Morgunblaðið - 30.08.2013, Page 22
VESTURLANDDAGA
HRINGFERÐ
STYKKISHÓLMUR
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Atvinnulífið hér í Stykkishólmi gjör-
breyttist þegar tekið var fyrir skel-
fiskveiðar rétt eftir aldamót. Fólk hér
hafði yfirleitt haft fasta og örugga
vinnu, en varð skyndilega að fram-
fleyta sér og sínum með eigin fram-
taki og útsjónarsemi. Og það reyndist
alveg ótrúlegur kraftur meðal fólks
hér,“ segir Agnar Jónasson í Stykk-
ishólmi.
Standa allar dyr opnar
Lyklakippan sem Agnar Jón-
asson er með í buxnavasanum er
táknræn á marga vísu. Hún segir ein-
faldlega að bæjarbúar treysta Agnari
öðrum betur, en hann er næt-
urvörður bæjarins. Rekur fyrirtækið
Vaktþjónustuna Vökustaurinn og
byrjar vaktina á miðnætti. Er á ferð-
inni um bæinn alla nóttina, fylgist
með mannaferðum og kemur við í
fyrirtækjum og húsum sé þess óskað.
Á kippu hans eru lyklar sem ganga að
alls fjörutíu húsum í bænum og því
má segja – í orðsins fyllstu merkingu
– að Agnari standa allar dyr opnar.
Mogginn um miðja nóttina
Um miðja nóttina, fjögur, byrjar
svo dreifing á Mogganum, þegar
Reykjavíkurbíllinn er kominn vestur
á Nes. Agnar fer með Moggaskammt
dagsins til blaðbera. Þá hefur hann
áður rennt við í Stykkishólmsbakaríi
og tekið úr frystinum, þannig að þeg-
ar Arnar Heiðarsson bakari mætir
með sínu fólki á vaktina laust fyrir
klukkan fimm má setja deigið í ofn.
„Nei, yfirleitt er mjög rólegt hér
í Hólminum yfir nóttina. Síðan ég
byrjaði í þessu árið 2006 hefur aðeins
einu sinni verið brotist inn, það er
þegar einhverjir bévítans pjakkar að
sunnan fundu út hvar ég var á ferli.
Þeir sættu lagi, fóru inn í verslun og
tæmdu lagerinn á örfáum mínútum.
Sem betur fer hefur ekkert slíkt
gerst aftur,“ segir Agnar. „Svona upp
úr klukkan sex lifnar yfir bænum;
ljóstýra fer að sjást í einstaka húsum,
karlarnir að sækja á sjó og nokkrir að
fara í ræktina. Um líkt leyti er Högni
Bæringsson, gamli bæjarverkstjór-
inn, kominn á rúntinn. Á þeim tíma-
punti er næturvaktinni hjá mér að
ljúka og ég skýst heim og fæ mér
kríu.“
Pottar tá og hæl
Athyglisvert er í byggðum úti á
landi hve mörgum hlutverkum ein-
staka menn á stundum gegna. Grípa í
hitt og þetta og hafa mörg járn í eld-
inum, svo þekkt myndlíking sé notuð.
Og hún á einstaklega vel við um Agn-
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skeifur Úti á landi sinnir fólk gjarnan mörgum störfum til að sjá sér og sínum farborða. Agnar er hér í smiðju sinni
þangað sem hann mætir um miðjan morgun, þá að afloknum kríublundi eftir næturvakt í fyrirtækjum bæjarins.
Á góðum járnum og
allar dyrnar opnar
Agnar umboðsmaður smíðar skeifur og vaktar bæinn
„Baldurslokan er vinsælust hjá Íslendingum, en útlendingarnir vilja frekar
steikta fiskinn,“ segir Kristrún Ester Kristjánsdóttir sem starfar í veitingasölu
ferjunnar Baldurs.
Ferjan siglir allt árið yfir Breiðafjörð, frá Stykkishólmi til Brjánslækjar og
aftur til baka með viðkomu í Flatey. Kristrún segir mikið að gera í veitingasöl-
unni, enda kjósi sífellt fleiri að ferðast með Baldri.
Eins og nafnið gefur til kynna er Baldurslokan samloka. Brauðið er ristað og
ofan á því trónir spælt egg. Steiktar kartöflur eru bornar fram sem meðlæti.
Spurð hvort innihald Baldurslokunnar sé leyndarmál segir Kristrún svo ekki
vera. „Nei, alls ekki,“ segir hún og gefur fúslega upp innihaldið. „Á samlokunni
er sósa, kál, rauðlaukur, tómatar, skinka, ostur og beikon.“ annalilja@mbl.is
Baldurslokan nýtur hylli á sjó
Morgunblaðið/Kristinn
Um borð í ferjunni Baldri Kristrún Ester selur þar margar Baldurslokur.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í litlum bæ hefur þetta um-
svifamikla fyrirtæki sem á langa
sögu miklar skyldur gagnvart sam-
félaginu. Síðustu árin hefur áhersl-
an í okkar starfi hér heima verið á
verkun á saltfiski yfir sumartímann
og fram á haust á makríl og síld og á
vorin er það grásleppan. Stærstur
hluti starfsemi okkar er þó í Dan-
mörku en þegar hörpudisksveiðar
hér í Breiðafirði hrundu árið 2002
urðum við að róa á ný mið,“ segir
Sigurður Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Agustson hf. í Stykk-
ishólmi.
Í haust verður haldið upp á 90
ára afmæli Agustson í Stykkishólmi,
en það var í febrúar árið 1933 sem
Sigurður Ágústsson keypti eignir
dönsku kaupmannanna í Tang og
Riis og hóf atvinnurekstur í Hólm-
inum undir eigin nafni. Sjávar-
útvegur og fiskvinnsla voru hryggj-
arstykkið í rekstrinum lengi, auk
verslunarstarfsemi.
„Þá rak afi hér sláturhús, refa-
bú og árið 1939 kom hann að gullleit
í Drápuhlíðarfjalli. Starfsemin hefur
verið fjölbreytt,“ segir Sigurður sem
hefur stýrt fyrirtækinu síðasta árið.
Móðir hans, Rakel Olsen, sem var
framkvæmdastjóri, er nú formaður
stjórnar.
Verksmiðjur í Danmörku
Þegar aðstæður breyttust með
hruni hörpudisksveiða segir Sig-
urður að fyrirtækinu hafi verið
nauðsynlegt að horfa í aðrar áttir.
„Við höfðum beint sjónum okkar til
Danmerkur um nokkurn tíma. Það
er fínt að reka fyrirtæki þar, efna-
hagslífið er stöðugt og umgjörðin
sem sjávarútvegurinn hefur, m.a.
með regluverki, er sanngjörn,“ segir
Sigurður.
Rekstur Agustson veltir í það
heila um 6 milljörðum á ári. Þar af
er velta ytra um 4,5 milljarðar kr.
Verksmiðjurnar í Danmörku
eru þrjár og allar á Jótlandi; ein í
Hirtshals en hinar í Vejle. Er í þeim
meðal annars unninn kavíar og
rækja en mest eru umsvifin í verkun
á silungi sem fenginn er frá jóskum
Við urðum að
róa á ný mið
Agustson er kjölfesta Hólmurinn
og Danmörk Makríll og silungur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Framkvæmdastjóri Sigurður Ágústsson á skrifstofu sinni. Þarna sat afi
hans og alnafni áður, en hann hóf rekstur sinn árið 1933.
Stykkishólmur er staður í þjóð-
braut. Fyrir það fyrsta er staðurinn
vinsæll viðkomustaður ferðafólks.
Siglingar úti á sjó í kringum eyjar og
sker þykja skemmtilegar og þá er
gamli bærinn með sínum sérstöku
húsum mikið aðdráttarafl, sem og
fallegt umhverfi staðarins og sú
margvíslega afþreying sem þar
býðst.
Margir eiga svo leið í gegnum
Hólminn, þaðan sem Breiðafjarð-
arferjan Baldur er gerð út. Yfir sum-
artímann siglir ferjan tvisvar á dag
yfir fjörðinn úr Hólminum á Brjáns-
læk á Barðaströnd með viðkomu í
Flatey. Nú er hins vegar kominn tími
vetraráætlunar. Hún gekk í gildi sl.
mánudag, 26. ágúst, og verður fram í
júní. Samkvæmt henni er lagt af stað
kl. 15 úr Stykkishólmi og er ferjan
rúma þrjá tíma yfir á Brjánslæk það-
an sem er siglt er kl. 18:00. Ekki er
siglt á laugardögum nema í und-
antekningartilvikum.
Yfir sumartímann eru ferðamenn
áberandi í farþegahópi Baldurs. Yfir
veturinn má hins vegar segja að skip-
ið sé vegurinn úr byggðum á sunn-
anverðum Vestfjörðum til annarra
svæða. Leiðin norður á bóginn til Ísa-
fjarðar er aðeins sumarfær. Þá eru
vegir fyrir firði og yfir hálsa á sunn-
anverðum fjörðunum í Barðastrand-
arsýslu fljótir að teppast og verða
ófærir þegar veður versnar. bs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skip Baldur við bryggjuna á Brjánslæk á Barðaströnd í júlí í sumar.
Ferjan Baldur er alltaf í ferðum
þvert yfir fagran Breiðafjörðinn