Morgunblaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Eggert
Kveikjan Hátíðleg jólalög kveiktu áhuga Daníels Hauks á klassískri tónlist sem hann syngur í bland við popplög.
Þegar Daníel er inntur eftir fyrirmynd í tónlistarlíf-
inu liggur hann ekki á svari. „Númer eitt, tvö og þrjú er
það Páll Óskar. Hann hefur verið fyrirmyndin mín alveg
ótrúlega lengi. Hann gaf einu sinni út póstkortabók með
myndum af sér og ég hengdi þau öll upp sem veggfóður
þegar ég flutti á stúdentagarðana. Ég veit nú ekki hvað
fólkinu í kringum mig fannst um það,“ segir Daníel og
hlær. „Allt sem Palli syngur langar mig að syngja en það
sem ég er mest hrifinn af við hann er hvað hann er mikill
fullkomnunarsinni. Hann gerir allt hundrað prósent og
meira til. Hann sendir ekkert frá sér nema það sé full-
komið enda ekki að ástæðulausu sem hann er langskær-
asta poppstjarna okkar í dag. Ég hef nokkrum sinnum hitt
hann og hann gefur manni svo ótrúlega uppbyggjandi
gagnrýni.“
Stalst til að syngja í Flatey
Daníel er ekki búinn að sjá fyrir sér stjörnum prýdda
framtíð enda segist hann ánægður á þeim stað sem hann
er á í dag. „Það er svo margt sem mann langar til að gera
en maður má ekki gleyma sér í draumum. Maður má ekki
eyðileggja allt ferlið með því að einblína bara á að mark-
miðið sé það besta. Í dag hef ég einna mest gaman af því að
syngja í kirkjum. Hljómurinn, viðburðurinn, kyrrðin og
friðurinn heilla mig þó svo að ég sé trúlaus. Kirkjur eru
meira en bara trúarhúsnæði. Ég var í Flatey fyrir stuttu.
Þar er ein fallegasta kirkja landsins. Ég fór þangað um
miðja nótt með kríurnar brjálaðar í kringum mig. Ég fann
sálmabók og byrjaði að syngja alla sálma sem ég kunni og
söng í tvo tíma. Það var ótrúlega góð stund að vera í Flatey
um miðja nótt í leyfisleysi í kirkju að syngja sálma. Ég
réttlætti þetta fyrir sjálfum mér þó að ég segi alltaf að ég
sé trúlaus en maður veit aldrei. Ef það var einhver á staðn-
um sem var ósáttur við að ég var að syngja þá var ég alla
vega að syngja sálma. Í fyrra söng ég fyrir 5.000 manns á
landsmóti UMFÍ og það var yndislegt en það er líka ynd-
islegt að vera bara einn með sjálfum sér að syngja í kirkju í
Flatey. Þetta er ástríðan fyrir mér.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2013
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
100% made in Italy
www.natuzzi.com
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar
Erfitt getur reynst að biðj-ast afsökunar, þrátt fyrirað slíkt teljist jafnan tilmikilla mannkosta. Enn
óþægilegra er að þurfa að minna
einhvern á misgjörðir sínar, og jafn-
vel rifja þær upp fyrir viðkomandi,
til þess eins að biðjast afsökunar.
Slíkt er þó nauðsynlegt því ófyr-
irgefnar syndir geta vegið þungt á
hjörtum meints geranda sem og
brotaþola. Allir bera einhverja lesti
á baki sér og er ég sjálfur þar engin
undantekning. Það má segja að ég
sé jafnvel andlegur kroppinbakur
sökum krónísks samviskubits sem
hefur plagað mig allt frá því ég man
eftir mér. Ég hef því ákveðið að
nýta mér stöðu mína og biðja þá
sem það á við forláts.
Til að byrja með vil ég biðjast af-
sökunar á því að hafa sett Jötungrip
í höfuðfat velunnara míns með þeim
afleiðingum að á hann varð að
raka munkaskalla. Að sama
skapi vil ég biðja íbúa í
blokkinni í Leirubakka af-
sökunar á því að hafa lagt
það í vana minn að rugla
pósti á milli póstkassa í lok
hvers skóladags. Einnig vil ég
biðja þá forláts sem urðu
fyrir fólskulegri árás
minni í vatns-
byssustríði nokkru
en undirrituðum
þykir það einkar
miður að hafa kast-
að af sér vatni í
Super Soaker-
vatnsbyssuna áð-
ur en lokabardag-
inn var háður. Þar
bar kappið feg-
urðina ofurliði.
Ég vil biðja fjöl-
skyldumeðlimi mína,
sem og páfagaukinn Elías, afsök-
unar á því að hafa brugðist trausti
og vængbrotið hann með badmin-
tonspaða í stað þess að gæta hans.
Ég hef lagt mikla orku í það að telja
sjálfum mér trú um að um slys hafi
verið að ræða en þar sem ég hef í
gegnum tíðina einatt borið fyrir mig
minnisleysi verð ég að horfast í
augu við staðreyndir og taka
ábyrgð á verknaðinum.
Þrátt fyrir að þetta sé aðeins
toppurinn á ísjakanum þá er
hjarta mitt orðið ögn léttara, þó
ennþá talsvert þyngra en fjöður
Maats. Ég vil taka það fram,
þrátt fyrir að það sé engin af-
sökun, að öll þessi ódæð-
isverk vann ég þegar ég
var hvimleiður krakki.
Ég vona að þessi
syndaaflausn mín
verði engu að síður
öðrum til eftir-
breytni, enda mikil
skömm að því að
svíkjast undan
ábyrgð og biðjast
ekki afsökunar fyrir
misgjörðir liðinna tíma.
»Ég vona að þessisyndaaflausn mín
verði engu að síður öðrum
til eftirbreytni, enda mikil
skömm að því að svíkjast
undan ábyrgð og biðjast
ekki afsökunar fyrir mis-
gjörðir liðinna tíma.
HeimurDavíðs Más
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is