Morgunblaðið - 30.08.2013, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Frumkvöðlasjóður
Íslandsbanka auglýsir
eftir umsóknumum styrki
Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka styrkir
verkefni á sviði umhverfismála með
sérstakri áherslu á endurnýjanlega orku,
sjálfbæran sjávarútveg og verndun
hafsvæða. Markmið sjóðsins er að hvetja til
nýsköpunar og þróunar á þessum sviðum.
Heildarupphæð úthlutunar er allt að fimm
milljónum króna. Nánari upplýsingar um
sjóðinn og úthlutunarreglur hans má finna
á vef Íslandsbanka.
Úthlutunardagur er 8. október 2013
Sækja skal um á vef bankans
til og með 25. september 2013:
www.islandsbanki.is/frumkvodlasjodur
Umsóknum skal fylgja, eftir því sem við á:
· Greinargóð lýsing á verkefninu
· Verk- og tímaáætlun
· Ítarleg fjárhagsáætlun
· Upplýsingar um aðra fjármögnun verkefnis
· Ársreikningur
· Upplýsingar um eignarhald og rekstrarform
Styrkþegar Frumkvöðlasjóðs Íslandsbanka vorið 2013:
Pólar og togbúnaður, Veðurstofa Íslands,
Norðursigling, GeoSilica og IceWind
VIÐTAL
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Margrét Jóna Ísleifsdóttir var einn
frumbyggja á Hvolsvelli. Hún ætl-
aði rétt að staldra við í þrjá mánuði
en hefur nú búið þar við sömu götu í
71 ár og unir hag sínum vel.
Við fyrstu sýn leist henni þó
hreint ekki á sig. „Mér fannst þetta
algjörlega óbyggilegt þegar við sett-
umst hér að. Ég man að fyrsta sum-
arið fannst mér ég ekkert sjá nema
hrafninn. Hér var ekkert nema grá-
gulur mói, fyrir nú utan það að
hérna voru engin þægindi. Það var
ekki einu sinni nóg vatn. En svo
þegar við vorum búin að fá raf-
magnið, hitaveitu og ágætar götur,
nú og fuglalífið var orðið lífleg, þá
fannst mér ég bara geta unað vel
við mitt.“
Eins og ein stór fjölskylda
Margrét flutti á Hvolsvöll til að
vinna í Kaupfélagi Hallgeirseyjar
(forvera Kaupfélags Rangæinga),
sem var hryggjarstykkið í samfélag-
inu að hennar sögn. Þéttbýli byggð-
ist upp með flutningi kaupfélagsins
þangað og að sögn Margrétar var
mikill hugur í frumbyggjunum þar.
„Þetta var eins og stór fjölskylda
og það tóku allir þátt í kjörum
hverjir annarra, glöddust yfir því
sem var gott og grétu með þeim
sem áttu bágt. Það hjálpuðust allir
við að byggja og þegar farið var að
steypa var hér mikið fjör og líf.“
Margrét hefur upplifað bæði eld-
gos og jarðskjálfta í sinni búskap-
artíð en náttúran á Hvolsvelli er
henni engu að síður afar kær, ekki
síst hinn ægifagri fjallafaðmur.
„Það er svo undarlegt að ég hef
aldrei hræðst þetta. Ég upplifði
náttúrlega öskufallið hér þegar
Hekla gaus 1947, það var mikið, en
líka undursamlega fljótt að jafna
sig. En ég skildi það ekki þegar
Eyjafjallajökull fór að gjósa. Þessi
jökull sem ég var búin að elska alla
tíð frá því ég var bara barn. Ég
trúði aldrei að hann myndi gera
manni þetta.“
Hún segist fyrst og fremst eiga
hlýjar minningar af því að fylgjast
með byggðinni á Hvolsvelli vaxa og
blómstra. „Þegar ég horfi yfir þenn-
an liðna tíma hugsa ég fyrst og
fremst til þess að það hefur alltaf
verið eitthvað að gleðjast við.“
Ítarlegra viðtal við Margréti birt-
ist á mbl.is í dag.
Hefur búið við sömu götuna í 71 ár
Einn af frumbyggjum Hvolsvallar býr þar enn við sömu götu Heklugos á fyrsta búskaparárinu
dugði ekki til að hrekja ung hjón burt Allir hjálpuðust að og voru eins og ein stór fjölskylda
Lífsreynd Margrét Ísleifsdóttir verður 89 ára í október. Sem ung kona sá
hún ekki fyrir sér bjarta framtíð á Hvolsvelli en annað kom á daginn.
Haldið verður upp á 80 ára
afmæli Hvolsvallar sunnu-
daginn 1. september næst-
komandi með hátíðlegri dag-
skrá. Haldið hefur verið upp á
afmælið með ýmsum við-
burðum allt árið. Svokölluð
Kjötsúpuhátíð hefst í dag og
lýkur á morgun. Þar verður
boðið m.a. upp á kjötsúpu,
harmonikkuball, fótbolta-
sprell og verðlaun veitt fyrir
bestu ljósaskreytinguna en
íbúar eru hvattir til að
skreyta hús sín og garða.
Hátíðardagskráin á sunnudaginn hefst með samverustund þar sem
séra Önundur Björnsson blessar mannskapinn á gamla róló. Eftir það
leiða Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri og Aðalbjörn Kjartansson
göngu um fyrstu götur þorpsins. Þá verður ný álma í íþróttahúsinu vígð.
Klukkan þrjú hefst hátíðardagskrá í félagsheimilinu Hvoli þar sem boðið
verður upp á afmælisköku og kaffi. Í anddyrinu verður kynning á tillögu
um nýtt aðalskipulag og saga Hvolsvallar rakin í stuttu máli.
Fyrsta íbúðarhúsið á Hvolsvelli var reist 2. september 1913 og um
svipað leyti hafði útibú frá kaupfélagi Hallgeirseyjar verið flutt á Hvols-
völl. Samfélagið mótaðist í kringum þessa starfsemi sem seinna varð
Kaupfélag Rangæinga. Fyrstu íbúar voru með búpening, kindur, kýr og
hænsni og er einstaka búmaður enn með hænsni í bakgarðinum.
Í sveitarfélaginu eru úrvinnsla á landbúnaðarvörum og ferðaþjónusta
stærstu atvinnugreinarnar en Sláturfélag Suðurlands er stærsta fyr-
irtækið í sveitarfélaginu.
Kjötsúpuhátíð og ganga um
fyrstu götur þorpsins
HÁTÍÐARHÖLD Í TILEFNI 80 ÁRA AFMÆLIS HVOLSVALLAR
Hvolsvöllur Mikið fjör verður um
helgina enda dagskráin fjölbreytt.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Í dag mun sérfræðihópur barna hjá
UNICEF hitta fjármálaráðherra,
innanríkisráðherra, velferðarráð-
herra og menntamálaráðherra til
þess að ræða hvað gera megi til þess
að koma í veg fyrir ofbeldi gegn
börnum. Sérfræðihópinn skipa börn
sem beitt hafa verið kynferðislegu
ofbeldi og vilja þau hvetja ráð-
herrana til þess að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til þess að berj-
ast gegn hvers kyns ofbeldi á börn-
um hér á landi. „Við hjá UNICEF á
Íslandi erum afar þakklát fyrir fram-
lag krakkanna. Þau hafa opnað augu
fólks og sett hlutina í það samhengi
sem það verður að vera í,“ segir
Stefán Ingi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
Málefni Barnahúss í ólestri
Til grundvallar fundinum liggur
viðamikil skýrsla UNICEF um of-
beldi gegn börnum á Íslandi og börn-
in sem unnu að skýrslunni sóttu öll
meðferð í Barnahúsi. Í tilkynningu
frá UNICEF er bent á að Barnahús
anni ekki lengur fjöldanum sem
þangað leitar en yfir 60 börn bíða nú
könnunarviðtals, skýrslutöku og
meðferðar. Þessi bið er sögð skaðleg
börnunum. „Þótt málefni Barnahúss
séu enn í ólestri hafa mikilvæg skref
verið tekin innan viðeigandi ráðu-
neyta síðastliðna mánuði eins og að
festa fjármagn til ýmissa aðgerða til
áramóta. UNICEF á Íslandi fagnar
þessum aðgerðum en ítrekar um leið
mikilvægi þess að forvarnir gegn of-
beldi séu hugsaðar til lengri tíma og
teknar inn í framtíðarstefnumótun
stjórnvalda. Ekki er ljóst hvað gerist
á nýju ári og sú óvissa er ólíðandi,“
segir í tilkynningu frá UNICEF.
Slæm áhrif ofbeldis á börn
Í áðurnefndri skýrslu UNICEF,
sem ráðherrum verður kynnt í dag,
birtist ógnvekjandi mynd af
tengslum ofbeldis við andlega vanlíð-
an barna og áhættuhegðun. Börn
sem orðið hafa fyrir ofbeldi sýna
frekar áhættuhegðun, líður verr í
skólanum og finnst framtíðin dekkri.
UNICEF á Íslandi kallar eftir skjót-
um viðbrögðum samfélagsins enda
sé um grafalvarlegt mál að ræða.
Fundað með
ráðherrum
um ofbeldi
Hvetja ráðherra til þess að berjast
gegn hvers kyns ofbeldi á börnum
Morgunblaðið/Eggert
Börn Yfir 60 börn bíða eftir að kom-
ast að í Barnahúsi.