Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Blaðsíða 57
19.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Bók Arnaldar Indriðasonar,
Reykjavíkurnætur, hefur verið
endurútgefin. Útigangsmaður
finnst drukknaður í gamalli mó-
gröf í Reykjavík. Örlög hans
sækja á Erlend sem fer að grafast
fyrir um fortíð mannsins.
Þessi prýðilega bók kom út ár-
ið 2012 og fékk afar góða dóma,
eins og búast mátti við enda
kann Arnaldur sitt fag og verður
eins og gagnrýnandi Sunday Tim-
es sagði „sífellt betri“. Friðrika
Benónýsdóttir sagði í Frétta-
blaðinu að þessi bók væri meðal
best skrifuðu bóka Arnaldar.
Þeir sem ekki hafa lesið Reykja-
víkurnætur ættu að ná sér í kilj-
una og sökkva sér niður í vel
sagða sögu.
Örlög úti-
gangsmanns
Horfðu á mig er metnaðarfyllsta og dýpsta
skáldsaga Yrsu Sigurðardóttur sem hefur
komið sér fyrir á eða við hátind norrænna glæpa-
sagna, segir breska stórblaðið The Sunday
Times í gagnrýni um síðustu helgi. Someone
to Watch Over Me, eins og bókin nefnist á ís-
lensku, er nýkomin út þar í landi. Times hefur áð-
ur fullyrt að Yrsa sé í hópi fremstu glæpasagna-
höfunda Norðurlanda og Times Literary
Supplement fullyrti að bækur hennar stæðust
samanburð við það sem best gerðist í glæpasög-
um samtímans, hvar sem er í veröldinni. Horfðu
á mig kom upphaflega út á íslensku árið 2009 og
hefur þegar verið gefin út víða um lönd.
Í dómnum segir meðal annars: „Yrsa Sigurð-
ardóttir hefur komið sér fyrir á eða við hátind
norrænna glæpasagna og lögmaðurinn Þóra
Guðmundsdóttir er heillandi söguhetja sem
glímir við hversdagsleg vandamál. Horfðu á
mig er metnaðarfyllsta og dýpsta skáldsaga
Yrsu, þar sem hún leggur litla áherslu á íslenskt
landslag en þeim mun meiri á laskað sálarlíf per-
sónanna.“
Yrsa Sigurðardóttir fær sérlega góða dóma í
Sunday Times fyrir Horfðu á mig.
Morgunblaðið/Ernir
SUNDAY TIMES
HRÓSAR YRSU
Þú afhjúpar mig eftir Sylviu Day kom út í ís-
lenskri þýðingu á síðasta ári og fór strax á met-
sölulista hér á landi. Í byrjun næstu viku kemur út
hjá Lesbók framhald þeirrar bókar, Þú speglar
mig í þýðingu Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur.
Hjá Lesbók hafa menn rækilega orðið varir við
að margir geta ekki beðið eftir framhaldsbókinni
því mikið hefur verið hringt í forlagið til að for-
vitnast um útgáfu á henni. Biðinni er nú senn lok-
ið
Sylvia Day gaf Þú afhjúpar mig út á eigin
vegum en var fljótlega uppgötvuð af Penguin-
forlaginu, og komin á samning þar á bæ sem þeir
sjá líklega seint eftir að hafa gert. Bókin fór rak-
leiðis á toppinn á metsölulistum og velti Fimm-
tíu gráum skuggum úr fyrsta sæti á aðeins
nokkrum dögum.
Metsöluhöfundurinn Sylvia Day hefur hlotið
fjölmargar viðurkenningar fyrir bækur sínar, sem
gefnar hafa verið út í 39 löndum. Hún hefur hlot-
ið tilnefningu til Goodread Choice Award-
verðlaunanna. Hún hefur unnið til RT Book Re-
views Reviewers’ Choice Award-verðlaunanna og hefur einnig tvisvar verið tilnefnd til RITA-
verðlauna (rómantískasti rithöfundur Bandaríkjanna).
METSÖLUBÓK Á LEIÐINNI
Það er alltaf fréttnæmt þegar
nýr höfundur stígur fram í
dagsljósið. Sverrir Berg er
splunkunýr spennusagnahöf-
undur þjóðarinnar og fyrsta
bók hans, Drekinn sem er ný-
komin út, gerist á Íslandi vorið
2013. Flest bendir til að for-
stjóri Einarshafnar hafi fyr-
irfarið sér en ekki er allt sem
sýnist. Brynjar, sem starfar hjá
ráðgjafafyrirtæki, rannsakar
málið og dregst inn í mjög svo
óvænta atburðarás.
Splunkunýr
glæpasagna-
höfundur
Fuglamyndir
Helga, glæpir
og útivist
NÝJAR BÆKUR
ÁSTÆÐA ER TIL AÐ MÆLA MEÐ FALLEGRI LJÓS-
MYNDABÓK UM FUGLA EFTIR HELGA SKÚLASON.
ÍSLENSKIR GLÆPIR ERU Á SÍNUM STAÐ, EN NÝ ÍS-
LENSK GLÆPASAGA ER KOMIN Á MARKAÐ OG
ARNALDUR KEMUR ÚT Í KILJU. ÚTIVISTARMENN
FYLGJA SÍÐAN PÁLI ÁSGEIRI ÁSGEIRSSYNI EFTIR
OG KYNNAST LANDINU SÍNU BETUR.
Í bókinni Gönguleiðir vísar hinn
þaulreyndi útivistarmaður Páll Ás-
geir Ásgeirsson til vegar um nokkr-
ar af vinsælustu gönguleiðum lands-
ins; Kjalveg, Öskjuveg, Lónsöræfi,
Laugaveginn og Fimmvörðuháls.
Hverri gönguleið fylgja góð kort
auk fjölda ljósmynda. Bókin er jafnt
ætluð þeim sem eru að stíga fyrstu
skrefin í útivist og hinum reyndari.
Páll Ásgeir vísar
til vegar
Wise Birds of Iceland er afar falleg bók á ensku með
myndum af fuglum eftir Helga Skúlason. Bókin er ekki síst
ætluð erlendum ferðamönnum en Helgi Skúlason hefur á
síðustu árum getið sér mjög gott orð fyrir náttúrumyndir
sínar og hefur sérhæft sig í fuglamyndum. Hann hefur
haldið nokkrar sýningar á myndum sínum, til dæmis í
Ráðhúsi Reykjavíkur, sem vakið hafa mikla athygli.
Fuglamyndir Helga
í fallegri bók
* „Látið menninguna í friði; þágetur hún séð um sig sjálf.“Vilmundur Jónsson BÓKSALA 8.-15. MAÍ
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Rannsóknasetri verslunarinnar
1 Hinir réttlátu- kiljaSólveig Pálsdóttir
2 Iceland Small World - small ed.Sigurgeir Sigurjónsson
3 Lág kolvetna lífsstíllinn LKLGunnar Már Sigfússon
4 Skýrsla 64 - kiljaJussi Adler Olsen
5 Drekinn- kiljaSverrir Berg
6 Djöflatindur- kiljaDemon Meyer
7 Sækið ljósuna- kiljaJennifer Worth
8 Brynhjarta- kiljaJo Nesbo
9 Vitnið - kiljaNora Roberts
10 SvikalognVoveca Sten
Kiljur
1 Hinir réttlátuSólveig Pálsdóttir
2 Skýrsla 64Jussi Adler Olsen
3 DrekinnSverrir Berg
4 DjöflatindurDeon Meyer
5 Sækið ljósunaJennifer Worth
6 BrynhjartaJo Nesbø
7 VitniðNora Roberts
8 SvikalognViveca Sten
9 Kaffi og ránCatharina Ingelman-Sundberg
10 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason
MÁLSHÁTTUR
VIKUNNAR
Bragð er að þá barnið finnur.