Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Qupperneq 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Qupperneq 53
19.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 Á sýningu Helgu Láru Har- aldsdóttur myndlistarkonu og kennara, „Hefur orðið“, í sal Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu, er unnið með hug- myndatengingu orða. Sýningin er hugsuð sem kveikja fyrir ungmenni til að víkka skilning á konseptlist. 2 Þau Herdís Stefánsdóttir og Georg Kári Hilmarsson halda útskriftartónleika sína í Kaldalóni í Hörpu á laugar- dag klukkan 17 en þau útskrifast með BA-gráðu í tónsmíðum frá Listahá- skólanum nú í vor. Hljóðfæraleikarar flytja ný verk tónskáldanna, m.a. fyrir kammersveit og kór. 4 Áhugafólk um skífuþeytingar ættu að skemmta sér á Fakt- orý á hvítasunnukvöld. Í til- efni af þúsundasta viðburði staðarins mæta tveir erlendir skífu- þeytar, wAFF og De Puta Madre. DJ Margeir verður líka á staðnum. 5 Á mánudag eru 120 ár liðin frá fæðingu myndhöggvarans snjalla Ásmundar Sveins- sonar. Í Ásmundarsafni við Sigtún hefur verið sett upp sýning er nefnist „Sagnabrunnur – Ásmundur og bókmenntirnar“ og er aðgangur ókeypis á fæðingardegi listamannsins. Leiðsögn verður um sýninguna klukk- an 15 og allir velkomnir. 3 Listahátíð Reykjavíkur er hafin og fjöldi áhugaverðra við- burða í boði þessa dagana, tónleikar og sýningar. Í Hafn- arhúsinu eru á laugardag og sunnudag fluttir sögulegir og áhrifaríkir gjörn- ingar Magnúsar Pálssonar. MÆLT MEÐ 1 Það er auðvitað heiður að vera boðið áþessa hátíð og alltaf mjög spennandiað leika fyrir nýja áheyrendur,“ segir Kolbeinn Bjarnason flautuleikari sem ásamt félögum sínum í Caput og fiðluleikaranum Lin Wei flaug til Kína laust fyrir helgi og mun undir stjórn Guðna Franzsonar leika á nútímatónlistarhátíð í Beijing á morgun, mánudag. Hátíðin, sem nú er haldin í 11. sinn, fer fram í tónlistarháskólanum í Beij- ing. Að sögn Kolbeins hefur Caput á þeim 25 árum sem hópurinn hefur starfað farið í á þriðja tug tónleikaferðalaga. „Í tónleika- ferðalögum okkar til Norðurlandanna leggj- um við ávallt áherslu á að flytja íslenska tón- list. En þegar við förum í lengri ferðir, eins og núna til Kína, þá finnst okkur gaman að kynna tónlist frá öllum löndum á Norð- urlöndunum,“ segir Kolbeinn og bendir á að tvö íslensk verk, Ásýnd eftir Hauk Tómasson og Ró eftir Önnu Þorvaldsdóttur, verða frumflutt í Beijing á morgun, en verkin voru pöntuð sérstaklega fyrir ferðina. Auk þess verða flutt einleiksverk og kammerverk eftir Jón Leifs, verk eftir Kaiju Saariaho frá Finn- landi, Rolf Wallin frá Noregi, Bent Sørensen frá Danmörku, Toniu Ko, Astor Piazolla og frumflutt nýtt verk eftir Chen Dan Bu frá Kína, sem samið var sérstaklega fyrir Caput. Að sögn Kolbeins mun Caput alls leika á þrennum tónleikum meðan á tónleika- ferðalaginu stendur. „Frá Beijing höldum við til Tian Jin þar sem við leikum í tónlistarhá- skóla borgarinnar á þriðjudag, en þaðan fljúgum við til Xi’an þar sem við leikum í tónlistarskóla borgarinnar á fimmtudag,“ segir Kolbeinn og bendir á að á öllum þrem- ur tónleikunum kemur kínverski fiðluleik- arinn Chen Xi fram með Caput, en hann er mjög vel þekktur og vinsæll í heimalandi sínu. Þess má að lokum geta að Caput nýtur ferðastyrks frá Norrænu menningargáttinni, en tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Lin Yao Ji Music Foundation of China og Kínversk-íslenska menningarfélagið (KÍM). CAPUT Í TÓNLEIKAFERÐALAG TIL KÍNA „Mikill heiður að vera boðið“ CAPUT LEIKUR ÞRENNA TÓNLEIKA Í KÍNAFÖR SINNI, ÞEIRRA Á MEÐAL Á NÚTÍMATÓNLISTARHÁTÍÐ Í BEIJING. Meðlimir Caput ásamt Guðna Franzsyni stjórnanda og Lin Wei sem er sérstakur gestaleikari. Morgunblaðið/Ómar áður skrifað fyrir útvarp, leikritið Svefn- manninn sem var fyrst sett á vandaðan hátt hjá þýsku NDR-útvarpsstöðinni og í fram- haldinu í Útvarpsleikhúsinu í Efstaleiti. „Ég vann lengi á útvarpinu, bæði sem fréttamaður og svo þáttagerðarmaður. Ég er sérstök áhugamanneskja um útvarpsheiminn – þetta er minn heimavöllur. Það er frábært að geta komið efni til skila eingöngu fyrir eyrun, það gefur svo vítt ímyndunarsvigrúm fyrir njótandann,“ segir Steinunn. Hún segir mikinn mun vera á því að skrifa leikrit og skáldsögur. „Þessir heimar eru einfaldlega gjörólíkir. Að sumu leyti er leik- ritið viðsjárverðasta formið, þar sem uppi- staðan eru samtöl. Okkar daglega brauð er jú samtöl, þanig að það lægi þá beint við að halda að allir gætu skrifað leikrit, úr því þeir geta staðið í því að skrafa við náungann. En svona einfalt er það ekki, það þarf að vera sérstakur taktur og tónn í samtölunum til þess að þau virki, og leikskáldin sem ná þessu best finnst manni hálfgöldrótt, Bec- kett, Pinter, Brecht,“ segir hún. Harpa Arnardóttir og Ingibjörg Magnadóttir. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Marta Nordal. Steinunn Sigurðardóttir og Hlín Agnarsdóttir. Sigurður Pálsson og Kristín Jóhannesdóttir. Auður Ava Ólafsdóttir og Kristín Eysteinsdóttir. Bragi Ólafsson og Stefán Jónsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.