Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 12
Viðtal 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2013 Í fallegri íbúð við sjávarsíðuna í Garðabæ býr Ingveldur Gísladóttir ásamt eiginmanni sínum. Ingveldur, sem er alltaf kölluð Inga, er vel til höfð, þrjósk og töffaraleg kona sem reykir Capri og hugsar lítið um það að hún sé með ólæknandi krabbamein. Hún hefur gengið í gegnum fleiri raunir en flestir og þakkar þrjóskunni, óbilandi trú á sjálfri sér og votti af hroka það að standa keik í dag. Erfiðast að gefa frá sér barn Inga er fædd á Selfossi árið 1949 en ólst upp í Vest- mannaeyjum. Sautján ára missti hún mömmu sína úr nýrna- sjúkdómi og eignaðist sitt fyrsta barn nýorðin átján ára. Ári seinna varð hún ólétt að öðru barni sem hún neyddist til að gefa frá sér þar sem barnsfaðir hennar var alkóhólisti og móðurmissirinn erfiður. „Að gefa þetta barn er erfiðasta lífs- reynsla sem ég hef gengið í gegnum. Það er ólýsanleg lífs- reynsla og fylgir manni alla ævi. Ég hugsa að ég hafi orðið hálfgeðveik í kjölfarið því ég sat á sama stólnum og prjónaði næstu sjö mánuðina.“ Inga valdi dóttur sinni góða foreldra með hjálp vinkonu móður sinnar og sendi með henni þau skilaboð að sig langaði til að kynnast henni síðar meir. Það gekk eftir og í dag eiga þær í góðu sambandi auk þess sem dóttirin, Ragna, elur upp son systur sinnar sem er látin. Lífið í Eyjum Stuttu eftir að Inga gaf Rögnu frá sér kynntist hún mann- inum sínum, Eyjólfi Péturssyni, sem var skipstjóri á togara og því lítið heima við. Sjálf vann Inga við hitt og þetta, hún rak ferðaskrifstofu, vann sem ljósmyndari, setti upp poppkorns- verksmiðju, setti á neglur og fleira. Auk þess tók hún virkan þátt í pólitík og er mikil framsóknarkona. „Ég hafði alltaf hugmyndir að verkefnum, þau komu bara til mín.“ Síðar ráku þau hjónin söluturninn Jolla í Hafnarfirði. Sam- tals urðu börnin fimm og Inga segir auðveldara að ala upp börn í Vestmannaeyjum en annars staðar. Lífið var þó enginn dans á rósum. Þrjú barnanna lentu í óreglu og það elsta, Gísli, lenti fimm ára gamall í slæmu slysi sem setti mark sitt á líf hans. Hann skaðaðist í andliti, missti sjón á öðru auga og gat illa sofið vegna martraða mánuðina á eftir. Í kjölfarið varð hann fyrir miklu aðkasti og ofbeldi frá skólafélögum og fólki í bænum sem uppnefndi hann og lagði í einelti, að sögn Ingu. „Þetta gjörsamlega rústar lífi barna og getur fyllt þau mikilli reiði.“ Gísli flutti um tvítugt frá Vestmannaeyjum en Inga og Eyjólfur árið 1993. Gekk milli lækna Fyrir ellefu árum fór Inga smám saman að finna fyrir mikilli þreytu. Að sögn heimilislæknis var þetta einungis hluti af breytingaskeiðinu og ekkert til að hafa áhyggjur af. Sömu sögu var að segja stuttu síðar þegar Ingu fór að blæða mikið en úrskurðurinn var sá að þetta væru eftirköst blæðinga. „Ég veit alveg hvernig blæðingar eru, ég er löngu hætt á blæðingum og þetta eru engin eftirköst,“ segir Inga sem gekk næstu fjögur til fimm árin milli lækna og viðurkennir að hug- urinn hafi reikað til mömmu hennar sem dó 41 árs gömul. „En af því að þeir sögðu að ekkert væri að mér og sendu mig ekki í rannsóknir píndi ég mig áfram í vinnu en fór svo bara niður í kjallara og hreinlega grét úr þreytu.“ Í ljósi reynslunnar er það mat Ingu að konur á miðjum aldri eigi ekki að fara til karllækna þar sem þeir þekki kvenlíkamann ekki af eigin raun. Nokkrir mánuðir ólifaðir Á nýársdag árið 2006 var svo komið að Inga var hætt að geta haft þvaglát og leitaði til neyðarmóttöku. Fljótt kom í ljós að hún væri með krabbamein í nýra sem var fjarlægt en hún greindist einnig með sjaldgæft krabbamein sem heitir Bellini og er hún eini Íslendingurinn sem þjáist af því. Meinið liggur upp með hryggsúlunni, beggja vegna mænu, í og við lungu og í hálsi. Á þessum tíma höfðu 143 ein- staklingar í heiminum öllum greinst með þetta krabbamein og vitað var um þrjá sem höfðu lifað lengur en þrjú ár eftir greiningu. Ingu var tilkynnt að hún ætti þrjá til fimm mánuði eftir ólifaða. „Ég sætti mig við það en ákvað rosalega margt á þessari stundu, þetta var eins konar örlagastund. Ég puntaði mig upp og fór í myndatöku hjá ljósmyndara. Ég ákvað að ferðast mikið, gera allt sem mig dreymdi um og fór hreinlega á fullt. Ég ferðaðist til Kína og gerði allt sem mér datt í hug þrátt fyrir að ég tryði því aldrei að ég væri að fara að deyja.“ Inga segist í raun aldrei hafa litið á sig sem veika þrátt fyrir að fara í lyfjagjöf á hverjum degi og hafa nokkrum sinnum verið nær dauða en lífi. „Ég hef alltaf náð að rífa mig upp.“ „Ég hef alltaf náð að rífa mig upp“ INGVELDUR GÍSLADÓTTIR HEFUR ÁTT ERFIÐA EN VIÐBURÐARÍKA ÆVI. NÚ BERST HÚN VIÐ SJALDGÆFT OG ALVARLEGT KRABBAMEIN EN LÆTUR EKKI HUGFALLAST. ERFIÐARA VAR AÐ GEFA FRÁ SÉR BARN. Edda Sif Pálsdóttir esp2@hi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.