Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.5. 2013
Matur og drykkir
B
urkni Maack Helgason sýndi meistaragrilltakta þegar tengda-
fjölskyldan kom í mat á dögunum. En tengdaforeldrar hans,
mágkona og mágur skiptast á að bjóða hvert öðru í mat einu
sinni í viku.
„Við höfum gert þetta núna í einn eða tvo vetur og þetta er skemmtileg
leið til að halda hópinn. Ég er talsverður matmaður og finnst í raun
skemmtilegt að elda hvað sem er svo lengi sem ég hef tímann fyrir mér
í eldamennskunni. Sólin þarf ekkert endilega að sýna sig til að ég grilli
enda er ég með yfirbyggðar svalir og grilla því bara þegar mér sýnist,“
segir Burkni og bætir við að hann hafi reynt að gera grillmatinn dálítið
öðruvísi í þetta sinn þar sem hann hafi jú verið með áhorfendur. Burkni
velur frekar safaríkt kjöt með fitu og beini á grillið heldur en t.d. kjúk-
lingabringur og kaupir t.d. gjarna grísahnakka þar sem þeir grillast mjög
vel. Einnig grillar hann gjarnan fisk og þá á háum hita á grillpönnu með
grænmeti og vatnslögg undir þannig að fiskurinn gufusjóði en brúnist að
ofan. Burkna finnst gott að nota smjör og rjóma í matargerð og segist því
lítið hugsa um að lágmarka fitu enda sé maturinn oftast hollur sem slíkur.
Í þetta sinn grillaði Burkni gott kjöt með fjölbreyttu meðlæti í anda
Miðausturlanda og Miðjarðarhafsmatargerðar í bland. Eftirrétturinn var
síðan alvöru sælgætissprengja og eins skotheldur og hann getur orðið.
„Ég reyni oftast að nota sömu bragðtónana í gegnum þann mat sem ég
geri og nota þá sömu fjórar eða fimm kryddtegundirnar í matinn. Þeir
réttir sem ég gef hér uppskrift að endurspegla það svolítið. Síðan nota ég
talsvert myntu í matargerð sem vex hér eins og illgresi og það meira að
segja norðanmegin við húsið. Síðasta sumar var hér mittishár myntu-
skógur fyrir utan og gætum við örugglega haldið gott mojhito boð hér
einn daginn,“ segir Burkni en á sumrin gerir hann gjarnan sósur þar sem
aðaluppistaðan er grísk jógúrt og mynta. Þá vex einnig sjálfsáið rúkóla í
stéttinni fyrir framan húsið og þau hjónin því vel í sveit sett.
Burkni við grillið með gómsætt kjöt og meðlæti á blússandi hita.
Sonurinn Dagur Einar lét ekki sitt eftir liggja í kjötátinu og fékk að naga það beint af teininum, virðist honum líka það vel.
FJÖLSKYLDUMÁLTÍÐ Í FOSSVOGINUM
Grillar allan
ársins hring
TENGDAFJÖLSKYLDA BURKNA MAACK HELGASONAR
BORÐAR SAMAN EINU SINN Í VIKU OG Í ÞETTA SINN
GRILLAÐI BURKNI KJÖT OG FJÖLBREYTT MEÐLÆTI.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Þessi eftirréttur gerist ekki ein-
faldari en er algjörlega skot-
heldur.
1 poki frosin berjablanda
Þristar og Mars eins og
hver getur í sig látið.
Aðferð
Súkkulaðið er smátt skorið
og blandað saman við berin,
blandan er síðan grilluð og loks
borin fram með ís úr vél.
Þristar og
Mars-bomba