Morgunblaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 38
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Sumum er tónlistin í blóð borin og skiptir þá litlu máli hvað annað menn taka sér fyrir hendur, tónlistin verður alltaf stór þáttur í lífi þessa fólks. Helgi Þór Ingason verkfræð- ingur er einn þessara einstaklinga en hann hefur alla tíð haft gaman af því að spila og hlusta á góða tónlist. „Tónlistin hefur alltaf verið stór þáttur í mínu lífi, jafnvel þó svo að ég hafi valið þann veg að fara í lang- skólanám í verkfræði og starfa við hana í dag,“ segir Helgi en hann er dósent við Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Tónlistin er þó aldrei langt undan og hefur Helgi spilað með ýmsum hljómsveitum frá unga aldri og segir tónlistina stærri og stærri þátt í lífi sínu. „Ég á mér þann draum að geta snúið mér nærri því alfarið að tónlistinni og haft verkfræðina með eins og ég hef kannski tónlistina í dag.“ Fyrsta platan með eigin lögum Fyrsta plata tónlistarmanna er oft sú eftirminnilegasta enda áfangi sem oft getur verið erfiður að taka. Bæði fylgir útgáfu nokkur kostn- aður og tónlistarmenn eru oftar en ekki að setja tónlistina sína í fyrsta skipti í dóm neytenda sem ekki er gert með jafn afgerandi hætti á ein- staka tónleikum. „Gamla hverfið er fyrsta platan mín með minni eigin tónlist bæði lögum og textum. Þetta er samt ekki í fyrsta skiptið sem ég hef spilað inn á plötu en við höfum gefið út nokkra diska í South River Band. Hins vegar er þetta allt önnur tilfinning og fyrir mig er þetta mikill áfangi,“ segir Helgi en spurður út í það hvort hann hafi áhuga á að gefa út tónlistina sína á vínýl eins og margir tónlistarmenn eru farnir að gera aftur í auknum mæli segist hann fyrst og fremst ánægður með að hafa komið diskinum út. „Auðvit- að væri gaman að skoða vínýl útgáfu ef tónlistin mín fær einhverja hlustun. Ég er að gefa þetta út sjálf- ur og hef ekki milljónir til að setja í markaðssetningu en ef tónlistin nær í gegn og fólk fer að hlusta á hana og kaupa er hægt að skoða það að gefa hana út á öðru formi.“ Djassóður til gamla hverfisins Platan hans Helga, Gamla hverfið, er unnin upp úr lögum og textum sem Helgi hefur unnið að í gegnum tíðina og er elsti textinn og lagið að verða 25 ára gamall. „Reyndar á ég ekki textann við elsta lagið á plöt- unni sem heitir Hin liðnu ævintýr. Sá texti er eftir föðurbróður minn Jón Árnason en hann var mikið skáld og bóndi á Syðri-Á í Ólafsfirði. Þetta æxlaðist þannig að ég fór um tvítugt norður til hans og spilaði lag- ið fyrir hann og hann samdi þennan fína texta. Síðan samdi ég lag og texta þegar sonur minn var lítill fyr- ir 18 árum og það eru því elstu lögin á diskinum, hin eru nýrri,“ segir Helgi en diskurinn er að hans eigin sögn ákveðin fortíðarhyggja þar sem lög og textar eru yfirleitt um fólk og staði úr fortíð Helga. „Titillag disksins og nafn hans er skírskotun til gamla hverfisins en ég og Einar Clausen söngvari og æsku- vinur minn vorum aldir upp í Ár- bænum. Það eiga allir sitt gamla hverfi og Árbærinn er okkar. Það ættu því einhverjir gamlir Árbæing- ar að þekkja tilvísanir í texta lagsins en tían, safnið og vogurinn er allt einkennandi hugtök fyrir þann tíma þegar við Einar vorum að alast upp í Árbænum.“ Myndin aftan á hulstri disksins er einmitt af Árbænum en það er loft- mynd Mats Wibe Lund frá árinu 1977. Það ljóst af spjallinu við Helga að Árbærinn er honum mjög kær. Það kemur því kannski ekki á óvart að platan var tekin upp í stofunni hjá Helga í Árbænum. Lætur drauma sína rætast  Tónlistarmaðurinn Helgi Þór Ingason gefur út sína fyrstu sólóplötu  Elstu textar og lög á plöt- unni hans „Gamla hverfið“ eru allt að 25 ára gamlir  Langar að snúa sér alfarið að tónlistinni Tónlist Helgi Þór Ingason er menntaður verkfræðingur en tónlistin er þó aldrei langt undan hjá honum en hann gaf nýlega út fyrstu plötuna sína. Ljósmyndir/Eddi Jónsson Árbærinn Helgi með félögum sínum að spila tónlist í stofunni heima. 38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2013 ÚRAUPPBOÐ TIL STYRKTAR KRAFTI JS Watch co. Reykjavik, Tolli og Lína Rut hafa tekið höndum saman og skapað 2 einstaka skartgripi sem boðnir verða upp á netinu til styrktar Krafti - Stuðningsfélagi ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra. Hér er einstakt tækifæri til að eignast dýrgripi sem hvergi eiga sinn líka og styðja við gott málefni í leiðinni. Allur ágóði af uppboðinu rennur óskertur til Krafts. www.gilbert.is Kynntu þér uppboðið nánar á www.gilbert.is Uppboði - lýkur 31. júlí Myndlistarkonan Mireya Samper opnaði myndlistarsýningu í aðal- listasafni Litháens, þjóðlistasafninu í Kaunas, í gær. „Ég er mjög ánægð með opn- unina og þær móttökur sem ég hef fengið frá fólki hérna. Það er alltaf erfitt fyrir listamanninn sjálfan að segja hver viðbrögð fólks eru en það sem ég hef orðið vitni að hérna á opnuninni eru góð viðbrögð gesta,“ segir Mireya en það kom henni líka skemmtilega á óvart hve gríðarlega margir mættu á opn- unina. Mireya vann að sýningunni hérna heima og átti því erfitt með að sjá nákvæmlega hvernig hún kæmi út. „Ég gat ekki gert annað en að vona það besta en útkoman fer fram úr mínum björtustu vonum. Ég hefði ekki þorað að ímynda mér að þetta myndi koma svona vel út. Sýningin kemur vel saman í birtuskilyrð- unum hérna og smellur saman sem ein heild, sem er frábær tilfinning.“ Sýning Myndlistarkonan Mireya Samper opnaði sýningu á verkum sínum í þjóðlistasafninu í Kaunas í Litháen og fékk góðar viðtökur gesta. Fjölmenni á sýningu Mireyu Samper

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.