Morgunblaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2013 GJÖRIÐ SVO VEL! Hafðu það hollt í hádeginu HAFÐU SAMBAN D OG FÁÐU TILBO Ð! HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja hollan og næringaríkan mat í hádegi. Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta matreiðslukeppni heims. makes a difference F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is Vatnsdælur Neysluvatnsdælur, brunndælur, borholudælur Hentugar á heimilið, í garðinn, sumarhúsið eða bátinn GP 60 Garðdæla fyrir aukinn þrýsting BPP 4500 Dæla með þrýstikút og þrýstijafnara SPP 6D Inox Ryðfrí og öflug borholu- og brunndæla SDP 9500 Dæla - fyrir óhreint vatn SCD 12000 Dæla - fyrir ferskvatn. Stillanlegur vatnshæðarnemi S tillanlegur vatnshæ ðarnem i Fá íslensk listasöfn standaListasafni SigurjónsÓlafssonar á sporði hvaðsnertir fallega staðsetn- ingu í náttúrulegu umhverfi. Þessi sérstæða bygging sem upp- runalega var reist sem vinnustofa og heimili listamannsins, og högg- myndirnar utandyra hafa um ára- tugaskeið sett svip á Laugarnes- tangann og laðað til sín unnendur listar og náttúru. Talsvert hefur þó verið þrengt að safnahúsinu að undanförnu sökum umsvifa ná- grannans. Sigurjónssafn var stofn- að árið 1984 af ekkju listamanns- ins, Birgittu Spur, og er vin í borgarlandslaginu þar sem skoða má verk Sigurjóns og annarra listamanna, hlýða á tónleika og drekka kaffi með útsýni yfir sund- in blá. Safnið stendur nú á merki- legum tímamótum því í fyrra færði Birgitta Listasafni Íslands Sig- urjónssafn að gjöf. Á dögunum var þar opnuð fyrsta sýningin eftir sameininguna og ber hún heitið „Úr djúpunum“. Þar er efnt til samtals milli höggmynda Sig- urjóns frá árunum 1960-1982 og málverka annarra íslenskra mód- ernista frá svipuðu tímabili eða þeirra Guðmundu Andrésdóttur, Kristjáns Davíðssonar, Nínu Tryggvadóttur, Svavars Guðnason- ar og Þorvaldar Skúlasonar. Flest eru verkin í eigu Listasafns Ís- lands en þarna má einnig sjá nokkur verk sem eru í einkaeigu. Verk Sigurjóns eru í aðal- hlutverki á sýningunni en með samanburðinum við verk hinna listamannanna er ætlunin að varpa ljósi á áherslur í listsköpun hans – og um leið á módernískar listhrær- ingar hér á landi. Listamennirnir eiga það sameiginlegt að hafa ávallt haldið sínu formhyggjustriki og þróað myndmál á forsendum grunneiginda málverksins eða höggmyndarinnar, þ.e. samspili lína, lita, flata, efnis og rýmis. Verkin eru flest óhlutbundin en líkt og gefið er til kynna með yf- irskrift sýningarinnar og heitum einstakra verka, þá skírskota þau til fyrirbæra náttúrunnar og efn- isheimsins, til hugmynda eða til- finninga. Tímabilið eftir 1960 ein- kenndist af fráhvarfi frá strangflatarstefnu; listamenn tóku að leyfa sér lausbundnari form- gerð og spunakenndari vinnu- brögð. Þessi þróun tengdist hrær- ingum úti í heimi þegar dulvitundin, hið ósjálfráða og hið upprunalega voru leiðarorð margra listamanna, ekki síst í New York og París. Um þetta leyti varð Sigurjón af heilsufars- ástæðum að snúa sér að öðrum efniviði en steini, og öðlaðist um leið nýtt frelsi í formtjáningu með „léttari“ efnum eins og tré, kopar og járni. Vissulega hafði steinninn leikið í höndum hans – upp í hug- ann kemur t.d. straumlínulagaður Markmaður (1937) á flugi – og í nýrri verkunum nýtur sín rík efn- istilfinning Sigurjóns, taktföst og jarðbundin formhugsun í bland við vissan léttleika, leikgleði og hug- lægt sem formrænt flug. Þetta er dregið ágætlega fram í samtalinu við ólgandi og kraftmikil málverk eins og Gos (1964) eftir Nínu Tryggvadóttur, Glæður (1964) eftir Guðmundu Andrésdóttur, Flæð- armál (1962) Kristjáns Davíðs- sonar, Kompósisjón (1963) Svavars Guðnasonar og Rauð tilbrigði (1981) eftir Þorvald Skúlason. Samtal síðasttalins verks Þorvald- ar og Baráttunnar um fjöreggið (1978) eftir Sigurjón undirstrikar athuganir hans á samspili hins tví- víða og hins þrívíða, og minnir á öfluga og markvissa samræðu verka þessara tveggja listamanna á sýningu í Hafnarborg fyrir fimm árum. Samhljómur er milli verka í sýn- ingarsalnum á efri hæðinni, en á neðri hæðinni fer ekki nógu vel um málverkin þar sem þau eru til sýnis í vinnustofu myndhöggvara og því lítið um gott veggjapláss. Flygill við enda salarins (notaður á vikulegum sumartónleikum safns- ins og í öðru tónleikahaldi) tekur einnig mikið til sín þar sem hann er staðsettur fyrir miðju og verk Sigurjóns beggja vegna. Sam- anburðurinn verður fyrir vikið lauslegri en á efri hæðinni, þótt vissulega sé áhugavert að sjá sam- an málverk Svavars og Kristjáns og skúlptúra Sigurjóns. Í heild má segja að sýningin „Úr djúpunum“ veiti nokkra innsýn í þróun íslensks módernisma á 7. og 8. áratugnum og henni er fylgt úr hlaði með prýðilegri grein eftir Æsu Sigurjónsdóttur listfræðing. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar er mikilvæg miðstöð sýninga og rann- sókna á verkum listamannsins, ýmist í húsakynnum safnsins eða samstarfi við stofnanir á Íslandi og erlendis. Í gegnum tíðina hefur með þeirri starfsemi verið leitast við að skoða verk Sigurjóns í sam- tali við aðra listamenn, líkt og á sýningunni nú. Með sameiningunni við Listasafn Íslands er ljóst að nýir og spennandi möguleikar hafa opnast hvað snertir rannsóknir á verkum Sigurjóns í samhengi ís- lenskrar myndlistar og sýningin „Úr djúpunum“ vísar fram á veg- inn í þeim efnum. Nína Tryggvadóttir, Gos, 1964. Djúpið við tangann Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Úr djúpunum – Guðmunda Andrés- dóttir, Kristján Davíðsson, Nína Tryggvadóttir, Sigurjón Ólafsson, Svavar Guðnason og Þorvaldur Skúlason. bbbmn Til 1. september 2013. Opið kl. 14-17 alla daga nema mánudaga. Aðgangseyrir: 500 kr., eldri borgarar og öryrkjar: 300 kr., börn yngri en 18 ára: ókeypis. Sýn- ingarstjórar: Halldór Björn Runólfsson og Birgitta Spur. ANNA JÓA MYNDLIST Sigurjón Ólafsson, Gróandinn, 1965.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.