Morgunblaðið - 30.08.2013, Page 30

Morgunblaðið - 30.08.2013, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Hin nýaf-stöðnuréttarhöld yfir Bo Xilai, fyrr- verandi von- arstjörnu kín- verska kommúnistaflokksins, vöktu mikla athygli hjá vestræn- um fjölmiðlum, kannski ekki síst fyrir það hversu „opin“ þau voru, í það minnsta á mæli- kvarða stjórnvalda í Beijing. Vestrænir fjölmiðlar fengu sem sagt að vera í hóteli hinum meg- in við götuna frá réttarsalnum þar sem réttarhöldin fóru fram og fá þar örstutt skilaboð í gegn- um netið um það hvað hefði verið sagt hverju sinni. Þessi skilaboð voru ritskoðuð mjög, ekki síst þegar sakborningurinn sjálfur átti orðið. Að öðru leyti eru hin óvenjulega „opnu“ réttarhöld frekar hefðbundin fyrir Kín- verja. Dómarinn mun ekki úr- skurða um sekt eða sýknu, held- ur einungis ákvarða þyngd refsingarinnar. Líklegt er því að Bo muni eyða drjúgum hluta af ævi sinni á bak við lás og slá. Á tímum Ráðstjórnarríkjanna þótti erfitt að rýna í spilin hjá æðstu valdamönnum landsins hverju sinni. Varð því til nánast sérstök grein á mörkum stjórn- málafræði og stjörnuspeki um það hvað væri að gerast handan Kremlarmúra. Þrátt fyrir góðan vilja og mikla rýni varð Kreml- arlógían fyrir miklu áfalli haust- ið 1989 þegar járntjaldið féll með miklum látum. Svipuð fræði hafa mótast um stjórnvöld í Beijing, sem þykja ef eitthvað er, enn ógagnsærri en þau í Moskvu voru. Rétt- arhöldin nú hafa veitt þessum Kínafræðingum ýmis tækifæri til þess að tjá sig, og spá í spilin um það hvers sé að vænta af kín- verskum stjórnvöldum. Fræð- ingarnir hafa því komist í feitt nú, enda stórmál að spekúlera um það hvaða áhrif framhjáhald eig- inkonunnar við lögreglustjór- ann hafi á æðstu stjórn Kín- verja, hvort sonurinn hafi eytt um efni fram í menntun sína á Vesturlöndum eða hvort Bo hafi borið sig rangt að við að borða hrátt kjöt frá Suður-Afríku. En þegar þessum fræðum sleppir blasir alvaran við. Þó að réttarhöldin nú virðist vera opnari en önnur sambærileg í alþýðulýðveldinu eru þau samt sem áður sýndarréttarhöld. Þó að líklega verði Bo ekki dæmdur til dauða er ekki þar með sagt að réttarfarið í Kína þokist í rétta átt. Réttarhöldin yfir hon- um eru enda bara einn þáttur af dýpri þróun. Í kjölfar valdaskiptanna í nóvember síðastliðnum, þar sem Xi Jinping tók við, hefur hann hert tökin á ýmsum and- ófshópum og ekki tekið and- stæðinga sína eða kerfisins neinum vettlingatökum. Bo Xilai var, áður en kona hans veitti höggstað á honum, talinn einna líklegastur til þess að verma það sæti sem Xi situr nú í. Að hluta til eru rétt- arhöldin því uppgjör við Bo og þær lýðskrumsaðferðir sem hann beitti til þess að koma sér áfram. Tilgangurinn með því að hafa réttarhöldin opnari verður því ljós: Að jafnvel þó að svo ótrú- lega færi að Bo myndi losna úr fangelsi fyrr en áætlað væri yrði hann svo rúinn trausti að hann ætti sér ekki viðreisnar von. Sú verður enda niðurstaðan, hvað svo sem vangaveltum um bætt réttarfar í Kína líður. Kremlarlógían lifir enn góðu lífi þegar kemur að Kína} Bak við tjöldin hjá Bo Örar breytingarhafa orðið á getu til að stunda sjónvarpsútsend- ingar. Lengi var talið að aðeins fjár- sterkir aðilar gætu staðið að slíku. Þar hefur margt breyst. Það hefur sést á sjón- varpsútsendingum á vegum ÍNN, sem þekkt „fjölmiðla- tröll“, Ingvi Hrafn Jónsson, ýtti úr vör fyrir fáeinum árum. Þótt í fyrstu hafi margt virst vera gert af nokkrum vanefnum hefur framtakið lifað af allar hrakspár og styrkst ár frá ári. Ingvi Hrafn er engum líkur og gefur stöð sinni sérstæðan og persónulegan stíl. Margir öflugir menn hafa lagt sitt af mörkum í ÍNN og efnistök eru fjölbreytt og fær stöðin eftirtekt- arvert uppsafnað áhorf. Sjónvarpsstöðin N4 er einkum bundin við Norður- og Austurland og flest efnið er þangað sótt. Það er prýðilega gert og áhugavert og lítill vafi er á því, að útsend- ingar N4 fá fjölda áhorfenda alls staðar að af landinu. Fagmannlega er staðið að verki, myndataka er prýðileg og vekur áhuga á stórbrotinni fegurð þess landshluta sem þarna er í öndvegi. Umsjón- armenn dagskrár eru útsjón- arsamir og draga fram fjöl- breytt og áhugavert efni sem ekki aðeins höfðar til heima- fólks heldur einnig til annarra landsmanna. Eftirtektarverðir möguleikar hafa opnast til sjónvarps- útsendinga} Góð viðbót T alsverð umræða upphófst nýverið um stefnu ríkisstjórnarinnar, sem og stefnu Sjálfstæðisflokksins, í Evrópumálum í kjölfar æði lang- sóttrar túlkunar ákveðinna ein- staklinga í þeim efnum í samræmi við þeirra eigin pólitísku skoðanir. Stefnuyfirlýsing rík- isstjórnarinnar er hins vegar mjög skýr nema vilji standi til annars, þó að eðlilega séu ekki allir sáttir við hana, en þar segir: „Gert verður hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og úttekt gerð á stöðu viðræðnanna og þróun mála innan sambands- ins. Úttektin verður lögð fyrir Alþingi til um- fjöllunar og kynnt fyrir þjóðinni. Ekki verður haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópu- sambandið nema að undangenginni þjóð- aratkvæðagreiðslu.“ Stefna beggja stjórn- arflokkanna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, er í öllum meginatriðum samhljóða stefnu ríkisstjórnarinnar. Mögulegt þjóðaratkvæði um framhald umsóknarferl- isins er þannig háð því að fyrst verði tekin pólitísk ákvörð- un um að áfram verði stefnt að inngöngu í Evrópusam- bandið líkt og tíð í fyrri ríkisstjórnar. Þannig stendur ekki í stefnuyfirlýsingunni að úttekt verði gerð og SÍÐAN haldið þjóðaratkvæði um framhaldið eða eitthvað í þá veruna heldur er þjóðaratkvæði einungis sett sem skilyrði fyrir því EF tekin yrði ákvörðun um að halda málinu áfram. Slík ákvörðun yrði með öðrum orðum ekki tekin að þjóðinni forspurðri ólíkt því sem gert var af fyrri ríkisstjórn sumarið 2009. Þjóðaratkvæði er hins vegar ekki sett sem skilyrði fyrir ákvörðun um að hætta umsóknarferlinu. Þessi stefna er ennfremur í fullu samræmi við ályktanir landsfunda Sjálfstæðisflokksins 2009 og 2011 þar sem gert var ráð fyrir þjóð- aratkvæði um framhald málsins að því gefnu að fyrst lægi fyrir pólitísk ákvörðun um að sækjast eftir inngöngu í Evrópusambandið. Þannig sagði í ályktuninni 2009: „Komist Al- þingi eða ríkisstjórn að þeirri niðurstöðu að sækja beri um aðild að Evrópusambandinu er það skoðun Sjálfstæðisflokksins að fara skuli fram þjóðaratkvæðagreiðsla um þá ákvörðun á grundvelli skilgreindra markmiða og samn- ingskrafna.“ Forsenda þess að hreyft væri við málinu hefur þannig ávallt verið sú að áliti Sjálfstæðisflokksins að fyrst yrði tekin pólitísk ákvörðun um að sækjast eftir inngöngu í Evrópusambandið. Það átti líka við þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn kölluðu eftir þjóðaratkvæði um umsóknina um inngöngu í Evr- ópusambandið á síðasta kjörtímabili. Þá lá fyrir ákvörðun vinstriflokkanna um að sótt yrði um inngöngu og um þá ákvörðun var krafizt þjóðaratkvæðis. Það breyttist hins vegar í grundvallaratriðum eftir þingkosningarnar í vor þegar til valda komust flokkar sem eru andvígir inngöngu í Evrópusambandið og ákváðu í kjölfarið eðli málsins samkvæmt að taka málið af dagskrá. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Stefnan fer ekki á milli mála STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Áramótin í fiskveiðunumskapa aukna vinnu hjástarfsmönnum Fiski-stofu, en á sunnudag., 1. september, gengur nýtt fiskveiðiár í garð. Áramótin eru þó teygjanleg því útgerðir mega fara 5% fram yf- ir í afla eða geyma 15% til næsta árs, auk þess sem þær hafa 15 daga til að gera ráðstafanir hvað ákveðna þætti varðar. Veiðar á flestum tegundum hafa gengið vel í ár. Auknar aflaheimildir fylgja nýju fiskveiðiári og leyfilegur heildarafli eykst í þorski, ýsu, ufsa, gullkarfa, þykkvalúru, sólkola, síld og löngu. Heildaraflinn stendur í stað eða lækkar lítillega í öðrum tegundum. Þegar Sigurður Ingi Jóhanns- son sjávarútvegsráðherra kynnti ákvörðun um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári kom fram að áætluð áhrif yrðu um 15 milljarða aukning á útflutningsverðmætum sjávarafurða eða sem svaraði til um 2,4% aukningar í útflutnings- verðmætum vöru frá landinu að öðru óbreyttu. Heildaraflamark í þorski á fiskveiðiárinu sem er að ljúka var 195,5 þúsund tonn, en verður 214,4 þúsund tonn. Í ýsu eykst kvótinn úr 36 þúsund tonnum í 38 þúsund, í ufsa úr 50 þúsund tonnum í 57 þús- und tonn og í gullkarfa og djúp- karfa úr 55 þúsund tonnum í 62 þúsund tonn, svo dæmi séu tekin. Býsna gott ástand „Almennt ástand fiskistofna á Íslandsmiðum verður að teljast býsna gott og jafnvel öfundsvert samkvæmt nýjustu ástandsskýrslu Hafrannsóknastofnunar. Sú stefna hefur verið mörkuð um árabil að fylgja svo sem kostur er vís- indalegri ráðgjöf og má fullyrða að það sé meginástæða þessa góða ár- angurs. Um þessa stefnu hefur ver- ið vaxandi samstaða í þjóðfélaginu og ekki síst meðal flestra hags- munaaðila,“ sagði í frétt frá ráðu- neytinu í byrjun júlí. Óvissa ríkir með loðnuveiðar í vetur og verður ástand stofnsins og útbreiðsla könnuð á næstu mánuð- um. Ákvörðun um heildarafla í deilistofnum miðast við almanaksár og er hennar því ekki að vænta fyrr en í vetur. Framundan eru fundalotur um ástand þeirra stofna og skiptingu afla. Veiðar á úthafsrækju verða heimilar frá og með mánaðamótum, en þær voru stöðvaðar 1. júlí þar sem afli var kominn umfram ráð- gjöf. Unnið er að nýju laga- frumvarpi um rækjuveiðar en þær voru gefnar frjálsar fyrir þremur árum. Í nýju frumvarpi verður mælt fyrir um setningu nýrra afla- hlutdeilda í úthafsrækju á þann hátt að eldri aflahlutdeildir ráði að 7/10 hlutum en veiðireynsla síðustu þriggja ára að 3/10 hlutum. Aukinn samhljómur Þegar sjávarútvegsráðherra kynnti kvótasetningu á gulllaxi, blálöngu og litla karfa í vikunni fjallaði hann nokkuð um afla- hlutdeildarkerfið eða kvótakerfið á heimasíðu sinni, sem hann sagði að löngum hefði verið þrætuepli manna í millum. „Á fyrstu áratugum kerfisins deildu menn einkum um, hvort það ætti rétt á sér, eða hvort það skyldi lagt af. Undanfarin ár hefur sú já- kvæða þróun orðið að umræðan hefur færst úr því fari í meiri sam- hljóm um að veiðistýring, sem byggist á aflahlutdeildarkerfi, hafi þrátt fyrir allt skilað góðum ár- angri,“ segir á sigurduringi.is Auknar aflaheimildir skapa mikil verðmæti Morgunblaðið/Albert Kemp Siglt inn fjörðinn Ljósafell á siglingu á Fáskrúðsfirði á sjómannadaginn. Úthlutað hefur verið til bráða- birgða aflamarki í gulllaxi, blá- löngu og litla karfa fyrir næsta fiskveiðiár. Er það í fyrsta skipti sem þessar tegundir eru kvótasettar. Til grundvallar er veiðireynsla í þessum teg- undum frá 16. ágúst 2010 til 15. ágúst 2013. Aflamark í gulllaxi á næsta fiskveiðiári er átta þúsund tonn. Brimnes RE 27 má veiða 1.321 tonn, Þerney RE 1 tæp- lega 610 tonn og aflamark Höfrungs III AK 250 er 504 tonn. Leyfilegur heildarafli í blá- löngu er 2.400 tonn. Mest kem- ur í hlut Þórunnar Sveinsdóttur VE 401 eða tæplega 133 tonn, Jóhanna Gísladóttir ÍS 7 fær tæplega 131 tonn og Kristín ÞH 157 rösk 119 tonn. Úthlutun í litla karfa miðast við 1.500 tonn og koma 282 tonn í hlut Brimness RE 27, Þerney RE 1 fær 117 tonn og Vestmannaey VE 444 má veiða rúmlega 98 tonn. Byggt á afla síðustu 3 ár Í KVÓTA Í FYRSTA SKIPTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.