Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Blaðsíða 15
19.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Byggingav örur - byg gingatækn i I I Gylfaflöt 3 | 112 Reykjavík | Sími 533 1600 | aseta@aseta.is É g fór fyrst til Parísar á vegum Core.is og QNT fæðubótarefn- anna þar sem þetta var allt nýtt fyrir mér. Ég tel mig ekki vera þekkta en þarna úti var ég allt í einu stórstjarna. Ég stóð á básnum í átta tíma á dag og það var endalaus straum- ur af fólki að fá myndir og eiginhandaráritun. Þetta var mjög skrýtið en mjög gaman,“ segir Kristbjörg Jónasdóttir ein allra fremsta Bikini Módel fitness-drottning landsins. Kristbjörg er orðin eitt af aðalandlitum QNT fæðubótarefnanna og ferðast vítt og breitt um heiminn af því tilefni. Er þar í hópi fólks sem á það sameiginlegt að hafa líkama sem aðrir öfunda. „Þarna er ég að kynna ONT fæðubótarefni og sjálfa mig og það hefur enginn fengið svona samning hér heima að mér vitandi.“ Vinnur við áhugamálið Íslendingar eru mjög framarlega í fitness-heiminum þrátt fyrir að lungan úr þjóðinni glími við offitu. Reglulega berast fréttir af sigrum og verðlaunasætum úti í hinum stóra heimi. Kristbjörg hefur ekki far- ið varhluta af því og unnið nokkra glæsta sigra. „Það er alveg ótrú- legt hvað margar stelpur og strákar eru að ná góðum árangri. Þetta er lífstíll og ég er heppin að vera í raun að vinna við áhugamálið,“ segir hún en Kristbjörg vinnur í World Class í Laugum þar sem hún mætir sex á morgnana og fer út um kvöldmatarleytið. Líkamsrækt á hennar hug allan. „Ég geri voða lítið annað. Ég kann að meta hvíld- ina þó að margir hafi sagt við mig að ég hvíli mig ekki nóg. Ég er einkaþjálfari hér í World Class og svo er ég með námskeið sem heit- ir Fitness Form ásamt góðri vinkonu minni Aðalheiði Ýr. Einnig er ég að kenna Buttlift tíma þrisvar sinnum í viku og hefur það notið gríðarlegra vinsælda.“ Með gott fólk í kringum sig Eftir sýninguna í Frakklandi var förinni heitið til Þýskalands sem kom Kristbjörgu mjög á óvart en þangað var hún að fara í fyrsta sinn. „Það var fjórum sinnum stærri sýning en í Frakklandi. Það voru níu hallir, álíka stórar og Laugardalshöll. Þar voru vörur og annað tengt líkamsrækt, ýmis tæki og tól og bara á laugardeginum komu 50 þúsund manns.“ Þar var sami áhuginn á Kristbjörgu. Hún segir að hún hafi í sig og á eftir að hún komst á samning hjá QNT. „Ég er svo heppin að vera með gott fólk á bakvið mig sem styður mig í þessu og má þá helst nefna Alla og Einar hjá Core.is, en þeir hjálpuðu mér að fá þennan samning, og einnig minn frábæra þjálfara og æfingafélaga Konráð Val Gíslason en án hans hefði þetta bara einfaldlega ekki verið hægt. En ég vonast auðvitað til að ég nái enn lengra. Ég hef það bara fínt. Ég er ekkert orðin rík en það vonandi kem- ur með tímanum. Maður þarf bara að sanna sig. Það er ekki komið ennþá. En þetta er spennandi.“ FITNESS-DROTTNINGIN KRISTBJÖRG JÓNASDÓTTIR Stjarna úti í heimi KRISTBJÖRG JÓNASDÓTTIR, ER KOMIN Á SAMNING HJÁ FRAMLEIÐENDUM QNT FÆÐUBÓTAREFNISINS. KRISTBJÖRG FERÐAST UM HEIMINN Á ÞEIRRA VEGUM OG ER AFAR VINSÆL. HÚN VINNUR VIÐ ÁHUGAMÁL SITT - AÐ VERA Í FORMI. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Kristbjörg Jónasdóttir segir það muna miklu fjárhagslega að vera komin á samning hjá framleiðendur QNT fæðubótarefnisins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.