Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 39
4.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
U
ppáhaldstíminn minn er að
fara í hönd – síðsumarið. Í
rökkrinu ríkir ákveðin
stemning. Eftir tíma
bjartra sumarnótta tekur dulúðin völd-
in og þá getur allt gerst. Síðsumrið og
haustið framkallar ógleymanleg
augnablik og ævintýri sem húðflúra
sálina með góðum minningum.
Eftir mikið neon og bera fótleggi er
alltaf eitthvað svo hressandi að hluss-
ast aftur í sokkabuxurnar og leður-
stígvélin og vefja hlýrri peysu utan um
axlirnar. Í ágúst setjum við á okkur ör-
lítið dekkri varalit (jafnvel í berjalit)
og auðvitað þykkari maskara (fyrir
þær sem eru ekki háðar augnháraleng-
ingum). Dökki varaliturinn og meira
farðaða andlitið fer betur við síðsumarið en hásumarið. Ef við værum í
síðsumarsskrúðanum um hásumar gætu menn (og konur) haldið að við
værum vaktstjórar í kampavínsklúbbi.
Þegar síðsumrið gengur í garð skiptum við um ham og breytum um
áherslur. En hvernig er best að bera sig að til að geta tekið á móti síð-
sumrinu á viðeigandi hátt? Helstu tískupæjur Bretlands segja að við
verðum að eiga klofhá stígvél, helst úr rúskinni. Það getur vel verið að
það sé rétt, það „lúkkar vel“ á þeim sem eru sirka 179 á hæð og 57 kíló,
en ekki alveg jafnvel á okkur smáhestunum. Ég mæli því með
rúskinnsstígvélum sem ná upp að hnésbót nú eða slönguskinnsstíg-
vélum. Í hausttískunni eru stríðsáraleg pils áberandi sem ná niður fyrir
hné. Við pilsin er fallegt að vera í stígvélum sem ná upp undir pilsin.
Það er svolítill Dallas-fílingur í þessu sem undirrituð fær aldrei nóg af.
Þegar ég var í Kaliforníu síðast mátaði ég grá rúskinnsstígvél frá
hinni ítölsku Prödu sem ég dauðsé núna eftir að hafa ekki keypt (þau
voru á útsölu). Þau voru reyndar ekki klofhá, en náðu alveg upp að
hnésbót og voru með fylltum hæl. Vandamálið er að ég var svo sveitt
eitthvað þarna í hitanum að það skapaðist glundroði í hausnum á mér
sem gerði það að verkum að hann fúnkeraði ekki eðlilega. Það gæti líka
verið að hagsýna húsmóðirin hafi talað í gegnum mig – get ekki greint
þar á milli. Núna er ég með nagandi eftirsjá að hafa ekki keypt þau því
þessi stígvél hefðu aldeilis gert góða hluti í lífi mínu á
síðsumarkvöldum.
Ég þekki þessa nagandi eftirsjá vel en hún tengist ávallt dauðum
hlutum – ekki tilfinningum (sem ég veit ekki hvort er gott eða slæmt).
Nagandi eftirsjáin heltekur mig yfirleitt nokkrum mánuðum eftir að ég
kem heim úr ferðalögum án þess að hafa keypt það sem mig dauðlang-
aði í. Ég gæti talið upp langan lista af fíneríi sem ég keypti ekki en
langaði í en tvennt stendur þó upp úr og það eru silf-
urglimmerskórnir frá Miu Miu sem ég keypti ekki
og Gucci-rúmteppið sem ég hnaut um í Outletti á
Ítalíu en keypti ekki. Ég á það til að spyrja mig
hvort líf mitt hefði orðið öðruvísi ef ég hefði látið
þetta eftir mér … og hvort það hefði orðið
meira stuð.
Beittustu hnífarnir í skúffunni segja að
þetta séu hreinræktaðar gerviþarfir og
stuðið hefði ekki orðið meira. Ég er þó
ekki viss. Mér finnst líklegra að kona í
glimmerskóm lendi í fleiri ævintýrum
en kannski er það bara misskilningur.
Því miður mun ég líklega aldrei komast
að því þar sem skórnir eru löngu upp-
seldir enda úr sumarlínunni
2011… martamaria@mbl.is
Settu á þig dekkri varalit.
Slöngustígvél frá Gucci.
Nagandi
eftirsjá
Dragt frá
Gucci.
Miu Miu glimm-
erskórnir sem
ég dauðsé allt-
af eftir að
hafa ekki
keypt.
Litur no. 27
frá YSL.
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Frá okkur færðu
skyrturnar þínar
tandurhreinar og
nýstraujaðar
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
ÞVOTTAHÚS
EFNALAUG
DÚKALEIGA
Góð brauð – betri heilsa
Opið: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Lengri opnunartími á Dalveginum
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Esjubrauð
Hollustubrauð sem inniheldur
m.a. íslenska repjuolíu, repjuhrat
sem og íslenskt bygg - enginn sykur
Ríkt af Omega 3