Morgunblaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2013
Tillaga að deiliskipulagi
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps auglýsir hér
með tillögu að deiliskipulagi fyrir þjónustu-
svæði og áningastað við Dettifoss að vestan-
verðu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.
123/2010
Markmið með fyrirhuguðum framkvæmum
er að bæta aðstöðu til móttöku ferðamanna
sem koma til að skoða Dettifoss.
Deiliskipulagið tekur til svæðis fyrir þjónustu-
byggingar á bílastæði við Dettifoss auk
svæða fyrir neysluvatnslagnir og fráveitu-
mannvirki.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við eftir-
farandi ákvæði í Aðalskipulagi Skútustaða-
hrepps 2011-2023:
Þjónustusvæði við Dettifoss 521-V. Óbyggt,
deiliskipulag er í vinnslu. Uppbygging skv.
deiliskipulagi. Aðstaða og þjónusta fyrir
ferðamenn.
Sveitarstjórn hefur samþykkt að nýta sér
heimild skv. 3. og 4. mgr. 40. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010 um að fallið verði frá gerð
lýsingar og kynningar þar sem allar megin-
forsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í
aðalskipulagi.
Tillöguuppdráttur og greinargerð munu
liggja frammi á skrifstofu Skútustaðahrepps,
Hlíðavegi 6, 660 Mývatn frá og með föstu-
deginum 19. júlí til og með föstudeginum 30.
ágúst 2013 svo að þeir aðilar sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta geti kynnt sér
tillöguna og gert við hana athugasemdir.
Þá eru upplýsingar og aðgengilegar á hei-
masíðu Skútustaðahrepps:
www.myv.is/Stjórnsýsla/Skipulags- og byg-
gingarmál/Deiliskipulag/Tillögur í
auglýsingu.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna
rennur út þann 30. ágúst 2013 og skal
athugasemdum skilað skriflega til skrifstofu
Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatn
og/eða í tölvupósti á netfangið:
bjarni@thingeyjarsveit.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við hina
auglýstu tillögu innan tilskilins frests teljast
henni samþykkir.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Skútustaðahrepps.
Félagsstarf eldri borgara
!
!
" #
!
!"#!$ $# %
&
!
'( ) !
*
+
'
%
,& -
.
-
% & )
' #+ / %
%
/" % "
'
(
) ,
. *
%
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
✝ Bryndís Magn-úsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 16.
febrúar 1936. Hún
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
7. júlí 2013.
Foreldrar henn-
ar voru Magnús
Sigurjónsson, úr-
smiður frá Hólma-
vík, f. 6.5. 1912, d.
4.5. 1986, og Unn-
ur Kristín Eggertsdóttir úr
Reykjavík, f. 29.6. 1908, d. 4.11.
1960. Systir Bryndísar er Sig-
urbjörg Magnúsdóttir, f. 25.9.
1949.
Bryndís giftist hinn 12. sept-
ember Magnúsi Geirssyni, raf-
virkja, f. 18.9. 1931, d. 7.10.
2010. Foreldrar
hans voru Rebekka
Þorsteinsdóttir, f.
15.9. 1899 í Þor-
móðsey á Breiða-
firði, d. 3.4. 1945,
og Geir Magn-
ússon, f. 30.10.
1897 á Þurá í Ölf-
usi, d. 2.8. 1955.
Börn þeirra: 1) Sig-
rún, f. 29.1. 1954,
d. 25.11. 2008,
maki Guðlaugur Hilmarsson, f.
10.5. 1953. Sonur þeirra er
Hilmar Guðlaugsson, 29.7.
1981. Sonur Sigrúnar frá fyrra
sambandi er Magnús Sigurðs-
son, f. 12.6. 1971. 2) Geir, f. 5.8.
1960. Maki Áslaug S. Svav-
arsdóttir, f. 19.2. 1959. Börn
þeirra eru a) Magnús Brynjar,
f. 2.6. 1984, eiginkona Vala
Hrönn Isabel Pétursdóttir, f.
13.5. 1985. Barn þeirra er Rak-
el Sunna, f. 10.6. 2010. b) Re-
bekka Rún, f. 3.2. 1992. c) Kar-
ólína Klara, f. 26.6. 1993. 3)
Unnur, f. 30.11. 1968. Maki
hennar er Daníel J. Helgason,
f. 22.6. 1964. Barn þeirra er
Unnur Bryndís, f. 3.4. 1990.
Sambýlismaður hennar er Odd-
ur I. Guðjónsson, f. 14.10. 1982.
Börn þeirra eru Guðjón Elí, f.
20.1. 2011 og Daníel Helgi, f.
20.1. 2011.
Bryndís var húsmóðir en
vann einnig við verslunarstörf
og sem aðstoðarmaður tann-
lækna. Hennar áhugamál voru
fyrst og fremst fjölskyldan,
mannleg samskipti og bókalest-
ur. Bryndís bjó lengst af í
Reykjavík en síðustu árin í
Kópavogi.
Útför Bryndísar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 19. júlí
2013, og hefst athöfnin kl. 13.
Elsku mamma.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Takk fyrir allt.
Geir og Unnur.
Í dag, 7. júlí 2013, fer fram
úrför tengdamóður minnar,
Bryndísar Magnúsdóttur, eftir
stutt veikindi. Hún var einstök á
margan hátt, nett og glæsileg
kona sem var alltaf vel til höfð
hvort sem hún var að vinna
heima eða mæta í boð. Hún var
hlýleg, glaðleg, tók sig ekki of
hátíðlega, gat hlegið að sjálfri
sér. Einnig átti hún auðvelt með
að njóta augnabliksins, hvort
sem það var að setjast út í sól-
ina eða gefa umhverfinu gaum.
Henni var margt til lista lagt þó
að hún væri ekki að flíka því.
Hún hafði næmt auga fyrir feg-
urð og hafði hæfileika til að raða
saman ólíkum hlutum svo þeir
mynduðu heild. Þetta kom sér-
staklega vel fram á glæsilegu og
notalegu heimili hennar en við
það lagði hún mikla alúð. Bryn-
dís átti mjög auðvelt með öll
samskipti og hennar helstu
áhugamál voru fjölskylda og
samferðafólk. Hún var dugleg
við að halda sambandi, fylgdist
vel með og hafði alltaf áhuga á
því sem aðrir voru að gera. Hún
var næm á tilfinningar annarra
og var alltaf tilbúin að hlusta.
Bryndís las mikið og hafði
áhuga á hvers konar bókmennt-
um hvort sem það voru ævisög-
ur, skáldsögur eða ljóð. Einnig
hafði hún í seinni tíð mjög gam-
an af leikhúsferðum með frænku
sinni. Þá var fastur liður að hitta
gönguhópinn sem hún var í og
naut að vera með. Ég þakka fyr-
ir að hafa fengið tækifæri til að
kynnast Bryndísi. Hennar verð-
ur sárt saknað.
Áslaug.
Elsku amma Bryndís.
Það er svo erfitt að hugsa til
þess að þú sért farin frá okkur,
við héldum að við myndum hafa
meiri tíma með þér.
Þú varst alltaf svo fín og flott,
eins og þú værir að fara að hitta
forsetann. Bros þitt og hlátur
gerðu daginn betri. Þú varst
alltaf hlý og góð við alla sem
voru nálægt þér og öllum líkaði
vel við þig.
Við erum þakklát fyrir allar
þær góðu stundir og minningar
sem við eigum með þér, þeim
munum við aldrei gleyma.
Það er sárt að þurfa að
kveðja þig. Orð fá því ekki lýst
hversu mikið við systkinin mun-
um sakna þín, elsku amma, þú
munt alltaf eiga stað í hjarta
okkar.
Þín barnabörn
Magnús, Rebekka
og Karólína.
Bryndís
Magnúsdóttir
✝ KristbjörgGunnlaugs-
dóttir fæddist á
Egilsstöðum 16.
september 1952.
Hún lést á sjúkra-
húsinu á Egils-
stöðum 21. júní
2013.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Gunnlaugur Sig-
urbjörnsson, f. 7.
febrúar 1917, d. 24. nóv. 2002,
og Kristín Eyjólfsdóttir, f. 4.
Gunnlaugssyni frá Heiðarseli í
Hróarstungu. Þau slitu sam-
vistum. Þau eignuðust einn son,
Atla, f. 14. janúar 1974. Dóttir
hans er Gabríella Sif, f. 23. maí
1993. Árið 1992 giftist Krist-
björg seinni manni sínum, Hall-
dóri Bergssyni frá Egilsstöðum.
Kristbjörg ólst upp á Tóka-
stöðum í Eiðaþinghá og á Egils-
stöðum, og bjó síðan alla tíð á
Egilsstöðum. Kristbjörg ólst
upp við öll hefðbundin sveita-
störf. Að loknu skyldunámi
stundaði hún nám við Hús-
stjórnarskólann á Hallormsstað
í tvo vetur. Eftir það vann hún
margvísleg störf, en lengst af
starfaði hún við umönnun
þroskaheftra.
Útför Kristbjargar hefur far-
ið fram í kyrrþey.
okt. 1912, d. 4. okt.
1992. Systkini
Kristbjargar eru
Eyjólfur, f. 23. apr-
íl 1936, d. 15. maí
1997, Þorbjörg, f.
14. maí 1939, d. 16.
maí 2010, Björn
Þór, f. 23. júní
1940, Snjólfur, f.
27. mars 1945 og
Gunnar, f. 22. jan-
úar 1951,
d. 6. ágúst 2009.
Kristbjörg giftist Gunnlaugi
Elsku mágkona mín og besta
vinkona síðustu 38 árin, Krist-
björg (Didda), lést 21. júní síð-
astliðinn. Það er svo margt sem
fer um hugann þegar þú ert
farin og ég hugsaði elskan hvað
ég ætti að skrifa en við áttum
svo margt sameiginlegt og
gerðum margt skemmtilegt
saman. Okkur fannst báðum
gaman að dansa og syngja og
þú kunnir alla texta eins vel og
hann Gunnar bróðir þinn.
Didda mín, ég hugsa um þá
stund þegar ég sat hjá þér og
Dóra á rúmstokknum í veik-
indum þínum og við vorum að
syngja lögin með Vilhjálmi Vil-
hjálmssyni. Manstu gamla mín
öll skemmtilegu ferðalögin þar
sem þið Dóri voruð á húsbíln-
um sem þú elskaðir, að
ógleymdum ferðafélögunum,
hundunum ykkar þeim Ponsu
og Skugga. Ég sakna þín mjög
mikið og mundu stóra loforðið
okkar, að kyssa og knúsa
Gunnar minn frá mér. Didda
mín, þú varst mikil hestakona
og dýravinur og við syngjum
lagið „Þú komst í hlaðið á hvít-
um hesti“. Guð veri með þér
elskan og sendi ég mínar
dýpstu samúðarkveðjur til
Halldórs, Atla, Hugrúnar og
Gabríelu.
Þín mágkona,
Hafdís Baldvinsdóttir
(Didda).
Kristbjörg
Gunnlaugsdóttir
✝ Guðbjörg Sig-ríður Jóels-
dóttir (Stella) fædd-
ist í Sigluvík í
Vestur-Landeyjum
4. júlí 1930. Hún lést
á hjartadeild Land-
spítalans 8. júlí
2013.
Guðbjörg var
dóttir hjónanna Jó-
els Einarssonar frá
Berjanesi í Land-
eyjum, f. 4. febrúar 1904, d. 29.
nóvember 1982 og Sigríðar Guð-
mundsdóttur, f. 14. júlí 1905, d. 5.
febrúar 1970. Guðbjörg ólst upp
á Gularáshjáleigu í Austur-
Landeyjum. Systkini hennar eru
Hjaltason, f. 19. maí 1955, sam-
býliskona Sigríður Guðmunds-
dóttir, f. 21. nóvember 1955.
Fyrrum eiginkona Guðmundar
er Ragnheiður Karítas Péturs-
dóttir, f. 4. júní 1958, börn þeirra
eru Svanhildur, f. 1977, maki
Viðar Jónsson, f. 1975, börn
María, f. 2005 og Anna, f. 2008.
Anna Stella, f. 1984, sambýlis-
maður Noa Randin Stranne.
Fyrrum sambýliskona Guð-
mundar er Íris Kolbrún Braga-
dóttir, f. 23. september 1964, son-
ur þeirra er Hjalti, f. 1991. c) Íris
Ósk Hjaltadóttir, f. 13. apríl
1967, fyrrverandi sambýlis-
maður Júníus Guðni Erlendsson,
f. 25. apríl 1965, börn þeirra eru
Sonja Rut, f. 1990, sambýlis-
maður Guðmundur Ásgeirsson, f.
1989, og Sandra Ósk, f. 1993,
sambýlismaður Ragnar Vald
Ragnarsson, f. 1985.
Útför Guðbjargar fer fram í
dag.
Jóhanna Lyng-
heiður, f. 20. sept-
ember 1928, d. 3.
janúar 1992; Helga,
f. 22. maí 1934;
Baldur Egill, f. 3.
september 1938, d.
4. apríl 2013; Einar,
f. 3.9. 1942; Jólín, f.
22. maí 1945, d. 4.
maí 1999.
Hinn 29. nóv-
ember 1966 gekk
Guðbjörg í hjónaband með Hjalta
Guðmundssyni, f. 5. október
1924, d. 20. nóvember 1986. Börn
þeirra hjóna a) Svanberg Gunnar
Hólm, f. 19. apríl 1952, d. 1. jan-
úar 1970; b) Guðmundur Emil
Elsku mamma og amma.
Við kveðjum þig með söknuði
og þakklæti fyrir þann tíma sem
við áttum saman. Það eru svo
margar hlýjar minningar
geymdar í hjörtum okkar, þú
varst okkur svo kær og stór
partur af lífi okkar mæðgna.
Takk fyrir allt.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli á Uppsölum)
Sorgin léttist, sárið grær,
sólin gegnum skýin hlær,
hreinni útsýn hugur fær,
himinninn nær í dag en gær.
(Örn Arnarson)
Þínar
Íris Ósk, Sonja og Sandra.
Guðbjörg Sigríður
Jóelsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að
minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Anna Stella, Svanhildur,
María og Anna.