Morgunblaðið - 19.07.2013, Side 40
»Ég leyfi mér að full-yrða að enginn við-
staddra hafi farið ósáttur
í beddann það kvöldið.
AF TÓNLEIKUM
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Eftir að fréttist að hljómsveitinChic ásamt Nile Rodgersværi á leið til Íslands fór
fiðringur um alla helstu diskósnigla
landsins. Þetta var um miðjan maí.
Meðlimir stigu síðan á svið á mið-
vikudagskvöldið sl. fyrir fullum sal í
Silfurbergi í Hörpu. Upphaflega átti
hljómsveitin að spila í Laugardals-
höll en var flutt í minni sal þar sem
aðsókn var ekki fullnægjandi. Synd,
því tónleikarnir eru að mínu mati
með þeim bestu sem haldnir hafa
verið á Íslandi.
Gítarleikarinn Nile Rodgers og
bassaleikarinn Bernard Edwards
stofnuðu hljómsveitina Chic árið
1976. Hljómsveitin hefur meira eða
minna verið starfandi síðan þá en þó
tekið sér hlé inni á milli. Ótal margir
hafa fengið að taka þátt í þessari
hljómsveit og fyrrverandi meðlimir
sæta tugum. Rodgers og Edwards
höfðu marga fjöruna sopið áður en
Edwards kvaddi þennan heim árið
1996. Saman eiga þeir ófáar perlur
sem allir ættu að kannast við. Rod-
gers hélt þó áfram að færa heiminum
magnaða músík og er hann til að
mynda maðurinn á bak við hið vin-
sæla lag Get Lucky með Daft Punk og
Pharrell Williams sem hefur tröllriðið
öllu síðan í apríl þegar lagið kom út.
Moses Hightower og Sísí Eyhituðu upp fyrir diskógengið
og stóðu sig með stakri prýði.
Að loknu hléi byrjaði Nile Rodg-
ers og hans fríða föruneyti að spila
og skellti í hvern slagarann á fætur
öðrum. Fyrsta lagið var Everybody
dance og stemningin rauk strax upp
í hæstu hæðir. Í kjölfarið fylgdu allir
helstu slagarar sveitarinnar, þar á
meðal I want your love, We are fam-
ily, Le freak, He’s the greatest dan-
cer og svo mætti lengi telja.
Nile Rodgers er svo sannarlegadiskókóngurinn.
Hann á ómælt magn af frábær-
um lögum sem við þekkjum öll og
kemur það sífellt á óvart hvað hann
hefur komið víða við. Til að mynda
samdi hann lag Madonnu, Like a
virgin og Lets dance með David Bo-
wie en hljómsveitin flutti hvoru
tveggja á tónleikunum.
Einnig hafa mörg af lögum
hans verið sett í nýjan búning af öðr-
um tónlistarmönnum. Þar má nefna
lagið Soup for One sem hljómsveitin
Modjo gerði vinsælt um aldarmótin.
Þá hefur hið magnaða lag Good
Times verið öðrum tónlist-
armönnum innblástur og er und-
irstaða fjölmargra laga á borð við
Rapper’s Delight með Sugarhill
Gang, Another one bites the dust
með Queen og Around the world
með Daft Punk.
Tónleikalok voru handan viðhornið en diskógengið tafði það
eins og unnt var og hélt stemning-
unni gangandi. Lokalagið var að
sjálfsögðu fyrrnefnt Good Times og
var þá góður hluti af fremstu áhorf-
endum fenginn upp á svið. Þá var
Get Lucky sett á fóninn og allt ætlaði
um koll að keyra.
Þeir sem stóðu að og fluttu
þessa mögnuðu tónlistarmenn til
landsins eiga hrós skilið. Ég leyfi
mér að fullyrða að enginn við-
staddra hafi farið ósáttur í beddann
það kvöldið. Það verður svo sann-
arlega erfitt að toppa Chic og Nile
Rodgers teymið.
Dúndrandi diskóball í Hörpunni
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Eitursvalur Nile
Rodgers og bassa-
leikarinn Jerry Bar-
nes sem var án efa
töffari kvöldsins.
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2013
www.veislulist.is
Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar sem kaupand
i sér sjálfur um að raða þeim á föt eða tilbúnir á á b
orð á einnota
veislufötum. Sé veislan 150 manna eða meira eru a
llar veitingar afhentar á einnota veislufötum.
Verð frá 2.258
pr. mann
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
PINNAMATUR
FYRIR ÖLLTÆKIFÆRI
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
PINNAMATUR
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvaða tím
a
dags móttakan er og hversu lengi hún á að standa.
Í “standandi” veislum er vinsælt að bjóða upp á t.d
fimm til sjö rétta pinnaborð.
Tökur á fjórðu þáttaröð sjónvarps-
þáttanna Game of Thrones hefjast
hér á landi í næstu viku og munu
standa fram í ágúst, skv. frétta-
tilkynningu frá fyrirtækjunum
TVG-Zimsen og Pegasus. Tvær síð-
ustu þáttaraðir voru teknar að
hluta til hér á landi og þá að vetri
til. Game of Thrones er sannkallað
stórverkefni, þættirnir með þeim
vinsælustu í heimi hin síðustu miss-
eri og ekkert til sparað við fram-
leiðslu þeirra, en það er bandaríska
sjónvarpsstöðin HBO sem fram-
leiðir þættina. Pegasus aðstoðar
framleiðendur við tökur hér á landi
og TVG-Zimsen sér um flutninga.
,,Við erum að flytja til landsins
kvikmyndabúnað, hluta leik-
myndar, búninga og fleiri leikmuni
fyrir Game of Thrones. Það er allt
að verða klárt fyrir tökur,“ segir
Þórður Björn Pálsson, deildarstjóri
í sérverkefnum hjá TVG-Zimsen.
,,Þetta stóra verkefni hefur mjög
jákvæð áhrif fyrir Ísland. Þetta hef-
ur gengið mjög vel og framleið-
endur þáttanna hafa verið ánægðir
með Ísland bæði sem tökustað og þá
þjónustu sem þeir hafa fengið hér
við gerð þáttanna. Á um þriðja
hundrað manns unnu við síðustu
tvær þáttaraðir, þar á meðal fjöldi
Íslendinga og er ráðgert að svip-
aður fjöldi vinni að verkefninu nú,“
segir Þórður. Rúmlega tíu milljónir
manna samanlagt hafa fylgst með
hverjum þætti af Game of Thrones.
Valdatafl Úr þriðju þáttaröð Game of Thrones sem tekin var upp að hluta
hér á landi. John Snow, ein aðalpersóna þáttanna, í ófríðu föruneyti.
Tökur á Game of Thron-
es hefjast í næstu viku