Morgunblaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2013
Þetta er nú ekki beint merkilegt afmæli í ár en ég reyni nú samtalltaf að halda upp á afmælið mitt,“ segir handboltakappinnlandskunni Aron Pálmarsson.
„Ég verð oftast að halda upp á daginn með vinum mínum heima á
Íslandi viku fyrr því sumarfríið klárast vanalega í kringum 13. júlí,“
segir Aron en hann hefur verið búsettur í Kiel í Þýskalandi síðustu 5
ár þar sem hann starfar sem atvinnumaður í handbolta.
Aron er nýkominn aftur út til Þýskalands eftir gott sumarfrí víðs
vegar um heim. „Ég tók eina viku í upphafi sumars í rigningunni á
Íslandi áður en ég fór í frí til Ameríku og Mexíkó í 30 stiga hita,“
segir Aron. Sama veðurfar var uppi á teningnum er hann sneri aftur
til Íslands og dvaldi hér í vikutíma eftir Ameríkuferðina.
Hann var því bara nokkuð ánægður með að vera kominn aftur til
Þýskalands en hann var á leiðinni á ströndina til að viðra hundinn
sinn í 27 stiga hita er Morgunblaðið náði tali af honum.
„Ég er með kærustuna mína í heimsókn ásamt móðursystur og
hennar fjölskyldu og við ætlum að grilla eitthvað gott í tilefni dags-
ins.“ Hann reiknar með að fá pakka frá gestum sínum og hann
reiknar einnig með að liðsfélagi sinn Guðjón Valur kíki í heimsókn
með pakka. „Hann Gaui er nefnilega alveg einstaklega gjafmildur,“
segir Aron og hlær. jonheidar@mbl.is
Aron Pálmarsson handboltakappi 23 ára
Sól og sumar Aron skellti sér í frí til Bandaríkjanna í sumar ásamt
kærustunni sinni. Hér er hann við Klettafjöllin í Denver, Colorado.
Á ströndinni með
hund í 27 gráðum
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Guðrún Margrét Sölvadóttir verður 90
ára sunnudaginn 21. júlí nk. Af því tilefni
býður hún fjölskyldu og vinum upp á kaffi
og veitingar í Safnaðarheimili Guðríð-
arkirkju í Grafarholti kl. 15-18 á afmæl-
isdaginn. Hún afþakkar afmælisgjafir en ef
einhverjir hafa áhuga þá óskar hún þess
að viðhaldssjóður kirkjunnar á Stað í Að-
alvík fái að njóta þess. Uppl. um reikn-
ingsnúmer má nálgast í veislunni og þar
verður einnig baukur.
Árnað heilla
90 ára
Mosfellsbær Hlöðver Gunnar
fæddist 7. júní kl. 12.40. Hann vó
3.645 g og var 52 cm á lengd. For-
eldrar hans eru Elín Guðný Hlöð-
versdóttir og Sæmundur Maríel
Gunnarsson.
Nýir borgarar
Seltjarnarnes Charlotta Christa
fæddist 8. nóvember kl. 20.50. Hún
vó 3.200 g og var 48,5 cm löng.
Foreldrar hennar eru Ragnheiður
Björg Árnadóttir og Jón Þorsteinn
Guðmundsson.
I
nga er fædd á Akureyri, 19.
júlí 1963, og er alin þar upp.
Hún tók stúdentspróf úr
máladeild Menntaskólans á
Akureyri 1983 og útskrif-
aðist með BSc-gráðu í hjúkrunar-
fræði frá Háskólanum á Akureyri
1996. Hún útskrifaðist svo með dip-
lómu í kennslu og menntunar-
fræðum frá sama skóla vorið 2013.
Forstöðumaður í heimahjúkrun
Inga starfaði hjá Samvinnuferð-
um Landsýn á árunum 1988-1992 en
hún hefur unnið við hjúkrun eftir út-
skrift, á Akureyri, í Reykjavík og
Hveragerði. Lengst af hefur hún
starfað við hjúkrun aldraðra. „Það
er mitt helsta áhugasvið innan fags-
ins. Ég starfaði við tilraunaverkefni
sem nefnist heilsueflandi heimsóknir
til aldraðra sem eru enn heima og
Inga Dagný Eydal, hjúkrunarfræðingur og söngkona – 50 ára
Ljósmyndir/Daníel Starrason
Í Hofi Á tónleikum sem haldnir voru í tilefni af því að 75 ár voru liðin frá fæðingu Ingimars Eydal. Þeir báru yfir-
skriftina „Fjölskylduferð á Skódanum“ og var farið yfir tónlistarferil og ævi Ingimars í tónum, tali og myndum.
Sinnir heilsuvernd
með hjúkrun og söng
Inga Dagný Hún ætlar að hitta nánustu vini og fjölskyldu í sal félagsstarfs
aldraðra á Akureyri á afmælisdaginn og njóta þess að vera með þeim.
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Trekking
(Petrol og Khaki)
Kuldaþol -20
Fyrir líkamsstærð 190 eða 175cm
Þyngd 190/1,70 kg og 175/1,65 kg
Verð kr. 13.995,-
Tjaldasalur - verið velkomin
Kúlutjöld - fjölskyldutjöld - göngu
tjöld
Savana Junior
(blár og rauður)
Kuldaþol -15°C
Fyrir líkamsstærð 150 cm
Þyngd 0,95 kg
VERÐ 11.995,-
Savana
(blár)
Kuldaþol -15°C
Fyrir líkamsstærð 195cm
Þyngd 1,45 kg
Verð kr. 13.995,-
Micra
(grænn og blár)
Kuldaþol -14°C
Fyrir líkamsstærð 195 eða 185cm
Þyngd 195/1,0 kg og 185/0,95 kg
Verð kr. 16.995,-
Stakir stólar
kr. 5.995.-
Stök borð
kr. 5.995.-
FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK • SÍMI 534 2727 • ALPARNIR@ALPARNIR.IS • WWW.ALPARNIR.IS
15.000 til 20.000 kr.
afsláttur af hústjöldum+ kaupauki borð og stólar í settiað verðmæti 19.995 fylgja með.
FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ