Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2013
N
apólí hefur sýnt í
verki að þeir ætla sér
að keppa um alla
stóru titlana með því
að kaupa Argent-
ínumann frá spænsku risunum.
Setning sem hefði verið hægt að
skrifa 1984 þegar Napólí keypti
Diego Maradona frá Barcelona. Nú,
20 árum síðar, er annar Argentínu-
maður kominn í bláa búninginn frá
spænskum risum, Real Madríd.
Gonzalo Higuain ákvað að velja
Napólí í staðinn fyrir Arsenal. Þar
með fetar hann ekki aðeins í fótspor
Edison Cavani sem gekk í raðir PSG
heldur einnig í fótspor sjálfs Diego
Maradona. Maradona er sá besti frá
upphafi og hans helstu afrek á fót-
boltavellinum komu þegar hann var
leikmaður Napólí. Sagan mun vænt-
anlega dæma Lionel Messi sem þann
besta frá upphafi eftir nokkur ár.
Maradona sáttur
Maradona var sjö ár með Napólí og
vann tvo meistaratitla (1987 og 1990),
ítalska bikarinn 1987, UEFA-
bikarinn 1989, Súperbikarinn 1990 og
þá var Maradona markahæstur 1988.
En lífið var ekkert bara dans á rós-
um eins og flestir þekkja. Kókaín,
Diego Maradona er enn goðsögn hjá Napólí.
ÍBÚAR NAPÓLÍ BROSA BREITT ÞESSA DAGANA. ÞAÐ ER NEFNILEGA
KOMINN ARGENTÍNUMAÐUR Í FRAMLÍNUNA OG LIÐIÐ ER MEÐ
STJÓRA SEM KANN AÐ VINNA MEISTARADEILDINA. EFTIR GJALDÞROT
FYRIR RÚMUM ÁRATUG ER UPPGANGUR NAPÓLÍ MAGNAÐUR
tengsl við Camorra-mafíuna og svo
framvegis eyðilögðu ferilinn þó að
töfrarnir í skónum héldust. Það
breytti ekki ást Napólí á Maradona
og ekki ást Maradona á Napólí.
Nú er kominn nýr Argentínumaður
í framlínuna, allt öðruvísi leikmaður
og karakter vonandi. Meiri nía en tía.
En það breytir ekki þeirri staðreynd
að Higuain verður undir pressu því
að hann er Argentínumaður og mun
spila í Napólí. Þar með er sam-
anburðurinn kominn og hann er næg-
ur til að stuðningsmenn Napólí setja
upp sparibrosið – þrátt fyrir að hafa
misst Edison Cavani. „Ég er virki-
lega ánægður með að Higuain sé
kominn til Napólí. Ég er ánægður
fyrir hans hönd og hönd Napólí. Von-
andi gefur hann þeim þann kraft sem
þeir þurfa til að verða meistarar á
ný. Ég bið að félagið verði meistari
aftur. Þetta félag og stuðningsmenn
þess verðskulda að vera við toppinn
og með Higuain um borð er það auð-
veldara,“ sagði Maradona um komu
landa síns til síns heittelskaða félags.
Hann skaut einnig á annan landa
Gonzalo
Higuain
klæðist bláu
í vetur.
50 þúsund
manns buðu
hann velkom-
inn þegar
hann skrifaði
undir.
AFP
„Ég sagði við hann. Hermdu eftir Raúl. Lærðu hvernig hann gerir.
Þá verður þú besti framherji í heimi. Ég held að hann hafi hlustað
á mig.“ Fabio Capello.
Boltinn
BENEDIKT BÓAS
benedikt@mbl.is
Blátt tungl
í Napólí
Stuðningsmenn Napólí styðja liðið í blíðu og stríðu.
Íslenska ullin
er einstök
Sjá sölustaði á istex.is