Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Dala Feta fyrir þá
sem gera kröfur
ms.is HV
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Byrjað er að rífa Langholt, húsnæði Mennta-
skólans við Sund, sem einnig hýsti Vogaskóla
hér á árum áður. „Í staðinn kemur 2.700 fer-
metra bygging auk tengibyggingar sem hefur að
geyma matsal sem nemendur hafa ekki í dag. Þá
verður aðgengi fatlaðra einnig bætt,“ segir Már
Vilhjálmsson, rektor Menntaskólans við Sund, en
til stendur að afhenda nýja byggingu árið 2015.
„Eflaust munu einhverjir sem eiga góðar minn-
ingar sjá eftir byggingunni en hún var óheilsu-
samleg og gerðar voru undanþágur í mörg ár út
frá heilbrigðissjónarmiðum.“
Gamli Vogaskólinn víkur fyrir nýju húsnæði
Morgunblaðið/Ómar
Húsnæði Menntaskólans við Sund við Gnoðarvog rifið
Baldur Arnarson
Jón Pétur Jónsson
„Við fórum yfir lögfræðiálitið sem
var útskýrt af sérfræðingum fyrir
nefndinni. Það hefur enginn hrakið
það,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson
utanríkisráðherra um meginefni
fundar utanríkismálanefndar í gær.
Vísar ráðherrann þar til lögfræði-
legrar álitsgerðar vegna ákvörðunar
ríkisstjórnarinnar um að gera hlé á
viðræðum við ESB og að stöðva
vinnu samninganefndar og -hópa.
Varðaði álitsgerðin bindandi áhrif
þingsályktana, í þessu tilviki þings-
ályktunar síðustu ríkisstjórnar 16.
júlí 2009 um að sækja um aðild að
ESB. Telur Gunnar Bragi aðspurður
því að öllum spurningum stjórnar-
andstöðunnar um Evrópumálin sé
svarað í bili, en sl. föstudag svaraði
hann sjö spurningum Árna Páls
Árnasonar, formanns Samfylkingar,
um stöðu ESB-umsóknarinnar.
Kvaðst Gunnar Bragi vonast til að
skýrsla um gang viðræðna við ESB
til þessa, um þróun mála innan ESB
og hvert sambandið stefni, verði
tilbúin í nóvember. Allar líkur séu á
að óháð stofnun vinni skýrsluna.
Birgir Ármannsson, formaður
utanríkismálanefndar, telur að „lög-
fræðilega verði erfitt fyrir stjórnar-
andstöðuna að hrekja það sem fram
kemur í þessari álitsgerð. Menn geta
hins vegar haft mismunandi pólitísk-
ar skoðanir á því hversu sterklega
ríkisstjórn og einstakir ráðherrar
séu bundnir af einstökum þings-
ályktunartillögum af þessu tagi. Það
er í mínum huga frekar pólitísk
spurning en lögfræðileg.“
Árni Þór Sigurðsson, formaður
nefndarinnar í síðustu ríkisstjórn,
segir fulltrúa stjórnarandstöðunnar
vilja fara betur yfir álitsgerðina.
„Í megindráttum teljum við að
þingsályktun af þessum toga og með
þetta efnisinnihald bindi hendur
stjórnvalda. Við teljum að ef það á að
breyta um stefnu frá fyrri samþykkt
þurfi aðkomu Alþingis til þess.“
Ekkert sem réttlætir hernað
Átökin í Sýrlandi voru einnig
rædd á fundinum og sagði Gunnar
Bragi að hann teldi ekkert hafa kom-
ið fram í tengslum við átökin sem
réttlætti hernaðaraðgerðir.
Ráðherra rakti viðræðuslit við ESB
Utanríkisráðherra telur öllum spurningum stjórnarandstöðunnar um ESB-málið hafa verið svarað
Fyrrverandi formaður utanríkismálanefndar Alþingis telur þingsályktun um umsókn vera bindandi
Morgunblaðið/Kristinn
Utanríkismálanefnd Frá fundi nefndarinnar síðdegis í gær, þar sem rætt
var um ESB-mál og átökin í Sýrlandi. Álitsgerð um ESB var útskýrð.
Heildartekjur Árvakurs, útgáfu-
félags Morgunblaðsins, námu 3.155
milljónum króna í fyrra, sem er
aukning um 5% frá árinu 2011.
Rekstrarhagnaður (EBITDA) nam
101 milljón króna og jókst um rúmar
60 milljónir króna frá fyrra ári. Þetta
var umtalsvert meiri rekstrar-
hagnaður en áætlaður hafði verið.
Eiginfjárhlutfall 44%
Tap eftir skatta dróst verulega
saman á milli ára og nam 47 millj-
ónum króna í fyrra. Árið 2011 var
tapið 205 milljónir króna.
Eigið fé í árslok 2012 var 975 millj-
ónir króna og eiginfjárhlutfallið var
44%. Hlutafé var aukið um 540 millj-
ónir króna árið 2012 og var það hluti
af fjárhagslegri endurskipulagningu
sem fram fór árið 2011.
Heildareignir Árvakurs námu
rúmum 2,2 milljörðum króna í lok
síðasta árs.
Óskar Magnússon útgefandi segir
að rekstrarhagnaðurinn í fyrra hafi
verið um 30 milljónir króna umfram
áætlanir.
Reksturinn í ár á áætlun
„Afkoman, mæld á þennan mæli-
kvarða, var neikvæð árið 2008 um
575 milljónir og hefur því batnað um
676 milljónir frá því að nýir eigendur
tóku við félaginu. Rekstur ársins
2013 er fram til þessa samkvæmt
áætlun.
Áskrifendum hefur fjölgað um
hátt á fjórða þúsund, ekki síst í kjöl-
far þess að félagið hóf að bjóða
áskrift á iPad og Android spjaldtölv-
ur, í fyrstu fyrir námsmenn með sér-
stöku tilboði en í kjölfarið fyrir alla
áskrifendur. Þrátt fyrir batnandi af-
komu er enn þörf á ströngu aðhaldi
og hagræðingu til að takast á við al-
mennar launa- og verðlagshækkan-
ir,“ segir Óskar Magnússon.
Aukinn rekstrarhagnaður
Morgunblaðið/Golli
Árvakur Höfuðstöðvar Morgun-
blaðsins og Landsprents.
Eigið fé Árvak-
urs tæpur einn
milljarður króna
Friðrik Brynjar
Friðriksson lýsti
yfir sakleysi sínu
við upphaf aðal-
meðferðar í morð-
máli fyrir Héraðs-
dómi Austurlands
í gær. Kvaðst
hinn ákærði hafa
löðrungað Karl
Jónsson aðfara-
nótt 7. maí sl., eftir að sá síðarnefndi
hafi sagt að hann vildi taka bleiuna af
dóttur Friðriks og „leika við hana“.
Sagði Friðrik að við það hefði Karl
fallið niður í sófa í íbúðinni.
Sagðist Friðrik svo hafa farið út og
viðrað hundinn sinn en þegar hann
sneri aftur hafi hann komið að opinni
útidyrahurð. Þegar hann kom í íbúð-
ina hafi hann séð Karl liggjandi í blóði
sínu á svölunum. Hann hafi þá lyft
Karli, þar sem hann lá á grúfu án lífs-
marks. Fulltrúar lögreglu báru vitni
og sögðu að Karli hefði verið veitt
banasár í stofunni og svo dreginn út á
svalir þar sem hann var stunginn
ítrekað. Báru fulltrúar lögreglu
brigður á lýsingu Friðriks.
Aðalmeðferð lauk ekki í gær og var
frestað fram í september.
Sagðist
saklaus af
morði
Friðrik Brynjar
Friðriksson
Friðrik Brynjar
bar við minnisleysi