín besta vinkona
og alltaf gat ég leitað til þín ef
eitthvað var að. Við hittumst eða
töluðum saman á hverjum degi
og það var alltaf svo gott að
koma til þín. Þið pabbi voruð
boðin og búin til að hjálpa mér á
allan hátt. Þegar ég kynntist
Hjalta tókstu honum eins og þín-
um eigin syni, og Guðrúnu El-
ísabetu dóttur hans eins og þínu
eigin barnabarni. Þú varst
Hauki og Hjalta Unnari ómet-
anleg, þú varst alltaf til staðar
fyrir þá. Það gátu allir leitað til
þín.
Elsku mamma mín, þú kennd-
ir mér svo margt, þú kenndir
mér að sýna styrk og að sýna
dýrum og mönnum, já bara öllu
lífinu virðingu. Og að hafa gam-
an af lífinu. Vegna þín er ég sú
sem ég er í dag. Ég sakna þín
svo óendanlega mikið og kveð
þig með þessu ljóði:
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Nú ertu loksins komin heim.
Þín dóttir,
Hrafnhildur Sigurðardóttir.
Þá er hún elsku amma mín
horfin á braut, þessi yndislega
kona sem öllum vildi hjálpa og
fórnaði sér hundrað prósent fyr-
ir fjölskyldu, vini og alla þá sem
þurftu á hjálp að halda. Þær eru
margar minningarnar sem
streyma fram á þessum tíma-
punkti en það sem hún amma
mín elskaði mest var að vera um-
kringd fjölskyldu sinni. Það var
alltaf margmenni á heimili henn-
ar. Og alltaf fengum við krakk-
arnir að taka þátt í öllu sem um
var að vera t.d. sláturgerðinni í
kjallaranum í Ósabakkanum þar
sem stórfjölskyldan var saman-
komin og allir fengu að taka þátt
og hún var ólm í að kenna okkur
réttu handtökin. Sem og kleinu-
gerðin og vorum við alltaf fengin
til að snúa kleinunum. Það voru
margir sem ráku upp stór augu
þegar maður var spurður „hvað
gerir hún amma þín?“ og maður
svaraði „hún keyrir strætó“, það
fannst mörgum mjög merkilegt.
Þær voru ófáar ferðirnar sem
maður fór með henni í vinnuna
og fékk ég að vera með henni í
bílstjóraklefanum og stjórna
skiptimiðavélinni og sturta pen-
ingunum niður, þetta gerði mað-
ur hring eftir hring heilu dag-
ana.
Og yndislegt fannst manni að
vakna heima hjá henni á sunnu-
dögum og finna ilminn af sunnu-
dagshryggnum og gamla gufan í
útvarpinu. Eins var það í sum-
arbústaðnum hennar, dásamlegt
að vakna á hverjum morgni við
kaffiilm og gufuna. Og ekki var
sprellið langt undan hjá henni
ömmu. Man ég eftir því þegar
við ákváðum eitt skipti að stríða
afa aðeins en í hádeginu var yf-
irleitt hlaðborð en í þetta skipti
ákváðum við að setja hitabrúsa
með vatni og eina bollasúpu á
borðið og athuga hvað hann
mundi segja og það eina sem
hann sagði var: „Hva, bara veisla
hjá minni?“ og við veltumst um
af hlátri og bárum kræsingarnar
á borðið.
En elsku amma mín, þín verð-
ur sárt saknað og vil ég þakka
þér fyrir allt sem þú hefur kennt
mér í gegnum tíðina og hefur
það gert mig að betri manneskju
að fá að njóta samvista við þig.
Björk Sturludóttir og
fjölskylda.
Elsku amma mín. Takk fyrir
alla góðu dagana og skemmti-
legu minningarnar. Þú hafðir
alltaf tíma fyrir okkur bræð-
urna. Ég man sérstaklega eftir
öllum heimsóknunum til þín í
Álftahólana, þegar ég var búinn í
skólanum tók ég strætó nr. 8 til
þín og þú áttir alltaf eitthvað
handa mér að borða og á eftir
tókstu fram spilin og kendir mér
olsen olsen og ótukt. Eins á ég
góðar minningar frá sumrunum í
sumarbústaðnum, þegar þú
kenndir mér að raka og reyta
arfann, en það fannst mér ekkert
mjög skemmtilegt, það þýddi
samt ekkert að reyna að komast
undan því að reyta arfann, þú
stóðst fast á því að við strákarnir
skyldum gera það. En þegar
pabbi kom með fullt af timbri
austur og ég fékk stæði fyrir
kofann minn, sem mig langaði
mikið að smíða, þá valdir þú stað
fyrir hann og þið afi hjálpuðuð
mér við að smíða grindina og
hann varð fokheldur þetta sum-
ar. Ég var fljótur upp í skapi
þegar ég var ungur og margir
höfðu gaman af því að æsa mig
upp en þú hafðir alltaf réttu orð-
in til að róa mig niður, sagðir að
allir hinir væru bara kjánar og
ég ætti ekkert að vera að ergja
mig á þeim.
Takk fyrir allt sem þú kenndir
mér amma mín, þín verður svo
sannarlega saknað.
Sigurður Helgi Torfason.
Ég á ótal yndislegar minning-
ar um hana ömmu sem ylja mér
um hjartarætur og sem ég varð-
veiti sem gull í huga mér.
Ég kynntist ömmu þegar ég
var þriggja ára og hún tók mér
strax eins og sínu eigin barna-
barni. Það má segja að amma
hafi verið með hjarta úr gulli og
alla vega fjórum númerum of
stórt hjarta miðað við venjulegt
fólk, amma var klárlega best í
heimi.
Fyrstu minningar mínar eru
þegar afi og amma áttu heima í
Furugrundinni, ég man eftir að
hafa vaknað við suðið í gömlu
Kitchen Aid-hrærivélinni sem
malaði eitthvað gómsætt inni í
eldhúsi, útvarpið í gangi stillt á
Rás1 og amma að söngla „tíríral-
lalæ“, það fannst mér mjög nota-
legt og að vakna svo örlítið
seinna og fá að smakka var sko
ekki verra.
Unnur
Júlíusdóttir
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
PÉTUR JÚLÍUSSON,
áður til heimilis að
Skallagrímsgötu 7,
andaðist í Brákarhlíð, hjúkrunar- og dvalar-
heimili, Borgarnesi, föstudaginn 3. maí.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju
miðvikudaginn 15. maí kl. 14.00.
Pétur Helgi Pétursson,
Sveinn Haukur Pétursson, Anna Kristín Stefánsdóttir,
Anna Kristín Pétursdóttir, Ragnar G. Guðmundsson,
Hjörtur Dagur Pétursson,
afa- og langafabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
VILHELMÍNA G. VALDIMARSDÓTTIR
frá Seljatungu,
andaðist á Landspítalanum miðvikudaginn
1. maí.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju
þriðjudaginn 14. maí kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Félag nýrnasjúkra.
E. Gunnar Sigurðsson,
Guðný V. Gunnarsdóttir,
Sigrún S. Gunnarsdóttir, Jón Ásmundsson,
Margrét Kr. Gunnarsdóttir, Gunnar Þ. Andersen,
Laufey S. Gunnarsdóttir,
Einar Gunnar Sigurðsson, Ingunn Svala Leifsdóttir,
Richard Vilhelm Andersen,
Andri, Ísak Logi og Dagur Orri Einarssynir.
✝
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, afi, bróðir
og frændi,
GODSON UWAWUKONYE
ONYEMAUCHECHUKWU ANUFORO,
Barmahlíð 33,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi föstudaginn 19. apríl, verður
jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju í dag,
laugardaginn 11. maí kl. 14.00.
Elizabeth F. Maro Anuforo,
Obinna Sturla C. Anuforo,
Ósk Ukachi U. Anuforo,
Onyema Óðinn C. Anuforo,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÞORGRÍMUR KRISTMUNDSSON
rennismíðameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn
29. apríl.
Hann verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
miðvikudaginn 15. maí kl. 13.00.
Gerður Gunnlaugsdóttir,
Jón Þorgrímsson, Margrét Ólafsdóttir,
Hrafnhildur Þorgrímsdóttir, Jón Marteinn Guðröðsson,
Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, Ragnar Guðjónsson,
Kristjana Katrín Þorgrímsdóttir, Þór Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra
UNNUR AXELSDÓTTIR,
Víðilundi 24,
Akureyri,
sem lést á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn
3. maí, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 13. maí kl. 13.30.
Jónína Axelsdóttir,
Guðrún Bergþórsdóttir, Jón Magnússon,
Sigurður Bergþórsson, Hrafnhildur Eiríksdóttir,
Þórhallur Bergþórsson, Ásdís Rögnvaldsdóttir.